Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Selfoss | „Rekstur áhugaleikhúss
snýst bara um samveru og áhuga
og fólkið sem tekur þátt. Hér er
frábær hópur fólks sem er tilbúið
að leggja nótt við dag fyrir leiklist-
arbakteríuna,“ segir Guðbjörg
Gunnarsdóttir, formaður Leik-
félags Selfoss.
Leikfélagið fagnar 50 ára af-
mæli um þessar mundir og hefur
af því tilefni frumsýnt nýtt leik-
verk, „Með táning í tölvunni“ eftir
Ray Cooney, sem Jón Stefán
Kristjánsson þýddi og leikstýrir.
Setur svip á bæjarlífið
Leikfélag Selfoss var stofnað 9.
janúar 1958 í svokölluðu Iðn-
aðarmannahúsi, en svo skemmti-
lega vill til að það er einmitt húsið
þar sem félagið hefur aðstöðu í
dag. Félagið hefur alla tíð verið af-
ar öflugt og gróskumikið og sett
svip sinn á bæjarlífið á Selfossi.
Það þykir vera eitt af öflugustu
áhugaleikfélögum á landinu og
ótrúlega margir bæjarbúar hafa á
einn eða annan hátt komið að starfi
félagsins í gegnum tíðina, bæði
sem þátttakendur og áhorfendur.
Auk leiksýninga hefur félagið
tekið þátt í ýmsum viðburðum í
bænum og haldið úti leik-
húsnámskeiðum á sumrin fyrir
börn og ungmenni. „Við reynum
líka að bjóða upp á spennandi nám-
skeið fyrir leikhúsáhugafólk,“
sagði Guðfinna.
Guðbjörg segir að frábær hópur
fólks leggi nótt við dag til að vinna
að verkefum félagsins. „Fólk vinn-
ur fulla vinnu allan daginn og mæt-
ir svo hingað á kvöldin til að æfa,
smíða, sminka, semja leikskrá,
taka til, setja upp ljós og hvaðeina
sem þarf að gera, en það eru ansi
mörg verk sem falla til á bak við
hverja sýningu. Það gengur
kannski á ýmsu á meðan yfir
stendur, en einhvern veginn hefst
þetta allt og fiðringurinn í mag-
anum á frumsýningardaginn er
ólýsanlegur. Þetta er ótrúlega gef-
andi og gaman og allir vinna sam-
an að settu markmiði sem einn
maður. Þetta er eins og ein stór
fjölskylda, skiptir engu máli hvað-
an þú kemur eða hvert þú ert að
fara, allir standa saman. Aldur og
fyrri störf skipta engu þegar leik-
húsið er annars vegar og allir vel-
komnir að vera með.“
Mikið hlegið
Nýjasta verk leikfélagsins,
„Með táning í tölvunni“ hefur held-
ur betur slegið í gegn hjá Leik-
félagi Selfoss. „Já, sýningunni hef-
ur verið afar vel tekið og mikið
hlegið í salnum, en það er mjög
gaman að fá fólk til að hlæja. Svo
er mjög skemmtilegt að afmæl-
issýningin skuli vera verk sem er
frumflutt á Íslandi. Verkið er sjálf-
stætt framhald af farsa sem nefn-
ist „Með vífið í lúkunum“ og hefur
slegið í gegn víða,“ segir Guðfinna.
Þá kom fram hjá henni að ætl-
unin væri að gefa út afmælisblað,
opna heimasíðu félagsins og að í
vor verði vegleg afmælishátíð. Auk
þess standi til að vera með opið
hús í mars, þar sem gestum og
gangandi gefst kostur á að kynna
sér starfsemina. Einnig eigi að
halda ýmis námskeið á afmæl-
isárinu.
„Okkur þykir mjög vænt um
leikhúsið okkar, Litla leikhúsið við
Sigtún, eins og það er kallað. Þetta
er gamalt hús sem staðið hefur hér
lengi og við fengum til afnota árið
1988. Þá hafði það verið notað sem
skólahús, en við höfum lagt mikið á
okkur til að breyta því í leikhús.
Þetta er hús með sál og hér er
mjög góð félagsaðstaða. Okkur
dreymir að sjálfsögðu um að kom-
ast á stærra svið, það er eðlilegt,
við höfum ekki gott aðgengi sem
orsakast af aldri hússins og áhorf-
endasalurinn er lítill og ann-
mörkum háður. Nú er sveitarfé-
lagið að skoða og meta
húsnæðismál menningarmála sem
er afar jákvætt og verður gaman
að sjá hvað kemur út úr þeirri
vinnu.
Þarf góða aðstöðu
Menning snýst fyrst og fremst
um fólk og getur átt sér stað hvar
og hvenær sem er, en það er afar
nauðsynlegt að veita henni það
rými sem hún þarfnast. Menning
snýst ekki bara um þá sem stunda
listir, heldur ekki síður um þá sem
njóta listarinnar og við þurfum að
búa til ákjósanlega aðstöðu fyrir
áhorfendur. Við þurfum líka að ala
upp áhorfendur, það er jafnmik-
ilvægt,“ sagði Guðfinna spurð um
aðstöðu leikfélagsins í dag.
Hún var líka spurð hver væri
draumaafmælisgjöf félagsins? „Af-
mælisgjafir eiga að koma á óvart,
ekki satt? Ég vona bara að félagið
haldi áfram að vaxa og dafna og fái
þann jarðveg sem til þess þarf. Að
við mætum áfram jákvæðu við-
horfi samfélagsins og stuðningi til
góðra starfa. Ég vona að sem flest-
ir leggi leið sína í litla leikhúsið við
Sigtún og kynni sér það sem þar
fer fram,“ sagði formaður Leik-
félags Selfoss.
Margir leggja
mikið á sig fyrir
Leikfélag Selfoss
Menning snýst um fólk
Tímamót Guðfinna Gunn-
arsdóttir er formaður Leik-
félags Selfoss.
Í HNOTSKURN
»Verkefnaskrá LeikfélagsSelfoss í fimmtíu ár er löng
og um margt fróðleg. Hún tel-
ur alls 67 verk.
»Guðfinna Gunnarsdóttir,formaður Leikfélags Sel-
foss, er fædd og uppalin á Sel-
fossi og býr þar með fjölskyldu
sinni.
»Hún er framhaldsskóla-kennari, kennir ensku, lífs-
leikni, leiklist og fleira við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands og er
einnig blaðamaður á Gluggan-
um – sunnlensku vikublaði.
Hún segist hafa áhuga á fólki.
Selfoss | Sigrún Vala Björnsdóttir hlaut
styrk Vísinda- og rannsóknarsjóðs
Fræðslunets Suðurlands fyrir árið 2007.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
afhenti henni styrkinn á hátíðarfundi
Fræðslunetsins sem haldinn var í sal Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Alls bárust 16
umsóknir um styrki úr sjóðnum að þessu
sinni. Styrkfjárhæðin er 750 þúsund krón-
ur.
Verkefni Sigrúnar Völu nefnist „Árang-
ur nýrrar meðferðar við langvinnum stoð-
kerfisverkjum á Íslandi“, en það er dokt-
orsverkefni í lýðheilsuvísindum við
Sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands. Sig-
rún Vala starfar sem sjúkraþjálfari á
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Ís-
lands í Hveragerði samhliða námi sínu.
Hlaut styrk úr vís-
indasjóði Fræðslu-
nets Suðurlands
Viðurkenning Sigrún Vala tekur við
styrk úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
BOÐIÐ verður upp á norska „for-
rétti“ og síðan flautukonsert eftir
franska tónskáldið Jacques Ibert
og 6. sinfóníu
Ludwigs van
Beethovens, á
tónleikum Sin-
fóníuhljómsveit-
ar Norðurlands
í Glerárkirkju á
morgun, sunnu-
dag. Gesta-
stjórnandi á tón-
leikunum er
Norðmaðurinn
Bjarte Engeset
og einleikari á flautu Áshildur Har-
aldsdóttir. Á efnisskránni eru verk
eftir tvö norsk tónskáld, Harald
Sæverud og Johann Halvorsen, auk
flautukonserts Frakkans og sinfón-
íu Beethovens hinn þýska.
Engeset segir norsku tónlistina
hálfgerða forrétti að þessu sinni.
„Við vildum bjóða upp á smásmakk
af norskri tónlist og þessi tvö verk
eru mjög ólík,“ sagði hann við
Morgunblaðið í gær.
Halvorsen samdi mikið af leik-
húsmúsík og eftir hann verður flutt-
ur kafli úr svítu sem hann samdi við
leikrit eftir L. Holberg. Eftir Sæve-
rud verður flutt Rondo amoroso
sem er samið fyrir píanó en einnig
útsett fyrir hljómsveit. „Þetta er
nútímaverk, fallegt og ljóðrænt.
Hann samdi það eftir samtal við
ungan son sinn og segir að barnssál
sé að finna í verkinu,“ sagði Enge-
set og bætir við tónlist Sæverud sé
mjög vinsæl í Noregi um þessar
mundir.
Eftir franska tónskáldið Jaques
Ibert verður fluttur konsert fyrir
flautu og hljómsveit. Konsertinn
sem er skrifaður fyrir litla hljóm-
sveit er glæsilegt virtúósastykki og
mikil áskorun fyrir flautuleikarann.
Engeset segir þetta raunar einn af
bestu flautukonsertum frá síðustu
öld og ætti að vita það vel, því hann
er nefnilega sjálfur flautuleikari að
upplagi. Segist reyndar ekki spila
opinberlega lengur og ekki hafa
tíma til að æfa sig því hann sé alltaf
að stjórna.
Auk þess að koma reglulega fram
sem einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands hefur Áshildur Har-
aldsdóttir leikið einleik með hljóm-
sveitum í fjórum heimsálfum og
komið fram í útvarpi og sjónvarpi í
yfir 20 löndum. Áshildur hefur verið
í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá
árinu 2004.
Síðast á efniskrá tónleikanna er
Sinfónía nr. 6 eftir Beethoven, oft
nefnd Pastorale, eða Sveitalífs-sin-
fónían. Sinfónían er með glaðlegri
verkum tónskáldsins og á að vekja
stemningu fyrir ósnortinni náttúru
og fólkinu sem býr í sveitinni.
„Ég hringdi í konuna mína í dag
og hún sagði brjálað veður í Noregi;
miklu verra en hér,“ sagði Engeset í
gær, og var þó ekki beint blíða á Ak-
ureyri. „Þetta á kannski vel við,
segja má að það sé mikill stormur í
sinfóníu Beethovens.“
Verkið er 200 ára gamalt, samið
1808. Fyrsta sígilda verkið, segir
Engest, sem segja má að sé nokk-
urs konar þjóðlagatónlist.
Bjarte Engeset hóf stjórnanda-
ferilinn í Álasundi, vinabæ Akur-
eyrar í Noregi, og byggði síðan upp
sinfóníuhljómsveit í Tromsö í Norð-
ur-Noregi. „Það er öðruvísi að
stjórna í norðrinu en annars stað-
ar,“ svarar hann spurður. „Ég er
frá Norðvestur-Noregi, var í 12 ár í
Tromsö og finn ákveðna tengingu á
milli þessara staða. Það er meiri
orka þar en annars staðar og ástæð-
an kannski sú að staðirnir eru langt
frá höfuðstaðnum og þar þarf fólk
að berjast meira fyrir pólitískum
áhrifum en annars staðar. Og ekki
bara fyrir áhrifum heldur þarf það
líka sífellt að berjast fyrir ákveðnu
stolti.“
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á
morgun og er forsala miða í verslun
Pennans í Hafnarstræti.
Norskur gestastjórnandi með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Glerárkirkju
Barátta um áhrif og stolt
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Kraftur Það er öðruvísi að stjórna svona norðarlega, meiri kraftur í fólk-
inu, segir Bjarte Engeset, og kippti sér ekkert upp við snjókomuna í gær.
Í HNOTSKURN
»Bjarte Engeset er að-alstjórnandi Dala-
Sinfonietta í Svíþjóð. Hann
stjórnaði upptökum með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands sem
kom út árið 2004.
»Áshildur Haraldsdóttirnam flautuleik við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og lauk
síðan háskólaprófum frá The
New England Conservatory of
Music, Juilliard-skólanum í
New York og Konservatoríinu
í París. Hún hefur unnið til
verðlauna í fjórum alþjóð-
legum tónlistarkeppnum og
hljóðritað fimm einleiks-
geisladiska.
Áshildur einleikari
með SN í flautu-
konsert eftir Ibert
Áshildur
Haraldsdóttir
SÝNING um leiklist
á Akureyri verður
opnuð á Amts-
bókasafninu í dag.
Tilefnið er ald-
arafmæli Samkomu-
hússins í fyrra og ní-
ræðisafmæli
Leikfélagsins á sama
ári. Á sýningunni er
gefið yfirlit í máli og
myndum yfir leik-
starfsemi á Akureyri
frá því þar var fyrst
leikið árið 1860 og til dagsins í dag. Á sýn-
ingunni er mikið myndefni frá sýningum
þess, nokkur sýnishorn af leikmunum og
búningum frá LA og á myndskjá verða
sýnd brot úr gömlum upptökum frá sýn-
ingum. Það er Leikminjasafn Íslands sem
stendur að sýningunni, sem hefst kl. 15.
Steinn Kristjánsson opnar sýninguna
Hugrenningar á Café Karólínu kl. 14 í dag.
Hann segir sýninguna hugrenningar lista-
manns til að færa hefðbundið kaffi-
húsaspjall aftur inn á kaffihús, undir for-
merkjum bloggsins.
Ert þú mannglöggur? Ertu minnugur á
staðhætti? Þannig spyr Minjasafnið á Ak-
ureyri og biður um aðstoð til þess að koma
nafni á andlit, hús, mannvirki og þorp á
sýningunni Þekkir þú … fjölbreytileik
mannlífsins? sem opnuð verður kl. 14 í dag í
safninu. Sýningin samanstendur af 70
óþekktum myndum úr safni Minjasafnsins.
Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur og
Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða í Unun)
flytja í kvöld kl. 21.30 dagskrána Þau minna
á fjallavötnin fagurblá í Populus tremula.
Kristín fjallar um dægurlagatexta og sam-
félag á seinni hluta 20. aldar og Heiða flytur
lögin sem fjallað er um. Malpokar leyfðir og
aðgangur ókeypis.
Boðið upp á list
af ýmsum toga
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Fyrirhugað er að halda svonefnt
ALFA-námskeið í Selfosskirkju. Nám-
skeiðið verður kynnt á sérstökum fundi,
sem haldinn verður í safnaðarheimili Sel-
fosskirkju þriðjudaginn 5. febrúar næst-
komandi og hefst hann kl. 19.30.
Námsefni ALFA-námskeiðanna felur í
sér leit að svörum við spurningum lífs og
tilveru: Hver er tilgangur lífsins? Hvernig
varð Biblían til? Hvaða hlutverki gegnir
kirkjan? Við áþekkar spurningar, og fleiri
hliðstæðar, glíma öll trúarbrögð heims.
Námskeið í kirkjunni