Morgunblaðið - 21.02.2008, Síða 48
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 52. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Gífurlegt áfall
Sú ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra að stöðva loðnuveiðar á hádegi
í dag mun þýða milljarða tekjutap
fyrir sjávarútveginn. Þorsteinn Sig-
urðsson, sviðsstjóri uppsjávarfisks
hjá Hafrannasóknastofnun, segist
ekki hafa skýringu á því hvers vegna
loðnan skilar sér ekki. »4
Dýrt að reka bifreiðarnar
Rekstrarkostnaður heimilisbílsins
hækkaði talsvert í fyrra og er nú frá
770 þúsund krónum á ári. »22
Bergiðjunni lokað?
Hljóðið er þungt í starfsfólki
Bergiðjunnar enda stendur til að
hætta starfseminni þar 1. maí nk.
Einar Heiðar Birgisson hefur starf-
að í Bergiðjunni í tvö ár, frá því hann
lenti í erfiðum veikindum. Hann tel-
ur enga glóru í lokuninni. »8
Bankaálagið hækkar enn
Skuldatryggingarálag bankanna
hækkaði enn í gær. »Viðskipti
SKOÐANIR»
Staksteinar: Nýr formaður Glitnis
Forystugreinar: Valdaskipti í Pak-
istan | Áhugi á lestarsamgöngum
Ljósvakinn: Stundum glaðir
UMRÆÐAN»
Þráðurinn að ofan
Sterkara efnahagslíf með áliðnaði
Foreldrar mikilvægustu kennararnir
Sundabraut á eina krónu?
Ný prentsmiðja í Ungverjalandi
Lítið félag með stór verkefni
Að kasta krónunni fyrir borð
Garpur í hönnun og bankaviðskiptum
VIÐSKIPTI»
4 4
4 4
!4 5#6$( / '$, '#
7'&''&$$%$
/" $ 4 4 4 4 !
!4 . 8 2 (
4 4!
4
4 4 !4 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8$8=EA<
A:=(8$8=EA<
(FA(8$8=EA<
(3>((A%$G=<A8>
H<B<A(8?$H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 2 °C | Kaldast -5 °C
Vestan 3-10 metrar
á sekúndu og stöku él,
úrkomusamast með
suðurströndinni. Víða
vægt frost. » 10
Að mati Jóhanns
Bjarna Kolbeins-
sonar er augljóst
hver bar sigur úr
býtum í könnun
Capacent. »42
FJÖLMIÐLAR»
Sigur Sjón-
varpsins
FÓLK»
Gengur Simpson aftur
upp að altarinu? »47
Sæbjörn Valdimars-
son er ekkert sér-
lega hrifinn af
Töfrabúðinni og gef-
ur henni aðeins tvær
stjörnur. »47
KVIKMYNDIR»
Fáránlegar
persónur
DANS»
Íslendingar halda að þeir
geti dansað. »43
TÓNLIST»
Brit-verðlaunin voru af-
hent í gærkvöldi. »41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Uppsagnir eru hafnar í bönkunum
2. Silvía Nótt breytist í karlmenn
3. Með einkenni vægs hjartaáfalls
4. Greiddi starfsstúlku 183 krónur
Íslenska krónan veiktist um 1,13%
SAMTALS hafa um 180 erlendir
handknattleiksmenn leikið með ís-
lenskum félögum í efstu deild karla
undanfarin tíu ár. Flestir hafa þeir
komið til Akureyrar og Vest-
mannaeyja og til HK. Bestu hand-
knattleikslið landsins hafa hins
vegar sjaldan verið með marga er-
lenda leikmenn og Haukar, sem
eru efstir í úrvalsdeildinni í dag,
eru t.d. með alíslenskt lið. Valur
varð meistari í fyrra án erlends
leikmanns og Óskar Bjarni Ósk-
arsson, þjálfari liðsins, segir að
ekki sé auðvelt að finna góða leik-
menn í Evrópu. Handboltinn standi
knattspyrnunni og körfuknatt-
leiknum talsvert að baki að því
leyti. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari
Akureyrar, segir að bestu erlendu
leikmennirnir séu einfaldlega of
dýrir fyrir íslensk félög.
Í dag er fjallað um handboltann í
fyrstu grein Morgunblaðsins af
þremur um erlenda leikmenn í ís-
lenskum liðum. | Íþróttir
Bestu liðin
án erlendra
Um 180 hafa
komið á tíu árum
Árvakur/Sverrir
AUGLÝSINGASTOFAN Jónsson
& Lemacks hlýtur flestar tilnefn-
ingar til Íslensku auglýsingaverð-
launanna í ár, alls
25 af 70. Þar af
eru 14 tilnefn-
ingar vegna aug-
lýsinga fyrir
bókaverslanir
Eymundssonar.
Næstflestar til-
nefningar, 18
talsins, fær Hvíta
húsið en fimm
þeirra eru vegna sameiginlegra aug-
lýsinga fyrir Umferðarstofu og vín-
búðirnar.
Keppt er í 14 flokkum en fimm
auglýsingar eru tilnefndar í hverjum
flokki fyrir sig. Verðlaunaafhending
fer fram á ÍMARK-hátíðinni í næstu
viku en tilnefningar eru kynntar í
miðopnu Viðskiptablaðs Morgun-
blaðsins í dag. | Viðskipti
Jónsson & Le-
macks fær flest-
ar tilnefningar
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
MIKILLAR óánægju gætir meðal
hestamanna í Garðabæ eftir að sveit-
arfélagið hækkaði fasteignaskatt
hesthúsa. Skatthlutfallið var hækkað
úr 0,24% af fasteignamati í 1,45% og
segir einn hesthúsaeigandi að fast-
eignagjöld sín hafi hækkað um 150%.
Brot á stjórnarskrá?
Um er að ræða breytingar á því
undir hvaða lið hesthús falla í 3. mgr.
3. gr. laga um tekjustofna sveitarfé-
laga. Hingað til hafa hesthús verið
flokkuð undir a-lið þar sem skatt-
hlutfallið er allt að 0,5% en eftir
breytingar teljast þau til c-liðs sem
hefur allt að 1,32% skatthlutfall. Með
heimild í lögunum er skattaprósent-
an komin í 1,45%.
Arnór Halldórsson lögmaður hef-
ur verið ráðinn til að kanna lögmæti
hækkunarinnar fyrir hönd nokkurra
hesthúsaeigenda. Með vísan til texta
laganna telur hann réttast að hest-
húsin flokkist undir a-lið þar sem þau
teljist sem útihús. Honum virðist
sem Garðabær byggi á því að ein-
ungis útihús á bújörðum skuli falla
undir a-liðinn til að það standist en
því er hann ósammála. „Sé vafi um
túlkun á þessu ákvæði á að túlka
hann skattgreiðendum í hag sam-
kvæmt lögskýringarreglum skatta-
laga.“ Eðlilegra sé að fella hesthúsin
í flokk með íbúðarhúsum í a-lið en at-
vinnuhúsnæði í c-lið. Mismunun á
hesthúsaeigendum á bújörðum og
þeim sem ekki eru á bújörðum feli í
sér brot á 65. gr. í stjórnarskránni.
Guðjón E. Friðriksson, bæjarrit-
ari og staðgengill bæjarstjóra, segir
að í sambærilegum málum hafi verið
komist að því að í a- og b-liðnum (sem
tekur til opinberra bygginga) væri
um tæmandi upptalningu að ræða á
því húsnæði sem þar félli undir. Þar
sem hesthúsin séu ekki sérstaklega
tekin fram í a-lið beri að flokka þau í
c-lið, þar sem tekið er til alls þess
sem ekki kemur fyrir í hinum liðun-
um. Hann segir þó tillögu líklega
verða kynnta „um að koma með fjár-
styrk á móti til að milda þessi áhrif“.
Ósáttir við bæinn
Hesthúsaeigendur í Garðabæ gagnrýna hækkun fasteigna-
skatts hesthúsa Fjárstyrkur mögulegur til að milda áhrifin
Í HNOTSKURN
»3. mgr. 3. gr. laga umtekjustofna sveitarfélaga
fjallar um fasteignaskatt. Í a-
lið falla íbúðir og íbúðarhús og
í b-lið eru opinberar stofnanir.
» Í c-lið skal flokka: „Allaraðrar fasteignir, svo sem
iðnaðar-, skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði […]“
»Viðmælandi blaðsins sagð-ist nú borga 100 þús. kr.
meira á ári fyrir 16 hesta hús í
Garðabæ en fyrir 200 fm ein-
býlishúsið sitt.
BÖRNIN á Barnaspítala Hringsins fengu heldur betur
skemmtilegan glaðning í gær þegar aðalleikarar og
dansarar í söngleik Verzlunarskóla Íslands, Kræ-beibí,
komu í heimsókn og sungu nokkur vel valin lög.
Þeir létu þó ekki þar staðar numið heldur unnu með
börnunum ljósmyndaverkefni. Teknar voru Polaroid-
myndir af börnunum, bæði einum og með leikurunum,
sem voru í fullum skrúða, og utan um myndirnar voru
föndraðir myndarammar. Þá var að lokum gerð stór
veggmynd af atburðum dagsins.
Kræ-beibí skemmti ungviðinu á Barnaspítala Hringsins
Sungið, dansað og föndrað
Árvakur/RAX
♦♦♦