Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 39 Asíu og Kína með peningabirgðir til bandarísku bankanna sem tapað hafa svimandi upphæðum vegna þessarar kreppu. Og um það rætt í bandarískum fjölmiðlum að ekki sendi banda- rísku bankarnir sambærilegar þyrlubjörgunar- sveitir til annarra landa með peningabirgðir ef bankar í hinum vanþróaðri hluta heims lendi í erfiðleikum. Nú liggur við að ekki sé lengur spurt hvort efnahagslegur samdráttur sé í aðsigi í Banda- ríkjunum heldur fullyrt að svo sé eins og m.a. má sjá af því að Bush Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt um sérstakar aðgerðir til þess að koma fjármálamörkuðunum til aðstoðar. Á undan- förnum mánuðum hafa seðlabankar í Banda- ríkjunum, Bretlandi og Evrópu beitt sér fyrir aðgerðum til þess að auðvelda aðgengi bank- anna að fjármagni. Hið sama tilkynnti Seðla- banki Íslands sl. mánudag að hann mundi gera. Í þessum tilvikum er að vísu um ráðstafanir að ræða, sem tryggja bönkum aðgengi að fé til skamms tíma. En nú er það ekki bara Seðla- banki Bandaríkjanna sem lætur að sér kveða heldur forsetinn og þingið. Í Danmörku eru nú hafnar umræður um að samdráttur kunni að vera í aðsigi í efnahagslíf- inu þar. Fréttaflutningur Morgunblaðsins eða ann- arra fjölmiðla af þessum málum og áhrifum þessarar þróunar hér á landi er því ekkert ann- að en endurspeglun á því sem er að gerast í löndunum í kringum okkur og ásakanir á hend- ur fjölmiðlum hér af þessu tilefni því gersam- lega út í hött. Vandamálin hér eiga ekki rót sína að rekja til þess að íslenzku fjármálafyrirtækin séu illa rekin eða þar sitji við stjórnvölinn menn sem kunni ekki til verka. Þvert á móti er ljóst að það hefur verið unnið afrek við uppbyggingu ís- lenzku fjármálafyrirtækjanna frá því að rík- isbankarnir voru einkavæddir. Íslenzka banka- ævintýrið er raunverulegt ævintýri og þeir sem þar hafa staðið í brúnni geta verið stoltir af verkum sínum. En eitt af því sem hefur gert þeim kleift að byggja fjármálakerfið upp á þann veg sem gert hefur verið eru aðstæður á alþjóð- legum fjármálamörkuðum síðustu árin, þ.e. mikið framboð af lánsfé á mjög lágum vöxtum. Þessar markaðsaðstæður eru m.a. skýringin á því, sem gerzt hefur bæði hér og í öðrum lönd- um. Með öðrum orðum má segja að íslenzka ævintýrið hafi endurspeglað það sem hefur ver- ið að gerast í öðrum löndum. Nú er þetta breytt. Peningarnir eru horfnir ef svo má segja. Þeir hafa leitað á önnur mið. Glitnir er ekki eini bankinn í heimi sem stendur frammi fyrir því að geta ekki fengið lánsfé nema á alltof háum vöxtum. Hið sama á við um banka um allan heim. Og með sama hætti og velgengnin á alþjóð- legum fjármálamörkuðum hefur endurspeglazt hér síðustu árin eru erfiðleikar á þessum sömu mörkuðum að koma fram hér. Þess vegna er þessi þróun ekkert ásökunarefni á hendur for- ráðamönnum íslenzku bankanna og þeir eiga ekki að vera viðkvæmir fyrir því þótt fjölmiðlar á Íslandi endurspegli þennan veruleika. Þeir eiga þvert á móti að líta á fjölmiðlana hér sem samstarfsaðila í því að útskýra fyrir almenningi hvað er að gerast vegna þess að óhjákvæmilega koma þessi vandamál niður á viðskiptavinum bankanna frá degi til dags í smáu sem stóru. Og það auðveldar starfsfólki bankanna, sem sitja á gólfinu og útskýra veruleika lífsins fyrir viðskiptavinum, þeirra starf ef fjölmiðlar hafa átt þess kost að koma á framfæri áreiðanlegum upplýsingum um stöðu mála. Á Íslandi er hins vegar ótrúlega erfitt að fá upplýsingar staðfestar, ekki sízt á þessu sviði. Það væri hægt að skrifa reifarakennda bók um það hvernig sumar af þeim upplýsingum, sem birtzt hafa í Morgunblaðinu um þennan mála- flokk á síðustu mánuðum, hafa náðst. Yfirborðskenndar yfirlýsingar Þ að má ekki alhæfa í þessum efn- um. Sumir íslenzkir bankamenn eru mjög raunsæir á það sem er að gerast og hafa verið tilbúnir til að veita Morgunblaðinu og áreið- anlega öðrum fjölmiðlum upplýs- ingar sem hafa orðið til þess að skýra þessa mynd mjög, þótt þeir komi ekki fram undir nafni í þessum fréttum. Þessir menn líta svo á að það sé sjálfsagt að þessar upplýsingar komi fram. En aðrir hafa haft aðra skoðun á því hvernig eigi að fara með þessi mál í fjölmiðlum. Eins konar aukaafurð vegna þeirrar afstöðu birtist í fréttatilkynningum og öðrum tilkynningum sumra íslenzkra fjármálafyrirtækja, sem eru ekkert annað en yfirborðslegt tal um alvarleg mál sem er frekar til þess fallið að blekkja við- skiptavini viðkomandi fyrirtækja heldur en auð- velda þeim að hafa yfirsýn um málefni viðkom- andi fyrirtækis, sem nauðsynlegt er t.d. að litlir hluthafar hafi ekki síður en þeir stóru. Fyrr á árum einkenndi slíkt yfirborðslegt tal íslenzk stjórnmál og auðvitað einkennir það stjórnmálabaráttuna að einhverju leyti enn. Það eru alltaf á ferðinni stjórnmálamenn sem reyna að setja einstök mál í einhvern grímu- búning, sem er til þess fallinn að leyna því hvað er raunverulega að gerast. En hvað sem segja má um stjórnmálabaráttuna er ljóst að hún hef- ur batnað verulega að þessu leyti. Nú eru hins vegar komnir til skjalanna sér- fræðingar á sviði almannatengsla eða menn sem telja sig vera sérfræðinga og þeirra sér- þekking birtist í því að semja texta, sem birtur er í fréttatilkynningum eða öðrum tilkynning- um, sem er fjarri öllum veruleika, þegar betur er að gáð. Á köflum verður þessi texti hlægileg- ur. Og slíka texta má lesa í Morgunblaðinu nán- ast dag hvern vegna þess að blaðið birtir frétt- ir, sem berast frá fyrirtækjum. Að sinni verður ekki farið út í að nefna ein- stök dæmi til þess að rökstyðja þessar staðhæf- ingar en það gæti verið ástæða til. Það er m.a. hægt að velta því fyrir sér hvort slíkir textar geti verið brot á lögum vegna þess að fyrirtæki, sem skráð eru á markaði, eiga auðvitað að senda frá sér réttar upplýsingar en ekki upp- lýsingar sem eru settar í þann búning að þær eru líklegar til að blekkja fólk. Það er spurning, hvort það er ekki verkefni fyrir Kauphöll Ís- lands að skoða þessa textasmíð vegna þess að Kauphöllin hefur ákveðið agavald yfir þeim sem þar koma við sögu. Þetta Reykjavíkurbréf er tilraun til þess að efna til umræðu við viðskiptalífið og þó sér- staklega fjármálageirann um þessi mál. Það er eins og að vera enn í leikskóla eða að vera að leika sér í sandkassa eða að standa úti í drullu- polli og kasta drullu hver framan í annan að standa í umræðum við alvöru fólk í alvöru fyr- irtækjum um það, hvort segja eigi fréttir í opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi um málefni sem geta verið erfið og óþægileg og hlusta á tal um það að dagblað, sem hefur því hlutverki að gegna að veita lesendum sínum upplýsingar, sé að reyna að „kynda undir“ óróa eða auka á erfiðleika með því einu að birta fréttir um það sem er að gerast. Að ekki sé talað um þá tilhneigingu sem verður vart að refsa viðkomandi fjölmiðli með því að hætta að auglýsa í þeim sama fjömiðli! Þannig unnu sumir forráðamenn ríkisfyrir- tækja áður fyrr. Ætli hinir ungu ofurhugar í viðskiptalífinu telji þá eftirsóknarverða fyrir- mynd! Það er hægt að tala um þessi mál í léttum tón eins og hér er gert en undir yfirborðinu eru alvarlegri hlutir á ferð sem geta leitt til þess að löggjafarvaldið sjái sig knúið til að setja löggjöf sem verndi fjölmiðlana til þess að tryggja að þeir verði sá opni vettvangur frjálsra umræðna sem þeir eiga að vera og er þeirra hlutverk. »Er það raunverulega skoðun þeirra, sem hafa aðundanförnu gagnrýnt Morgunblaðið fyrir þennan fréttaflutning, að það eigi að þegja um þessar svipt- ingar?! Halda þeir í raun og veru að á tímum gervi- hnattasjónvarps og nets sé hægt að halda upplýsingum um þessa þróun leyndum fyrir íslenzkum almenningi?! rbréf Árvakur/Frikki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.