Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG má til með að leggja orð í belg
varðandi húseignina á Laugavegi 6.
Faðir minn Guðmundur Benja-
mínsson klæðskerameistari hafði
þarna verslun og saumastofu með
6-8 manns í vinnu á árunum 1934-
apríl 1941. Ég sendi ykkur hérna
með myndir, sem eru af auglýs-
ingum þeim er faðir minn notaði á
sínum tíma í Útvarpstíðindum, blaði
sem sent var inn á hvert heimili í
landinu á þeim árum. Steinhúsið litla
við hliðina þar sem kaffistofan var,
varð síðar Versluninn ,,Skórinn“ og
var hún þar til apríl 1941. Sú verslun
var í eigu Jóns Bergssonar og fjöl-
skyldu hans og hafði verið hinum
megin við götuna á númer 7 í stóru
grænu timburhúsi sem Bensi Þór
átti. Það hús var rifið og byggt stórt
steinhús sem enn stendur. Hendrik
Biering kaupmaður átti þetta hús
Laugaveg 6 og steinhúsið á milli
húsanna á þessum tíma, enda hafði
fólkið hans búið þar í fjölda ára.
Hann var sjálfur með búsáhalda-
verslun á fyrstu hæð í húsi Andrésar
Andréssonar klæðskera á Lauga-
vegi 3, skáhallt yfir götuna. En
þarna í apríl 1941 segir hann leigj-
endum húsa sinna upp, því Andrés
hafði sagt honum sjálfum upp og
hvað leiddi af öðru, að leigjendur
rýma húsnæðið og Biering setur upp
stærðar verslun í báðum húsunum
og var hún þar fram undir síðasta
áratug síðustu aldar. Þegar umræða
fer fram um þessi hús þá má koma
fram að þarna var bullandi starfsemi
og margir áttu þarna vinnustað. Það
er alltaf gaman að rýna í fyrri tím-
ann þegar talað er um að friða eða
rífa. Sagan er jú alltaf það sem var
og enginn þekkir framtíðina.
ÁSTHILDUR G. STEINSEN,
Boðagranda 7, Reykjavík.
Auglýsingar úr
Útvarpstíðindum
Frá Ásthildi G. Steinsen
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Úthlíð 16
Glæsileg 7 herbergja neðri sérhæð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
156 fm neðri sérhæð á þess-um
eftirsótta staðí Hlíðunum ásamt sér
geymslu í kjallara. Hæðin skiptist í
forstofu, stórt hol, rúmgott eldhús,
4 herbergi, bjarta stofu, borðstofu,
sjónvarpsherbergi og baðherbergi.
Suðursvalir út af einu herbergi.
Aukin lofthæð ásamt rósettum og frönskum gluggum í stofu og
hurðum. Garður nýhellulagður á allri framhlið hússins ásamt annarri
hliðinni. Góð eign sem vert er að skoða.
Laus fljótlega. Verð 52,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Glæsileg og vel skipulögð 3ja herb.
106,2 fm sérhæð með frábæru
útsýni. Íbúðin skiptist í forstofu,
hol/sjónvarpshol, rúmgóða og bjarta
stofu, 2 herbergi, eldhús með
mahogny innréttingu og vönduðum
tækjum, þvottaherbergi og flísalagt
baðherbergi. Útgangur úr stofu á stóra verönd með skjólveggjum.
Húsið stendur innst í botnlanga við opið “grænt” svæði. Stutt í skóla,
sundlaug o.fl. Verð 30,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-15.
Verið velkomin.
Brekkulækur 1
Góð 3ja herb. íbúð með sérinngangi
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Falleg 76 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð
Íbúð 0102. með sérinngangi. Íbúðin
skiptist í hol, stofu með góðri loft-
hæð, opið eldhús, 2 góð herbergi og
baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Parket og flísar á gólfum. Sér geym-
sla í kjallara. Mikið endurnýjuð eign.
Hús nýlega viðgert og málað að utan. Verð 21,9 millj.
Laus við kaupsamning.
Íbúðin verður til sýnis í dag,
sunnudag, frá kl.14-16.
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Straumsalir 11- Kópavogi
3ja herb. íbúð á neðri
hæð með sérinngangi
Opið hús í dag frá kl. 14-15
Hér er um að ræða svokallaðan BYKO-reit sem er á horni Sólvallagötu og Hringbraut-
ar. Heimilt er að byggja um 8.300 fm byggingu sem getur t.d. verið blandað íbúðarhús-
næði auk ýmis konar verslunar- og þjónustustarfsemi. Hér er um mjög áhugavert tæki-
færi að ræða. Allar nánari upplýsingar gefur Þorleifur St. Guðmundsson löggiltur fast-
eignasali í síma 824-9094.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Byggingarlóð á horni Sólvallagötu og
Hringbrautar (Byko-reitur) er til sölu
Hér er um að ræða heila
húseign á horni Lauga-
vegs og Snorrabrautar
sem gefur mikla mögu-
leika. Húsið er þriggja
hæða auk kjallara, sam-
tals 868,9 fm að heildar-
flatarmáli. Húsið er mjög
vel byggt og er gólfplata
annarrar hæðar sérstak-
lega styrkt. Lyfta er í
húsinu sem fer m.a. nið-
ur í kjallara.
Á jarðhæð eru tvö verslunararými. Á 2. hæð er stór vinnslusalir (áður út-
skurðarverkstæði) og þrjú herbergi. Á 3. hæð eru tvær íbúðir, annars vegar
3ja-4ra herbergja 98,2 fm íbúð og hins vegar 4ra herbergja 130,7 fm íbúð.
Í kjallara eru síðan miklar geymslur og vinnurými. Önnur hæðin og kjallar-
inn voru nýtt undir tréskurðarverkstæði. Óskað er eftir tilboðum í eigna.
Allar nánari upplýsingar gefur Þorleifur St. Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Laugavegur - Verslunar- og íbúðarh.
M
bl
9
61
98
3
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100