Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 35

Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 35
hugsað upphátt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 35 Janúarmorgunn. Út umdyrnar sem vísa út á sval-irnar á svefnherberginuokkar horfi ég á sólarupp- rásina dag hvern og finn til með Íslendingum að vera að vekja börnin sín í svartasta skammdeg- inu. Það er eitthvað ómann- eskjulegt við það að rífa börn upp að því er virðist um hánótt. Svo maður tali ekki um hvað það er erfitt að vakna sjálfur í öskrandi myrkri svo ég tali nú af reynslu. Ég hef lengst af verið með af- brigðum morgunfúl manneskja, svo mjög að fjölskyldumeðlimir og vandamenn hafa átt fótum fjör að launa að verjast fúkyrðum og ein- beittum morgunfjandskap. Hroða- leg örlög að vera þessum ágöllum sett og fötlun að hafa ekki þá sjálfsstjórn til að bera til að bæta úr þessu. Eftir að ég fluttist til hinnar sólríku Kaliforníu hefur lífs- mynstrið gjörbreyst, nú finnast mér morgnarnir mínar bestu stundir og að vakna því fyrr, því betra. Það er af sem áður var þegar ég var nýflutt hingað og af gömlum vana setti alltaf í brúnirnar og herðarnar áður en ég gekk út úr húsi. Það tók mig reyndar svolít- inn tíma að venja mig af þessu og ég er ekki frá því að ég hafi hækkað eitthvað fyrir vikið. Ég á ekkert í vandræðum leng- ur með að vakna á morgnana og finnst það raunar tilhlökkunarefni. Nú hittist öll fjölskyldan í hjóna- herberginu í morgunbirtunni. Eldri dæturnar troðast til fóta meðan yngsta daman trónir í miðjunni eins og borðskraut. Hún vaknar auðvitað fyrst allra, hávær eins og skipsflauta og þá er eng- um til setunnar boðið. Hún heimt- ar sinn morgunsnafs og það strax. Við hjónin skiptumst á að fara niður, blanda pela, búa til kaffi og síðan situr öll fjölskyldan saman í rúminu og spjallar þar til tíma- bært er að fara á fætur og í skóla. Þetta eru skemmtilegar stundir og afar gagnlegar til að ræða eitt og annað sem liggur okkur á hjarta. Ekkert bölvað stress, enginn eftirrekstur og allir geta lagt af stað út í daginn án þess að finnast þeir hafa tapað fyrir einhverju ósýnilegu yfirvaldi sem hrekkir þá til verka, í skítakulda um miðja nótt. Þetta er nú bara mín reynsla af því að fara á fætur yfir vetrar- mánuðina á Íslandi og ekki ætla ég öllum að vera ofurseldir þess- um hremmingum þó ég þekki nokkra sem hafa sömu sögu að segja. Ekki sakna ég skammdeg- isins það eitt er víst og þeirra hrellinga sem það leggur á marga sem búa á norðurhjara veraldar. Raunar finnst mér að janúar og febrúar ættu að vera lögboðnir frí- mánuðir á Íslandi. Á fullum laun- um auðvitað. Mánuðir þar sem fjölskyldan leggst saman í dvala. Sefur þar til birtir af degi og liggur svo og flatmagar við hverja þá iðju sem þeim þóknast. Fönd- ur, lestur, handavinnu, módelsmíði, eldamennsku, tungumálanám, skák, hlusta á skemmtilega tónlist og horfa á góðar bíómyndir eða hvað það sem hugur manna stendur til. Hafa kveikt á kertum öllum stundum, ganga í þægilegum fatnaði og vera bara góður við sjálfan sig og þá sem standa manni næstir. Það er nefnilega útbreiddur misskilningur á Íslandi að það að sinna sjálfum sér sé leti. Og að sinna hugðarefnum sínum sé síður en svo mannbætandi. Íslendingar eru alltof duglegir við að beita sig hörðu og láta ekki bilbug á sér finna sbr. ,,Eigi skal bogna kvað karl og skeit stand- andi“. Orðatiltæki eins og ,,Aumur er iðjulaus maður“, og ,,Á morgun segir sá lati“ lýsa vel þeirri vinnu- áþján sem Íslendingum hefur ver- ið uppálögð allar götur. Og hvað barnauppeldi snertir tekur ekki betra við því yngri kynslóðin skal ekki síður fá að kenna á því ,,Á misjöfnu þrífast börnin best“ og sá viðbjóðslegi málsháttur ,,Brennt barn forðast eldinn“ segja allt sem segja þarf. Vitur er verklaus maður Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir stenunnolina.blog.is steinunnolina@mbl.is AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 frábær verð um veröldina - bókaðu í dag! Kairó Dubai Bankok Manila                      !"     #!$ %   á www.klmiceland.is    "    " &&'   " &       #  $ (  &      !  $ klmiceland.is frá ISK 68.900 frá ISK 85.400 frá ISK 101.500 frá ISK 110.700 Auglýsing um fasteignagjöld Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2008 verða sendir út næstu daga sem og greiðsluseðlar fyrir fyrstu greiðslu. Reykjavíkurborg sér um innheimtu gjaldanna. Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og sorphirðugjald. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar framkvæmir breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi elli- og örorkulífeyrisþega eftir yfirferð skattframtala, þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyris- þega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2006. Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2008, að teknu tilliti til tekju- og eignaviðmiðunar. Þegar álagning vegna tekna ársins 2007 liggur fyrir á þessu ári, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2008 hækki um 11,4% á milli ára og verði eftirfarandi miðað við tekjur liðins árs: 100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að kr. 2.080.000. Hjón með tekjur allt að kr. 2.920.000. 80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.080.000 til kr. 2.400.000. Hjón með tekjur á bilinu kr. 2.920.000 til kr. 3.260.000. 50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.400.000 til kr. 2.790.000. Hjón með tekjur á bilinu kr. 3.260.000 til kr. 3.890.000. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 411 8500. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is. Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á vatnsgjaldi í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar varðandi álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411 3636. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is. Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 25.000 fyrir árið 2008 eru: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 25.000 og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna er 1. maí. Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar. www.reykjavik.is Reykjavík, 20. janúar 2008. Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.