Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Og mundu svo að segja hátt og skýrt ef þú tapar: „Ég er ekki skarpari en íslenskur for- sætisráðherra.“ VEÐUR Nú eru Íslendingar ekki lengur að-aleigendur að Nyhedsavisen í Danmörku heldur Danir. Það var áreiðanlega skynsamleg ráðstöfun hjá forráðamönnum Baugur Group að losa sig út úr þeirri stöðu að vera aðalábyrgðarmenn þessarar útgáfu.     Það hefur reynzt flóknara en ís-lenzkir útgefendur Nyheds- avisen töldu að flytja út til annarra landa dreifingarhugmynd Frétta- blaðsins.     ÍDanmörku er talið að það sé aðmeðaltali einn lesandi að hverju blaði sem dreift er í hús en tveir á hvert blað sem dreift er með öðrum hætti.     Í dönskum blaðaheimi er talað umað útgáfa Nyhedsavisen og ann- arra sambærilegra fríblaða kosti um 13 milljónir íslenzkra króna á dag. Berlingske Tidende heldur því fram að tapið á síðasta ári hafi numið um fimm milljörðum króna og muni nema nálægt 9 milljörðum á þessu ári.     Þórdís Sigurðardóttir, fram-kvæmdastjóri fjölmiðla- og tæknisviðs Baugur Group, segir hins vegar að félagið hafi engu tapað á danska blaðinu. Ekki verða þau orð hennar dregin í efa.     Engu að síður hafa íslenzkir eig-endur Nyhedsavisen talið eft- irsóknarvert að aðrir taki við því að leit að nýjum eigendum hefur staðið yfir frá því sl. haust.     Fyrir því hljóta þá að vera aðrarástæður en tap á rekstri.     En afrek að finna nýja eigendur. STAKSTEINAR Af dönskum blaðamarkaði SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                           * (! +  ,- . / 0     + -               !        " " #"  # " " #"  #    12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                      :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? #    #  #  #   # #  #  #    #   #   #   #    #   #   #  #                             *$BCD  """                    ! " #              *! $$ B *!   $ % &" "%"    '!( ' <2  <!  <2  <!  <2  $& ")*+", '- D2 E                      F8   F87  $        %   &'     (   ' " 6  2  $) *+,   -       $  .     /   ) " $ !  $. *+,    &" (      B  )    * ,      &        !   &' " #   0     '   /       &  " ./ " "'00'"! "1 '  !'")* Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sveinn Ingi Lýðsson | 19. janúar Óánægja á Álftanesi Það er kostulegt að fylgjast með brölti bæj- arstjórans á Álftanesi þessa dagana. Núna lætur hann sig hafa það og segir allt vera í himnalagi og lukkunnar velstandi í því ágæta sveitarfélagi Álftanesi og ræðst að Magnúsi Steph- ensen og sakar hann um rangfærslur. Magnús hafði skýrt í blaðaviðtali frá megnri óánægju íbúa við Suðurtún vegna auglýstra breytinga á aðal- og deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness. Meira: sveinni.blog.is Sigurður K. Kristjánsson | 19. jan. Las ekki gögnin Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, lýsti því yfir í umræðum á Al- þingi á miðvikudaginn að hann væri ósam- mála niðurstöðu Árna M. Matthiesen, fjármálaráðherra og setts dómsmálaráðherra, að skipa Þorstein Davíðsson í embætti héraðs- dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands. Í sömu andrá lýsti Lúðvík því yfir að hann hefði ekki lesið gögn málsins. Meira: sigurdurkari.blog.is Hrannar Baldursson | 19. janúar Í minningu Fischers Hann var sjálfum sér verstur en átti litríkan feril og heimurinn […] og Ísland væri án nokk- urs vafa mun fátækara án hans. Ég hef oft kíkt yfir skákirnar hans og dáðst að hugrekkinu og dirfskunni sem hann komst upp með yfir skák- borðinu. Mig grunar reyndar að hann hafi ekki gert skýran greinarmun á þeim hugsunarhætti sem góður ár- angur í skák krefst og þeim ólíka hugsunarhætti sem þörf er á til að ná árangri í lífinu sjálfu. Meira: don.blog.is Sigurjón Þórðarson | 19. janúar Af kynnum af Fischer og ferð til Siglufjarðar Bobby Fischer setti mark sitt á skáklíf heimsins og sömuleið- is íslenskt þjóðlíf síð- ustu fjóra áratugi, allt frá því að heimsmeist- aramótið var haldið hér árið 1972, í skákeinvígi aldarinnar í Laugardalshöll. Fischer lenti í ótrúlegum væringum gagnvart bandarískum stjórnvöldum vegna brota á viðskiptabanni þegar hann tefldi í fyrrum Júgóslavíu. Þær hremmingar skoluðu honum hingað til Íslands eftir langa dvöl í jap- önskum fangelsum. Ég kynntist kappanum aðeins per- sónulega þegar ég fiskaði hann upp þar sem hann sat á bekk fyrir utan Kjörgarð á Laugaveginum í sumar sem leið. Ég tók hann tali en þar sat meist- arinn klæddur til útiveru með vasaút- varp, sem hann hlýddi á BBC í, og þrjá farsíma. Ég bauð honum að borða með mér kjúkling úr Melabúðinni meðan við sátum og ræddum landsins gagn og nauðsynjar og heimsstjórnmálin. Það er óhætt að segja að það samtal hafi tekið á sig skringilegt flug og dýfur og ég, sveitamaðurinn Sigurjón, átti fullt í fangi með að fylgja meistaranum eftir. Umhverfismál voru honum mjög of- arlega í huga og bandarísk stjórnvöld sem hann taldi sitja á svikráðum við sig. Við vinirnir, Valgeir Tómas Sigurðs- son og ég, komum því til leiðar að Fischer fór í lystireisu í sumar með Valgeiri norður til Siglufjarðar þar sem Fischer og japönsk vinkona hans áttu góðar stundir í nokkra daga. Hann gat verið skemmtilega kenj- óttur og það sem honum þótti hvað skemmtilegast á Siglufirði og taka öðru fram var hafragrauturinn sem hann gat látið ofan í sig í ómældu magni. Ísland er fátækara land þegar Fischer er fallinn frá. Við getum verið stolt af því að hafa tekið vel á móti honum og létt honum síðustu æviár- in. Vinir hans sem komu því til leiðar að hann fékk íslenskan ríkisborg- ararétt eiga þökk skilda. Meira: sigurjonth.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR LEIKSKÓLARÁÐ Reykjavíkur úthlut- aði almennum styrkj- um og þróunar- styrkjum að andvirði 16 milljónum kr. á fundi sínum 16. jan- úar síðastliðinn. Hæstu styrkirnir renna til Myndlista- skóla Reykjavíkur og þriggja leikskóla sem eru í samstarfi um sjónmennt og til Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna við KHÍ. Myndlistaskól- inn og leikskólarnir Dvergasteinn, Gull- borg og Tjarnarborg fengu 3,5 milljónir króna til að tengja saman skapandi starf í leikskóla og nám í sérskóla þar sem unnið er út frá tvívíðri og þrívíðri nálgun. Rannsókn- arstofa í menntunarfræðum yngri barna fékk 2 milljónir kr. til að efla rann- sóknir á menntun og uppeldi ungra barna. Jafnframt fékk stofan eina og hálfa milljón króna í þróunarstyrk til samstarfsverkefnisins Raddir barna, sem miðar að því að kanna viðhorf ungra barna á ýmsum þáttum í daglegu lífi þeirra og skólagöngu. Þá fengu SARE-samtökin styrk upp á eina og hálfa milljón króna vegna miðstöðvar fyrir endurnýtanlegan efnivið til skapandi leikskólastarfs. Alls úthlutaði leikskólaráð styrkjum til 21 verkefnis. Markmið almennra styrkja leikskólaráðs er að styrkja verkefni og starf- semi sem styður við eða stuðlar að bættu leikskólastarfi í Reykjavík. Þróun- arstyrkir renna til verkefna sem stuðla að rannsóknum og nýbreytni í upp- eldisstarfi, segir í fréttatilkynningu. Leikskólaráð Reykjavík- ur úthlutar styrkjum Að leik Krakkar úr Dvergasteini blanda litum. Árvakur/G. Rúnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.