Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 10

Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 10
10 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Geturðu séð það í kristalskúlunni þinni hvenær við þurfum að fara að japla á þessum blýöntum, vita tannlausir, Davíð minn? Það er ólga í þingflokki Sjálfstæð-isflokksins um þessar mundir. Ástæðan fyrir henni er dálítið sér- kennileg og óvenjuleg. Svo virðist sem formaður þingflokksins, Arn- björg Sveinsdóttir, hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að hún geti ákveð- ið hvenær þingmenn flokksins taki þátt í umræðum á Alþingi og þá hverjir, hverju sinni.     Af þessu tilefnimun hafa komið til orða- skipta á milli Arn- bjargar og Ragn- heiðar Ríkharðs- dóttur á þing- flokksfundi en Ragnheiður er ekki líkleg til þess að taka við fyr- irmælum um það frá einum eða neinum hvenær hún tali á Alþingi.     Nú er auðvitað ljóst, að það er mik-ilvægt að skipuleggja vel störf þingmanna, en tæpast getur sú skipulagning náð til þess að kjörnir þingmenn verði að sitja og standa eins og formanni í þingflokki hentar.     Enda skorti mikið á, að lýðræðiríkti á Alþingi, ef svo væri.     Einhver kann að halda að þetta ségamansaga en svo virðist ekki vera.     Ólgan meðal þingmanna Sjálf-stæðisflokksins af þessum sök- um er orðin svo mikil, að hún er far- in að berast út fyrir þingflokks- herbergi Sjálfstæðisflokksins. Það bendir til þess að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins kunni ekki að meta þessa stjórnsemi.     Og það gæti verið vísbending ummeiri spennu í kringum kosn- ingu formanns þingflokksins, næst þegar að henni kemur. Þetta er um- hugsunarefni fyrir Arnbjörgu. STAKSTEINAR Arnbjörg Sveinsdóttir Umhugsunarefni fyrir Arnbjörgu                      ! " #$    %&'  (  )                      ! !     *(!  + ,- .  & / 0    + -        " # #                      12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (         "               $ !%          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? #   "# "  &   "  "      &   # #                                    *$BC                        !          "  *! $$ B *! ' ()  ( $  % *% <2 <! <2 <! <2 ' ) !+  ,-!%.   C8- D                     8   # $   " ! %  &   B   " 2   $  '(     (     )*  +  %  ,     "$ *     *          , -%          ! %  ,   /0!! %11 !%  2$%  %+  FRÉTTIR VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Dögg Pálsdóttir | 1. febrúar 2008 Umhugsunarefni Það kemur út af fyrir sig ekki á óvart að fv. Hr. Ís- land skuli fá miskabæt- ur fyrir það hvernig stað- ið var að því að svipta hann titlinum. Ég er hins vegar mjög hugsi yfir því að honum skuli dæmd svo há fjárhæð, því börn sem lenda í kynferð- islegri misnotkun eru í mörgum til- vikum að fá litlu hærri bætur en 200.000 kr. … Svipting fegurðartitils veldur að mínu mati tæpast nokkru varanlegu andlegu tjóni. Meira: doggpals.blog.is Gunnlaugur B. Ólafsson | 31. janúar Blóm vikunnar Eyrarrós Blóm vikunnar er Eyr- arrós. Hún er algeng um mestallt land og vex einkum á áreyrum eða í grýttum jarðvegi. … Að mæta einni slíkri rós í skriðu sem er jafn gróf- gerð og í þessu tilfelli dregur svo skýrt fram andstæður náttúrunnar. Ég viðraði þá hugmynd að hún yrði þjóðarblóm við mér plöntufróðari menn … Meira: gbo.blog.is Sigurður Þór Guðjónsson | 1. febrúar Skammdegið er liðið Nú er skammdeginu lokið samkvæmt þeirri viðmiðun sem ég nota og finnst skynsamleg. Samkvæmt henni er skammdegi þegar sólin er á lofti minna en einn þriðja þess tíma sem hún er lengst á lofti. Skammdegið hófst þá 11. nóv- ember og síðasti dagur skammdeg- isins var í gær. En veturinn er ekkert búinn. Nú er kaldasti tími ársins. Meira: nimbus.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 31. janúar Miðaldahlýindin í sögulegu ljósi Enn og aftur eru menn eðlilega að velta fyrir sér hlýskeiðinu um og eftir landnám og bera saman við veðurfarið nú á dögum. … Fyrir réttu ári fjallaði ég um miðaldahlýindin almennt séð í sögulegu ljósi og hér fer færslan lítið eitt stytt frá því þá. Það er hins vegar ekki rétt há Hirti að hér hafi aðeins verið hægt að rækta korn með herkj- um síðasta áratuginn eða svo. Alveg frá því um 1920 hafa verið hér lengst af ágætis skilyrði til korn- ræktar, ef litið er fram hjá köldu ár- unum hér á landi frá 1965 til um 1983. Á Þorvaldseyri hefur verið ræktað bygg í áratugi og nú síðast einnig hveiti. … Vísbendingar, s.s. frá setlögum og úr ískjörnum, styðja við sögulegar heimildir um að hlýrra hafi verið frá á árabilinu um 950-1200 en aldirnar á undan, en ekki síður á tímabilinu á eftir, frá 1450 til 1800, sem oft er kallað litla ísöldin. … Ýmislegt bendir hins vegar til þess að hlýskeið mið- alda hafi einkum verið bundið við landsvæði beggja vegna N-Atlants- hafsins og orsakasamhengi sé því að leita við Golfstrauminn og styrk hans. … Fjöldi nýlegra rannsókna dregur aft- ur á móti úr því að hlýskeið miðalda hafi í raun skorið sig mikið úr hvað hitafar snertir á norðurhveli í heild sinni. Þannig hafi tímabilið 800-1400 ver- ið örfáum brotagráðum hlýrra en hið kalda tímabil litlu ísaldarinnar næstu fjórar til fimm aldirnar þar á eftir og eins samanborið við árin 200-800. Nú eru menn meira að segja farnir að efast um hina þekktu staðhæfingu um vínrækt í Englandi á miðöldum og að hún sé orðum aukin, því í raun hafi vínrækt verið stunduð á þessum slóð- um í einhverjum mæli síðustu 1000 árin, að vísu með misjöfnum árangri. … Það er hins vegar á 20. öld (1900- 2000) sem veðurfarssveiflan sker sig úr að verulegu ráði. Þá hækkaði hitinn um 0,6 til 0,9° frá fyrri öld. Margar rannsóknir eru síðan á einu máli um að síðustu áratugir 20. aldar séu hlýj- asta skeið á áratugatímaskala sem nokkru sinni hafi komið frá því um A.D. 200. Meira: esv.blog.is BLOG.IS NÝ Bónusverslun verður opnuð á Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur í dag, laugardaginn 2. febrúar kl. 10. Boðið verður upp á fjölda opn- unartilboða, segir í tilkynningu frá versluninni. Bónus lokaði versluninni á Hrólfs- skálamel á Seltjarnarnesi í þessari viku. Húsið sem verslunin var í verð- ur að víkja fyrir íbúðabyggð. Verslunin á Fiskislóð er heldur stærri en sú sem var á Seltjarn- arnesi og hentar ljómandi vel sem Bónusverslun að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. Verslunin er um 850 fer- metrar og með rúmgóðum göngu- kælum fyrir mjólk og kjöt annars vegar og grænmeti og ávexti hins vegar. Verslunin á Fiskislóð verður með hefðbundnu Bónussniði þar sem boðið verður upp á alla helstu vöru- flokka í matvöru og sérvöru eftir því sem pláss leyfir. Verslunarstjóri verður sem fyrr Ólöf Helga Sigurð- ardóttir. Bónus hyggst svara kalli fjölda íbúa á Seltjarnarnesi og bjóða upp á rútuferð í nýju verslunina einu sinni í viku, segir í tilkynningunni. Rúta frá Guðmundi Jónassyni mun þá keyra hring um Nesið frá kl. 15 á fimmtudögum. Aksturinn mun hefj- ast fimmtudaginn 7. febrúar næst- komandi kl. 15. Árvakur/Árni Sæberg Bónus opnar verslun á Fiskislóð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.