Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRETTÁN þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, þrír þingmenn
Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur,
Árni Páll og Einar
Már, og einn fram-
sóknarmaður, Birkir
Jón, höfðu frumvarp
um sölu áfengis í
matvöruverslunum
sem forgangsmál á
fyrstu dögum alþingis
sl. haust. Síðan gerð-
ist það óvænta og
hlýtur að teljast
óhæfa, að Guðlaugur
Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra, sem
á að standa vörð um
lýðheilsu landsmanna,
lýsir yfir stuðningi við þetta frum-
varp, þótt opinberar stofnanir og
margir aðrir, sem láta sig varða
heilsuvernd almennings og velferð
ungmenna, mæli eindregið gegn
framgangi þess.
En furðulegast er, að heilbrigð-
isráðherra og flytjendur málsins á
alþingi tala um áhuga sinn á for-
vörnum í fíkniefnamálum, meðan
þeir vilja með frumvarpi sínu
ryðja úr vegi þeirri mikilvægu og
viðurkenndu forvörn að takmarka
aðgengi að áfengi, því fíkniefni,
sem er hvað hættulegast. Þetta
kallast að vera sjálfum sér ósam-
kvæmir og sýna tvískinnung.
Aðaltalsmaður áfengisfrum-
varpsins, Sigurður K. Krist-
jánsson, segir í grein í Mbl. 1.
nóv. sl., sem áður var vitað, að
bakland hans og annarra áhuga-
manna um sölu áfengis í versl-
unum séu samþykktir og stefna
Sjálfstæðisflokksins, sem lands-
fundur flokksins hafði markað.
Ekki þarf að eyða hér mörgum
orðum að því, hversu skaðleg sú
stefna er, eins og rækilega hefur
verið rökstutt í mörgum greinum
að undanförnu í Mbl. En þar er
kjarni málsins eins og margar
rannsóknir staðfesta, að áfeng-
isneysla mundi aukast verulega, ef
hægt verður að nálgast áfenga
drykki í matvörubúðum, og um
leið vaxa það margvíslega tjón,
sem vínið veldur.
Hörð mótmæli.
Meðal þeirra fjölmörgu, sem
mótmælt hafa þessu áfeng-
isfrumvarpi, eru samtök lækna og
hjúkrunarfræðinga, sem hvað best
þekkja afleiðingar áfengisdrykkju
á heilsu fólks. Þá hafa einnig
nefndir á vegum hins opinbera,
sem láta sig varða velferð ung-
menna, eindregið
mótmælt frumvarp-
inu. Þannig hefur
bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar nær sam-
hljóða samþykkt að
taka undir mótmæli
forvarnarnefndar
bæjarins gegn frum-
varpinu. Athygli vek-
ur og ætti mörgum að
vera til umhugsunar,
að kvenfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, Rósa
Guðbjartsdóttir, var
eini bæjarfulltrúinn,
sem vildi ekki standa að þessari
samþykkt.
Það verður sorglegt ef flutn-
ingsmenn frumvarpsins taka ekki
til greina réttmætar ábendingar
og rökstudd mótmæli. Ef afstaða
þeirra til málsins er látin ráðast af
því, að „það sé svo þægilegt að
geta nálgast vínið um leið og kjöt-
ið er keypt í sunnudagssteikina“,
eins og einn flutningsmanna á að
hafa komist að orði, er það full-
komin léttúð og sjálfselska, sem
engum þingmanni sæmir. Enda
virðist því miður vera svo, að „það
er eins og flutningsmenn frum-
varpsins séu tilfinningalausir og
geri sér enga grein fyrir því um
hvað áfengisvandamálið snýst“
eins og komist er að orði í for-
ystugrein Mbl. 16. okt. sl.
Hlutverk kvenna
Það er annars mjög dapurlegt,
að í hópi flutningsmanna þessa
áfengisfrumvarps skuli vera fimm
þingkonur Sjálfstæðisflokksins. Á
árum áður stóðu konur úr öllum
flokkum yfirleitt saman í barrátt-
unni gegn áfengisbölinu og höfðu
þar mikil og jákvæð áhrif.
Nýlegar erlendar rannsóknir
sýna og staðfesta að sérstakar
hættur fylgja áfengisnotkun
kvenna. Þannig segir t.d. yf-
irlæknir Ríkissjúkrahússins í
Kaupmannahöfn í viðtali í Mbl. 26.
okt. sl., að „áfengið sé lang-
skaðvænlegast fyrir fóstur af öll-
um vímuefnum“. Og ennfremur
sagði sami læknir:
„Jafnvel mjög lítið áfengismagn
getur valdið fósturskaða.“
Það ætti að vera brýnt hlutverk
kvennasamtaka á nýju ári að beita
sér gegn áfengisfrumvarpinu og
hvetja konurnar fimm, sem standa
að flutningi þess, til að hverfa frá
stuðningi sínum við þetta óþurft-
armál. Og þar sem konur hafa á
síðari árum í mun ríkari mæli en
áður leitað sér hjálpar vegna
áfengisvanda yrði aðgengi að
áfengi í almennum verslunum til
þess eins fallið að auka umfang
þess vandamáls.
Hvað segja kjósendur
Sjálfstæðisflokksins?
Margir kjósendur Sjálfstæð-
isflokksins hljóta að hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum, þegar
stuðningi þeirra við flokkinn er
beitt í skjóli frelsis án ábyrgðar til
að stuðla að auknum áfengisvanda,
láta gróðann af sölu áfengis renna
til stórmarkaða og annarra einka-
aðila, en almenningi síðan gert að
bera og greiða tjón sem getur
hlotist af völdum áfengis. Þessari
skaðvænu áfengisstefnu Sjálfstæð-
isflokksins ættu kjósendur, sem
henni eru mótfallnir, að andmæla
kröftuglega og koma í veg fyrir
framgang hennar.
Þá ber sérstaklega að harma, að
þingmenn úr röðum Samfylking-
arinnar skuli ljá lið þessu stefnu-
máli Sjálfstæðisflokksins. Sá
stuðningur er í andstöðu við minn-
ingu og baráttu margra frumherja
jafnaðarstefnunnar hér á landi.
„Fíkniefnin eru einn ömurleg-
asti vágestur nútímasamfélags,“
sagði forsætisráðherra, Geir H.
Haarde, á alþingi 27. nóvember sl.
Undir það skal vissulega tekið. En
þegar talað er um fíkniefni er ekki
hægt að undanskilja áfengið, sem
mestum skaða veldur. Allir ábyrg-
ir þingmenn ættu að fella þetta
hættulega áfengisfrumvarp.
Skaðvæn áfengisstefna
Sjálfstæðisflokksins
Árni Gunnlaugsson fjallar um
frumvarpið um sölu áfengis í
matvöruverslunum
» Það er annars mjögdapurlegt, að í hópi
flutningsmanna þessa
áfengisfrumvarps skuli
vera fimm þingkonur
Sjálfstæðisflokksins.
Árni Gunnlaugsson.
Höfundur er lögmaður í Hafnarfirði.
Laufengi 15 - Bílskýli - Laus
Opið hús í dag milli kl. 14 og 15
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R
Mjög góð og snyrtileg, 4ra herbergja, 93,5 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í fjöl-
býlishúsi. Fallegt og nýlegt parket á gólfum, snyrtilegt eldhús og björt
stofa með útgangi út á suðursvalir. Þrjú góð svefnherbergi og baðher-
bergi með glugga og tengi fyrir þvottavél. Sérinngangur frá svölum og
opið bílskýli fylgir eigninni. Eignin er laus við kaupsamning. Verð 25 millj.
Inga Kristjánsdóttir sölumaður tekur vel á móti gestum.
Teikningar á staðnum.
Vallarbarð 4 - Hafnarfirði
Opið hús í dag milli kl. 15 og 16
Glæsilegt og vel staðsett ca 178 fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
ca 34 fm frístandandi bílskúr, samtals ca 212 fm. Neðri hæð skiptist í for-
stofu, hol, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og þrjár stofur. Efri
hæð skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi og stórar svalir. Parket
og flísar á gólfum. Fallegur garður í rækt með stórum sólpalli og skjól-
veggjum. Hellulögð aðkoma með hita í stéttum. Verð 53,5 millj.
Albert og Elísabet taka vel á móti gestum. Teikningar á staðnum.
Blásalir 5 Kóp. - Bílskúr
Opið hús í dag milli kl. 14 og 15
Mjög glæsileg og rúmgóð, 4ra herbergja, 124 fm íbúð á 2. hæð (efstu)
með sérinngangi ásamt 33 fm bílskúr í Kópavogi. Íbúðin er öll fallega
innréttuð með samstæðum innréttingum, þremur rúmgóðum svefnher-
bergjum og tveimur flísalögðum baðherbergjum. Annað baðherbergi er
inn af hjónaherbergi. Glæsileg, rúmgóð og björt stofa með mikilli lofthæð
og útgangi út á rúmgóðar suðursvalir. Þá eru einnig svalir frá hjónaher-
bergi til norðurs. Rúmgóður bílskúr með hita og rafmagni. Verð 40,9 millj.
Böðvar tekur vel á móti gestum. Teikningar á staðnum.
Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI
m
bl
.9
61
11
8
HVASSALEITI M/AUKAÍBÚÐ Í LEIGU
GLÆSILEGT PARHÚS - LAUST STRAX - Opið hús í dag
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
M
b
l 9
61
24
2
Til sölu þetta reisulega 336 fm parhús á þessum eftirsótta stað. Um er að ræða tvílyft hús með tvær jafnstórar
hæðir ásamt jarðhæð/kjallara með sér fullbúinni 3ja herb. íbúð með sérinngangi/einnig innangengt. Er í útleigu
með mjög góðum leigutekjum. Vandaðar innréttingar, gólfefni og tæki. Stór herbergi og stofur. Suðursvalir og
suðurgarður með sólpöllum og skjólgirðingum. Hiti í hellulögðu bílaplani. Stutt í alla þjónustu. Húsið er til
afhendingar strax. Uppl.Ólafur B Blöndal í 6-900-811.
Ólafur B Blöndal sýnir húsið í dag á milli kl. 14-15
OPIÐ HÚS
Eiðistorg 9 - Seltjarnarnesi
Glæsileg 3ja-4ra herbergja íbúð á
2. hæð, íbúð 201.
Sérlega glæsileg og mjög mikið
endurnýjuð 110,2 fm 3ja-4ra her-
bergja útsýnisíbúð á annarri hæð í
góðu fjölbýlishúsi á þessu eftirsótta
stað. Eigninni fylgir mjög gott stæði í
bílageymsluhúsi.
Verð 29,9 m. Áhvílandi 26,5 m góð lán frá SPRON, 4,95% vextir.
Eignin er laus og til afhendingar strax.
Valdimar og Ásta taka vel á móti gestum í dag sunnudag
milli kl. 13:00 og 15:00.