Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 12

Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 12
12 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR U tanríkisráðherra flutti Alþingi skýrslu um innri markaði Evrópu nú í vikunni en þetta er í fyrsta sinn sem Evrópumál eru rædd sérstaklega á þingi, þ.e. aðskilin frá utanríkis- málum almennt. Sú nýbreytni er til góðs enda á Ís- land mikið undir því að fylgjast vel með þróun mála í Evrópu. Engar tímamótayfirlýsingar komu fram í umræðunum og raunar fátt sem kemur á óvart. Samfylkingin er hrifnust af aðild að Evrópusamband- inu (ESB), Framsókn er til í að skoða það en hinir flokkarnir eru tregari til, þótt auðvitað vilji allir fylgjast vel með o.s.frv. Ný nefnd um Evrópumál tekur til starfa undir forystu tveggja þing- manna, úr Samfylkingu og Sjálfstæð- isflokki. Siv Friðleifsdóttir sagði í umræðunum að þetta væri til marks um trúnaðarbrest milli ríkisstjórn- arflokkanna. Hún hefur nokkuð til síns máls enda ber margt í milli þess- ara tveggja flokka þegar kemur að nánara Evrópusamstarfi og hugs- anlegri aðild að ESB. Fimm sinnum í Evrópusamruna Þessi skoðanaágreiningur kom fram í umræðunum á þingi og sjálf- stæðismenn virðast vera orðnir dálít- ið pirraðir á fjálglegum yfirlýsingum samfylkingarmanna um fallvaltleika krónunnar og efnahagsóstjórn síð- ustu ára. Það er ekki oft sem þingmenn úr stjórnarliðinu fara upp í andsvör hver við annan en sem dæmi má nefna að Árni Páll Árnason, Sam- fylkingu, veitti andsvar við ræðu Ill- uga Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokki, og Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki, fór í andsvar við Kristján L. Möller samgönguráðherra. Evrópumisklíðin mun þó varla valda teljandi vandræðum á kjör- tímabilinu enda svo sem búið að finna lausnina; að setja málið í nefnd. Auð- vitað hefði hvorugur flokkanna treyst hinum alfarið til að leiða slíkt nefndarstarf og þá lítið annað að gera en að setja Evrópusambands- sinnann, Ágúst Ólaf Ágústsson, og Illuga Gunnarsson, einn ötulustu talsmanna gegn aðild, saman í for- mannssætið. Og aðeins til gamans. Í Evrópu- skýrslu utanríkisráðherra er að finna eftirfarandi setningabrot: „Ísland er í hringiðu Evrópusam- runans“, „segja má að Ísland sé í hringiðu Evrópusamrunans“, „að sýna hve þétt Ísland er í raun ofið í Evrópusamrunann“, „má glöggt ráða hversu mikinn þátt Ísland tekur í Evrópusamrunanum“ og „hve náið Ísland stendur kjarna Evrópusamrunans“. Þar höfum við það, fimm sinnum. Símasambandslaust? Frá Evrópuumræðum í aðeins meira hversdagstal. Við blaðamenn styðjumst mikið við símann í störfum okkar, a.m.k. þau okkar sem vinna með hið prentaða orð. Þessu fylgir óneitanlega tímasparnaður en auð- vitað getur verið leiðinlegt að hitta viðmælendurna sjaldan augliti til auglitis. Í þingfréttamennskunni nota ég símann minna enda oftast að fylgjast með umræðum í þingsal. Ég var því eiginlega búin að gleyma hversu þreytandi það getur verið að eyða kannski heilu dögunum í að reyna að ná sambandi við fólk, án ár- angurs. En nú um daginn var vandanum öðruvísi háttað. Ég átti erindi við dómsmálaráðuneytið og spurði í gegnum símann hver gæti orðið til svara erindi mínu. Þá var mér sagt að senda spurningarnar með tölvu- pósti. Ég maldaði í móinn, satt best að segja talsvert mikið, og vildi fá símasamband við þann sem ég átti að tala við. Allt kom fyrir ekki. Tölvu- póstur skyldi það vera. Það verður ekki af núverandi dómsmálaráðherra tekið að hann hefur verið frumkvöðull í að nýta tölvutækni við störf sín. Hann svarar tölvubréfum hratt og örugglega og hefur haldið úti virkri heimasíðu frá miðjum tíunda áratugnum. Hugsanlega hefur hann því sett tóninn fyrir þetta verklag hjá ráðu- neytinu enda svarar hann venjulega sjálfur erindum blaðamanna í gegn- um tölvupóst. Segir í tölvubréfi … Hvað sem því líður getur þessi samskiptamáti verið slæmur fyrir fjölmiðla. Í fyrsta lagi verða svörin mun formlegri og þurrari og erfiðari til að hafa eftir, sbr. „Eins og fram kemur í greinargerð með 2. mgr. 11. gr. frumvarpsins er verið að færa lagabókstafinn …“. Í öðru lagi gerir þetta blaðamönnum erfiðara fyrir að fylgja eftir spurningum og hvað þá að ganga á viðmælendur sína. Í þriðja lagi vakna spurningar um hvernig á að hafa ummælin eftir. Á að skrifa „segir Jóna Jónsdóttir“ eða „skrifar Jóna Jónsdóttir í tölvu- bréfi“? Og hvað um ljósvakamiðlana? Eiga þeir alltaf að vitna í tölvubréf? Ég vona svo sannarlega að ráðu- neytið láti af þessu og svari munn- lega, nema annars sé óskað. Evrópumál og tölvupóstaráðuneyti ÞINGBRÉF Halla Gunnarsdóttir UMHVERFISRÁÐHERRA hefur ákveðið að taka til efnislegrar meðferðar kæru Landverndar á ákvörðun Skipulags- stofnunar um að nýta ekki heimildir sínar til þess að láta fram- kvæma heildstætt um- hverfismat fyrir álver í Helguvík og tengdar framkvæmdir. „Þetta er sigur í sjálfu sér því með þessu er ráðherra að staðfesta kæru- heimildina okkar. Það styrkir kröfu okkar verulega að Umhverf- isstofnun skuli taka efnislega undir með Landvernd og lýsa yfir stuðningi með kröf- unni um heildstætt umhverfismat,“ segir Bergur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Land- verndar. Í kæru sinni frá miðjum október sl. krafðist Landvernd þess að álit Skipulagsstofnunar yrði ógilt og að fram færi lögformlegt umhverf- ismat á framkvæmdunum í heild sinni, álveri, flæðigryfju, há- spennulínum, virkjunum og hafn- arframkvæmdum. Í samtali við Morgunblaðið segir Bergur ljóst að fari ráðherra fram á að fram- kvæmt verði heildstætt umhverf- ismat sé vandséð að álver í Helgu- vík verði að veruleika. „Það er mitt mat að í reynd yrði álver í Helguvík úr sögunni, vegna þess að það eru svo margir leyfisveit- endur í því ferli sem eru ekki sáttir við þessa framkvæmd.“ Hjá Magnúsi Jó- hannessyni, ráðu- neytisstjóra um- hverfisráðuneytisins, fengust þær upplýs- ingar að kæran væri á vinnslustigi í ráðu- neytinu. Segir hann kæru Landverndar hafa verið senda til fimmtán umsagn- araðila, þ.e. Hvera- gerðisbæjar, sveitar- félagsins Ölfuss, stjórnar Reykjanes- fólkvangs, sveitarfé- lagsins Voga, Grindavíkurbæjar, heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, iðn- aðarráðuneytis, sveitarfélagsins Garðs, Reykjanesbæjar, Umhverf- isstofnunar, Landsnets, Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suður- nesja, Norðuráls og Skipulags- stofnunar. Segir Magnús nær alla umsagnaraðila hafa skilað inn um- sögnum sínum, en fresturinn er þegar útrunninn. Magnús segir aðspurður að ekki sé ósennilegt að það geti tekið nokkrar vikur að ljúka málinu. Rík rannsóknarskylda hvíli á ráðuneytinu í svona málum. „Þetta er sigur í sjálfu sér“ Umhverfisráðherra tekur kæru Land- verndar til efnislegrar meðferðar Bergur Sigurðsson Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Í höfn Umsvif hafa aukist í Helguvíkurhöfn á undanförnum árum. KYNBUNDINN launamunur er ekki lengur fyrir hendi hjá starfs- mönnum Akureyrarbæjar, skv. alls- herjarkönnun Rannsókna- og þróun- armiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) sem kynnt var í bæjarráði í fyrradag. Samskonar könnun sem gerð var 1998 leiddi í ljós að konur voru að meðaltali með 6% lægri dagvinnu- laun en karlar og 8% lægri heildar- laun. Dagvinnulaun karla og kvenna eru mjög lík, skv. upplýsingum frá bæn- um. Helmingur karla hefur 184 þús- und eða minna á mánuði í dagvinnu- laun. Meðaldagvinnulaun karla eru nokkuð hærri, 212 þúsund á mánuði. Helmingur kvenna hefur 188 þúsund á mánuði í dagvinnulaun eða minna en meðaldagvinnulaun kvenna eru 208 þúsund á mánuði. „Að teknu tilliti til aldurs, starfs- aldurs, starfs og starfssviðs eða deildar og vinnutíma kemur í ljós að ekki er marktækur munur á dag- vinnulaunum karla og kvenna.“ Karlar hafa að meðaltali hærri heildarlaun en konur. Helmingur karla hefur 308 þúsund eða minna á mánuði í heildarlaun og helmingur karla meira en það. Meðalheildar- laun karla eru 332 þúsund á mánuði. Helmingur kvenna hefur 263 þúsund á mánuði í heildarlaun eða minna og helmingur kvenna meira en það. Meðalheildarlaun kvenna eru 274 þúsund á mánuði. Að teknu tilliti til aldurs, starfs- aldurs, starfs, starfssviðs eða deildar og vinnutíma reynist kynbundinn munur á heildarlaunum ekki mark- tækur. Í gegnum tíðina hafa kannanir sýnt fram á að það er frekar í auka- greiðslum (yfirvinnu, vaktaálagi o.fl.) sem launamunur kynja kemur í ljós. Aukagreiðslur eru nokkuð hátt hlutfall af heildarlaunum starfs- manna eða að meðaltali rúm 22% heildarlauna. Hlutfallið er þó nokkuð hærra hjá körlum en konum eða rúm 46% á móti um 14% hjá konum. Stærstur hluti aukagreiðslna hjá Ak- ureyrarbæ er tilkominn vegna skráðrar yfirvinnu en síðan koma vaktavinnuálagsgreiðslur. Eftir gagngera endurskoðun á launa- greiðslum starfsmanna Akureyrar- bæjar á árunum 2005-2007 er ein- göngu greidd yfirvinna samkvæmt tímaskráningum og hvergi er um fastar yfirvinnugreiðslur eða akstur að ræða. Karlar virðast því áfram sækja meira í vaktavinnustörf eða störf þar sem þörf er á yfirvinnu.“ Kynbundnum launa- mun hefur verið eytt ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra og Gunnar I. Birgisson, stjórnarformaður Lána- sjóðs íslenskra námsmanna (LÍN), opnuðu í gær nýja þjónustu sem gerir greiðendum námslána kleift að af- þakka almenna greiðsluseðla. Petrína Sæunn Úlfarsdóttir varð fyrsti greið- andi námslána sem nýtti sér þennan kost og var hún viðstödd athöfnina. Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LÍN, sagði fulltrúa námsmanna í stjórn sjóðsins hafa lagt fram tillögu um þessa breytingu á liðnu vori. Steingrímur sagði þessa breytingu vera tvíþætta. Annars veg- ar fælist hún í að losna við greiðslu- gjaldið og hins vegar að losna við pappírsgögnin. Hann sagði að fólk vildi í vaxandi mæli geta gengið að upplýsingum sem þessum á vísum stað á rafrænu formi. Þessarar til- hneigingar hafi víðar orðið vart, t.d. þegar Fjársýsla ríkisins hóf að bjóða upp á rafræna launaseðla, en þá vildi yfirgnæfandi meirihluti starfsmanna hins opinbera fá slíka seðla og afþakk- aði prentaða launaseðla í umslagi. Með því að afþakka greiðsluseðl- ana falla greiðslu- og seðilgjöld niður. Samkvæmt upplýsingum LÍN er al- gengasta seðilgjald 350 krónur, en seðilgjöldin eru mismunandi. Flestir greiða tvisvar á ári af námslánum sín- um. Til að nýta sér þessa nýju þjónustu geta greiðendur námslána farið inn á „Mitt svæði“ hjá LÍN og afþakkað þar greiðsluseðla. Frestur til að af- þakka greiðsluseðla vegna gjalddaga 1. mars 2008 er til 15. febrúar næst- komandi. Á þeim gjalddaga eiga um 26.000 greiðendur að borga af náms- lánum. „Mitt svæði“ er einkasvæði við- skiptavina LÍN. Aðgangi að því er stýrt gegnum heimabanka eða þjón- ustusíðu ríkisskattstjóra. Lánasjóður íslenskra námsmanna með rafræna greiðsluseðla Spara greiðendum peninga og öllum pappír Árvakur/Árni Sæberg Námslán F.v. Steingrímur Ari Arason, Gunnar I. Birgisson, Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir og Petrína Sæunn Úlfarsdóttir við opnun þjónustunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.