Morgunblaðið - 21.02.2008, Page 3
Um er að ræða 78 glæsilegar fullbúnar 90-140 fm íbúðir í lyftuhúsi.
Ekkert hefur verið til sparað við hönnun íbúðanna sem eru bjartar og
rúmgóðar. Íbúðirnar snúa mót suðri. Lofthæð í íbúðunum er 2,70 m
sem er meira en gengur og gerist í nýbyggingum og aukin hljóðein-
angrun er í íbúðunum. Gæði og þægindi eru einkennisorð íbúðanna
sem verða afhentar með gólfefnum, innréttingum og tækjum. Bíla-
stæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð.
Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í mars 2008.
Húsin eru á mörkum þjónustu- og verslunarkjarna og í nágrenni við
nokkur af vinsælustu útivistarsvæðum borgarbúa. Göngustígar tengja
íbúðabyggðina í Mörkinni við aðra hluta borgarinnar. Örstutt í Elliðaár-
dalinn.
Í Mörkinni verður þjónustumiðstöð, Heilsusetrið, þar sem skipulögð
dagskrá verður í gangi. Innangengt verður úr íbúðunum í þjónustu-
miðstöðina. Þangað kemur fólk til að fá góða og heilbrigða hreyfingu,
fræðslu, skemmtun, aðhlynningu, þjálfun, félagsskap, góðan og hollan
mat og ekki síst til að láta dekra við sig. Stefnt er að því að geta boð-
ið íbúum við Suðurlandsbraut 58-62 uppá þjónustu eftir óskum og
þörfum hvers og eins. Um verður að ræða heilsusetur í hæsta gæða-
flokki. Við Heilsusetrið verður auk þess púttvöllur .
Hjúkrunarheimili verður í næsta nágrenni við íbúðirnar og íbúum í
Mörkinni verður boðið uppá heimahjúkrun. Þá verður boðið uppá
sjúkraþjálfun í Heilsusetrinu.
Sjá nánar inná www.thjonustuibudir.is
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
NÝJAR ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR VIÐ
SUÐURLANDSBRAUT 58-62
M
b
l 9
64
48
3
í Mörkinni laugardag og sunnudag frá kl. 13-16Sölusýning
Tvær glæsilegar sýningaríbúðir í húsi nr. 62
Sýningaríbúð með húsgögnum frá Saltfélaginu