Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 56

Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 56
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Flutningur gagnrýndur  Margrét Sverrisdóttir, varaborg- arfulltrúi F-lista, og Svandís Svav- arsdóttir, borgarfulltrúi VG, eru ekki fullkomlega sáttar við að húsin við Laugaveg 4-6 verði flutt á nýjan stað, en segja flutning húsanna þó illskárri kost en ef þau yrðu rifin. Hjörleifur Stefánsson arkitekt og Snorri Freyr Hilmarsson, formaður Torfusamtakanna, gagnrýna flutn- inginn harðlega. » Forsíða Versta byrjunin  Úrvalsvísitala kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 5,9% fyrstu tvo viðskiptadaga ársins og er þetta versta ársbyrjun íslenskrar hluta- bréfavísitölu. » 14 Obama og Huckabee unnu  Demókratinn Barack Obama sigr- aði í forvali flokks síns í Iowa í Bandaríkjunum og Mike Huckabee vann forval repúblikana. Forkosn- ingar verða í New Hampshire á þriðjudag. » 16 SKOÐANIR» Staksteinar: Er það nokkuð, Össur? Forystugreinar: Bretar bregðast við | „Vesturheimsk viðmið“ UMRÆÐAN» Á skal að ósi stemma List án aðgangseyris Sá kann ei gott að þiggja sem ei þakkar Skrímslið undir rúminu Lexíur við áramót Helvíti í Paradís Hvað varð um Vínarmenninguna? LESBÓK»  4 4 4 4 4 4  5" ,6&' / &+ , 7 &&%&  &  4 4 4 4 4 &  4 . 8 $2 '  4 4 4 4 4  4   9:;;<=> '?@=;>A7'BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA'8&8=EA< A:='8&8=EA< 'FA'8&8=EA< '3>''A%&G=<A8> H<B<A'8?&H@A '9= @3=< 7@A7>'3+'>?<;< Heitast 6 °C | Kaldast 0 °C Norðaustan 8-15 m/s og slydda eða rigning um landið austanvert. Hægari og hálfskýjað suðvestanlands. » 10 Stórsveit Nix Noltes hefur tekist í annað sinn að senda frá sér gæðaskífu að mati gagnrýnanda sem er hæstánægður. » 47 TÓNLIST» Gæðaskífa í annað sinn KVIKMYNDIR» National Treasure fær tvær stjörnur. » 53 Arnar Eggert Thor- oddsen segir sjón- varpsþættina Mæðst í mörgu vera eitur- snjalla pólitíska háðsádeilu. » 52 AF LISTUM » Mæðst í mörgu FÓLK» Lífið leikur ekki við Britney Spears. » 49 FÓLK» Jónsi er gleðigjafi hjá Glitni. » 50 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Héldu að þetta væru endalokin 2. Farþegum boðin áfallahjálp 3. Britney flutt á sjúkrahús 4. Ekki ástasenu með Vince Vaughn LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu naut aðstoðar sérsveitar ríkis- lögreglustjóra við handtöku tveggja einstaklinga í gærkvöldi eftir að annar þeirra hafði ógnað dyraverði með eggvopni, en sérsveitin er ávallt kölluð út til aðstoðar þegar vitað er um vopnaburð. Tildrög málsins voru, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni, þau að karlmanni á þrítugsaldri var vísað út af tónleikum í Laugardalshöllinni í gærkvöldi sökum þess að hann var í annarlegu ástandi og lét illa. Þessu brást maðurinn ókvæða við, dró upp hníf og lagði til dyravarðar að störf- um, sem slapp án meiðsla. Skarst á fæti við spark Í framhaldinu gekk maðurinn berserksgang fyrir utan höllina, sparkaði í og braut rúðu með þeim afleiðingum að hann skarst á fæti. Að því búnu ók maðurinn á brott ásamt 17 ára stúlku, sem einnig var í annarlegu ástandi. Á leið sinni frá Laugardalshöllinni ók maðurinn ut- an í bíl. Alls tóku fjórir lögreglubílar þátt í eftirförinni á bílnum. Maðurinn og stúlkan voru loks handtekin í Meðalholti þar sem hann var búinn að aka utan í annan bíl. Gistu fangaklefa í nótt Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni var maðurinn færður á slysavarðstofu þar sem gert var að sárum á fæti hans. Að því búnu var hann fluttur á lögreglustöð og gistir, ásamt stúlkunni, í fangaklefa í nótt. Þau verða væntanlega bæði yfir- heyrð í dag þegar víman hefur runn- ið af þeim. Málið er nú hjá rann- sóknardeild lögreglunnar sem tekur ákvörðun um framhaldið. Eftir því sem blaðamaður kemst næst urðu tónleikagestir uppákom- unnar ekki varir enda tónleikarnir enn í fullum gangi og aðeins rétt hálfnaðir þegar atvikið átti sér stað. Lagði til dyravarð- ar með eggvopni Brást ókvæða við þegar honum var vísað út af tónleikum Í HNOTSKURN »Karlmaður á þrítugsaldri íannarlegu ástandi gekk ber- serksgang þegar honum var vís- að út af tónleikum í Laugardals- höll í gærkvöldi. »Sérsveitin er ávallt kölluð úttil aðstoðar þegar vitað er um vopnaburð. ELI Roth er spenntur fyrir því að kvikmyndaver verði reist í Reykjavík og tel- ur að það gæti opnað fyrir flóð- gáttir erlendra kvikmyndagerð- armanna sem myndu hafa áhuga á að taka upp í borginni. Hann segir höfuð- borgina mun betri kost en Keflavík, því lifandi borgarlíf sé mikill kostur fyrir leikara og tökulið sem eyða stórum hluta starfsævinnar á fjar- lægum slóðum. Gagnrýninn á heimalandið og segir framtíðina vera Íslands Roth er hins vegar afar gagnrýn- inn á heimaland sitt, Bandaríkin, og telur að kapítalisminn sé á góðri leið með að steypa stórveldinu í glötun stríðsátaka, tómhyggju og meng- unar. Framtíðin sé hins vegar Ís- lands. | 46 Bíóborgin Reykjavík Eli Roth Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is ÁSTANDIÐ um borð var hræði- legt, allir öskrandi og litla stúlkan mín, tveggja ára, ældi yfir sig alla,“ segir Lilja Björk Eysteins- dóttir, sem var ásamt fjölskyldu sinni um borð í Icelandair-þotunni sem tvívegis reyndi að lenda í Keflavík í fyrrakvöld án árangurs vegna mikilla sviptivinda. Farþeg- ar urðu flestir mjög hræddir enda lætin í veðrinu mikil og tala um að flugmenn hefðu mátt verja örfáum sekúndum í að segja þeim að vélin væri ekki að nauðlenda, heldur væri í lagi með hana. Þær upplýs- ingar hafi ekki komið fyrr en vél- inni var snúið til Egilsstaða. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir að farþegar hafi aldrei verið í hættu en þegar ekki hafi verið hægt að lenda hafi verið ákveðið að snúa vélinni til Egilsstaða og biðja þar um læknisaðstoð og áfallahjálpar- teymi. Þorkell Ágústsson, for- stöðumaður rannsóknarnefndar flugslysa, segir að fyrirliggjandi upplýsingar gefi ekki tilefni til rannsóknar. | 4 „Ástandið um borð hræðilegt“ Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Skekin Lilja Björk Eysteinsdóttir hjálpar Kristjönu dóttur sinni í lánsflíkur á Hótel Héraði í gær, enda hafði sú stutta gubbað yfir sig alla við lætin í flugvélinni yfir Keflavíkurflugvelli og farangur fjölskyldunnar víðs fjarri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.