Morgunblaðið - 20.01.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 20.01.2008, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÞAÐ getur verið þung byrði fyrir barn að hljóta einhverja þá náð- argáfu sem kallar á þau viðbrögð að það sé kallað „undrabarn“. Mozart réð ekki við það. Eftir samfelldan frægðarferil frá barnsaldri, þar sem hann lék fyrir keisara, heillaði keis- araynjur með ótrúlegri spila- mennsku; hljóp í fangið á þeim og knúsaði þær í þokkabót, urðu full- orðinsárin honum afar erfið allt þar til hann lést, enn ungur maður, í sárri fátækt og eymd. Faðir hans, tónlistarkennarinn frábæri Leopold Mozart, bar hann á höndum sér, og það gerðu allir aðrir. Hann var skemmtilegt krútt, sem bjó yfir snilligáfu – hvernig var annað hægt en að dekra svoleiðis krakka? Kannski að það eina sem gleymdist í uppeldi hans hafi verið að kenna honum að standa á eigin fótum – kenna honum að þrátt fyrir allt ger- ast hlutirnir ekki fyrirhafnarlaust í lífinu. Hvernig hefði farið hefði Mozart haft í sér meiri döngun, elju, forsjálni, drift, og betri heilsu, og lifað fram á elliár? Það er gaman að velta því fyrir sér, þótt til einskis sé. Hversu mörg þessara svokölluðu undrabarna hafa ekki einmitt verið þannig, lifað sína stærstu daga sem börn, en átt í erfiðleikum með að finna velgengninni farsælan farveg á fullorðinsárum? Mér datt þetta í hug þegar spurð- ist að einleikari með Sinfón- íuhljómsveit Íslands í lok mánaðar- ins yrði Natasha Korsakova fiðluleikari; rússnesk í föðurætt, grísk-rússnesk í móðurætt. Hún er afkomandi tónskáldsins fræga Nikolaís Rimskí-Korsakovs, og þótt hann sé jafnan talinn séníið í þeirri fjölskyldu þá er það kannski ekki á allra vitorði að eiginkona hans var líka gott tónskáld og afkomendurnir eru margir meðal fremstu lista- manna Rússa enn í dag, þar á meðal eru faðir Korsakovu; Andrej Korsa- kov, einn fremsti fiðluleikari Rússa þar til hann lést 1991, og afi hennar, Boris Korsakov, sem líka var frá- bær fiðluleikari og fyrsti kennari Natöshu. Móðir hennar er píanó- leikarinn Yolanta Miroshnikova, sem einnig er þekktur tónlist- armaður. Bað ekki um að fá að spila Natasha Korsakova var aldrei undrabarn í hefðbundnustu merk- ingu þess orðs. Hún var undrabarn í fjölskyldu mikilla tónlistarhæfileika, á allt annan hátt en oftast er. Í við- tali við þýska tímaritið Top Magazin fyrir tæpu ári upplýsti Korsakova um fyrstu kynni sín af fiðlunni og þau voru ekki sérlega undrabarns- leg. „Ég tilheyrði aldrei hópi þeirra dásamlegu barna sem heyra í fiðlu fyrir fjögurra ára aldurinn og segja: „Mamma, ég vil líka gera svona.“ Í mínu tilfelli var þetta allt öðruvísi. Foreldrar mínir ákváðu einfaldlega að ég ætti að læra á fiðlu. Mér fannst þetta nú samt bara fínt, mér fannst fiðlan heillandi, en hvaða fimm ára krakka langar að æfa sig á fiðlu á hverjum degi?“ Korsakova segir í sama viðtali að hún hafi alla tíð verið uppreisn- argjörn. Hún var aðeins sjö ára þeg- ar hún kom fyrst fram á tónleikum í litla salnum í Konservatoríinu í Moskvu, en tólf ára ákvað hún að nú væri komið nóg af fiðluleik, því hún vildi miklu frekar verða kappakst- ursmaður. „París-Dakar-rallið var stóri draumurinn,“ segir Korsakova og gerir grín að því um leið að enn sé hún ekki búin að læra á bíl. Fiðluleikurinn lá einfaldlega svo vel fyrir henni – rétt eins og hann væri henni eðlislægur. Hún þurfti ekki mikið að hafa fyrir náminu – til að byrja með í það minnsta, og fiðlan lék í höndum hennar í orðsins fyllstu merkingu. Faðir hennar tók við kennslunni af afa Boris, en við andlát föður hennar var hún send til Ulfs Klausenitzers í Nürnberg og síðar til Saschkos Gawriloffs í Köln. Hún lítur á kennara sína sem mikla lærimeistara. Skáld, tískudrós og málaséní Það sem Natasha Korsakova hef- ur, en oft hefur þótt skorta hjá fólki sem talið er búa yfir einhvers konar snilligáfu, er áhugi á mörgu öðru í lífinu en því sem sú gáfa getur af sér. Með öðrum orðum: Hún hefur áhuga á ýmsu öðru en fiðluleik og tónlist. Hún er enn bráðung, en hef- ur þegar gefið út tvær bækur, smá- sögu og skáldsögu, og er nú að skrifa þriðju bók sína sem er krimmi. Hún segir sænska rithöf- undinn Henning Mankell vera í miklu uppáhaldi. Þá hefur Korsakova lýst frati á þá staðalmynd að snillingar séu upp til hópa lúðalegir nördar. Hún hefur brennandi áhuga á tísku og fata- hönnun, og hefur gert samning við tískuhús Lauru Biagiotti á Ítalíu um að opinberlega klæðist hún einungis fatnaði þess tískuhúss. Hún hefur komið fram á tískusýningu í Mílanó – ekki til að spila á fiðlu, heldur til að sýna föt. Þá er Korsakova heimskona að mörgu öðru leyti einnig. Hún er gríðarmikil tungumálamanneskja, er alfær í rússnesku, þýsku, ensku, dönsku og ítölsku, og les norsku og hollensku að auki. Það er sérstakt að hugsa til þess að rússnesk mann- eskja geti tjáð sig við Íslendinga á dönsku, en dönskukunnáttan á von- andi eftir að koma henni vel því draumaland hennar að heimsækja er Grænland. Músíkgáfa og persónutöfrar En hvað er sérstakt við Natöshu Korsakovu í tónlistinni í dag? Syndsamlega fögur upplifun  Natasha Korsakova sem leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í lok mánaðarins tilheyrir nýrri kynslóð yfirburðafólks í tónlistinni  Hún er afkomandi Nikolajs Rimskys-Korsakovs Ljósmynd/Marco Borggreve Natasha Korsakova „Foreldrar mínir ákváðu einfaldlega að ég ætti að læra á fiðlu. Mér fannst það bara fínt, mér fannst fiðlan heillandi, en hvaða fimm ára krakka langar að æfa sig á fiðlu á hverjum degi?“ segir Korsakova í viðtali við þýskt tímarit um tildrög þess að hún fór að læra á fiðluna. Glæsikona Natasha Korsakova í myndatöku fyrir tískuhús Lauru Biagiotti á Ítalíu. Ljósmyndari tískuhússins, Holger Biernacki, tók myndina. FIÐLUKONSERT Brahms í D-dúr ópus 77, sem Natasha Korsakova spilar með Sinfóníuhljómsveitinni 31. janúar, er einn vinsælasti og mest spilaði einleikskonsert allra tíma. Brahms samdi konsertinn 1878 fyrir vinn sinn, fiðluvirtúós- ann Joseph Joachim, og tileinkaði hann honum. Joachim var einn mesti fiðluleikari síns tíma. Það gerir konsertinn sérstakan að Brahms bað Joachim um aðstoð við einleikspartinn. Joachim samdi kadensuna sem oftast er leikin í konsertinum, en kadensa er löng einleiksstrófa undir lok fyrsta þáttarins, og stundum þess þriðja líka, þar sem einleikarinn getur að vild, innan ramma verksins, sýnt það sem í honum býr. Sumir einleikarar semja sín- ar eigin kadensur og meðal þeirra sem hafa samið kadensu í Brahms-konsertinn eru Fritz Kreisler, Max Reger, Jascha Heifetz, Nigel Kennedy og Rachel Barton Pine, sem kom hingað til lands fyrir fáum árum og frum- flutti hér fiðlukonsert eftir Joachim. Það var Joachim sem frumflutti konsertinn í Leipzig á nýársdag 1879. Einn virtasti gagnrýnandi á þeim árum, Hans von Bülow, sagði að verkið væri ekki fyrir fiðlu heldur „gegn“ fiðlu, virtúós- inn Henryk Wieniawski sagði að fiðluparturinn væri óspilandi og kollegi hans, Pablo de Sarasate, neitaði að spila verkið – kvaðst ekki nenna að hanga á sviðinu með fiðluna meðan óbóið í hljóm- sveitinni fengi einu flottu línuna í verkinu. En konsertinn lifði – og lifir enn góðu lífi. Konsert gegn fiðlu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.