Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 11 FRÉTTIR BYGGINGARFRAMKVÆMDIR eru nú hafnar við nýbyggingu Há- skólans í Reykjavík við Öskjuhlíð. Ráðið verður í tugi nýrra akadem- ískra starfa á næstu misserum og jafnframt mun alþjóðlegt ráðgjafa- ráð, sem skipað er erlendum fræði- mönnum og sérfræðingum, starfa við hlið nýs háskólaráðs sem tekur til starfa í þessum mánuði. Byggingin verður ein sú stærsta í Reykjavík, um 40.000 fermetrar og hönnuð til að bjóða fyrsta flokks að- stöðu fyrir nemendur, kennara og vísindamenn. Kennsla mun hefjast í húsinu í ágúst 2010 og verður þá öll starfsemi Háskólans í Reykjavík sameinuð á einum stað. Samhliða nýbyggingu skólans stendur yfir uppbygging á starf- semi hans. Ráðið verður í rúmlega 40 akademískar stöður og koma starfsmenn skólans frá yfir 15 þjóð- löndum. Alls starfa um 500 manns við skólann. Til að ná settum markmiðum hef- ur skólinn aukið enn samstarf við öfluga erlenda háskóla. Hópur sér- fræðinga frá MIT hefur að und- anförnu unnið að skipulagningu meistaranáms í tækni- og verk- fræði ásamt starfsmönnum skólans. Viðskiptadeild HR hefur einnig hafið undirbúning að samstarfi við London Business School um fram- tíðarnám í deildinni. Morgunblaðið/Valdís Thor Rís af grunni Byggingarframkvæmdir eru hafnar við nýtt skólahús Há- skólans í Reykjavík við Öskjuhlíð. Kennsla hefst í húsinu í ágúst 2010. Hugvitið virkjað með alþjóð- legum háskóla í Reykjavík TUTTUGU kostnaðarsömustu lyfin á Íslandi sem seld eru út úr apótek- um eru að meðaltali 7,5% ódýrari á Íslandi en í Danmörku, samkvæmt verðkönnun sem lyfsalahópur SVÞ, Samtaka verslunar og þjónustu, gerði 1. febrúar sl. Með kostn- aðarsömustu lyfjunum er átt við þau lyf sem apótekin selja mest af í verðmætum talið og stofna jafn- framt til mestra útgjalda hjá sjúk- lingum og Tryggingastofnun. Lyfjaverð á Íslandi, heild- söluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu, segir í tilkynn- ingu frá SVÞ. Við ákvörðun þess hefur verið miðað við meðalverð viðkomandi lyfs í öðrum norrænum ríkjum. Til viðbótar veita íslensk apótek mismunandi afslátt frá op- inberu verði en í Danmörku er bannað að veita afslátt af lyfseð- ilsskyldum lyfjum. Þess ber þó að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér og önnur mun ódýrari. Verðsamanburðurinn er gerður út frá upplýsingum á vefsíðu Læge- middelstyrelsen í Danmörku og vefsíðu lyfjagreiðslunefndar á Ís- landi. Árvakur/Kristinn Lyf Lyfjaverð er kannað reglulega. Lyfin 7,5% ódýrari hér EVRÓPUFRÆÐASETUR Háskólans á Bif- röst hefur ásamt 65 háskólastofnunum víðs- vegar í Evrópu gengið frá samningi við fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins um að koma á fót samstarfsneti Evrópufræða í álf- unni. Í þessu verkefni koma færustu fræði- menn á sviði Evrópufræða (frá 66 háskólum í 30 Evrópuríkjum) saman og mynda með sér formlegan samstarfsvettvang til að vinna að sameiginlegum rannsóknum, segir í fréttatilkynningu. Verkefnið er til þriggja ára og er styrkt af Erasmus-menntaáætlun Evr- ópusambandsins. Samstarfsnet af þessu tagi eru til í ýmsum fræðigreinum en þetta er í fyrsta sinn sem komið er á slíku neti í Evrópufræðum, sam- kvæmt fréttatilkynningunni. Meðal verkefna Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst verður að hafa umsjón með fjölþjóðlegri rannsókn á ólíkum tengslum Norðurlandanna við Evrópusamrunann, en Bifröst er eini íslenski þátttakandinn í verkefninu. Samstarfsnet Evrópufræða Í DAG, þriðjudag kl. 20, mun Fem- ínistafélag Íslands halda sitt mán- aðarlega Hitt. Að þessu sinni verð- ur fjallað um fjölskyldur og jafn- rétti. Fundurinn verður haldinn á Bertelsstofu á Thorvaldsen-bar í Austurstræti. Á fundinum munu Gyða M. Pét- ursdóttir félagsfræðingur og Lúð- vík B. Jónsson, formaður Félags um foreldrajafnrétti, fjalla um þau við- fangsefni sem snúa að foreldrum, börnum og jafnrétti kynjanna. Hittið í dag RÚMLEGA fjörutíu nemendur verða brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst nk. laugaradg. Athöfnin hefst klukkan 14. Tónlistarskóli Borgarfjarðar annast tónlist- arflutning við athöfnina og verð- laun verða veitt fyrir góðan náms- árangur. Ágúst Einarsson rektor flytur hátíðarræðu. Nemendur Háskólans á Bifröst eru nú um 1.100. Námsbrautir í meistaranámi við skólann eru sjö talsins. Móttaka umsókna fyrir næsta skólaár er hafin. Útskrift á Bifröst DAGUR leikskólans verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 6. febr- úar, í fyrsta sinn. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leik- skólakennara fyrstu samtök sín. Félag leikskólakennara átti frum- kvæðið og óskaði samstarfs við Samband íslenskra sveitarfélaga, menntamálaráðuneytið og Heimili og skóla, sem tóku höndum saman við FL um skipulag og framkvæmd dagsins. Einkunnarorð dagsins eru „Við bjóðum ykkur góðan dag – alla daga“. Dagur leikskólans STUTT HJÁLMAR Hjálmars- son frá Bjargi á Bakka- firði lést á Landspítal- anum við Hringbraut 3. febrúar s.l., 80 ára að aldri. Hjámar fæddist 20. október 1927. For- eldrar hans voru Hjálmar Friðriksson og Sigríður Sigurðar- dóttir á Bjargi. Hjálm- ar átti tvær systur, þær Ester, sem er lát- in, og Brynhildi, sem lifir bróður sinn. Hjálmar stundaði sjómennsku og trillu- útgerð á Bakkafirði allan sinn aldur þangað til hann hætti útgerðinni s.l. ár vegna niðurskurðar á aflaheimild- um. Hjálmar var styrk stoð fyrir sitt byggðarlag og lagði fram krafta sína til viðhalds atvinnulífi og góðu mann- lífi á Bakkafirði. Hjálmar sat í sóknarnefnd, hreppsnefnd og á Fiskiþingi um árabil. Hann var einn af stofn- endum Saltfiskverkun- ar Útvers á Bakkafirði. Þar vann Hjálmar sem matsmaður í saltfiski og skreið samhliða eig- in útgerð. Hjálmar gegndi starfi vitavarðar Digranesvita í mörg ár og allt til æviloka. Fyrstu fluglínutækin til björgunar við sjóslys og komu til Bakkafjarð- ar voru staðsett á Bjargi í umsjá Hjálm- ars í samstarfi við Hannes Hafstein þáverandi framkvæmdastjóra Slysa- varnafélags Íslands. Síðar var björg- unarsveitin Örn á Bakkafirði stofnuð þar sem Hjálmar var einn stofnenda og aðalhvatamaður fyrstu árin. Eftirlifandi eiginkona Hjálmars er Sigríður Laufey Einarsdóttir. Andlát Hjálmar Hjálmarsson HALLDÓR Einarsson í Henson hitti Albert Scanlon, fyrrverandi leikmann enska knattspyrnustórveldisins Manchester United, á Old Trafford, heimavelli félags- ins, í gær. Halldór færði Scanlon treyju, sem hann saumaði í tilefni þess að á morgun, 6. febrúar, eru 50 ár frá því að átta leikmenn United létust í flugslysi í Þýskalandi, og ágóðann af sölu peysunnar, en Scanlon var einn þeirra sem komust af úr slysinu. Fögnuður á Old Trafford Félagar Albert Scanlon og Halldór Einarsson á Old Trafford í Manchester í gær. Ljósmynd/Howard Gordon Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is AFKOMA íslensku viðskiptabank- anna var merkilega góð á síðasta ári, þegar markaðsaðstæður eru hafðar í huga að mati greiningarfyrirtækis- ins Credit Sights, sem telur að árið 2008 verði bönkunum öllu erfiðara. Mun helsta verkefni bankanna að takast á við hækkandi fjármögnun- ar- og rekstrarkostnað, en í skýrslu Credit Sights er bent á að kostnaður jókst um 31% hjá Kaupþingi, 76% hjá Glitni og 49% hjá Landsbanka á síðasta ári, sem sé töluvert umfram aukningu á rekstrartekjum bank- anna. Hins vegar segir í skýrslunni að staða bankanna sé sterkari en hún var í upphafi árs 2006, einkum vegna aðgerða sem bankarnir hafi gripið til í því skyni að bæta lausafjárstöðu sína og fjármögnun og draga úr krosseignartengslum sín í milli. Í skýrslunni er sú skoðun Credit Sights endurtekin að tryggingarálag á skuldabréfum bankanna sé of hátt og er sérstaklega tekið fram að skýrsluhöfundum þyki furðulegur hinn mikli munur sem sé á álagi á bréfum Glitnis og Landsbanka. Hvað varðar þá ákvörðun láns- hæfismatsfyrirtækisins Moody’s að taka til endurskoðunar lánshæfisein- kunnir bankanna segir í skýrslunni að ákvörðunin hafi komið á óvart. Credit Sights telur einkunnirnar allt of háar, en setur spurningarmerki við þær ástæður sem Moody’s gefur fyrir endurskoðuninni. Sérstaklega sé skrýtið að Moody’s setji spurning- armerki við stöðugleika Icesave inn- lánsreiknings Landsbankans, því Landsbankinn hafi jú opnað innláns- reikninginn að tilstuðlan lánshæfis- matsfyrirtækja eins og Moody’s. Þá segir í skýrslunni að ákvörðun Kaupþings um að hætta við kaupin á NIBC hafi verið skynsamleg í ljósi markaðsaðstæðna. Tryggingarálag bankanna sagt of hátt Í HNOTSKURN » Í skýrslu Credit Sights segirað tekjur bankanna muni lík- lega dragast saman í ár og þess vegna muni þeir þurfa að skera niður kostnað hjá sér. » Hvað varðar markaði al-mennt segir í skýrslunni að það muni koma á óvart verði fjárfestingarfélagið Gnúpur eina félagið sinnar tegundar til að lenda í fjárhagsvanda á árinu.Arður Credit Sights telur, að arð-semi bankanna muni minnka í ár. LÖGREGLAN á Akureyri lagði hald á um 25 grömm af amfetamíni að- faranótt sl. sunnudags. Sex karl- menn voru handteknir í tengslum við fíkniefnafundinn og þeim sleppt að- lokinni skýrslutöku. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni komst fíkniefnamisferlið upp þegar bifreið var stöðvuð innan- bæjar. Töldu lögreglumenn bílinn vanbúinn til vetraraksturs – en mik- ill snjór er á Akureyri – auk þess sem of margir farþegar voru í bílnum. Lögreglumenn þekktu þegar í stað þá sem í bifreiðinni voru en þeir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíknefnamála. Sökum þess var gerð leit að fíkniefnum. Fundust í hanskahólfi fjögur grömm af amfetamíni og sautján grömm á farþegum. Við húsleit fund- ust svo tæp fjögur grömm til viðbót- ar. Hald lagt á 25 g af am- fetamíni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.