Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HÚS LISTAMANNSINS Svöluhöfði 12 - Mosfellsbæ Opið hús í dag á mill 14 og 15. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá glæsilegt einbýlishús á einni hæð á flottum stað við Svöluhöfða í Mosfellsbæ. Húsið er hannað af Agli Guðmundssyni, arkitekt og byggt árið 2002. Húsið skiptist í tvær álmur sem tengjast með tengibyggingu. Stofa, borðstofa, útsýnispallur, eldhús 3 svefnher- bergi, bað og þvottahús í annari álmunni og sérhönnuð vinnustofa með stórum sal, forstofu, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Þetta er eign sem tekið er eftir. Verð kr. 99,2 m. Inga Elín og Þórarinn, s. 566 8577, taka á móti gestum í dag á milli kl. 14 og 15. Húsið er í raun eitt stórt listaverk, unnið í samvinni arkitekts og myndlistarmanns. Einar Páll Kjærnested löggiltur fasteignasali. Sími 586 8080 • Fax 586 8081 www.fastmos.is Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is BRUNNSTÍGUR 4 – HF. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-15 Sérlega sjarmerandi einbýli á þessum friðsæla stað í vesturbæ Hfj, rétt við mið- bæinn. Húsið er 207,4 fm og hefur verið mikið endurnýjað og er allt hið glæsileg- asta. Húsið er vel staðsett í litlum lokuðum botnlanga. Sérlega gott skipulag á eigninni og meðal annars stórglæsilegt eldhús og 5 fín svefnh., 2 stofur og 2 baðh. Sérlega glæsilegur garður. Þetta er frábær eign sem hægt er að mæla með. Hlynur sölumaður Hraunhamars sýnir, sími 698-2603. Sími 575 8500 - Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík Pálmi Almarsson og Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasalar LAUGATEIGUR 42 Í REYKJAVÍK OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. KL. 13:30-14:00 Í einkasölu mikið endurnýjuð 2ja herbergja 84 fm kjallaraíbúð í tvíbýlishúsi með sérinngangi á þessum vinsæla stað í nágrenni Laugardalsins. Íbúðin skiptist m.a. í anddyri, hol, stofu með útgangi út á hellulagða vesturverönd, svefn- herb., eldhús með nýrri viðarinnréttingu, endurnýjað baðherbergi o.fl. Parket og flísar á gólfum. Þetta er mjög góð staðsetning í barnvænu hverfi, stutt í alla þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Verð 22,9 millj. Íbúðin er laus. Sölumaður Fasteignamiðlunar tekur á móti gestum frá kl. kl. 13:30-14:00. m bl .9 61 05 4 ÁGÆTI félagsmálaráðherra. Hinn 29. desember síðastliðinn eignuðumst við okkar fyrsta barn, sem var fallegur og hraustur dreng- ur. Við erum afar lukkuleg með þetta og viljum eyða sem mestum tíma með barninu okkar þar sem fyrstu mánuðirnir og fyrstu árin eru þau mikilvægustu hvað varðar tengslamyndun barns og foreldris. Áætlaður fæðingardagur litla drengsins var 5. janúar 2008. Hinn 4. desember síðastliðin fengum við bréf frá Fæðingarorlofssjóði þar sem okkur var tjáð hverjar greiðslur úr sjóðnum yrðu þessa mánuði sem við ætluðum að vera í fæðingarorlofi. Útreikningarnir miðuðust við að barnið fæddist árið 2008 og því var tekið mið af með- altekjum á skattaárunum 2006 og 2007. Átti Sigurgeir að fá 165.499 kr. á mánuði fyrir skatt og Þóra 204.058 kr. Þetta eru ekki háar fjár- hæðir og hvergi nærri því að vera 80% af þeim tekjum sem við höfum haft síðastliðna níu mánuði en með því að herða sultarólina í nokkra mánuði þá hefðum við svo sem get- að lifað af þessu. Náttúran tekur lítið mið af alman- aksárinu og fæddist drengurinn okkar tveim dögum fyrir áramót. Þar sem hann fæddist árið 2007 miðast nú greiðslur úr Fæðing- arorlofssjóði við með- altekjur okkar skattaárin 2005 og 2006. Viðmið- unartímabilið hefst sem sagt fyrir þrem- ur árum og því lýkur löngu áður en barnið er getið. Þetta er afar óheppilegt því á þessum árum vorum við bæði að klára nám og höfðum litlar tekjur. En á árinu 2007 vorum við bæði í fullri vinnu og tekjur okkar hafa því hækkað umtalsvert á síðasta ári. Enda töldum við okkur nú loksins vera nógu vel sett fjárhagslega til að eignast barn. Í bréfi frá Fæðingarorlofssjóði dagsettu 7. janúar er okkur svo til- kynnt endanleg greiðsluáætlun. Upphæðin sem Sigurgeir á að fá hefur minnkað niður í 113.135 kr. á mánuði fyrir skatt og Þóra fær 166.947 kr. Við fáum því samanlagt Opið bréf til Jóhönnu Sigurðardóttur Sigurgeir Finnsson og Þóra Þorsteinsdóttir skrifa um greiðslur úr Fæðingarorlofs- sjóði » Þessar reglur mis-muna stórlega for- eldrum sem eignast barn í lok árs miðað við þá sem eignast barn í upphafi árs … Þóra ÞorsteinsdóttirSigurgeir Finnsson Í MBL. 30. des. sl. sér Svanur Sigurbjörnsson læknir og sið- menntarmaður ástæðu til að bregðast við grein sem ég skrifaði 21. okt. síðastliðinn sem svar við grein Svans um guð- leysi og húmanisma sem birtist í Mbl. 30. sept. Í grein minni stað- hæfði ég að það væri sögufölsun að halda því fram að guðlaus lífs- viðhorf hefðu fætt af sér manngildishugsjónina. Í síðari grein sinni segir Svanur: „Þessu er ég al- gerlega ósammála.“ Þessi ágreiningur var mergurinn málsins í fyrri grein minni og verð- ur einnig nú. Staðhæfingar Svans um yfirburði guðlauss húmanisma ræddi ég ekki þá og hyggst ekki ræða nú. Svanur byrjar grein sína á dálítið yfirlætisfullan hátt og segir: „Hon- um (þ.e. Sigurði) sárnar greinilega að ég nefni ekki einhverja trúmenn sem jafnframt hafi verið málsvarar húmanískra lífs- gilda.“ Rétt eins og ágreiningurinn hafi snúist um einhverja nafnalista. Svanur setti í fyrri grein sinni upp nafnalista með guðlausum af- reksmönnum á sviði húmanískra baráttu- mála, til að sýna fram á tengsl húm- anisma og guðleysis. Ég leyfði mér að nefna nokkur nöfn túaðra húmanista til að sýna fram á að nafnalistar sönn- uðu ekkert og bætti við að slíkur metingur væri tilgangslaus. Ekkert í síðari grein Svans hrek- ur þá staðhæfingu mína að guðlaus lífsviðhorf fæddu ekki af sér mann- gildishugsjónina. Ég stend því við hana. Rætur manngildishugsjón- arinnar eru marggreindar og djúp- stæðar og áttu sér formælendur meðal Forngrikkja, í kenningu Jesú Krists, meðal kristinna húm- anista á endurreisnartímanum, meðal svonefndra deista á upplýs- ingartímanum og þannig mætti lengi telja. Þetta viðurkennir Svan- ur reyndar að nokkru í svargrein sinni, en situr þó við sinn keip. Ef til vill liggur ágreiningur okkar í því að við skiljum ekki hugtakið húmanismi sama skilningi. Ég skil húmanisma sem lífsviðhorf sem ber virðingu fyrir manngildinu og Að sitja við sinn keip Sigurður Pálsson skrifar um húmanisma og trúmál almennt »Ekkert í síðari greinSvans hrekur þá staðhæfingu mína að guðlaus lífsviðhorf fæddu ekki af sér mann- gildishugsjónina Sigurður Pálsson Móttökukerfi aðsendra greina MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun móttökukerfi fyrir aðsendar greinar. Formið er að finna ofarlega á forsíðu fréttavefjarins mbl.is undir liðnum „Senda inn efni“. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að skrá sig inn í kerfið með kennitölu, nafni og netfangi, sem fyllt er út í þar til gerða reiti. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn net- fang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í um- ræðuna eða minningargreinar eru vinsamlegast beðnir að nota þetta kerfi. Nánari upp- lýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.