Morgunblaðið - 20.01.2008, Síða 61

Morgunblaðið - 20.01.2008, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 61 Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Stofuspjall Gunnlaugs A. Jónssonar guðfræði- prófessors verður 21. janúar kl. 14 og fjallar um boðskap myndarinnar Babettes gæstebud. Föstudagur 25 janúar er þorrahlaðborð kl. 17. Skemmtiatriði, happdrætti og ball. Verð 3.700 kr. Skráning í s. 535- 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | Revíusöngvar – söng- perlur úr íslenskum revíum. Sýning í Iðnó 5. febrúar kl. 14. Soffía Karls- dóttir og Örn Árnason rifja upp rev- íulög frá árunum 1902-1950. Skrán- ing og upplýsingar í félagsmiðstöðvunum til 25. jan. Greiða þarf fyrir þann tíma á skrif- stofu FEBK eða ferðanefnd. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur kl. 20. Klassík leikur fyrir dansi. Félagsstarf Gerðubergs | Dagana 6.-10. febrúar er menningar- og listahátíð eldri borgara í Breiðholti sem tengist Vetrarhátíð í Reykjavík. M.a.: íþróttahátíð á öskudaginn í samvinnu við FÁÍA, kynning á fé- lagsstarfi, þjónustu og samstarfs- aðilum með viðburðum, m.a. í Ráð- húsinu laugard. 9. febrúar. Hraunbær 105 | Þorrablót eldri borgara í Árbæ og Grafarholti verð- ur haldið í félagsmiðstöðinni föstu- daginn 1. febrúar. Skráning og upp- lýsingar í félagsmiðstöðinni eða í síma 411-2730. Síðasti dagur skrán- ingar er 8. janúar. Verð 3.500 kr. Ókeypis 10 tíma námskeið í staf- göngu frá Félagsmiðstöðinni tvisvar í viku og hefst 22. janúar. Fé- lagsmiðstöðin í samvinnu við Ár- bæjarþrek býður eldri borgurum í Árbæ og Grafarholti upp á ókeypis 10 tíma námskeið í líkamsrækt í Ár- bæjarþreki sem hefst 22. jan. Í Ár- bæjarlaug er boðið upp á kennslu í sundleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12.05. Skráning á námskeiðin og nánari uppl. í síma 411-5200. Hæðargarður 31 | Leikhúsferð á Revíuna í Iðnó. Rúta. Félagsvist kl. 13.30 og skapandi skrif kl. 16. Bör Börson í Baðstofunni þriðjudag kl. 11, bókmenntahópur kl. 20, í Betri stofunni. Ókeypis tölvuleiðbeining- arnar á miðvikud. og fimmtud. kl. 13.15 og hláturjóga á föstud. kl. 13. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport- húsinu á mánu- og miðvikudögum kl. 9.30. Hringdansar í Kópavogs- skóla á þriðjudögum kl. 14.20. Ringó í Smáranum á miðvikud. kl. 12 og í Snælandsskóla á laugardögum kl. 9.30. Línudans í Húnabúð, Skeifunni 11, Rv. kl. 17. Uppl. í símum 564-1490 og 554-2780. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er ganga frá Egilshöll kl. 10. Kvenfélag Kópavogs | Kvöldverð- arfundur verður 13. febrúar í sal fé- lagsins, Hamraborg 10, 2. hæð kl. 20. Þátttaka tilkynnist eigi síðar en 4. febrúar til eftirtalinna: Elísabet, s. 553-5858, Ingibjörg, s. 564-3210 eða Sigríður, s. 554-1516. Vesturgata 7 | Þorrablót verður 14. febrúar. Nánar auglýst síðar. Kirkjustarf Bústaðarkirkja | Starf eldri borgara á miðvikudögum kl. 13-16. Spilað, föndrað og handavinna. Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, söngur o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Margrét S. Björns- dóttir prédikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Á eftir verður kaffi og samfélag og verslun kirkjunnar opin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Helgi Guðnason. Bible studies at 12:30 in the main hall. Everyone is welcome. Almenn samkoma. kl. 16.30. Ræðumaður Vörður Leví Traustason, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, börn 1-13 ára. Bein útsending á Lind- inni eða á www.filadelfia.is Lindasókn | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 í Salaskóla. Þorvaldur Halldórsson tónlist- armaður leiðir safnaðarsöng og sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Laugarneskirkja | Harðjaxlar halda fund kl. 13, undir handleiðslu sr. Hild- ar Eirar Bolladóttur og Stellu Rúnar Steinþórsdóttur (7. bekkur). dagbók Í dag er sunnudagur 20. janúar, 20. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Læknadagar 2008, árlegtþing íslenskra lækna,verða haldnir í þessariviku á Hótel Sögu. Þátt- takendur í þinginu eru um 900, og verða flutt nærri 150 erindi um helstu nýjungar og þróun á ýmsum sviðum læknisfræði. Ólafur Már Björnsson situr í stjórn Fræðslustofnunar Lækna- félags Íslands sem sér um skipu- lagningu þingsins: „Bæði innlendir og erlendir sérfræðingar halda fyr- irlestra á ráðstefnunni, en auk þess að fjalla um framþróun innan lækna- vísinda fjöllum við einnig um málefni líðandi stundar, s.s. kosti og galla einkareksturs í heilbrigðiskerfi,“ segir Ólafur. Af fyrirlesurum nefnir Ólafur Birgi Jakobsson, forstjóra Karol- inska Universitetssjukhuset í Stokk- hólmi: „Hann ætlar að segja frá reynslu sinni sem læknir í stjórn- unarstöðu, og hvernig hlutverk hans í starfi hefur þróast,“ segir Ólafur. „Einnig eru á dagskránni umræður um hlutverk heilbrigðiskerfisins í al- mannavörnum. Höfum við fengið til okkar Ann C. Anderson, prófessor við Tulane-háskóla í New Orleans, og ætlar hún að segja okkur frá reynslu Bandaríkjamanna af al- mannavarnaviðbrögðum þegar felli- bylurinn Katrína reið yfir. Verða á málstofunni skoðuð ýmis lækn- isfræðileg sjónarmið í almanna- varnastarfi, s.s. sóttvarnir og bráða- flokkun. Þá má geta málstofu um bólusetningar við HPV-veirunni, en rannsóknir sýna að veiran veldur auknum líkum á leghálskrabba- meini, og getur bólusetning því markað tímamót í baráttunni gegn þeim sjúkdómi.“ Háfjallalæknisfræði verða gerð sérstök skil á Læknadögum: „Við fáum til okkar Harald Örn Ólafsson og aðra Everest-fara. Engilbert Sig- urðsson og Andrés Magnússon læknar deila persónulegri reynslu sinni af háfjallaveiki á Kilimanjaro, og Everest-fararnir dr. Oswald Oetz og dr. Michael Grocot deila reynslu sinni.“ Á málstofu um einkarekstur í heil- brigðiskerfinu er Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra meðal frummælenda, og fram fara pallborðsumræður með þátttöku lækna og stjórnmála- manna. Nálgast má dagskrá Læknadaga 2008 á www.lis.is. Bakhjarlar dag- skrárinnar eru GlaxoSmithKline, Novartis og AstraZeneca. Heilsa | Ráðstefnan Læknadagar 2008 haldin á Hótel Sögu í vikunni Framfarir í lækningum  Ólafur Már Björnsson fædd- ist í Reykjavík 1969. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1989, læknaprófi frá HÍ 1996 og augnlæknanámi frá Ríkisspít- alanum í Ósló 2002. Ólafur starf- rækir stofu á sviði sjónhimnu- sjúkdóma í Ósló jafnframt því að starfa á Augnlæknastöðinni Sjón- lagi. Eiginkona Ólafs er Þóra Þór- isdóttir kennari og eiga þau fjögur börn. Tónlist Hafnarborg | Aukatónleikar með Tríó Reykjavíkur ásamt Diddú og Bergþóri verða mánudaginn 21. janúar kl. 20. Vín- artónlist tónskáldanna Wolfgang Ama- deus Mozart, Lehár, Strauss, Kálmán og Kreisler mun koma við sögu ásamt ýms- um öðrum. Langholtskirkja | Kammerkór Langholts- kirkju kl. 20. Stjórnandi Jón Stefánsson. Hljóðfæraleikarar: Davíð Þór Jónsson pí- anó, Einar Valur Scheving trommur, Sig- urður Flosason saxófónn og Valdimar Ko- leinn Sigurjónsson bassi. Kvikmyndir MÍR | Rússneska kvikmyndin Gaukurinn verður sýnd í MÍR-salnum Hverfisgötu 105, kl. 15. Myndin gerist í veiðilöndum Sama í nyrstu héruðum Rússlands og Finnlands haustið 1944, þegar ósigur Þjóðverja í styrjöldinni blasir við. Enskur texti. Aðgangur ókeypis. Fyrirlestrar og fundir Grand Hótel Reykjavík | Talþjálfun heldur námskeið þar sem fræðileg umfjöllun og hagnýt ráð er varða málþroska, framburð, tvítyngi, hljóðkerfisvitund o.fl. verður til umfjöllunar. Námskeiðið er ætlað leik- og grunnskólakennurum, sérkennurum, heil- brigðisstarfsfólki, foreldrum og áhuga- sömum. Málörvunarefni verður til sýnis og sölu. Ráðhús Reykjavíkur | Kvenréttindafélag Íslands efnir til málþingsins: Jafnrétti – til hvers? Áhrif löggjafar á framvindu jafn- réttis, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, mánudaginn 28. janúar kl. 14. Flutt verða 5 erindi, m.a. af Jóhönnu Sigurðardóttur. Umræður og veitingar. Málþingið er öllum opið. Frístundir og námskeið www.ljosmyndari.is | 2ja daga ljósmynd- anámskeið helgina 16. og 17. feb. kl. 13-17. Myndavélin, myndatökur, myndbygging, ásamt tölvumálum. Námskeiðsgjald kr. 13.900. Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson s: 898-3911. Skráning á www.ljosmynd- ari.is FINNSKI skíðastökkvarinn Janne Ryynaenen stekkur á heimsbikarmótinu í skíða- stökki í Klingenthal í austur- hluta Þýskalands í gær. Síð- ar um daginn þurfti að fresta keppni vegna snjóleysis. Engin loft- hræðsla Reuters É g eignaðist nýverið afar góða bók. Hún nefnist Rúmhelgir dagar og er eins og segir í undirtitli „um hversdaginn og trúna“. Höf- undur er Karl Sigurbjörnsson biskup. Hún kom út í fyrra, lætur ekki mikið yfir sér, en er þó í einfald- leik sínum eins og lítil perla í skel, hinn mesti dýrgripur. Fyrir sálina. Í formála segir: „Rúmhelgir dagar, það eru dagarnir milli helgi og vikuloka, það eru svörtu dagarnir í dagatalinu, gráu dag- arnir í vitundinni, dagar hver öðrum líkir, þar sem ekkert ger- ist nema þetta hversdagslega, verkefnin, skyldurnar, það sem ljúka þarf af. Virkir dagar, rúm- helgir dagar, dagar vinnu, kvaða, starfa, skylduverka. Dagar til að komast yfir til að geta slappað af og notið lífsins. Dagar til að gleyma. Eða er ekki svo? Merkilegt orð „rúmhelgur“. Hvað merkir það eiginlega? Er það rýmið milli helganna? Eða er það dagurinn sem gefur helginni, þ.e. hinu heilaga, rúm? Ég vil gjarnan leggja þá merkingu í orðið. Hið heilaga, helga á sér rúm í hinu hversdagslega, venju- lega. Hið heilaga dylst í hvers- dagsleikanum. Kristin trú er hversdagstrú, rúmhelg trú, trú hinna virku daga. Eins og Jesúbarnið var ný- fætt vafið reifum, venjulegum tuskum, og lagt í jötu, í hey og hálm í fóðurtrogi, þannig dylst hið heilaga í hinu hversdagslega. Þessi bók er um hversdagstrú. Hún setur fram vísanir til hins heilaga í atvikum hversdagsins. Þær vísbendingar eru í sögum og smælki, hnyttiyrðum og helgi- sögnum sem flögra hjá, en hver og ein ber eins og blæ eða keim af því sem heilagt er. Kímnin er þarna líka, þessi dýrmætu blik af brosi englanna í hversdeginum. Kristin trú er hversdagstrú. Rúmhelg trú, lífsmáti hinna virku daga.“ Umrædd bók herra Karls er í sama anda og Orð í gleði, sem hann ritaði og út kom fyrst árið 2003 og geymdi „örsögur, íhug- anir, ljóð og spekiorð, bænir og andvörp í gleði og gæfu, yndi og önn dagsins.“ Báðar eru þær orðnar ómiss- andi verkfæri í daglegu stússi mínu, algjör vítamínsprauta, en eru þó upphaflega, held ég, ekk- ert endilega ætlaðar prestum, heldur miklu fremur og kannski einkum og sér í lagi hugsaðar sem nesti fyrir alla Jóna og Gunnur landsins, hina kristnu einstaklinga úti í samfélaginu, óvirka og virka, fólkið sem er of upptekið í brauðstritinu til að muna eftir hinum eilífu verðmæt- um, og hitt, sem reglulega sækir kirkju. En til að fá úr því kraft verður auðvitað að opna boxið og neyta innihaldsins. Efni hinnar nýju bókar er fengið héðan og þaðan, úr ís- lenskum ritum og erlendum, auk þess sem er frumsamið. Það snertir alla kviku mannlífsins: áhyggjurnar, vinnuna, efann, leitina, ástina, börnin, kyrrðina, fyrirgefninguna, dauðann, sorg- ina, trúna og margt annað. Eig- inlega flest milli himins og jarð- ar. Hér kemur örlítið sýnishorn, einkum úr röðum hinna knappari texta, plássins vegna:  Hörð orð brjóta ekki bein, en þau brjóta hjörtu.  Ávextirnir segja til um hvers kyns tréð er.  Við sjáum annað hvort rykið á rúðunni eða útsýnið utan hennar, en aldrei rúðuna sjálfa.  Við höfum lært hvernig fugl- arnir fljúga og hvernig fiskarnir synda. En við höfum ekki lært þá einföldu list að lifa sem systk- in.  Til Guðs komumst við ekki með því að sigla. Heldur með því að elska.  Ég sá Kristsmynd í kirkju er- lendis, forna róðu. Hendurnar vantaði. En á krossinn voru letr- uð þessi orð: „Ég hef ekki aðrar hendur en þínar.“  Kristur þinn er Gyðingur, bíllinn japanskur, pítsan ítölsk, vínið frá Chile, lýðræðið grískt, kaffið frá Brasilíu, úrið sviss- neskt, skyrtan indversk, útvarps- tækið kóreskt, sumafríið í Tyrk- landi, Frakklandi og á Spáni, tölustafirnir arabískir, letrið lat- neskt og svo ertu óhress yfir að nágranni þinn skuli vera útlend- ingur!  Lífið er brú, gakktu yfir hana, reistu þér ekki hús á henni.  Skömm er stund okkar hér á jörð, lífið er lán frá Guði. Lífið er lán, okkur léð til skamms tíma. Til að lifa með Guði og láta gott af okkur leiða. Ef við aðeins myndum það.  Í gær sá ég ókunnugan mann. Ég lagði mat á borð, hellti vatni í glas, lék ljúfa tónlist honum til ánægju. Í nafni heilagrar þrenn- ingar blessaði hann mig og húsið mitt, bú og ástvini alla, og læ- virkinn söng í hreiðri sínu: „Oft, oft, oft kemur Kristur dulbúinn sem ókunnur maður.“  Fólk sem lifir í von, sér lengra. Fólk, sem lifir í kærleika, sér dýpra. Fólk sem lifir í trú sér allt í öðru ljósi.  Snúðu andlitinu að sólinni og þú sérð ekki skuggann.  Gerðu þitt besta og sofðu svo vært. Guð vakir. Þetta verk ætti hreinlega að vera skyldulesning. Veganesti sigurdur.aegisson@kirkjan.is Það eru gömul sann- indi og ný að maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, af því að hann er ekki bara gerður úr holdi og blóði. Sig- urður Ægisson fjallar að þessu sinni um hið andlega fóður sem okkur er ekki síður nauðsynlegt að hafa á göngunni miklu. HUGVEKJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.