Morgunblaðið - 16.02.2008, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Það má heyra á fólki erlendis frásem hefur sest að á Íslandi að
því finnst íslenskur þjóðarkarakter
vera að breytast til hins verra. Það
kvartar ekki undan alþjóðavæðingu
íslensks samfélags heldur firringu,
andleysi og pen-
ingahyggju – Ís-
lendingar séu að
missa ræturnar.
Kannski ratarþetta við-
fangsefni alltof
sjaldan í rit-
stjórnargreinar
dagblaða – að
vekja „svefngöngur vanans“ til um-
hugsunar svo „spunahljóð tómleik-
ans láti í eyrum vor lægra.“
Mikael M. Karlssonar, prófessorí heimspeki við Háskóla Ís-
lands lýsti breytingunum á íslensku
samfélagi sem „efnishyggjuöfgum“
í Morgunblaðinu: „Breytingar hafa
orðið á félagslífi og andlegu lífi Ís-
lendinga og þar finnst mér fólk
vera á villigötum. Amstrið er alltof
mikið og peningahyggjan. Ég end-
urtek að ég er ekki að fordæma
efnishyggju upp að vissu marki, en
mannslíf sem gengur út á hana er
innantómt.“
Og það var hugljómun að hlusta áljóðskáldið Bill Holm í Kiljunni
láta „villimannsöskrið laust yfir
húsþök heimsins.“ Hann talaði um
menninguna þar sem bækur væru
eign alþýðunnar og dulmagn lands-
ins, Björn í Brekkukoti og upphafn-
ingu listar og fegurðar hjá Laxness,
Gísla Konráðsson á Húsabakka,
ómenntaðan bónda sem vann bók-
menntaleg stórvirki „samhliða því
að heyja og moka flórinn“.
Mér finnst þið þó eiga á hættu aðmissa þetta,“ sagði Holm, sem
á sér sælureit á Hofsósi. „Ég kem
stundum til Reykjavíkur á sumrin
og festist í löngum bílaröðum.“
Hvar!
STAKSTEINAR
Bill Holm
Vindurinn blæs gegnum strætin
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? ! !
!
!
!
! !
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
*$BC """
!
*!
$$B *!
# $ % " "$ " & ' &
<2
<! <2
<! <2
# %( ") *+", (&-
D8-E
62
" # $%
&#
' B
(
)*
*
(
+ "
$,
"
./((""&00 (&" "1 & &") *
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Óli Björn Kárason | 15. febrúar 2008
Óbreyttir vextir í raun
vaxtahækkun
… vaxtamunur milli Íslands og ann-
arra landa hefur aukist
og því er í raun um
vaxtahækkun að ræða.
Ákvörðun bankans
eru vonbrigði því flest-
um má vera ljóst að
verulega er að hægjast
á efnahagslífinu og þó að enn sé und-
irliggjandi þrýstingur á verðlag voru
rök fyrir því að lækka vexti strax. … að
hinir háu stýrivextir hér á landi væru
hættir að virka og að í raun ýttu þeir
fremur undir verðbólgu en hitt.
Meira: businessreport.blog.is
Sigurjón Þórðarson | 14. febrúar 2008
Áfram háir vextir
Seðlabankinn var í mjög þröngri
stöðu … Það má segja að fáir góðir
leikir hafi verið í stöð-
unni hjá Seðlabank-
anum þar sem stjórn-
völd hafa tekið mjög
óábyrgar ákvarðanir og
skorið niður þorskafla
og minnkað þar með
gjaldeyristekjur þjóðarinnar – og í of-
análag þanið út ríkisútgjöld um allt að
20%. Það merkilega við umræðuna
um efnahagsmál núna snýst ekki um
framangreinda hluti, heldur um gjald-
miðilinn sem slíkan, þ.e hvort við not-
um krónu eða evru.
Meira: sigurjonth.blog.is
Ragnhildur Sverrisdóttir | 15. febrúar
Dúett
Kata hringdi í gærkvöldi, áður en syst-
ur fóru að sofa, til að heyra í þeim
hljóðið og gefa þeim
góða nótt knús símleið-
is. Hún talaði fyrst við
Margréti, sem kreisti
símann fast í kveðju-
skyni og spurði mömmu
sína hvort hún hefði
fundið knúsið. Og kyssti svo í símtól-
ið. Mamma hennar fann auðvitað
knúsið og fékk kossinn alla leið til Ak-
ureyrar.
Svona knús og kossar hafa skilað
sér til annarra landa, svo Akureyri er
ekkert mál.
Meira: ragnhildur.blog.is
Björn Bjarnason | 14. febrúar 2008
Fimmtud. 14.02.08
Undarlegt er að fylgjast með hröðum
flótta Dags B. Eggertssonar frá eigin
afstöðu í OR/REI málinu sl. haust. Þá
taldi hann reginhneyksli, að sex sjálf-
stæðismenn skyldu bregða fæti fyrir,
að hið nýja REI kæmi til
sögunnar. Í fréttum
hljóðvarps ríkisins 12.
október 2007 sagði:
„Dagur segir ekkert at-
hugavert við það að
mynda nú meirihluta
með Birni Inga Hrafnssyni þótt hann
hafi átt virkan þátt í því að samþykkja
samruna REI og Geysis Green Energy
og heimila kaup einstaklinga á
stórum hlutum í REI. Dagur B. Egg-
ertsson: Ég held að Björn Ingi sé eini
maðurinn í þessu máli sem hafi beð-
ist afsökunar á þessum hlutum og
hann er tilbúinn í þennan leiðangur
með okkur sem að við höldum allra
hluta vegna sé mjög brýnn og í þágu
almannahagsmuna. Það er einmitt
það sem að mér finnst þessi meiri-
hluti snúast um.“
Nú hefur allt gengið eftir, sem sex-
menningarnir í Sjálfstæðisflokknum
vildu og fyrir liggur sameiginleg
skýrsla frá borgarfulltrúum allra
flokka, sem sýnir, hve fráleitur allur
málatilbúnaður var á bakvið REI-
fyrirtækið, sem Dagur B. taldi í Morg-
unblaðsgrein, að væri heilladrjúgt
framtíðarskref. Þá lætur Dagur B. eins
og hann hafi ekkert af þessu viljað,
þar sem hann hafi ekki vitað um 20
ára einkaréttarsamning OR við REI!
Fréttir berast um, að FL-Group hafi
selt hlut sinn í Geysi Green Energy,
sem átti að sameinast REI í eigu OR
og mynda nýtt REI, en hið nýja fyr-
irtæki átti að græða tugi milljarða á ör-
skömmum tíma. FL-Group tapaði um
70 milljörðum króna á síðasta ári – Ís-
landsmet. Enn er ekki séð fyrir end-
ann á því, hvernig fyrirtækið verður,
þegar fram líða stundir. Allt bendir til,
að það hafi átt að bæta stöðu þess
með fjárhagslegri tengingu við OR í
gegnum REI og einmitt þess vegna
hafi verðmæti REI verið talað upp á
þann veg, sem gert var í lok sept-
ember og byrjun október í síðasta ári.
Í fréttum Stöðvar 2 hinn 13. októ-
ber sagði: „Eignir Reykjavík Energy In-
vest verða á bilinu 180 til 300 millj-
arðar króna þegar félagið fer á
markað árið 2009 ef áætlanir fyr-
irtækisins standast …
Meira: bjorn.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
SVARTAGENGIÐ beið ekki boðanna þegar golfvöll-
urinn í Vestmannaeyjum var orðinn auður í gærmorg-
un. Tæpar sex vikur voru liðnar frá því að þeir spiluðu
síðast golf í Herjólfsdal og eftir að hafa dustað mesta
rykið af kylfunum voru kapparnir tilbúnir. Á myndinni
eru, talið frá vinstri: Hjörtur Hermannsson, Einar
Ólafsson, Gunnar Stefánsson, og það er Gísli Jónasson
sem mundar kylfuna fagmannlega.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Kraftgolfarar í Eyjum
„ÞESSI svör valda miklum von-
brigðum,“ segir Gunnar Sigurðsson,
forseti bæjarstjórnar Akraness, um
svarbréf sem
bæjarstjórn
barst frá borgar-
stjóra við spurn-
ingum Akranes-
kaupstaðar sem
beint var til
Orkuveitu
Reykjavíkur um
málefni OR.
Fyrirspurnin
var send OR 19.
desember sl. þar sem m.a. var spurt
hver hefði ákveðið að fram skyldi
fara stjórnsýsluúttekt á OR, hverjir
hefðu ákveðið að fá innri endurskoð-
un Reykjavíkurborgar til að vinna að
úttektinni og við hvaða lagaheimildir
væri stuðst. Svarbréfið er undirritað
af Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra.
Gunnar segir að stjórnsýslan sé
greinilega ekki í lagi. Akranesbær
hafi sent Orkuveitunni bréfið en
fengið svo svör frá borgarstjóra.
„Orkuveitan beinir þessum spurn-
ingum til borgarstjórnarinnar. Mér
finnst þetta ekki vera nein svör og
svo segir þarna að „eftir atvikum og
eftir á að hyggja má þó fallast á að
rétt hefði verið að afla samþykkis á
fundi eigenda Orkuveitu Reykjavík-
ur“,“ segir Gunnar.
Á fundi bæjarráðs Akraness á
fimmtudag var lögð fram tillaga um
að óska eftir áliti bæjarlögmanns á
lögmæti þess að standa svona að
málum í sameignarfélögum.
Segir svörin út í hött
Gunnar segir svör borgarinnar
,,út í hött“ þar sem vísað sé til sam-
þykkta borgarráðs við hinum ýmsu
álitaefnum sem spurt er um í bréfi
Akraneskaupstaðar. Í svarbréfi
borgarstjóra segir að forstjóri OR
hafi framsent erindið til Reykjavík-
urborgar með vísan til þess að flest-
ar spurningarnar lytu að ákvörðun-
um Reykjavíkurborgar sem eins
eiganda OR. Þá er beðist velvirðing-
ar á því hvað dregist hafi að svara er-
indinu. Í fyrirspurn Akraneskaup-
staðar var m.a. spurt hvort það væri
skoðun stjórnar OR að bæjarstjórn
Akraness geti farið með sína úttekt-
armenn um fyrirtækið og krafist
gagna og kallað starfsmenn í viðtöl.
Gunnar bendir á að mjög sérkenni-
legt sé að borgarstjóri svari þessari
spurningu sem beint er til stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur.
Svör við spurningum
um OR valda miklum
vonbrigðum
Gunnar Sigurðsson