Morgunblaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 20
|fimmtudagur|21. 2. 2008| mbl.is daglegtlíf Það var mér algjör hugljómun að komatil Kerala. Ég hafði verið á Norður-Indlandi mörgum árum fyrr sem varlitríkt og áhrifamikið, en hér syðra er allt á mýkri og blíðari nótum,“ segir Þóra Guð- mundsdóttir, sem hefur rekið farfuglaheimilið Hafölduna á Seyðisfirði í fjölmörg ár. Hún hefur nú bætt um betur og opnað hótelið Secret gard- en í borginni Cochin í Kerala-fylki á suðvest- urströnd Indlands. Hún hefur þó ekki sagt skilið við heimahagana því að hún stefnir að því að halda ótrauð áfram íslenska hótelrekstrinum fyrir austan á sumrin og halda svo á vit litla Leynilundarins síns í Kerala yfir vetrartímann til að fá brot af því besta á báðum stöðum. Þóra kom fyrst til Kerala veturinn 1997, þá með bresku ferðaskrifstofunni High Places, sem er í eigu vinkonu hennar á Nýja-Sjálandi. „Ég hafði varla heyrt af Kerala enda minntist ég þess ekki að hafa lesið um þetta land guða og pálma í landafræðibókum í skóla. Ferðin var dásamleg í alla staði og snerti á því helsta sem þetta indverska fylki hafði upp á að bjóða. Við nutum útiveru í frábærri náttúru, klifum fjöll, hjóluðum út á hrísgrjónaakra, lágum á strönd, sigldum, sóttum tónleika og danssýningar, borð- uðum ótrúlega góðan mat og fórum í ayurvedískt nudd. Ayurveda, sem er að verða mikið tískufyr- irbrigði í hinum heilsumeðvitaða heimi, á rætur sínar að rekja til Kerala og er þar lifandi lækn- iskúnst því að þar eru rekin bæði ayurvedísk sjúkrahús og nuddstofur út um allt. Ég heill- aðist gjörsamlega af þessu landi, sem var svo ólíkt því Indlandi sem ég hafði kynnst í gegnum fjölmiðla. Ayurvedíska nuddið átti ríkan þátt í því enda átti það eftir að hafa ótrúlega jákvæð áhrif á heilsu mína og tilveru,“ segir Þóra. Bráðupplagt fyrir sál og líkama Veturinn eftir þetta fyrsta ferðalag fór Þóra svo sem leiðsögumaður með hóp Íslendinga í þessa sömu ferð sem hreif þá landa hennar ekk- ert síður en hana ári fyrr. „Ég uppgötvaði fljótt að dvöl í þessu gósenlandi við miðbaug á meðan skammdegið herjaði á Ísland og Íslendinga væri bráðupplagt fyrir sál og líkama. En ég varð auðvitað að hafa eitthvað fyrir upp og útkoman er satt best að segja algjörlega frábær. Gamla, lúna húsið er nú orðið að lítilli höll með sundlaug í garði prýddum hitabelt- isgróðri og með öllum nútímaþægindum án þess þó að hafa tapað fyrri þokka. Ég er með frábært indverskt samstarfsfólk, en án þess hefði þessi draumur ekki verið mögulegur. Allt frá því að ég byrjaði að stússast hér syðra hefur bílstjór- inn Faizal verið mín hægri hönd. Kynni okkar bar að þannig að ég hafði gleymt gemsanum mínum í „rikshawnum“ hans sem er þriggja hjóla farartæki, mikið notuð í Asíu. Faizal hafði hinsvegar fyrir því að leita mig uppi þar sem ég bjó til að skila mér símanum. Þetta var upphafið af mjög giftusömu samstarfi. Nú er Faizal hætt- ur bílstjórastörfum, en hefur þess í stað alfarið snúið sér að framkvæmdastjórn hótelsins. Þar sem indverskt þjóðfélag er töluvert frábrugðið íslensku regluverki er bráðnauðsynlegt að hafa kláran náunga eins og Faizal sér við hlið í slík- um framkvæmdum og rekstri.“ Kaupglaðir kætast yfir verðlagi Nú er Þóra byrjuð að fá íslenska gesti í Secret garden sem henni finnst afar skemmti- legt og þegar Daglegt líf náði tali af Þóru voru íslenskar jógakonur þar í heimsókn. „Ég bók- staflega elska að fá að sýna þeim þetta um- hverfi, sem í einu og öllu er svo frábrugðið Ís- landi. Það sparar líka ferðafólki margan krókinn að hafa staðkunnuga manneskju með í för. Sjálfri finnst mér skemmtilegt að fá að snerta allan skalann, allt frá auðmjúkustu te-sjoppum upp í flottustu ferðamannastrandstaði. Nútím- inn er nú óðum að halda innreið sína inn í þetta mjög svo hefðum bundna þjóðfélag og svo hér er margt sem kann að gleðja kaupglaða á marg- falt lægra verði en landinn á að venjast á ís- lenskum heimaslóðum,“ segir Þóra. Exótískur lúxus, jóga og hjól Í Secret garden býður Þóra upp á munað hitabeltislandanna, svala sundlaug og framandi gróður í bland við vestræn þægindi á borð við þráðlausa tölvutengingu, tónlist, kvikmynda- og bókasafn. Undir mangó-trénu á bak við húsið er svo kominn pallur úr rósaviði þar sem þeir, sem það vilja, geta fengið leiðbeiningar í jóga á hverjum morgni. „Minn dýrlegi íslenski dömu- hópur, sem nú er í heimsókn hjá mér, byrjar daginn á jóga undir mangó-trénu og gæðir sér svo á heimabökuðum brauðum, ferskum ávöxt- um og góðu kaffi áður en þær fara hér um og kanna leyndardóma Cochin á reiðhjólum, sem ég útvega öllum mínum gestum.“ Í gegnum London og Dubai Að sögn Þóru er engin malaría í Kerala og því auðvelt og öruggt að ferðast þar um. Nú stefna Indverjar að því að opna sendiráð í Reykjavík í vetur sem auðveldar Íslendingum vegabréfs- áritun, en hingað til hefur hún farið í gegnum sendiráð Indverja í Osló. Besti tíminn fyrir Íslendinga til Indlands- heimsókna er, að sögn Þóru, vetrartíminn, nóv- ember-, desember-, janúar- og febrúarmánuðir. Þegar Þóra er að lokum spurð hvernig best sé að rata frá Íslandi til Kerala, segir hún að hægt sé að koma sér alla þessa leið á einum degi. Uppáhalds uppskriftin sín sé sú að taka fyrsta morgunflug með Icelandair til Heathrow- flugvallar í Lundúnum. Þaðan fljúgi hún með Emirates-flugfélaginu til Dubai sem taki um sex klukkutíma. Hún þarf þá að bíða í Dubai í tvo til þrjá tíma áður en hún heldur áfram í fjög- urra tíma flugi með Emirates frá Dubai til al- þjóðlega flugvallarins í Cochin. „Þaðan liggur svo bein leið með leigubíl heim að mínum dyr- um. Emirates er frábært flugfélag og gaman getur verið fyrir íslenska ferðalanga að stoppa í Dubai í nokkra daga áður en lengra er haldið.“ Athafnakonan Þóra Guðmundsdóttir féll fyrir Indlandi við fyrstu sýn fyrir tíu árum. Á rósaviðarpalli Í jóga undir mangó-trénu í hótelgarðinum. Leynilundur Hundrað ára gamla húsinu í Cochin í Kerala var breytt úr lúnu húsi í litla höll. *                               Leynilundur í landi guða og pálma Athafnakonan Þóra Guð- mundsdóttir ákvað að fylgja draumum sínum og hefur nú opnað lítið hótel í hundrað ára gömlu húsi í Kerala á Indlandi. Hún sagði Jóhönnu Ingvars- dóttur frá Secret garden, sem hún kallar í gamni Leynilund upp á íslensku. Í garðinum Þóra ásamt starfsfólki sínu. stafni annað en að dekra við sjálfa mig þótt það geti í sjálfu sér verið ærið verkefni í ljósi alls þess, sem hér er í boði. Einn veturinn notaði ég því til að kaupa og láta búa til innanstokksmuni á Hótel Ölduna á Seyðisfirði og sá næsti fór í að láta búa til fyrir mig mongólskt tjald sem ég flutti heim og seinna varð það úr að ég og tengdadóttir mín settum upp litla verslun á Seyðisfirði þar sem við seldum alls konar ind- verskar gersemar. Síðasti kaflinn í þessari sögu minni er svo litli Leynigarðurinn minn, lítið hótel, sem ég opnaði á haustmánuðum í Fort Cochin, sem er hið forna hlið inn í kryddlandið Kerala. Evrópsk áhrif og falleg, gömul hús frá portúgölskum, hol- lenskum og breskum nýlendutíma setja svip sinn á borgina. Hér blómstra líka listir auk fal- legs og friðsæls mannlífs, kannski ekki ólíkt mannlífinu heima á Seyðisfirði,“ segir Þóra. Lúna húsið orðið að lítilli höll Athafnakonan Þóra fékk nokkra vini sína í lið með sér til að kaupa draumahúsið, sem hún fann í borginni Cochin veturinn 2006. Húsið, sem er hundrað ára gamalt, er á stórri lóð rétt við hafið í miðbænum, en þó út af fyrir sig. „Góðir hand- verksmenn hafa unnið ötullega við að gera húsið www.secretgarden.in

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.