Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.01.2008, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A lþingisreiturinn er í hjarta Reykjavíkur. Um áratugi hafa sérfræð- ingar og sauðsvartur al- múginn velt því fyrir sér, hvað skuli vera á reitnum. Milli 1920 og 1930 sóttu góðtemplarar á að fá að reisa sér bindindishöll, þar sem nú er bílastæði sunnan við Alþing- ishúsið, en forsetar sáu lengra fram og stöðvuðu framkvæmdir, guði sé lof. Ég hef heyrt ótal hugmyndir um skipulag reitsins. Ein er sú, að á jarðhæð yrði fjöldi verslana og veit- ingahús, en efri hæðirnar nýttust Al- þingi. Þá færðist líf í tuskurnar og miðbæinn. Alþingi hefur eignast allan reitinn nema Oddfellowhúsið. Fyrir 1990 hafði borgin gefið Oddfellowreglunni kost á að byggja á svokölluðum Sig- túnsreit og var þá hreyft þeirri hug- mynd, að Alþingi keypti húsið. Því var aldrei fylgt eftir og niðurstaðan varð sú, að Oddfellóar féllu frá ný- byggingaráformum sínum en end- urbættu hús sitt og stækkuðu. Þá höfðu þeir makaskipti við Alþingi um breytt lóðamörk, sem nýttist þeim og Alþingi við byggingu Skálans. Þannig hafa málin staðið síðan, að Odd- fellowhúsið hefur ekki verið til sölu. Þorvaldur Garðar Kristjánsson var forseti Sameinaðs þings fyrir tveim áratugum. Hann var atkvæðamikill í störfum sínum og lét sig veg Alþingis mjög varða. Hann efndi til verðlauna- samkeppni meðal arkitekta um skipu- lag reitsins, en áður hafði hann látið skilgreina í einstökum atriðum, hverjar þarfirnar væru fyrir húsa- kynni og starfsemi í þeim. Sigurður Einarsson arkitekt átti þá tillögu, sem verðlaunuð var. Gert var ráð fyrir miklum bygg- ingum á alþingisreitnum, en fram- kvæmdinni fylgdu skipulagsleg álita- mál, sem örðugt reyndist að greiða úr. Skriður komst þó á málið fyrir áratug, þegar Ólafur G. Einarsson forseti Alþingis ákvað að taka Skál- ann út úr, sem allir eru samdóma um að sómi sér vel þar sem hann stendur við hlið Alþingishússins. Ég átti síðan fundi með borgarstjórum R-listans meðan ég var forseti Alþingis, en hvorki gekk né rak. En sem betur fer er málið aftur komið á skrið. Ég sé ástæðu til að óska forseta Alþing- is, þingmönnum og starfsmönnum Al- þingis til hamingju með það. Og nú gerist það að aftur er komin upp sú staða, að Oddfellóar hyggja á nýbyggingu, og nú á landi sínu við Urriðavatn. Og því vaknar spurn- ingin hvort þeir vilji selja Alþingi Oddfellowhúsið. Á það verður að reyna. Það yrði vissulega góður kost- ur, því að eignarhlutur Alþingis á PISTILL » Þá höfðu þeir maka- skipti við Alþingi um breytt lóðamörk, sem nýttist þeim og Alþingi við byggingu Skálans. Halldór Blöndal Alþingi og Oddfellowhúsið reitnum er ólánlegur í laginu og gef- ur lítið svigrúm. Endurskoðun á byggingaráformum Alþingis með þetta í huga ætti ekki að taka mikinn tíma. Og þá yrði vel fyrir húsnæð- isþörf þess séð til langrar framtíðar litið. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is Í HNOTSKURN »Fyrrum þingmaður Fram-sóknarflokksins hefur vakið athygli á orðrómi um fatakaup flokksforystunnar í Reykjavík á kostnað flokksins. » Framkvæmdastjóri flokksinskannast ekki við neitt slíkt. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÉG tók við starfi framkvæmdastjóra um áramótin 2006-2007 og ég kannast ekki við þetta frá þeim tíma og ekki heldur frá tíð forvera míns, “ segir Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins, um orð- róm um að forystumenn flokksins í Reykjavík hafi keypt sér föt á kostnað flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingar, líkt og Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrum þingmaður Framsóknar- flokksins, segir að hafi gengið innan flokksins. Í bréfi, merkt trúnaðarmál, sem Guðjón Ólafur sendi til flokksfélaga sinna í Reykjavík, dagsett 15. janúar síðastliðinn, talar hann um versnandi stöðu flokksins, sérstaklega í Reykja- vík, og að nú þurfi „menn að taka höndum saman eigi að takast að rífa hann upp úr þeim djúpa öldudal sem hann er nú í.“ Þar segir jafnframt að misklíð meðal framsóknarmanna hafi leitt til áhugaleysis flokksmanna. Guðjón víkur einnig að orðrómi sem hafi gengið innan Framsóknar- flokksins um „að forystumenn okkar í borgarstjórn hafi fyrir borgarstjórn- arkosningarnar 2006 keypt sér föt fyrir hundruð þúsunda á kostnað flokksins“. „Mér finnst þetta sorglegt og ekki til að auka traust fólks á pólitísku starfi eða laða fólk til fylgis við stjórn- málaflokka þegar málflutningur og skeytasendingar eru með þessum hætti,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknar- flokksins í Reykjavík, í samtali við Morgun- blaðið. „Ég ætla ekki að svara þessu á op- inberum vettvangi því mér finnst það segja sína sögu að bréfritari kjósi ekki að afla sér upplýs- inga, heldur setji mál- ið fram með þessum hætti í bréfum í þúsunda tali,“ segir Björn Ingi. Guðjón Ólafur Jónsson segist hafa sent bréfið út til að þakka fyrir þann stuðning sem hann hafi fengið á með- an hann var þingmaður flokksins og til að setja fram hugleiðingar um stöðu Framsóknarflokksins í Reykja- vík „og ég held að það sé full ástæða til að ræða hana, það hafa margir haft samband og fagnað því að ég hafi sett þá umræðu í gang,“ segir Guðjón. Hann segist hafa sent bréfið út sem trúnaðarmál og treyst flokksmönnum til að fara með það sem slíkt. Varð- andi hlutann um orðróm vegna fata- kaupa „vildi ég vekja athygli á því að þetta væru hvimleiðar sögur, en það hafa einnig gengið sögur um mig og aðra,“ segir Guðjón. Hafnar orðrómi um fata- kaup Framsóknarflokksins Sigfús Ingi Sigfússon Guðjón Ólafur Jónsson Björn Ingi Hrafnsson JÓHANNES Einarsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði, gangsetti Reykdalsvirkjun með form- legum hætti á föstudag. Jóhannes er barnabarn Jó- hannesar J. Reykdals sem reisti fyrstu vatnsaflsvirkj- unina er dreifði rafmagni til almennings á Íslandi og var hún gangsett árið 1904. Reykdalsvirkjun, sem er smá í sniðum, verður nýtt til upplýsingar og fróðleiks fyrir almenning og til kennslu um vistvæna orku. Árvakur/Frikki Vatnsaflsvirkjun nýtt til fróðleiks AÐ mati nefndar sem menntamála- ráðherra skipaði vegna menntunar- mála fanga er það sláandi hve margir fangar hafa ekki lokið neinu formlegu námi. Leggur nefndin til ýmiss konar úrbætur til að bæta menntun fanga, m.a. aukinn aðgang fanga að netinu og starfsnámi utan fangelsanna. Nefndin var skipuð af menntamála- ráðherra vorið 2006 til að vinna að stefnumótun í menntunarmálum fanga. Í skýrslu nefndarinnar er vísað til rannsóknar á menntun fanga sem sýnir að rúmlega þriðjungur fanga hefur ekki lokið neinu formlegu námi. Þar af séu 16 fangar sem ekki hafi lokið grunnskólanámi. „Sláandi er hve margir fangar hafa ekki lokið neinu formlegu námi og vekur það áleitnar spurningar um hvort skóla- kerfið hafi brugðist þessum hópi,“ segir m.a. í skýrslunni. Bendir nefnd- in á að skv. rannsóknum vilji mikill meirihluti fanga sem ekki séu í námi hefja nám. Flestir vilji þeir í nám við framhaldsskóla og komast á iðnnáms- samning. Hefur fyrirbyggjandi áhrif Það grundvallarsjónarmið sem nefndin leggur til grundvallar niður- stöðum sínum er að nám í fangelsi, ásamt öðrum meðferðarúrræðum sem í boði eru, gegni lykilhlutverki í endurhæfingu fanga. Menntun hafi fyrirbyggjandi áhrif og því þurfi að hvetja fanga til að nýta tímann í fang- elsi til náms og þeim standi til boða kynning á námsmöguleikum, mat á fyrra námi, mat á raunfærni, áhuga- sviðsrannsókn o.fl. Stuðla þurfi að auknu námsframboði innan fangels- anna. Að mati nefndarinnar er erfitt að stunda nám nema nemendur hafi að- gang að netinu. Er því lagt til að tak- mörkuð nettenging verði í öllum fang- elsum, sem eftirlit verði haft með, en frjálsari aðgangur í opnari fangelsum eins og Kvíabryggju. Mikilvægt sé að bæta aðstöðu til verknáms og starfs- þjálfunar og föngum sem kjósi að stunda verknám verði gefið tækifæri, að undangengnu áhættumati, til starfsþjálfunar utan fangelsis uppfylli þeir tilteknar kröfur. Bæta þarf mennt- un í fangelsum Nefndin telur að spyrja þurfi hvort skólakerfið hafi brugðist föngunum Árvakur/Brynjar Gauti Menntunarskortur Fangar vilja menntast en bæta þarf aðstæður. FASTEIGNAMAT húsa og lóða er nú í fyrsta sinn hærra en bruna- bótamat frá því Fasteignamat rík- isins hóf að gera brunabótamat fasteigna. Samkvæmt nýrri fasteignaskrá frá 31. desember 2007 var heild- arfasteignamat á landinu öllu 4.065 milljarðar kr. Þar af var húsmat 3.345 milljarðar og lóðarmat 720 milljarðar. Fasteignamat hækkaði samtals um 18,5% frá fyrra ári. Brunabótamat fasteigna var 3.876 milljarðar og hafði hækkað um 9,5% frá fyrra ári. Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, sagði þess- ar tölur endurspegla öra verðþróun fasteigna og lands hér á landi und- anfarin ár. Dregið hefði saman með fasteignamati og brunabótamati undanfarin ár. Ástæðan væri sú að verð fasteigna hefði hækkað hraðar en byggingarkostnaður um nokk- urra ára skeið. Þá hefði verð á landi og lóðum einnig hækkað mik- ið. Fasteignamat eignar endurspegl- ar gangverð hennar en brunabóta- matið á að endurspegla endurbygg- ingarkostnað eignar eftir bruna, að teknu tilliti til ákveðinna afskrifta. Fasteignamat í fyrsta sinn hærra en brunabótamat               !" # $ "% & %" (% ) ")!   %" # " )!    *+ , + + *  +* , -!     *.,   
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.