Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 46

Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 46
Uppákoman í gær- morgun er svo nýjasta viðbótin við ævintýrið… 49 » reykjavíkreykjavík  Popplandið hefur á vef sínum birt lista yfir 100 mest spiluðu lög- in á Rás 2 á árinu 2007. Margt vekur þar athygli og ekki síst sú niðurstaða að um 40% allrar tónlistar sem þar er spiluð eru af innlendum toga. Lag Sprengjuhallarinnar, „Verum í sambandi“, er sam- kvæmt listanum mest spilaða lagið árið 2007 en þar á eftir kemur lagið „Grace Kelly“ með hinum breska Mika. Annað sem vekur at- hygli er að Jónas Sigurðsson, oft kenndur við Sólstrandargæjana, deilir þeim heiðri með Sprengju- höllinni að eiga tvö lög á listanum sem verður að teljast mjög gott á lista sem Megas, Björk, Nýdönsk, Páll Óskar og fleiri ná aðeins einu lagi inn á. Athyglisverður spilunarlisti Rásar 2  Svo virðist sem popparar færi sig í æ meiri mæli inn í banka- bransann því eins og fram kemur í viðtali við Jónsa í Svörtum fötum á bls. 50 í Morgunblaðinu í dag hefur söngvarinn hafið störf hjá Glitni þar sem hann stýrir veisluhöldum bankans og öðr- um skemmti- viðburðum. Af öðrum tónlistarmönnum sem nú feta gullslegna braut banka- viðskiptanna má nefna Sölva Blöndal, fyrrver- andi Quarashi- meðlim, sem vinnur hjá grein- ingardeild Kaup- þings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi söngvara Þeys, sem starfar á sölu- og markaðssviði, og Jóa Idol og Bítl-söngvara sem sinnir markaðs- störfum hjá Landsbankanum. Í Landsbankanum í Lúxemborg er svo Þorsteinn G. Ólafsson, fyrrver- andi söngvari Vina vors og blóma, sem starfar sem miðlari. Úr poppinu í bankabransann  Einskonar upprifjunarþáttur Laugardagslag- anna verður sýndur í Sjón- varpinu í kvöld þar sem farið verður yfir hápunkta undankeppn- innar en um næstu helgi keppa svo þau þrjú lög sem sérstök val- nefnd RÚV valdi úr „wild card“- lögunum 11. Hljómar svolítið flók- ið og er það vissulega. Undan- úrslitin fara svo fram í fjórum þáttum, 19. og 26. janúar og 2. og 9. febrúar, en í þeim þáttum verða flutt þrjú lög og áhorfendur velja tvö af þeim til að taka þátt í úr- slitaþættinum, samtals átta lög. Úrslitakvöldið er svo 23. febrúar og þá kemur í ljós hvaða lag fer áfram til Serbíu. Flókin en spennandi keppni framundan Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is MENN hafa misjafnar skoðanir á kvikmyndum Eli Roth. Myndir hans hafa verið kallaðar kvalaklám og menn greinir á um hvort þær séu gagnrýni á einstaklingshyggjuna, kapítalismann, klámvæðinguna og grimmd mannsins – eða upphafning þessara vafasömu gilda. Eru myndir hans sjúkdómsgreining á samfélag- inu eða sjúkdómseinkenni þess? Öllu þessu fékk leikstjórinn að svara – en fyrst ræddum við um kvikmynda- borgina Reykjavík. Reykjavík, Keflavík og Prag „Þegar maður velur tökustað þá skipta sömu hlutir máli og þegar maður er að ferðast,“ segir Roth um hvað þurfi til að laða að sér kvik- myndatökulið. „Leikarar velja sér oft verkefni eftir því í hvaða borg tökurnar eru, þeir vilja annaðhvort vera nálægt fjölskyldunni eða ein- hvers staðar þar sem eitthvað er við að vera þegar þeir eru ekki í tökum.“ Ásamt leikstjórunum Quentin Tar- antino og Baltasar Kormáki hélt hann á fund Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og þar lagði Baltasar til að hætt yrði við fyrirhugað kvik- myndaver á Keflavíkursvæðinu og því fundinn staður í Reykjavík í stað- inn. Roth tekur dæmi af tökustað Hostel-myndanna þeirri tillögu til stuðnings. „Kvikmyndaverið í Prag er í borginni sjálfri. Leikarar vilja geta farið á kaffihús og bari og notið borgarlífsins og sofið svo út eins lengi og mögulegt er.“ Leikstjórana segir hann þurfa að vita að kvik- myndaiðnaður landsins standi á traustum grunni. Hérlent fagfólk í kvikmyndaiðnaðinum segir hann af- skaplega hæft og vinnuglatt. „En það skiptir öllu að fyrsta reynslan sé góð – orðspor borgar sem kvikmynda- borgar spyrst fljótt út og það ræður þegar tökustaðir eru valdir – og pen- ingarnir auðvitað.“ Sjálfum finnst Roth Ísland besti staðurinn til að skrifa á. „Ég fæ minn innblástur hér, hreina loftið kemur heilasellunum í gang.“ Hugmyndin að Cabin Fever, fyrstu mynd leik- stjórans, kviknaði einmitt þegar hann fékk húðsjúkdóm hérlendis og Eyþór Guðnason leikur stórt hlut- verk í fyrri Hostel-myndinni eins og frægt er orðið. „Og nú eru krakkar í Bandaríkjunum farnir að kalla „sníp- ur“ á íslensku og teikna andlit á rass- inn á sér.“ „Ég er alltaf að leita leiða til að taka upp á Íslandi,“ segir leikstjór- inn sem tók eitt atriði í Hostel 2 upp í Bláa lóninu. Hann hefur verið dug- legur að hvetja kollegana til að koma hingað og taka bíómyndir og hefur meðal annars rætt þann möguleika við leikstjóra eins og Guillermo del Toro og Rob Zombie sem hafi litist vel á. Hostel-myndirnar voru báðar teknar í Tékklandi þótt þær gerist í Slóvakíu, en myndin teldist seint raunsæ útgáfa af Slóvakíu samtím- ans. „Bandaríkjamenn vita ekkert um afganginn af veröldinni. Þetta er svo sannarlega ekki raunsönn mynd af Slóvakíu, hún byggir á stað- almyndunum sem Ameríkanar gera sér af Austur-Evrópu, fulla af göml- um bílum, ógnvekjandi gömlum köll- um og gullfallegum konum sem þrá ekkert heitar en að sofa hjá næsta Kana. Margir Bandaríkjamenn trúa þessu í einlægni, þú getur sýnt hvað sem er frá þessu svæði og Banda- ríkjamenn myndu trúa því.“ Hann segir þó að myndin hafi ekki komið illa við ferðamannaiðnaðinn í Slóvak- íu. „Það vita fæstir hvað Slóvakía er, allt sem hjálpar þeim að komast á kortið er jákvætt. Og fólk er enn að heimsækja Texas þrátt fyrir allar myndirnar um keðjusagarmorðingja þar. En þeir Bandaríkjamenn sem eru nógu vitlausir til að leggja trúnað á þessa útgáfu Slóvakíu ættu bara að halda sig heima.“ Kvalaklám og kapítalismi Orðið kvalaklám (e. torture porn) hefur gjarnan verið notað um myndir Roths, en hann segir hugtakið orðið þreytt. „Það eru allir að leita að merkimiðum. Margir gagnrýnendur eru hræddir við þessar myndir og skilja þær ekki. Svona er auðveldara fyrir þá að skilgreina þær – en hug- takið segir meira um gagnrýnandann en myndina,“ segir hann og bætir við: „Þingmenn sögðu að myndin ætti að vera bönnuð í Englandi. En þetta nota þeir til þess að sýnast á hærra siðferðisstigi en við hin – en það eru þeir sem eru að senda fólk í stríð.“ Rétt eins og stjórnmálamenn í heimalandi hans, Bandaríkjunum. „Myndirnar fjalla um dekkstu hliðar kapítalismans. Í Bandaríkj- unum er öll áherslan á peninga, ef þú vinnur þér ekki inn peninga ertu mis- heppnaður – þetta læra bandarísk börn mjög snemma. Á meðan er öll- um þessum milljörðum dollara eytt í heimskuleg stríð og hlutir eins og menntakerfið eru að fara í rúst á meðan. En Bandaríkjamönnum er kennt að slíkt skipti ekki máli. Við eigum ekki kóngafólk en við kjósum okkar eigin aðalsfólk með slúð- urtímaritunum, fólki er kennt að sé maður ríkur geti maður hagað sér hvernig sem maður vill.“ Hann segir bandarískt þjóðfélag verða sífellt einstaklingsmiðaðra og kapítalism- inn sé að koma í bakið á þeim með fylgikvillum þeirra sem eiga allt en hafa ekki tíma til neins. „Við lærum aldrei að slappa af og njóta lífsins, loks verður fólk dofið og engin efni virka lengur. En þá fara menn til Taílands þar sem þeir geta keypt sér blíðu af börnum undir lögaldri og stundað annan álíka viðbjóð,“ segir Roth og vísar í það sem hann heyrði í samtölum ríkra landa sinna, sem hann fór að heyra útundan sér eftir að hann fór að fá flug á fyrsta far- rými. „Þar fór ég að heyra hvernig þessir menn töluðu, hvernig þeir töl- uðu um kvenmenn, en ég heyrði líka hversu ríkir og óhamingjusamir þeir voru, hversu eymd þeirra var djúp.“ Hann minnist á Írak, þar þekki allir einhvern. „Fólk er að deyja og Dick Cheney verður ríkari. Sá sem á mestan pening ræður hver fær að lifa og hver þarf að deyja, það er einmitt á endanum boðskapurinn í Hostel 2. Þannig eru hlutirnir í Bandaríkj- unum. Það er eins og landið sé að rotna innan frá og engin gildi lifa af. Allir þurfa flatskjá, milljónir gamalla sjónvarpa frá okkur eru bræddar niður í Kína og í sumum kínverskum bæjum eru allar árnar mengaðar út af því. Við erum að kasta raf- eindasorpinu okkar í lönd þriðja heimsins, neysluhyggjan er að eyði- leggja umhverfið og Ameríkönum er alveg sama, svo lengi sem fyrirtækin eru að græða.“ Hann segir ástandið mun betra hér. „Út af þessu er frá- bært að koma til Íslands þar sem er þó þessi meðvitund um umhverfið. Allt er gert með tilliti til náttúrunnar á meðan aldrei er tekið tillit til nátt- úrunnar í Bandaríkjunum. Eftir 50 ár verður stríðsbrölt og mengun búin að gera út af við Bandaríkin á meðan allir munu berjast um að koma til Ís- lands. Ísland er framtíðin.“ Hrun Bandaríkjanna Eli Roth ræðir um bíóborgina Reykjavík og úrgang vestrænnar siðmenningar Morgunblaðið/Frikki Blóðrauður Eli Leikstjórinn notar ófáa lítrana af gerviblóði í myndum sín- um sem hann segir ádeilu á siðlaust bandarískt samfélag kapítalismans. » „Fólk er að deyjaog Dick Cheney verður ríkari. Sá sem á mestan pening ræð- ur hver fær að lifa og hver þarf að deyja.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.