Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 53

Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 53 MINNINGAR ✝ Bergþóra fædd-ist á Hrafnhóli í Hjaltadal hinn 10. nóvember 1920. Hún lést á Dalbæ hinn 19. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurlína Þórð- ardóttir, f. 18. maí 1893, d. 25. ágúst 1950, og Stefán Guðmundsson, f. 29. sept. 1892, d. 9. apr- íl 1976. Bergþóra var næstelst fjög- urra systkina, sem öll eru nú lát- in, hin voru Guðmundur, Áslaug og Þórður. Eiginmaður Bergþóru var Árni Jónsson frá Hæringsstöðum í Svarfaðardal, f. 29. maí 1920, d. 26. janúar 1969. Börn þeirra eru: 1) Sigurlína, f. 1944, gift Páli Sveinssyni. Þau búa í Reykjavík og eiga tvo syni. 2) Lilja, f. 1945, d. 2000. 3) Áslaug Eva, f. 1948, sambýlismaður Hafsteinn Vil- hjálmsson, þau búa á Akureyri. 4) Stefán, f. 1951, hann býr í Aust- urkoti á Vatnsleysuströnd og á tvær dætur og einn son. 5) Sig- urbjörg, f. 1954, hún býr á Ak- ureyri og á eina dóttur og einn son. 6) Jón, f. 1956, kvæntur Þór- dísi Elvu Guðmundsdóttur, þau búa í Kópavogi og eiga tvo syni og eina dóttur, en fyrir átti Jón eina dóttur. 7) Óskar, f. 1957, kvæntur Ásdísi Svanborgu Jón- asdóttur, búa þau á Dalvík og eiga þrjá syni, en eina dóttur átti Óskar áður. 8) Kristján Bergur, f. 1960, kvæntur Margréti Stef- ánsdóttur, eru þau búsett á Ak- ureyri og eiga eina dóttur og tvo syni, auk þess ólst dóttir Margrétar upp hjá þeim. 9) Ósk Jór- unn, f. 1963, gift Guðmundi Heiðari Jónssyni. Þau eru búsett á Akureyri og eiga tvær dætur og einn son. 10) Sveinn, f. 1966, kvæntur Margréti Guðmundsdóttur og eru þau búsett á Akureyri. Einnig eignuðust Bergþóra og Árni dreng í maí árið 1952 sem lést í desember sama ár. Eftir venjubundið barna- skólanám fór Bergþóra í Hús- mæðraskólann að Laugalandi í Eyjafirði. Hún vann um tíma við verslunina Eyjafjörð á Akureyri áður en hún fór að Hólum í Hjaltadal þar sem hún sinnti ýms- um störfum. Á Hólum kynntist hún Árna og felldu þau hugi sam- an. Vorið 1944 fóru þau yfir Helj- ardalsheiði með sitt fyrsta barn og hófu búskap á Hæringsstöðum og voru með blandaðan búskap. Eftir andlát Árna bjó Bergþóra á Hæringsstöðum og gekk í öll þau störf sem þurfti að sinna á búinu. Árið 1974 flutti hún til Akureyr- ar, en þar vann hún hin ýmsu verkakvennastörf. Hún fluttist síðan í Skjaldarvík í stuttan tíma áður en hún fór á Dalbæ í byrjun ársins 2005. Útför Bergþóru var gerð frá Dalvíkurkirkju 7. janúar, í kyrr- þey. Jarðsett var í Urðarkirkju- garði. Elsku mamma ég kveð þig hér með þessu fallega ljóði, en ljóð og lausa- vísur skipuðu alltaf stóran sess hjá þér. Ég hugsa um mynd þína, hjartkæra móðir, og höndina mildu, sem tár strauk af kinn. Það yljar á göngu um ófarnar slóðir þó yfir sé harmþrungið rökkur um sinn. Ljósið er slokknað á lífskerti þínu, þú leiddir mig örugg á framtíðar braut. Hlýja þín vakir í hjartanu mínu frá hamingjudögum, er fyrrum ég naut. Minningarljósið á lífsvegi mínum lýsir upp sorghúmið, kyrrlátt og hljótt. Höfði nú drúpi’ ég hjá dánarbeð þínum þú Drottni sért falin, ég býð góða nótt. (Hörður Björgvinsson.) Mér finnst ég ekki geta kvatt þig öðruvísi en með því að setja hér með eina af þínum uppáhaldsvísum: Söngur þú sigrar allt sofandi dautt og kalt, lífgar þú vermir og vekur. Ó, hvað ég elska þig, en hvað þú gleður mig, sorgina úr sál minni hrekur. (Guðrún Sveinsdóttir.) Hafðu þökk fyrir alla þína ást og umhyggju sem þú sýndir mér og fjöl- skyldu minni. Þín þolinmæði og þrautseigja var engu öðru lík. Guð blessi minningu þína. Þín dóttir, Ósk Jórunn. Elsku amma, þó að ég viti að nú sértu á betri stað þar sem þér líður vel þá á ég erfitt með að trúa því að þú sért farin frá mér og ég muni ekki sjá þig aftur fyrr en ég kveð þennan heim. Ég mun aldrei gleyma öllum þeim góðu minningum sem ég á um þig. Hvernig þú gættir mín þegar ég var lítil, ef ég hræddist eitthvað var ég alltaf velkomin upp í holu til þín. Þú söngst fyrir mig eða fórst með vísu og mér fannst ég aftur vera örugg. Alltaf þegar ég hugsa til þín man ég eftir vísunum og þulunum þínum. Þú gast þulið þær endalaust upp og virtist aldrei fara með sömu vísuna tvisvar. Það var alltaf gott að koma til þín, þú varst tilbúin til að gera allt fyrir litlu nöfnuna þína og áttir alltaf eitthvað gott handa mér í nammi- skálinni á sófaborðinu. Þegar ellin fór að taka sinn toll og líkaminn þinn fór að gefa eftir varstu samt alltaf tilbúin til að raula vísurn- ar og grínast með mér. Þó að minnið væri ekki jafn gott og það var, gleymdir þú ekki að það er hægt að brosa yfir litlum hlutum og oft þurfti ég ekki að segja neitt til að fá þig til að brosa til mín. Ég held að ég gæti skrifað endalaust um allar okkar góðu stundir saman, en einhvern tíma verð ég að stoppa og kveðja þig. Elsku amma, ég sakna þín, ég elska þig og ég veit að þú munt bíða eftir mér þarna uppi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, þú varst hin full- komna amma, amman sem öll börn dreymir um að eiga. Ég er ekki viss um að ég hafi verið tilbúin til að kveðja þegar þú fórst og ég er enn ekki viss. Þó verð ég að reyna. Elsku amma, hvíl í friði. Þín nafna, Bergþóra Björk. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við kveðjum þig elsku amma og geymum allar góðu minningarnar um þig. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín ömmubörn, Arnrún Eik og Brimar Jörvi. Heiðurskonan Bergþóra Stefáns- dóttir frá Hrafnhóli í Hjaltadal er öll. Ég kynntist Bergþóru er ég hóf störf á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík. Bergþóra var lagleg kona og tíguleg í fasi. Ekki var hún allra en þeir sem hún tók ástfóstri við voru vinir hennar. Hún var hreinskiptin og sagði ávallt sína meiningu. Sumum fannst hún frekar hvöss í orðum en ef maður komst inn fyrir skrápinn sem hún brynjaði sig með, þá sló heitt og gott hjarta. Ef til vill hefur hún þurft að brynja sig fyrir þeim áföllum í líf- inu sem hún varð fyrir. Bergþóra missti mann sinn á besta aldri frá tíu börnum. Hún lét ekki deigan síga því með dugnaði og elju tókst henni að koma öllum sínum börnum til manns og eru þau öll í dag hinar mætustu manneskjur. Bergþóra hefur eflaust haft áhyggjur af framtíð barna sinna eftir að Árni, eiginmaður hennar, lést en mín kona stóð allt af sér. Bergþóra var alla ævi mikill Skag- firðingur í sér og dáði Hjaltadalinn sinn, eins og hún sagði ávallt. Hún hafði unun af að hlusta á talað mál og söngurinn heillaði hana. Hún kunni ógrynni af ljóðum og vísum og var vel lesin. Hún var næm á fegurð lands og hafði unun af hestum og hestaferðum sem hún tók þátt í. Bergþóra hafði líka gaman af því að dansa, vildi vera fín í tauinu og átti smekkleg og falleg föt. Ég, sem þetta rita, komst vel að Bergþóru og urðum við hinir mestu mátar. Ekki festist nafn mitt vel í minni hennar og kallaði hún mig ann- aðhvort Gilla eða strákinn sinn. Ég lét mér í léttu rúmi liggja hvoru nafn- inu ég var kallaður, ég ansaði þeim báðum. Þegar það kom fyrir að tekin var upp bók til að lesa upp úr þá varð að vera algjör þögn í kringum Berg- þóru, hún vildi fylgjast vel með og eins var er hún hlustaði á söng, ann- ars lét hún í sér heyra. Já, góð og mæt kona er kvödd til æðri staða. Kona sem þurfti svo sann- arlega að hafa fyrir lífinu. Eflaust hefur hún gengið örþreytt til náða hvert kvöld og þá sótt á hana hugs- anir um það hvernig næsti dagur yrði, hvernig hún kæmist í gegnum hann og hvernig færi fyrir blessuðum börnunum hennar. Ég er ekki viss um að Bergþóra hefði viljað láta skrifa um sig. Hún var ekki að hafa mörg orð um líðan sína eða segja frá sínum áhyggjum. Bergþóra, far þú í friði og friður Guðs þig blessi. Þakka þér alla vin- áttu þína og alla hlýjuna sem þú gafst mér. Geymum minningu Berþóru í brjóstum okkar. Þinn vinur, Stefán Víglundur Ólafsson. Bergþóra Stefánsdóttir Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNHEIÐUR I. BLÖNDAL, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ sunnudaginn 13. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða umönnun, vinsemd og virðingu. Kristín Blöndal, Pétur Björn Pétursson, Hjálmar Blöndal Guðjónsson, Elías Blöndal Guðjónsson, Pétur Björn Pétursson, Auðbjörg Sigurðardóttir, Ólafur Pétursson, Ólafur Orri Pétursson. ✝ GUÐFINNA HANNESDÓTTIR frá Hólum, Stokkseyrarhreppi, andaðist þann 15. janúar á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hverargerði. Útförin auglýst síðar. Helgi Ívarsson, Sigurður Dagsson. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Árskógum 6, Reykjavík, lést að hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þann 10. jan. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristrún Kristófersdóttir, Logi Guðbrandsson, Oddrún Kristófersdóttir, Guðmundur Magnússon, Smári Kristófersson, Carole Thorsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFLIÐI JÓNSSON, fyrrum garðyrkjustjóri, lést miðvikudaginn 19. desember. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu. Hafsteinn Hafliðason, Iðunn Óskarsdóttir, Hallgrímur Valur Hafliðason, Sigurbjörg Þórðardóttir, Jón Gunnar Hafliðason, Erna Hannesdóttir, Atli Geir Hafliðason, Halla Jónasdóttir, Stefán Daði Hafliðason, Ranveig Johansen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, RICHARD SVENDSEN (RIKKI), Suðurhólum 24, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 17. janúar. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 24. janúar kl. 15.00. Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir, Ingvar Hinrik Svendsen, Iðunn Vaka Reynisdóttir, Hermann Markús Svendsen, Elísabet Alma Svendsen og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA SIGURJÓNSDÓTTIR, Hrísateigi 25, Reykjavík, sem lést á Gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 10. janúar, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 22. janúar kl. 13.00. Egill Valgeirsson, Ásdís Egilsdóttir, Erlendur Sveinsson, Hrefna Egilsdóttir, Sigurður Pálsson Beck, Dagný Egilsdóttir, Magnús Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.