Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 67
það er langt því frá sjálfgefið að sýn-
ingar ferðist til útlanda svo það
hvarflaði í raun aldrei að manni þeg-
ar ég var í leiklistarskólanum. Þetta
hefur svo bara undið upp á sig.
Þetta er í raun ótrúlegt, Lyric-
leikhúsið er næstum komið í áskrift
á sýningunum okkar og hjá Young
Vic-leikhúsinu hér í London ber ég
núna titilinn associate director. Við
nánari eftirgrennslan komst ég að
því að það þýðir að þeir vilji að ég
komi fyrst til þeirra með allt það
sem mig langar til að gera á leik-
hússviðinu. Tilsammans sem ég er
að gera er til dæmis að fara þang-
að,“ segir Gísli.
Tilsammans byggist á samnefndri
kvikmynd eftir Lukas Moodysson
og verður frumsýnt í Borgarleikhús-
inu í lok febrúar. „Eða bara þegar
sýningin er tilbúin, segir Gísli. „Við
reynum alltaf að vera svolítið sveigj-
anleg á frumsýningardögum.“
Meira samstarf
Verkefni Gísla koma úr öllum átt-
um, allt frá frægustu ástarsögu allra
tíma eftir Shakespeare yfir í sænska
hippa í kommúnu, hverju skyldi
Gísli leita að við verkefnaval?
„Bara því sem kveikir í mér á
hverjum tíma og það getur verið
mjög ólíkt. Hamskiptin voru reynd-
ar uppástunga meðleikstjórans Dav-
ids Farr, en okkur hafði lengi langað
að gera eitthvað saman. Hann var
með nokkrar hugmyndir að verk-
efnum og þessa leist mér best á og
sá margar leiðir til að setja verkið
upp. Ást kom svo úr allt annarri átt
og hugmyndin kviknaði í raun þegar
ég var að vinna á elliheimili. Mér
fannst það flott hugmynd að eiga
eftir að upplifa stærstu ást sína og
finna hana ekki fyrr en þú ert orðinn
áttræður og heldur að þú sért búinn
að upplifa flest,“ útskýrir Gísli.
En skyldi áhugi erlendis frá á
verkefnum Vesturports ekki kitla?
Langar Gísla ekki að reyna meira
fyrir sér erlendis?
„Jú, það er örugglega eins með
okkur öll á Íslandi. Við búum á eyju
og forfeður okkar voru víkingar sem
ferðuðust um heiminn og skildu eftir
sviðna jörð. Persónulega hef ég
hrikalega gaman af því að kynnast
nýju fólki hvar sem er í heiminum,
það getur gefið manni svo mikið að
kynnast ólíkum skoðunum og við-
horfum fólks,“ segir Gísli og bætir
við að meira samstarf sé í raun það
sem freisti hans mest.
„Ég verð að nefna að Borgarleik-
húsið hefur verið okkur stoð og
stytta í öllu þessu útrásardæmi og
það er alveg ótrúlegt frelsi sem við
höfum haft til að gera okkar hluti
þar. Gíó (Guðjón Petersen) hefur
stundum verið gagnrýndur fyrir að
treysta ungum og óreyndum leik-
stjórum fyrir verkefnum, en þær
ákvarðanir hafa gert það að verkum
að íslenskt leikhús er orðið bara vel
þekkt í Englandi. Það er því mjög
óréttmæt gagnrýni og ég er honum
ómetanlega þakklátur fyrir allt.
Þetta snýst allt um samstarf.“
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
Hirðskáldin Nick Cave hefur samið tónlist fyrir tvær leiksýningar Vest-
urports, Woizeck og Hamskiptin. Hér sést hann ásamt Jóni Atli Jónasyni,
sérlegu leikskáldi Vesturports á frumsýningu Woizeck.
Morgunblaðið/Jim Smart
Píramíði Leik- og loftfimi hefur allt frá uppsetningu leikhópsins á Rómeo og Júlíu verið einkennismerki Vest-
urports. Hér sést sá hópur er kom að sýningunni við æfingar.
Morgunblaðið/Golli
Fjölþjóðleg Mexíkóski leikarinn Gael García Bernal mun taka þátt í upp-
færslu Vesturports á Tillsammans. Hér sést hann árið 2005 í knattleik fyrir
utan gamla Morgunblaðshúsið við Kringluna en þá kom hann hingað í stutt
sumarfrí. Börkur Jónsson leikmyndahönnuður Vesturports og Nína Dögg
Filippusdóttir reyna að snúa á hann.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 67
Flogið verður til Kaupmannahafnar og ekið um Danmörku til sum-
ardvalarstaðarins Damp við Eystrasaltsströnd Þýzkalands. Þar verð-
ur gist næstu 7 nætur og farið í ýmsar dagsferðir meðan á dvöl
stendur. Meðal annars til Slésvíkur, Hamborgar og Kílar. Frá Þýzka-
landi er síðan siglt til Danmerkur og flogið heim frá Kaupmanna-
höfn að kvöldi 10. maí.
Gist verður að Damp2000 í vel útbúnum íbúðum. Hótelið er við
ströndina og þar eru ótal afþreyingarmöguleikar s.s. sjósundlaug,
hitabeltissundlaug, minigolf og bátaleiga og einnig margir veitinga-
staðir og smáverzlanir.
FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.,
BORGARTÚNI 34 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 511 1515,
www.gjtravel.is • outgoing@gjtravel.is
Verðið er einstakt: 59.500,- á mann
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna
stúdíó-íbúð á Damp og allur akstur samkvæmt lýsingu.
Aukagjald ef gist er á hótelherbergi með hálfu fæði:
9.800,- krónur.
Þýzkalandsferð
03.-10.maí 2008
í samvinnu við
Félag Eldri borgara
M
bl
.9
19
11
3
Vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við aukaferð til Costa del Sol um
páskana 14. mars í 9 nætur. Bjóðum einnig frábærar vorferðir í apríl
og maí á þennan einstaka áfangastað á frábærum kjörum. Margar
brottfarardagsetningar í boði og hægt er að velja um mismunandi
lengd ferða eftir því hvers óskað er.
Vorið er yndislegur tími á Costa del Sol. Hitinn þægilegur og einstakt
að dvelja á þessum fallega stað. Costa del Sol er tvímælalaust vin-
sælasti áfangastaður Íslendinga á sólarströndum, enda býður eng-
inn annar áfangastaður á Spáni jafn glæsilegt úrval gististaða, veit-
ingastaða og skemmtunar. Örstutt er að skreppa yfir til Afríku og Gí-
braltar og töfrar Andalúsíu heilla alla þá sem henni kynnast. Þar er
flamenkótónlistin upprunnin, spænska matargerð-
in, nautaatið og byggingarlistin. Þar finnur þú
hvítu þorpin, fegurstu strendur Spánar, frægustu
golfvelli Evrópu, klaustur, hallir og kastala.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér ferð til þessara
frábæra staðar á einstökum árstíma. Flogið er í
beinu leiguflugi Heimsferða til Jerez í Andalúsíu
og ekið í rútu frá flugvelli til Costa del Sol (liðlega
2,5 klst. akstur). Rútuferð er innifalin í verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Costa del Sol
Páska- og vorferðir
frá kr. 39.990
Aðeins 50 sæti í páskaferðina
Verð kr. 59.895
- páskaferð 9 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í 9 nætur á Castle Beach.
Innifalið er flug, skattar, gisting og rútuferð
milli Jerez flugvallar og hótels (báðar leiðir)
og íslensk fararstjórn.
Verð kr. 39.990
- vorferð 7 eða 8 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í 7 nætur í ferð 26. apríl eða 8 nætur í
ferð 18. apríl á Timor Sol.
Innifalið er flug, skattar, gisting og rútuferð
milli Jerez flugvallar og hótels (báðar leiðir) og
íslensk fararstjórn.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
14. mars Aukaferð um páska - vegna mikillar eftirspurnar
Vorferðir
á ótrúlegu
verði
8. apríl
18. apríl
26. apríl
3. maí
10. maí
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
birta@mbl.is