Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 19. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VÍK Prjónsdóttir er samheiti fjögurra vöru-
hönnuða og eins fatahönnuðar sem hafa í sam-
starfi við prjónastofuna Víkurprjón í Vík í Mýr-
dal þróað vörur sem frumsýndar verða í dag á
tískuviku í París. Henrik Vibskov sýnir þessar
vörur Víkur Prjónsdóttur með sinni eigin sýn-
ingarlínu fyrir 2008-2009 á Paris Fashion
Week, menswear, en hann er virtur hönnuður í
Danmörku.
sérhönnun gilda svolítið önnur lögmál en um
það sem er að keppa við Asíuframleiðsluna,“
segir Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri
Víkurprjóns. Hann segir fyrirtækið vera að
drukkna í tölvupósti erlendis frá þar sem bæði
fyrirtæki og einstaklingar kaupa umtalsvert
magn af umræddum vörum. Samt er þarna um
dýrar vörur að ræða en þær eru líka mjög
frumlegar og sækja hönnun sína í íslenskan
sagnaarf.
Önnur lögmál sérhönnunar
Eftirspurn eftir sérhönnuðum vörum Víkur Prjónsdóttur er öflug þegar búast mætti við að útflutn-
ingur léti undan vegna sterkrar stöðu krónu Vörur úr verkefninu frumsýndar í dag á tískuviku í París
Margræð | 10
Í samvinnu við Henrik Vibskov hefur Vík
Prjónsdóttir breytt aðeins útliti skegghúfu og
selshams sem hafa selst vel ásamt fleiri vörum
frá Vík Prjónsdóttur að undanförnu, bæði í
Bandaríkjunum, Englandi og víðar.
Öðru gegnir um sérhönnun en vörur í
samkeppni við Asíuframleiðsluna
„Þetta er merkilegt í ljósi hinnar sterku
stöðu krónunnar, allur annar útflutningur sem
ég hef verið með hefur orðið undan að láta við
slíkar kringumstæður. En þetta sýnir að um Sérstök Lambhúshetta með skeggi.
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
Skjöl sem leynd hefur verið létt af
sýna að Olof Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, átti náið samstarf
við Bandaríkjamenn í stúdenta-
pólitíkinni en hafnaði því að gerast
njósnari CIA.
Hafnaði njósnara-
stöðu hjá CIA
Þótt fáir viti hvernig David S. Add-
ington ĺítur út er hann helsti hönn-
uður stefnu bandarískra stjórn-
valda í stríðinu gegn hryðjuverkum
og aðferða til að taka meinta
hryðjuverkamenn af lífi.
Segir alþjóðalög
tæki hins veiklynda
Tískuhönnuðir virðast vera að átta
sig á þörfum sístækkandi hóps um-
hverfisverndarsinna. Því er spáð að
senn bjóðist flíkur í mismunandi
umhverfisvænum útgáfum.
Umhverfisvænar
tískuflíkur
SVERRIR Kristinsson hefur starf-
að að fasteignaviðskiptum í fjöru-
tíu ár og tveimur árum skemur
verið bókavörður Hins íslenska
bókmenntafélags. Fasteignir og
bækur má segja að hafi verið
hans ær og kýr en hann hefur
hug á fleiru; myndlist á sterk ítök
í honum og nú sækir tónlistin til
landvinninga í huga hans og
hjarta.
Hann merkti sér fyrstu bókina
barn að aldri með því að bíta í
kjölinn. Síðar gaf faðir hans hon-
um bókina og hann á hana enn.
Og mikið rétt – fyrsta bókamerki
Sverris Kristinssonar sézt vel á
kilinum á Andvökum Stephans G.
1939. Hann byrjaði svo að safna
bókum um fermingu og er nú einn
fremsti bókasafnari landsins og
kunnáttumaður í heimi bókanna.
Í samtali við Freystein Jóhanns-
son ber ýmislegt á góma, fast-
eignamarkaðinn auðvitað, bóka-
söfnun og bókaútgáfu, en auk
Hins íslenska bókmenntafélags
rak Sverrir eigin bókaútgáfu um
árabil og hefur vísast einn ís-
lenzkra útgefenda falað handrit af
skáldi fyrir gull. Það var þegar
hann fékk augastað á sögu
Matthíasar Johannessen um Ólaf
Thors. En Matthías hafði þá bund-
izt Almenna bókafélaginu um út-
gáfuna, sem Sverrir segist bæði
hafa skilið og virt. En gullið lét
hann ganga til útgáfu annarra
bóka.
Þegar Sverrir er spurður hvað
helzt eigi að prýða góðan fast-
eignasala svarar hann: „Menn eru
aldrei of nákvæmir í þessu
starfi.“ | 24
Sverrir Kristinsson bauð Matthíasi Johannessen gull fyrir bókarhandrit
Fagurkeri
í fasteignum
Eftir fjörutíu ár í starfi segir hann
menn aldrei vera of nákvæma
Árvakur/RAX
Fagurkerinn Fasteignir og listir eiga hug Sverris Kristinssonar allan.
VIKUSPEGILL
SUNNUDAGUR
35 ÁR FRÁ
ELDGOSI
LÖGREGLAN Í
ELDLÍNUNNI
HEIMAEY 1973 >> 30
BREYTTIR
FEÐUR
UPPELDIÐ TEKUR
ALLAN TÍMANN
Í FEÐRAORLOFI >> 28
Ivanov >> 68
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu