Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 15 MENNING ÁSTRALAR hafa skilað 526 ára gömlu landakorti aftur til Spánar. Kortið er verð- metið á 145.000 dollara. Því var stolið á síðasta ári frá Lands- bókasafninu á Spáni og er úr sjaldgæfri útgáfu af atlas sem þekkist sem Cosmographia. Í ágúst í fyrra náðu þjófar kortinu ásamt fjórtán öðrum sjaldgæfum skjölum af bóka- safninu og er talið að kortið hafi farið í gegnum hendurnar á kaupendum í Argentínu, London og New York áð- ur en það endaði í listasafni í Sydney þar sem Interpol og Ástralska rann- sóknarlögreglan lögðu hald á það. „Þetta er frábær stund fyrir Spán og ég myndi segja fyrir alla spæn- skættaða,“ sagði Milagros del Corral stjórnandi Landsbókasafnsins um fundinn á kortinu. „Okkur hefur fundist þessi þjófnaður mikil níðsla á arfi okkar.“ Komið heim 526 ára landakorti skilað til Spánar Frá Sydney. ÞESSA dagana er unnið að því að safna saman vísum eftir Skagfirðing- inn Sigurð Óskarsson, eða Sigga í Krossanesi eins og hann var jafnan nefndur. Margar vísnanna urðu fleygar á sinni tíð og stefnir bókaútgáfan Ver- öld að því að gefa úrval af kveðskap hans út á bók í haust. Dóttursonur Sigga, Sigurður Þorsteinsson, vinn- ur að safninu með forlaginu. Sigurður Óskarsson fæddist í Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi árið 1905. Hann hóf búskap í Krossa- nesi í Vallhólmi í Skagafirði árið 1934 ásamt konu sinni, Ólöfu Ragnheiði Jóhannsdóttur og bjó þar til dauða- dags, 10. ágúst 1995. Sigurður var kunnur hestamaður og hagyrðingur og var meðal annars einn stofnenda hestamannafélagsins Stíganda og formaður þess í tvo áratugi. Þeir sem kunna að luma á vísum eftir Sigga í Krossanesi eru beðnir um að hafa samband við Sigurð Þor- steinsson í síma 898 2768. Einnig má senda tölvupóst á sithor@kopsk- .kopavogur.is, eða til Péturs Más Ólafssonar hjá Veröld, á netfangið pmo@verold.is. Ein kunnasta vísa Sigga er: Fljót er nóttin dag að deyfa, dimma færist yfir geim Undir Blesa skröltir skeifa, skyldi hún ekki tolla heim? Leita vísna Sigga í Krossanesi LJÓÐALÖG eftir Jón Hlöðver Áskelsson verða flutt á tón- leikum í Norræna húsinu í há- deginu í dag. Það eru Margrét Bóasdóttir sópransöngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari sem flytja, ljóðin les Kristján Valur Ingólfsson. Á efnisskránni er söngvaflokkurinn „Vísur um draum“ við tólf ljóð eftir Þor- geir Sveinbjarnarson, Einnig verður fluttur þriggja laga söngvasveigur Mýr- arminni við ljóð eftir: Jón Bjarman, Sverri Páls- son og Snorra Hjartarson. Sama dagskrá var flutt í Laugarborg síðastlið- inn sunnudag. Tónleikarnir hefjast kl. 12. Tónlist Ljóðalög Jóns Hlöðvers flutt Margrét Bóasdóttir ÚT ER komin bókin Inn- gangur að miðöldum: Handbók í íslenskri miðaldasögu 1 eftir Gunnar Karlsson. Er hún inn- gangsbindi að fræðilegu yf- irlitsriti um íslenska mið- aldasögu. Hér er vísað á leiðir til að finna rit um viðfangs- efnið, skrifað yfirlit um mið- aldahugtakið, ásamt fleiri hug- tökum um tímabil í Íslandssögu miðalda, farið er yfir rannsóknarsögu og birt stutt yfirlit yfir evr- ópska miðaldasögu. Lengsti hlutinn er svo yfirlit um heimildir íslenskrar miðaldasögu – fornleifar, sögur, lög, skjöl og annála. Loks er gerð grein fyr- ir mælieiningum og tímatali miðaldafólks. Bókmenntir Inngangur að mið- öldum komin út Gunnar Karlsson TÓNSKÁLDIÐ og blokk- flautuleikarinn Camilla Söder- berg heldur sína fyrstu portra- it tónleika í tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafirði í kvöld kl. 20.30. Camilla er Íslendingum að góðu kunn enda komið mikið við sögu í íslensku tónlistarlífi í gegnum árin. Undanfarin ár hefur hún helgað sig tón- smíðum og hefur nú sett saman sérstaka dagskrá með þeim. En á tónleikunum flytur hún sex lög eftir sjálfa sig og eitt eftir Kjartan Ólafsson. Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr. en 1.000 kr. fyrir fyrir 67 ára og eldri, öryrkja og nema. Tónlist Camilla Söderberg í Laugarborg Camilla Söderberg Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is TÓNLEIKAR rússnesku kvenna- hljómsveitarinnar Iva Nova er einn stærsti viðburður Vetrarhátíðar í ár, en hljómsveitin leikur á Nasa á laug- ardagskvöld og slær þar með botn í hátíðina. Iva Nova þykir með eindæmum skemmtileg hljómsveit. Henni hefur verið líkt við hinar og þessar hljóm- sveitir í örvæntingarfullri leit gagn- rýnenda að haldreipi og föstu við- miði, svo hægt sé að koma einhverjum merkimiðum á hana, en ef marka má það sem heyra má af hljómsveitinni á netinu, hefur hún fyrst og fremst eigin karakter, þjóð- legan, rokkaðan, pönkaðan, nostalg- ískan, klassískan; Iva Nova er blönduband af bestu sort. Þjóðlegu áherslurnar eru sterkar, en pönk- aður undirtónninn er allsráðandi. Ef einhver líkindi er hægt að rekja ein- hvers staðar, sækir Iva Nova sitt- hvað til rússnesku pönkdrottning- arinnar Öllu Púgatsjevu, sem var upp á sitt besta á 9. áratugnum, en átti svo eftir að gera garðinn frægan áratug síðar sem hugguleg Evr- óvisjónstjarna. Gleðisveit á sviði Iva Nova var stofnuð í Sankti Pét- ursborg árið 2002, þegar fimm ung- ar konur hittust til að búa til músík og spila saman. Allar höfðu þær mikla reynslu af að spila, einar sér og með öðrum, en fundu sín á meðal systurlegan samhljóm sem skapaði þeim um leið sérstöðu. Það var þeim metnaðarmál að halda þjóðlega arf- inum og þjóðlegum hljóðfærum á lofti, en þær vildu hafa sinn karakter á túlkun hans og endursköpun. Þær leggja allt í sölurnar fyrir leikgleði og ögrandi sviðsframkomu um leið og þær smita fjöri og dansfiðringi í þá sem hlusta. Rússneski blaðamaðurinn Sergei Chernov skrifaði í Moscow Times í fyrra að Iva Nova væri heitasta hljómsveitin í dansklúbbunum bæði í Moskvu og í Pétursborg. Aðdáendur hljómsveitarinnar væru líka sam- mála um það, að Iva Nova væri band sem væri nauðsynlegt að upplifa á tónleikum, eða balli. Hann hefur eft- ir trommuleikara sveitarinnar Kötju Fjodorovu, að þjóðlega áherslan í tónlist sveitarinnar hafi verið eðli- leg, því þótt þær hefðu spilað tals- vert áður hefðu þær ekki verið neitt tiltakanlega flinkar. Í gegnum þjóð- lögin, sem allar þekktu frá barn- æsku hafi þær fundið sameiginlegan tón til að vinna útfrá. Iva Nova þarf eðli sínu samkvæmt að eiga góðan varamannabekk, því flestar hafa þær staðið í barneignum jafnframt því að sinna frægðarferl- inum sem hefur risið hratt og örugg- lega. Þær hafa í nógu að snúast, og lista- og tónlistarhátíðir um allan heim sækjast eftir gleðivímunni sem þær bera með sér í tónlist sinni. Iva Nova hefur gefið út tvær plöt- ur, en í viðtali þeirra við Sergei Chernov segja þær plötuútgáfu ekki uppáhaldsiðju. „Þá vantar okkur helminginn af því sem gerir spila- mennskuna svo skemmtilega – áheyrendurna. Þeir eru drifkraftur okkar.“ Áheyrendur eru drifkrafturinn  Heitasta gleðisveitin í Moskvu og Pétursborg, kvennabandið Iva Nova spilar á Vetrarhátíð í Reykjavík  Stelpurnar spila bræðing af þjóðlegri tónlist og pönki KAMMERHÓPURINN Njúton stígur á stokk í Iðnó í kvöld með glænýja dagskrá eftir íslenska og er- lenda höfunda. Verkin á efnis- skránni í kvöld koma úr ýmsum átt- um, að sögn Berglindar Maríu Tómasdóttur, flautuleikara í Njúton. Þrjú þeirra eru frumflutt en hin heyrast nú í fyrsta sinn á tónleikum á Íslandi. Verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson og Steingrím Rohloff hafa áður verið flutt af hópnum en hann flytur í kvöld verkið Hingra eftir Guðmund og Dots, Dots, Dots eftir Steingrím. Stjörnumuldur samdi Karólína Eiríksdóttir á Ís- landi og í París á nýliðnum vikum fyrir Berglindi og Tinnu Þorsteins- dóttur píanóleikara. Cranks and Cactus Needles eftir Annie Gosfield var frumflutt af sænska hópnum Perlur og svín í Lúxemburg fyrir átta árum. Gos- field sækir innblástur til hljóða sem fylgja gömlum 78 snúninga plötum. Verk Samson Young, Resonance Studies I, II, III og IV, var skrifað fyrir Network for New Music og the New Millennium Ensemble árið 2006. In spite of and maybe even therefore eftir Simon Steen- Andersen var skrifað fyrir Aton/ Njúton á síðasta ári og er frumflutt á tónleikunum. Njúton flytur ný verk í Iðnó Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tíu ára kammerhópur Njúton á rætur sínar að rekja til ársins 1998, til tón- listarhóps sem hét Atonal Future og var einn af fyrstu skapandi sumarhóp- unum sem störfuðu á vegum Reykjavíkurborgar. Þessi mynd var tekin í fyrra í tilefni af útgáfu hópsins á plötunni Roto con moto. ♦♦♦ Elnara Shafigullina - bayan, rússnesk takkaharmónikka. Katja Grigorijeva - bassi. Nastja Postnikova - söngur. Vera Ogarjova - söngur. Inna Lihenkevitsj - gítar, söng- ur. Katerína Fjodorova - trommur. Iva Nova Systur í tónlist Iva Nova er blönduband af bestu sort og í gegnum þjóðlögin sem þær allar þekktu frá barnæsku fundu þær sameiginlegan tón til að vinna útfrá. Tónleikar Iva Nova slá lokatóninn í Vetrarhátíðina í ár. 12.15 Norræna húsið Margrét Bóasdóttir sópran og Daníel Þorsteinsson píanó- leikari flytja tónlist eftir Jón Hlöðver Áskelsson 20.00 Iðnó Njúton flytur verk eftir Steingrím Rohloff, Anne Gos- field, Karólínu Eiríksdóttur, Simon Steen-Andersen og Samson Young. 20.30 Laugarborg Eyjafirði Camilla Söderberg flytur eigin tónlist fyrir blokkflautur og rafhljóð. Myrkir músíkdagar Í DAG:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.