Morgunblaðið - 02.02.2008, Side 56

Morgunblaðið - 02.02.2008, Side 56
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Lagt til að ríkið kaupi kvótann af kúabændum  Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, hefur lagt til að næsti samn- ingur ríkisins við kúabændur verði síðasti búvörusamningurinn og hann feli í sér að ríkið kaupi allt greiðslu- mark af bændum. »Forsíða Um 62% óánægð  Um 62% borgarbúa eru óánægð með nýja meirihlutann í Reykjavík en um 27% ánægð með hann, sam- kvæmt nýrri könnun Capacent Gall- up. Um 64% borgarbúa eru óánægð með nýja borgarstjórann og 16% ánægð með hann. »4 Metnotkun á heitu vatni  Met var sett í notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna kulda. Loka þurfti sundlaugum á Akranesi, í Borgarnesi, á Selfossi og Stokkseyri vegna vatnsskorts. »6 SKOÐANIR» Staksteinar: Umhugsunarefni fyrir Arnbjörgu Forystugreinar: Netútgáfa Morgun- blaðsins | Staða kvenna í fyrirtækjum UMRÆÐAN» Baðið og bábiljan Dauðagildrur á leikvöllum V-bæjar Valdagræðgi eða málefnal. samstaða? Af litríkum skrifum um raforkumál Börn: Stóra vetrarþrautin Krakkarýni um dramadrottningu Lesbók: Tvær nýjar sinfóníur Þursaflokkurinn snýr aftur BÖRN | LESBÓK» #3" #3# 3 3&" 3 "&3 3## &"3& 4$  5'$ . +  6$!   ! $.  #3# # 3& 3&& 3#& # 3# &#3 #3 - 7%1 '  # &3 #"3 3& 3 3&& # 3#& &#3" 89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'77<D@; @9<'77<D@; 'E@'77<D@; '2=''@F<;@7= G;A;@'7>G?@ '8< ?2<; 6?@6='2+'=>;:; Heitast -8 °C | Kaldast -18 °C Norðaustan 8-13 m/s og él eða dálítil snjókoma á N- og A- landi, annars léttskýj- að. Kaldast í innsveitum. »10 Einar Falur Ingólfs- son hreifst af barna- og unglingabókinni Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. »53 AF LISTUM» Spennandi Draugaslóð TÓNLIST» Mugison sló í gegn á Midem. »55 Vampírumyndin Nosferatu verður sýnd í Salnum á morgun við lifandi undirleik harmoniku og sellós. »50 KVIKMYNDIR» Vampíru- mynd FÓLK» Orlando Bloom aðstoðaði Courtney Love. »51 TÓNLIST» Andreas and the Glory- holes spila hrátt. »48 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Á von á barni með barnfóstrunni 2. 9 bílar í árekstrum í Ártúnsbrekku 3. Að borða bollu eins og maður 4. Þyrla og 20 menn sóttu Spears Íslenska krónan styrktist um 0,4% UNA Jóhannesdóttir lenti á tvítugsafmælis- deginum sínum alein í Harare, höfuðborg Simbabve, og lagði upp í sjö vikna trukkaferð um Afríku. Eftir það fór hún að vinna í ljónagarð- inum Antelope Park í tvo mánuði sem sjálf- boðaliði og varð fyrst Íslendinga til þess. Þar fer bæði fram ræktun á ljónum og þjónusta við ferða- menn. Afrísk ljón eru á válista og þeim fækkar mjög hratt, bæði vegna hömlulausra veiða og sjúkdóma. Una vann við að þjálfa yngstu ljón- sungana til veiða og einnig hjálpaði hún til með fílana. Þau þurftu líka að verjast veiðiþjófum og sinna girðingarvinnu og stundum brytjaði hún niður heilu kýrskrokkana, því ljón eru stórar skepnur sem þurfa að éta mikið. Starfið í ljóna- garðinum var ævintýralegra en Unu hafði órað fyrir. „Þarna var ég í mikilli snertingu við náttúr- una og lærði mikið, til dæmis um fílana, hestana, fuglana og stjörnurnar. Þarna var líka margt sem kom á óvart og ég kynntist mörgu og ólíku fólki.“ Una er heilluð af ljónum en henni finnst ljón- ynjurnar fallegri en karldýrin. „Þær eru fínlegri og fríðari og skrokkurinn rennilegri og léttari. Hins vegar eru þær mjög grimmar. Til dæmis voru þarna tvær systur, ljónynjur, sem höfðu drepið saman aðra ljónynju.“ Og Una vílaði ekki fyrir sér að fara út á nóttunni til að læra um hegð- un ljónanna. „Við fórum stundum á nóttunni með eldri ljónin út að veiða, þau sem voru frá 18 mán- aða til tveggja og hálfs árs. Þá fylgdum við þeim á bílum og oft var mikil spenna enda þurftum við að keyra yfir ófærur til að elta ljónin.“ | 26 Starfaði sem sjálfboðaliði við umönnun ljóna í tvo mánuði í Afríku Heilluð af ljónum Ljón Una með hinum ársgamla Masai í daglegri morgungöngu en hún segir ljón bestu skinn. UNGUR íslensk- ur hönnuður, Þórunn Árna- dóttir, vekur nú athygli á erlendri grundu. Á síðasta ári var fjallað um Þórunni í nor- rænu tímariti, Forum Aid, þar sem hún var út- nefnd meðal tíu mest spennandi útskriftarnema í hönnun á Norðurlöndunum. Hol- lenska tímaritið Frame, sem er virt á sviði hönnunar um víða veröld, fjallaði einnig um hana sem efnileg- an hönnuð í janúarhefti sínu. Í fyrradag fjallaði svo dagblaðið The New York Times um verk hennar og annars Íslendings, Katrínar Svönu Eyþórsdóttur, í tengslum við hönnunarhreyfinguna Slow Design. Einn forkólfa Slow Design er Carolyn Strauss, sem verið hefur gestakennari við Listaháskóla Ís- lands, en hreyfingin hefur þá hug- myndafræði að leiðarljósi að fólk ætti ekki að lifa lífinu of hratt, eins og mörgum hættir til á 21. öldinni, heldur njóta þess betur. Útskrift- arverkefni Þórunnar frá LHÍ síðast- liðið vor var klukka, samansett úr perlufesti sem hvílir á tannhjóli. Eft- ir því sem tíminn líður snýst hjólið og ein perla fellur á fimm mínútna fresti. Blaðamaður New York Times segir hana mæla tímann þannig að hún virðist jafnvel hægja á honum. „Bæði heiður og hvatning“ Þórunn býr nú og starfar í Eng- landi, en í haust hannaði hún verð- launagrip hvatningarverðlauna Ör- yrkjabandalags Íslands, sem Freyja Haraldsdóttir hlaut í desember síð- astliðnum. „Ég vissi ekki af þessari umfjöllun fyrr en ég kíkti á tölvu- póstinn minn fyrr í dag,“ segir Þór- unn í samtali við Morgunblaðið. „Þá var þar fullt af fyrirspurnum um klukkuna frá lesendum blaðsins.“ Aðspurð segir hún mikilvægt fyrir ungan hönnuð eins og sig að fá um- fjöllun sem þessa. „Þetta er bæði heiður og hvatning fyrir mig sem hönnuð og auðvitað bara til bóta upp á framhaldið að gera.“ Vekur athygli vestanhafs Frumleg klukka Ein rauð perla fellur á hverri klukkustund, en blá- ar perlur á fimm mínútna fresti. Þórunn Árnadóttir TÍU ár eru síðan Fréttavefur Morgunblaðsins hóf göngu sína. Vefurinn hefur tekið miklum breytingum þennan áratug og framundan eru einnig margar nýj- ungar. Í sérblaði sem fylgir Morg- unblaðinu í dag kemur fram að innan tíðar mun mbl.is hefja versl- un með tónlist, setja á stofn stefnumótavef og svokallaðan sam- félagsvef. Á mbl.is má einnig sjá mynd- skeið um þróun fréttaveitunnar á netinu á liðnum áratug. Þar er sýnt frá því þegar vefurinn var opnaður, fólkið sem er á bak við vinnslu fréttanna er kynnt til sög- unnar, tæknimenn heimsóttir og fylgst með upphafi sjónvarps- fréttatíma. Um tuttugu starfs- menn – blaðamenn, tæknimenn og sjónvarpsfólk – standa á bak við fréttaveitu mbl.is, auk þess sterka baklands sem vefurinn á í fjöl- mennu starfsliði annarra miðla Ár- vakurs. Tíu ára af- mæli mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.