Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 10
10 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Vík Prjónsdóttir Egill Kalevi Karlsson, Brynhildur Pálsdóttir, Hrafnkell Birgisson og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir. Einnig stendur Þuríður Rós Sigurþórsdóttir að verkefninu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
V
ík Prjónsdóttir er margræð
persóna, ef svo má segja. Hún
er samansett úr fimm manns-
hugum sem sameinað hafa
hugarflug sitt. Á Seljavegi 2
eru fjórir persónuleikar Víkur
samankomnir en sá fimmti er í
New York. En hvernig byrjaði
þetta allt saman?
„Ég þekkti til Víkurprjóns og Þóris fram-
kvæmdastjóra þeirrar prjónastofu. Eftir nám
erlendis fékk ég þá hugmynd að kalla saman
nokkra hönnuði og þróa nýjar vörur fyrir Vík-
urprjón,“ segir Hrafnkell Birgisson. „Við 5
saman myndum hina „hugmyndaríku“ Vík
Prjónsdóttur sem vissi þó hreint ekki hvað hún
væri að fara út í þegar þetta byrjaði. Með Vík-
urprjóni fékk Vík Prjónsdóttir styrk frá Impru
– nýsköpunarmiðstöð eða Iðntæknistofnun sem
þá hét, annars hefði ekki verið farið út í þetta.“
Vík Prjónsdóttir hóf svo að grúska og leita
uppi hugmyndir. Þjóðsögurnar urðu hinn hug-
myndafræðilegi vettvangur, Vík langaði til að
vinna á grundvelli upprunans. Vík fór að skoða
þjóðsögur sem tengdust svæðinu og myndir af
umhverfinu. Selshamurinn á t.d. rætur í sög-
unni um konuna sem týndi selsham sínum, gift-
ist manninum sem fann hann og eignaðist með
honum 7 börn. En svo fór hann að heiman og
læsti ekki haminn inni – hún fór í hann og hvarf
í sjóinn, þar átti hún víst líka 7 börn – hún hefur
ekki sést síðan en sagt er að afkomendur henn-
ar hafi verið sérlega fisknir.
Í eigin persónum
Vík Prjónsdóttir fór í eigin fimm persónum til
Víkur í Mýrdal og drakk í sig áhrifin þar, barð-
ist gegn stórhríðinni og starði á ólgandi hafið og
varð mjög uppnumin. Staðsetning framleiðsl-
unnar og hráefni, ullin, kallaði á hið þjóðlega.
Vík Prjónsdóttir vildi þróa vörur sem byggjast
á sérstöðu og vísa í uppruna sinn. Óskin var að
gera eitthvað mjög íslenskt – en nýtt. Vík hugs-
aði sig um og ákvað að gera ekki peysur eða
slíkt heldur leggja höfuðáherslu á teppi. Sels-
hamurinn er einskonar værðarvoð en líka nokk-
urs konar svefnpoki. Vík fannst að hægt væri að
skapa nýja ímynd fyrir aðalhráefni landsins, ull-
ina. Teppi er ekki fatnaður, ekki húsgagn, en
mitt á milli. Með þessu kemst Vík bæði inn í
hönnunarheiminn en líka inn í tískuheiminn.
Samveruteppið sem hefur tvö höfuð er t.d.
byggt á hinni gömlu og rómuðu íslensku gest-
risni. Áður var fólki boðið í torfbæinn, oft köldu
og hröktu og því vísað upp í hlýtt rúm. Þetta
tveggja höfða teppi á að endurspegla þann hlý-
lega hugsunarhátt forfeðranna. Hugsanlega
mætti búa til teppi með fleiri hausa. Með þessu
lætur Vík Prjónsdóttir gamlar sögur og viðhorf
ganga á milli kynslóðanna – bara í nýjum bún-
ingi. Í framleiðsluna er notað iðnaðarband frá
Ístex. Öll framleiðslan er vélprjónuð og það
þurfti því að miða við það. En Vík er opin fyrir
nýjum efnum og jafnvel aðferðum. Vík Prjóns-
dóttir leikur sér að því að búa til fallegar vörur
sem er viðeigandi að framleiða í verksmiðju.
Ævintýralegar vörur
Allar vörurnar eru hugsaðar með fram-
leiðslugetu Víkurprjóns í huga og vélarnar sem
þar eru fyrir hendi. Allt er þetta ævintýralegt,
vörur fyrir nútímann sem byggjast á gömlum
og skemmtilegum grunni sögunnar. Vörurnar
eru hlýjar. Skegghúfan er mjög vinsæl og
byggist á gömlu lambhúshettunni.
Landslagsteppið Víkurprjón sem
framleiðir Vík Prjónsdóttur er staðsett
í Vík í Mýrdal í faðmi stórbrotinnar
náttúru. Undir Mýrdalsjökli sefur Katla
vært en hefur ósjaldan skvett úr sér
eldi, vikri og vatni yfir byggðirnar.
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
MARGRÆÐ PERSÓNA!
Vík Prjónsdóttir varð
til og samanstendur
af Hrafnkeli
Birgissyni,
Brynhildi
Pálsdóttur, Agli Kalevi
Karlssyni, Guðfinnu
Mjöll Magnúsdóttur, sem öll eru
vöruhönnuðir og svo er fimmti hluti
Víkur Prjónsdóttur Þuríður Rós Sig-
urþórsdóttir sem er fatahönnuður.
Framleiðsluvörum Víkur Prjónsdóttur hefur
verið vel tekið, ekki síst erlendis. Hún hefur átt
í samstarfi við Henrik Vibskov sem virðist ætla
að bera góðan árangur og nú eru uppi hug-
myndir um að Vík taki upp kunningsskap við
brasilískan aðila.
Það verður spennandi að sjá hvað kemur út
úr því – nægur ætti hitinn að vera, ullin hlý og
veðráttan líka.
Vík Prjónsdóttir hefur fengið heilmikla um-
fjöllun í erlendum blöðum með vörur sínar, hún
er greinilega á mikilli siglingu og lætur sig litlu
skipta þótt hinar fimm einingar hennar hafi
ýmislegt annað að gera en bara að sinna henni.
Þrír kenna t.d. í Listaháskólanum, Iðnskóla og
á fleiri stöðum og tveir eru búsettir í New York
og eru þar í framhaldsnámi.
En einingarnar fimm sem mynda Vík
Prjónsdóttur eru vel samhæfðar og kasta hug-
myndum á milli sín af sömu list og tröllkon-
urnar í þjóðsögunni köstuðu fjöregginu á milli
sín – kannski er Vík Prjónsdóttir með eitt af
þeim fjöreggjum í höndunum sem skapar ís-
lensku atvinnulífi aukna fjölbreytni og sér-
stöðu.
VÍK PRJÓNSDÓTTIR