Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 76
SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 20. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 0 °C | Kaldast -10 °C
NV 10-15 m/s og él
eða dálítil snjókoma
norðaustanlands, ann-
ars hægara og létt-
skýjað. » 8
ÞETTA HELST»
Mannekla í Bláfjöllum
Illa hefur gengið að fá fólk til
starfa á skíðasvæðinu í Bláfjöllum.
Enn vantar fast starfsfólk og svæðið
er mjög háð aukafólki. Þar til staðan
batnar verður lokað í Skálafelli.
Stefnt er að því að hefja snjófram-
leiðslu í Bláfjöllum á næstunni. Lok-
að var í Bláfjöllum í gær vegna veð-
urs en útlit er fyrir að opið verði í
dag, sunnudag. »2
Menntun fanga lítil
Nefnd sem skoðað hefur mennt-
unarmál fanga segir mikilvægt að
auka töluvert menntunarmöguleika í
fangelsum. Það sé sláandi hve
marga fanga skorti alla grundvall-
armenntun. Meðal tillagna nefnd-
arinnar er að veita föngum meiri að-
gang að netinu og starfsnámi utan
fangelsa. Einnig er lagt til að ís-
lenskukennsla til útlendinga sem
sitja lengi inni í íslenskum fang-
elsum verði efld til muna. »6
Vill safn á Laugaveg 6
Stjórnarmaður í Leikminjasafni
Íslands hefur komið fram með þá
hugmynd að safnið fái inni á Lauga-
vegi 6 en margir frægir leikarar
leiklistarsögunnar tengist húsinu.
Mögulegt sé að koma upp lifandi
safnastarfsemi í húsinu líkt og þekk-
ist víða í nágrannalöndunum. »2
Orðrómur um fatakaup
Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrver-
andi þingmaður Framsóknarflokks-
ins, hefur sent bréf til allra fram-
sóknarmanna í Reykjavík þar sem
hann gerir fatakaup forystumanna
flokksins í borgarmálunum fyrir fé
flokksins að umtalsefni. Fram-
kvæmdastjóri flokksins segir ekkert
til í orðróminum. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Danskur blaðamarkaður
Forystugreinar: Hverfum frá búta-
saumshugsuninni | Reykjavíkurbréf
Ljósvaki: Morgunleikfimi og veðrið
UMRÆÐAN»
Samningar til langs tíma
Varað við fölskum gylliboðum
Um skipulag þróunarsamvinnu
Léleg þjónusta í ísl. verslunum
Ber er hver að baki nema …
Þingmenn og Þjórsá
ATVINNA»
LEIKLIST»
Vesturport slær í gegn í
Bretlandi. »66
Kári Sturluson, um-
boðsmaður Benny
Crespo’s Gang, er
ósáttur við að lag
sveitarinnar sé not-
að í leyfisleysi. »70
TÓNLIST»
Deilt um
stefgjöld
FÓLK»
Af hverju talar Britney
bresku? »75
KVIKMYNDIR»
Kaldar sturtur fá hálft
hús stiga. »68
Haldin var sam-
keppni um bestu
manga-teiknimynd-
irnar á vegum Borg-
arbókasafns Reykja-
víkur. »69
Manga á
Íslandi
MYNDASÖGUR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Svandís S.: „Allt í lagi með mig“
2. Hillary tjáir sig um Lewinsky-mál
3. Fær að halda lottóvinningnum
4. Gagnrýnir fatapeninga …
KRISTÍN Einarsdóttir hefur frá árinu 1994 haft
umsjón með útilegum og útivistarferðum nem-
enda í Smáraskóla í Kópavogi. Reynslan hefur
kennt henni að það mikilvægasta við útivistina
er félagslegi þátturinn. „Ég er alveg hætt að
svekkja þau á einhverjum örnefnum, þau njóta
þess bara að vera á staðnum,“ segir hún. Aðfara-
nótt föstudags fór hún með sex ára bekk í úti-
legu í skólann og þá var myndin tekin. | 4
Það mikilvægasta við útivistarkennsluna er félagslegi þátturinn
Hætt að svekkja nemendur á örnefnum
Árvakur/Frikki
NATASHA
Korsakova verð-
ur einleikari
með Sinfóníu-
hljómsveit Ís-
lands á tón-
leikum í
Háskólabíói 31.
janúar og leikur
Fiðlukonsert eft-
ir Brahms.
Korsakova til-
heyrir nýrri kynslóð afburðalista-
manna. Hún er úr stórri fjölskyldu
afburðatónlistarfólks og er afkom-
andi eins mesta tónskálds Rússa á
síðari hluta 19. aldar, Nikolajs
Rimskí-Korsakovs. Hún var
„undrabarn“ á fiðlu, eins og það
hefur verið kallað, en vildi allt eins
verða kappakstursmaður. Vel-
gengni hennar á fullorðinsárum er
mikil og vaxandi. Engu að síður
sinnir hún öðrum áhugamálum af
ákefð. Hún hefur mikinn áhuga á
tísku og hönnun og er á samningi
við tískuhús Lauru Biagiotti um að
klæðast fötum þaðan þegar hún
kemur fram opinberlega. Hún er
nú að skrifa sakamálasögu en hef-
ur áður gefið út tvö skáldverk. Þá
er hún fullvíg á fimm tungumál og
læs á tvö til viðbótar. | 36
Korsakova
kemur
Natasha
Korsakova
Eftir Hallgrím Helga Helgason
ARI Kristinsson kvikmyndagerðar-
maður segir það skipta miklu máli að
íslensk börn sjái sinn eigin veruleika
á tjaldinu, ekki bara þann banda-
ríska. Slíkt gefi þeim sterkari sjálfs-
mynd og bæði sé mikilvægt fyrir þau
að sjá að umhverfi þeirra er jafn-
merkilegt og annað umhverfi og
partur af merkilegri sögu. Ef þau
sjái ekkert annað en bandarískar
myndir þar sem allir séu fallegir og
orðheppnir geti börn farið að halda
að þau séu hér fyrir einhverja
óheppni en ætli sér fyrr eða síðar að
komast í alvöruheiminn þar sem allir
eru fallegir og sniðugir, veðrið gott
og allt fínt.
Ari hefur setið í dómnefndum á al-
þjóðlegum barnamyndahátíðum og
kveðst jafnan finna sterkt að barna-
myndir eigi að vera litlar og sætar.
Það sé öruggasta leiðin til að einhver
þori að sýna þær.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag
segir Ari að kveikja nýjustu myndar
hans, Duggholufólkið, sem er barna-
mynd, hafi verið að skoða hvernig
ímyndaður tölvuheimur barna og
raunverulegur heimur sköruðust.
Þegar handritið var þróað erlendis
með handritsráðgjöfum og álitsgjöf-
um segir hann að endalaus tog-
streita hafi orðið um hvernig sá
veruleiki mætti vera. Þeir hafi rætt
fram og til baka um hvað væri gott
fyrir börn og hvað ekki og sitt hafi
hverjum sýnst.
Ari kveðst til að mynda hafa setið í
marga klukkutíma og rætt um dauða
lambs í myndinni, en honum var sagt
að ef hann kynnti einhverja til sög-
unnar í svona mynd þá mætti hann
alls ekki drepa þá. „Mín vörn var sú
að einhver yrði að deyja í myndinni
til að fara með umfjöllunina alla
leið,“ segir Ari og bendir á að öðru
máli gegni í tölvuleik því þá byrji
maður bara á nýjum leik ef maður sé
drepinn. Í veruleikanum sé dauðinn
aftur á móti endanlegur. | 32
Endalaus togstreita
um veruleika barna
Mikilvægt að þau sjái eigið umhverfi í kvikmyndunum
Í HNOTSKURN
»Ari teflir iðulega samanbörnum og dýrum í myndum
sínum, ísbjörnum í þetta sinn.
»Hann telur mikilvægt að ís-lensk börn sjái eigin veru-
leika á hvíta tjaldinu, ekki þann
bandaríska.
»Það gefi íslenskum börnumsterkari sjálfsmynd.Árvakur/EggertLeikstjórinn Ari Kristinsson.