Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HJÁ íslenskum stórfyrirtækjum sem starfa á alþjóðavettvangi og fá mestan hluta tekna sinna í er- lendum gjaldmiðlum hefur tíðkast að stjórnarmenn og æðstu stjórn- endur fái a.m.k. hluta launa sinna greiddan í evrum. Nú hefur komið fram að eitt þessara fyrirtækja hefur samið við starfsmenn sína, í samráði við stéttarfélög, um að þeir fái hluta launa sinna greidd í evrum. Þetta eru mikil tíðindi og sýnir hvaða þróun á sér stað í íslenskum efna- hagsmálum. Vegna stöðu og þróunar ís- lensku krónunnar eru það hagsmunir fyr- irtækja sem fá mest- an hluta tekna sinna í erlendum gjald- miðlum að geta greitt kostnað, þ.m.t. launa- kostnað, í sama gjaldmiðli og tekj- urnar eru. Fyrir starfsmenn sem fá greidd laun með evru opnast t.d. möguleikar á því að fjármagna húsnæðislán sín með evru, með mun lægri vöxtum en fást á innlendum lánamarkaði. Með því að taka lán í sömu mynt og launin er ekki um geng- isáhættu að ræða. Það að fyrirtækin séu komin á það spor að semja við starfsmenn sína um að þeir fái hluta launa sinna greidd í evrum gerir það að verkum að búast má við að þetta verði gert í auknum mæli, að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Þar gæti verið um að ræða mörg þúsund starfsmenn íslenskra alþjóðafyr- irtækja og það mun skipta miklu máli fyrir hagkerfið að ekki sé minnst á hið tvöfalda hagkerfi sem þá myndast, þar sem útvaldir að- ilar sem vinna hjá réttum fyr- irtækjum hafa aðgang t.d. að hag- stæðari lánum en ekki hinir sem sitja krónumegin við girðinguna. Hvaða stefnu hefur ríkisstjórnin um það? Evran læðist inn bakdyramegin Ef þessi þróun fer nú á fulla ferð, auk þess að fyrirtækin fari að gera upp sína reikninga í evru, þá er evran smám saman að flæða inn í efnahagskerfið og víkja krónunni til hlið- ar. Það myndi fram- kalla tvöfalt hagkerfi hér á landi, annars vegar með evru og hins vegar íslensku krónuna. Það getur ekki talist góð og far- sæl þróun. Á sama tíma og þessi þróun liggur í augum uppi hefur ríkisstjórnin enga stefnu í þessum efnum frekar en í efnahagsmálum almennt. Hins vegar blaðrar við- skiptaráðherra út og suður um þessi mál og margt annað, utan- ríkisráðherrann gefur undir fótinn um evruvæðingu en enginn sam- hljómur er með stjórnarflokk- unum um eitt eða neitt er lýtur að efnahagsmálum eða málefnum gjaldmiðilsins. Stjórnvöld stungin af Það má því segja að atvinnulífið sé að stinga ríkisstjórnina af í þessum efnum á meðan rík- isstjórnin segir pass. Sá grunur læðist þó að mörgum að Sjálfstæð- isflokkurinn ætli að láta þessa þróun ganga áfram þannig að evr- an taki smám saman yfir krónuna, án þess að þeir þurfi nokkuð að taka afstöðu til þess fyrirfram. Síðan muni Sjálfstæðisflokkurinn koma fram á ákveðnum tíma- punkti og lýsa því yfir að nú þurf- um við að sækja um aðild að ESB og taka upp evru vegna þess að hún sé hvort eð er komin til að vera. Hver veit! Atvinnulífið kallar, sjálfstæðismenn munu svara, á endanum Ég hef lengi spáð því að Sjálf- stæðisflokkurinn muni á einni nóttu taka afstöðu með inngöngu í ESB, líkt og gerðist vorið 1991 þegar Davíð myndaði ríkisstjón með krötum og við urðum aðilar að EES samningnum í kjölfarið. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fram að því verið andvígur aðildinni. Málið er nefnilega það að atvinnu- lífið er smám saman að auka þrýstinginn á að Ísland fari þessa leið og spurningin er ekki hvort, heldur hvenær Sjálfstæðisflokk- urinn stekkur til. Hins vegar er það íslenska þjóðin sem hefur síð- asta orðið um það hvort Ísland gerist aðili að ESB, ef til kemur. Vanræksla stjórnvalda Magnús Stefánsson fjallar um evruna og aðild að ESB » Það myndi framkalla tvöfalt hagkerfi hér á landi, annars vegar með evru og hins vegar íslensku krónuna. Það getur ekki talist góð og farsæl þróun. Magnús Stefánsson Höfundur er þingmaður. NÝVERIÐ hefur ný tækni verið að koma fram á sjónarsviðið við dreifingu á sjónvarpsefni á verald- arvefnum. Stofnendur Skype, sem margir kannast nú við, og nota fyr- ir ókeypis símtöl um netið, hafa sett upp nýtt viðmót, sem gerir fólki nú kleift að njóta vandaðs sjón- varpsefnis á vefnum. Um er að ræða, www.joost.com sem nýtur nú töluverðra vinsælda, og milljónir manna um allan heim nýta sér núþað ljós- vakaefni sem þar er að finna. Fróðlegt hefur verið að fylgj- ast með áhorfstölum og notendamynstri, sem hefur margfald- ast síðan vefnum var hleypt af stokkunum í sumar, og gaman að geta þess að nokkur hundruð Íslendingar eru að horfa á „The Really Terrible Film Channel“ í hverjum mánuði. Joost er nú opin hverjum sem er, og þarf einungis að hlaða niður forriti til að opna fyrir fjöl- breytta dagskrárliði, og allt án endur- gjalds. Þessu fram- taki hefur verið vel tekið, notendum fjölg- ar dag frá degi, og rúmast á þessum vettvangi fjöldinn allur af mjög áhugaverðu mynd- efni. Þarna má m.a. finna tónlistar- efni, sérstakar rásir eru komnar fyrir listamenn eins og Madonnu, Nelly Furtado og fleiri, að ógleymdum þáttunum um Mon- kees. Ekki er um að ræða vettvang eins og YouTube, þar sem almenn- ingi gefst kostur á að hlaða inn efni, heldur er hér einungis um að ræða myndefni frá viðurkenndum dreifingaraðilum, enda vefnum ætl- að að vera leiðandi í dreifingu af- þreyingar á netinu með þungavigt- araðila eins og Paramount, CBS og Alliance Atlantis í fararbroddi. Ég vildi því einning nota tæki- færið og hvetja innlenda framleið- endur til að nýta sér veraldarvef- inn og koma myndefni sínu á framfæri við hinn stóra erlenda markað. Fjölmargar vefsíður eru nú starfræktar með það að markmiði að dreifa ljósvakaefni, og þar sem Ísland er áhugavert í hugum út- lendinga, sbr. áhuga á íslenskri tónlist Sigur Rósar, Bjarkar, Mug- isons og fleiri, er því tilvalið að koma þessu myndefni á framfæri undir t.d. nýjum rásum, sem væru sérstaklega ætlaðar fyrir íslenskar kvikmyndir og íslenska tónlist. Ég myndi sérstaklega fagna „The Studmenn Channel“ enda einstakir í sinni röð. Hefðbundið sjónvarp eins og við höfum þekkt, er á hraðri leið út, og í staðinn er að skapast með nýrri tækni nýtt neyslu- mynstur, þar sem not- andi nýtur dagskrár- efnis, hverju nafni sem nefnist, hvar sem er, hvenær sem er. Breytt notendamynstur er komið til að vera, og hefðbundið áhorf þar sem fjölskyldan kom saman til að njóta dag- skrár eins miðils heyr- ir nú sögunni til, og áhorf nú sniðið að þörfum einstaklings- ins. Framundan er al- menn dreifing mynd- efnis um farsíma, og þó 3G tæknin sé komin vel á veg, og myndefni sé nú þegar fáanlegt í síma, þá er það engu að síður staðreynd að hvorki bandbreiddin né efnisúrvalið hefur verið upp á marga fiska, þar sem einungis hafa verið kynntir til sögunnar stuttir dagskrárliðir, eins og mörk vikunnar og fréttaskot, og því fagnaðarefni að gsm-símar skuli nú vera orðnir að viðtæki í orðsins fyllstu merkingu, þar sem nú er hægt að hlaða niður heilu kvik- myndunum og njóta á t.d. ferðalög- um. Gífurleg aukning á notendum Jo- ost, Google, YouTube og fleiri slík- um síðum, hlýtur óhjákvæmilega að fara fyrir brjóstið á hefð- bundnum miðlum með minnkandi áhorfi, og eru uppi ýmsar skoðanir á því hvernig hefðbundnir miðlar geti brugðist við, en undirritaður er sannfærður um að framtíðin sé í nýmiðlun og um s.k. óhefðbundna miðla hvort sem er um netið eða þráðlaust með wifi, þar sem efri tíðnisvið en notuð hafa verið eru í auknum mæli að taka við dreifingu á ljósvakaefni. Þótt undirritaður hafi verið búsettur erlendis um margra ára skeið, starfandi við sjónvarpstengd málefni, þá er fylgst með framvindu þessarra mála heima á Íslandi af áhuga, og má segja að Mbl. hafi staðið sig einna best það sem af er í viðleitni sinni við að innleiða nýjungar á þessu sviði, og standa þeir fram- arlega miðað við það sem ég hef kynnst, t.d. í Bretlandi og víðar. Framtíðin er dreifing myndefnis um netið, því dreifing og móttakan er sífellt að lagast fyrir hinn al- menna notanda, og fyrir þann sem er kannski ekki tæknilega sinn- aður, eru flestar tölvur í dag með sjónvarpskorti sem er þá tengt beint við scart tengi plasma- viðtækisins, og með mpeg4 þjöpp- un sem er orðin staðalinn í net- dreifingu dagsins í dag, er móttaka sjónvarpsefnis um netið orðin leik- ur einn og á færi flestra. Ég hvet því lesendur þessarar greinar að kynna sér netið sem vænlegan kost á að njóta sjónvarps um netið, án landamæra, og kanna hvaða möguleikar eru í boði. Netið og fram- tíð sjónvarps Hólmgeir Baldursson skrifar um ljósvakaefni á vefnum Hólmgeir Baldursson » „Ég vildi því nota tæki- færið og hvetja innlenda fram- leiðendur til að nýta sér verald- arvefinn og koma myndefni sínu á framfæri á erlenda markaði.“ Höfundur hefur lagt myndefni til Joost og fleiri miðla og starfar við að útvega myndveitum saminga um ljósvakaefni. Sími 551 3010 Fréttir í tölvupósti                       Barcelona Áskrifendaverð 7. mars 13. mars Alm. verð Þú sparar 3 nætur 3 nætur (allt að) Flugsæti Flug báðar leiðir með sköttum 28.990 22.990 44.790 20.800 Hotel Aragon *** Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli m/morgunv. 39.990 54.990 15.000 Hotel Husa Via Barcelona **** Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli m/morgunv. 44.990 61.890 16.900 Hotel HCC Montblanc *** Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli m/morgunv. 47.990 64.790 16.800 Hotel Barcelona Plaza / Gran Hotel Barcelona **** Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli m/morgunv. 47.990 61.790 13.800 Hotel H10 Itaca **** Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli m/morgunv. 52.990 74.490 21.500                                                                                                              !"   # $ %    &          '       (        )      $   ) %  !" '               ' *+      '                '  # $ %         +          ,     -.   +  +         ).                                    /     01 $ %   2     3    1 . * !"    #$     "  #    %     $   (    .                4     (  (   !"           #$    %   & ' (   )*&             +     (     ,,,   &'   ()*++   , )-      ((..+    

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.