Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 23 u dús. að ávarpa fni,“ segir „Það er ndrúms- og gerir hér séu ki notuð í arnöfn. tir myndi omandi.“ psku gest- um að mjög góð kólanem- r vænt- ð enskt ni. Heima “ segir r num þykir enskum landanna Íslandi á um eru Cecet og r. „Það er öðru til- - og sa. Jur- að fylgj- m skól- f henni. Aðstaðan sé stórkostleg. „Ég á eig- inlega bara eitt orð um hana: VÁ!“ Það sem vakið hefur mesta at- hygli Karinar frá Danmörku er að hér um bil allir nemendur í íslensk- um framhaldsskólum vinna með náminu. „Þessu er þveröfugt farið í Danmörku. Þar leggjast foreldrar markvisst gegn því að börn þeirra vinni með námi. Telja það trufla ein- beitinguna og árangurinn.“ Cleo Lassaube frá Bretlandi þykja samskipti nemenda og kenn- ara heldur lítil í kennslustundum, alltént í skólanum sem hún heim- sótti. „Það situr bara hver við sína tölvu og hlutverk kennarans virðist aðallega vera að fylgjast með. Ég veitti því líka athygli að ekki voru allir að leysa verkefnin sem lágu fyr- ir. Sumir voru að lesa tölvupóst, aðr- ir að senda sms-skilaboð og ein- hverjir hreinlega að spila tölvuleiki. Þetta yrði aldrei liðið í breskum skólum.“ Anna Witty, einnig frá Bretlandi, segir það sína tilfinningu að nem- endur fái yfirleitt prýðilega hvatn- ingu í kennslustundum. „Að vísu var ég í tíma þar sem nemendur í vél- greinum voru að lesa Hobbitann og það væri synd að segja að áhuginn hefði skinið úr hverju andliti. Að öðru leyti fannst mér nemendur upp til hópa mjög áhugasamir.“ Susanne frá Danmörku þykir ókostur hvað kennslustofurnar eru yfirleitt litlar og lítið gert til að tengja þær námsefninu. „Í stofum þar sem franska er kennd er ekkert sem minnir á Frakkland o.s.frv. Þetta má laga með lítilli fyrirhöfn.“ Raunar hafa ýmsir í hópnum aðra sögu að segja. Í skólunum sem þeir heimsóttu var þessi þáttur í góðu lagi. Juliu Gasser frá Austurríki þykir markverðast að íslenskt skólakerfi bjóði fólki upp á annað tækifæri. Hætti það námi á einhverju stigi hafi það alls ekki brennt allar brýr að baki sér. „Það er frábært að geta fengið annað tækifæri og gaman að koma inn í bekki þar sem 16 ára nemandi situr við hliðina á 36 ára nemanda.“ Þetta þykir hinni ítölsku Angelu D’Onofrio líka til mikillar fyrirmyndar. Milenu frá Póllandi þykir ánægjulegt hversu fjölþjóðlegur hópur nemenda leggur stund á nám í íslenskum framhaldsskólum. Hún sér heldur ekki betur en samskipti milli nemenda af ólíku þjóðerni séu til fyrirmyndar. „Þá er skemmtilegt að farið sé að kenna pólsku í ein- hverjum skólum. Ekki veitir víst af, skilst mér.“ Susanne hin danska tekur undir þetta: „Það er ótrúlegt hvað það er mikið af útlendingum hérna. Ég hef varla hitt Íslending!“ m kennaranemum spánskt fyrir sjónir leg samskipti, tney Spears Árvakur/RAX sdóttur, Brynhildi Önnu Ragnarsdóttur og Kolbrúnu Eggertsdóttur hjá HÍ. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Haraldur Benediktsson,formaður Bændasam-taka Íslands, segist teljaað kvótakerfi í mjólkur- framleiðslu standi á krossgötum og menn eigi að feta sig út úr þessu kerfi líkt og aðrar Evrópuþjóðir séu að gera. Mjólkurframleiðslan verði hins vegar áfram að njóta stuðnings hins opinbera. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, varpaði fram þeirri hugmynd á málþingi um mjólkurframleiðslu fyrir helgi að gerður yrði nýr bú- vörusamningur sem yrði síðasti samningur af þessu tagi og hann fæli í sér að ríkið keypti upp allt greiðslumark af bændum. „Það er sjálfsagt að taka þátt í umræðum um hvernig útfæra á stuðning ríkisins við bændur og hversu mikill hann skuli vera, en ef í tillögunni felst að fella eigi niður all- an stuðning hins opinbera við mjólkurframleiðsluna þá værum við fyrsta vestræna ríkið til að taka slíka ákvörðun og slíkt kemur að sjálfsögðu ekki til greina,“ sagði Haraldur. Haraldur sagðist hins vegar vera þeirrar skoðunar að bændur þyrftu að komast frá þessu framleiðslu- stýringarkerfi. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við þyrftum að endurskoða þetta kerfi. Á margan hátt hamlar það bæði hagræðingu og framförum í landbúnaði. Mér sýnist að við séum að ýmsu leyti á hættulegri braut með þetta kerfi. Við millifærum milli framleiðenda gríðarlega fjármuni í gegnum kvótaviðskipti. Við eigum að gera svipað og aðrar Evrópuþjóðir eru að gera og feta okkur frá kvóta- kerfi.“ Í dag nýtur landbúnaðurinn stuðnings í tvennu formi. Annars vegar með beinum styrkjum og hins vegar með tollvernd. ASÍ hef- ur hvatt til þess að tollverndinni verði aflétt en styrkjunum verði viðhaldið og þeir jafnvel auknir. Haraldur sagðist telja að ASÍ væri að tala fyrir breytingum á landbúnaðarkerfinu sem hann efað- ist um að væru heimilar. Þessi leið hefði að vísu verið farin í grænmet- isrækt á árunum 2002-2003. Þá hefðu allir tollar verið felldir niður en tekinn upp beinn stuðningur við bændur. „Þær breytingar hafa aldrei fengið blessun WTO [Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar],“ sagði Haraldur. Óljóst um hvaða fjármuni er verið að tala Landssamband kúabænda vinn- ur nú að stefnumörkun fyrir mjólk- urframleiðsluna sem fyrirhugað er að leggja fram vorið 2009. Þórólfur Sveinsson, formaður sambandsins, sagði að það væri gagnlegt að ræða þessa hugmynd Vilhjálms, en sagði útilokað að svara af eða á um hvort þetta hugnaðist bændum. Það lægi ekki fyrir hvaða upphæðir væri ver- ið að ræða í þessu samhengi. Ekki lægi heldur fyrir hvað menn myndu miða við langan tíma. Ennfremur lægi ekkert fyrir um hvað ætti að taka við að þessum tíma liðnum. Þórólfur benti á að þessi hug- mynd Vilhjálms væri ekki ný, en hún hefði ekki verið mikið rædd. Raunar hefði ríkið beitt þessari að- ferð því að það hefði keypt kvóta af sauðfjárbændum, síðast árið 2000. Núverandi samningur ríkis og bænda rennur út árið 2012. Í lok hans verða 20% af stuðningi ríkisins við bændur greidd í formi stuðnings á hvern grip. Þessi hlutur stuðn- ingsins verður þá ekki tengdur framleiðslunni með beinum hætti. „Eigum að feta okkur frá kvótakerfinu“ Formaður Bændasamtakanna segir að bændur þurfi áfram opinberan stuðning líkt aðrir evrópskir bændur Árvakur/ÞÖK Kvóti Evrópusambandið hefur markað þá stefnu að leggja niður kvóta- kerfi í mjólk. Formaður Bændasamtakanna vill fara sömu leið hér á landi. Fólk, sem ættað er frá Kól-umbíu en býr hér á landi,kom saman í miðborg Reykjavíkur í gær til að mótmæla marxísku skæruliðasamtökunum Farc í ættlandi sínu og þeim glæpa- og hryðjuverkum, sem þau stunda þar. Voru sams konar mótmæli haldin í borgum víðs vegar um heim og þá ekki síst í Kólumbíu. Þar var mótmælt í 45 borgum og langmest voru mótmælin í höf- unum hafi orðið til þess, að þau hafa nú ákveðið að láta þrjá gísla lausa. Er þar um að ræða þrjá þing- menn, sem hafa verið í haldi skæru- liða í nokkru meira en sex ár. Maria Acosta, ein í hópnum, sem mótmælti í miðborg Reykjavíkur í gær, sagði, að Farc-samtökin væru nú með um 750 gísla á valdi sínu og fólk væri búið að fá nóg. Það vildi fá frið og ekki þurfa að óttast glæpasamtök á borð við Farc. uðborginni, Bogota. Hafði kennslu verið aflýst í flestum skólum í land- inu og mörg fyrirtæki leyfðu starfs- fólki sínu að taka þátt í mótmæl- unum. Sumir ættingja þeirra, sem Farc- samtökin hafa í haldi, hafa haft áhyggjur af mótmælunum og ótt- ast, að viðbrögð skæruliða yrðu þau að beita gíslana enn meira harðræði, en aðrir fullyrða, að sam- staða fólksins gegn glæpasamtök- Árvakur/Frikki Nóg komið Kólombíumenn á Íslandi tóku þátt í því með löndum sínum heima og heiman að mótmæla Farc. Mótmæli gegn Farc í Reykjavík anna, veiti móðurskólum þeirra mikilvægar upp- lýsingar um stöðu og starfshætti tungumálakennslu í háskólum í öðrum löndum og samstarfsskólum háskólanna um þjálfun kennaranema sýn á hvernig tungumálakenn- aranemar eru þjálfaðir á öðrum vettvangi. Jafn- framt er verkefni sem EUROPROF vettvangur tengsla- og netmyndunar þar sem lagður er grunnur að samstarfi nema, kennara og skóla sem byggist á persónulegri reynslu og gagn- kvæmum skilningi sem nýtist öllum aðilum í starfi á alþjóðavettvangi,“ segja Hafdís og Bryn- hildur. Nemendur halda nákvæma dagbók meðan á dvölinni stendur og þurfa auk þess að vinna ýmis verkefni, m.a. spreyta sig á að kenna eigið móð- urmál og um menningu lands síns og taka viðtöl við fólk bæði utan og innan skóla. Þeir munu dveljast hér til 9. febrúar næstkom- andi og eru alla morgna í skólunum. ni styrkt af Evrópusambandinu. onir eru bundnar við það, að sögn varsdóttur og Brynhildar Önnu ur, sem hafa umsjón með verkefninu er einstakt að því leyti að nemarnir á faraldsfæti. Í stað nemanna tólf við kennslufræðina í félagsvís- skóla Íslands eru íslensku nemarnir heimsóknum í þeirra heimaskólum. uka víðsýni nemanna fur tvíþætt markmið. Að safna kennaramenntun og skólastarf í hin- dum og kanna hvernig ungt fólk aramenntun í mismunandi menn- eið efla menningarvitund verðandi ar til verkefnisins eru að heimsókn- f í nýju umhverfi auki víðsýni nem- undnar við verkefnið orri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.