Morgunblaðið - 21.02.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 21.02.2008, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „ÞETTA er bara skipbrot fyrir fyr- irtæki eins og okkur. Síldar- vinnslan hefur verið með um 30% af loðnunni. Það eru á milli tveir og þrír milljarðar sem tapast í tekjum vegna þessa. Það vegur mjög þungt í afkomu fyrirtækisins, um þriðj- ung eða meira og í tekjuöflun starfsfólks okkar, sjómanna og fiskverkafólks. Loðnuvertíðin er tími uppgripa hjá þessu fólki og vegur mjög þungt í heildar- tekjuöflun þess,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar. Ekkert fyrirtæki ásamt tengdum aðilum á eins mikið undir loðnunni. „Loðnan er vertíðarbundinn fisk- ur og ætla má að þetta snerti beint afkomu 400 manna á Austurlandi. Við erum búnir að taka á móti á vertíðinni um 12.000 til 13.000 tonnum. Á vertíðinni í fyrra, sem var lítil, vorum við með um 100.000 tonn. Þetta hefur legið beint niður á við síðustu árin. Við vorum með lítið í höndunum í fyrra, en vorum að spila þokkalega úr því, hvað verðmæti varðar í greininni í heild. Við erum að sjá á eftir gríðarlega stórum hluta af afkomu fyrirtæk- isins og getum ekki gripið til ann- arra aðgerða en fara í innri endur- skoðun og endurskipulagningu með niðurskurð á kostnaði í huga. Við getum ekki mætt þessu öðru- vísi. Við getum auðvitað snúið okk- ur að kolmunna, en hann kemur ekkert í stað loðnunnar. Afkoma af kolmunnaveiðum er slök vegna þess að olíuverð er í sögulegum hæðum, auk þess var kvótinn minnkaður. Þetta áfall kemur í kjölfarið á niðurskurði þorskkvót- ans, í kjölfarið á því að markaðir fyrir fiskimjöl hafa verið að gefa eftir. Hið eina jákvæða er geng- islækkun krónunnar og sterkir síld- arstofnar. Það er bara verkið fram- undan að vinna sig út úr þessu,“ segir Gunnþór Ingvason. Tveggja milljarða tekjutap „Þó veiðarnar verði stöðvaðar nú er mikilvægt að menn haldi áfram að leita. Gefi ekki upp vonina um að hún skili sér,“ segir Eggert B. Guð- mundsson, forstjóri HB Granda. Á síðustu vertíð veiddu skip HB Granda 56.000 tonn, sem skiluðu 2,4 milljarða úitflutningstekjum. Nú er aflinn um 6.500 tonn. „Það er ljóst að tekjuskerðingin er alla vega um tveir milljarðar króna. Þessi vertíð er bara sýnishorn núna. Það eru ekki margir kostir aðrir en að horfa til næstu vertíðar og annarra fisktegunda og reyna að bíta á jaxlinn. Það þarf væntanlega að skera niður einhvern kostnað á móti þessu, en menn horfa lengra fram á við en til einnar vertíðar. Menn eru vanir sveiflum í sjávarútvegi. Við erum heldur ekki búnir að gefa vertíðina upp á bátinn. Menn hanga alltaf á einhverjum stráum og nú sjáum við að hrognafylling er mjög lág, í kringum 10 til 11%, sem bend- ir til þess að loðnan sé seinna á ferðinni en undanfarin ár. Það gæti því ennþá komið meira af henni. Það er líka mikill ís fyrir vestan svo menn hafa ekki komizt þar að til að leita. Því er ennþá von þar líka. Við erum því ekki farnir að skipuleggja miklar aðgerðir út af þessu. Við ætlum að fá meiri loðnu. Aðalmálið er að menn haldi áfram að leita og svo sjáum við til hvernig við bregðumst við. Mikil áhrif á mannlífið „Stöðvun loðnuveiða þýðir veru- legt tekjutap fyrir Ísfélagið. Miðað við árið 2007 var loðnan að gefa okkur um ríflega 30% af brúttó árs- tekjum félagsins. Loðnan skilaði okkur um það 40% af framlegð fé- lagsins á árinu 2007,“ segir Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmda- stjóri Ísfélags Vestmannaeyja. „Þetta er því verulegt tekjutap fyrir okkur, tap upp á um það bil tvo milljarða króna. Fyrir fyr- irtækin þrjú í Vestmannaeyjum, sem eru í loðnunni, þýðir þetta samtals um þrjá til þrjá og hálfan milljarð í tekjutap. Þetta hefur því veruleg áhrif á mannlífið hérna og allt okkar starfsfólk, bæði sjómenn og starfsfólk í landi, bæði í Eyjum og á Þórshöfn. Þarna erum við að miða við lélega vertíð í magni í fyrra. Við tókum á móti um það bil 65.000 tonnum í fyrra, en núna er- um við búnir að veiða um 9.000 tonn. Það þarf að bregðast við þessu og það þurfum við að gera fljót- lega. Við þurfum að fara yfir stöð- una og það verður ekki komizt hjá því að skera niður kostnað. Það hlýtur hver maður að sjá það,“ seg- ir Ægir Páll. Skipbrot fyrir okkur Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is MARGRA milljarða króna tekjutap blasir við þeim fyrirtækjum sem reiða sig á loðnuveiðar og -vinnslu eftir að sjávarútvegsráðherra tók þá ákvörðun að stöðva loðnuveiðar á há- degi í dag. Ákvörðunin var tekin að fenginni tillögu frá Hafrannsókna- stofnuninni þar sem enn hefur ekki tekizt að mæla nema 200.000 til 270.000 tonn af loðnu í mælingum sem hafa staðið yfir frá því snemma í janúar. Samkvæmt reikningsaðferðum stofnunarinnar þarf að minnsta kosti 400.000 tonna göngu til að tryggja nægilega hrygningu áður en veiðar eru leyfðar. Þessar mælingar eru langt frá þeim væntingum sem gerð- ar voru eftir mælingar á ungloðnu í hittiðfyrra. Þær gáfu til kynna að um 700.000 tonn af loðnu myndu ganga upp að landinu á vertíðinni nú. „Þetta er gífurlegt áfall fyrir þjóð- félagið í heild, fyrirtækin, sjómenn, fiskverkafólk og byggðarlögin, sem mest eru háð loðnunni. Það var hins vegar ekki hjá því komizt að stöðva veiðarnar vegna þess hve lítið hefur mælzt af loðnunni,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. Hann segir að áherzla verði lögð á það að fylgjast með gangi mála á mið- unum „svo ekkert fari framhjá okkur. Loðnan er dyntótt og það kann að vera að hún skili sér í meiri mæli þrátt fyrir allt,“ segir ráðherrann. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarfisks hjá Hafrannsókna- stofnuninni, segir að þrátt fyrir víð- tæka leit frá því snemma í janúar hafi ekki fundizt nóg af loðnu til að standa undir hrygningu hvað þá veiðum sem nokkru nemi. Því hafi ekki verið um annað að ræða en að leggja til stöðv- un veiðanna. „Við höfum ekki skýringu á því hvers vegna loðnan skilar sér ekki núna. Mæling á ungloðnu í hittiðfyrra gaf til kynna að mun meira yrði á ferðinni. Í ljósi óvissunnar verðum við að láta loðnuna njóta vafans,“ seg- ir Þorsteinn. Áfram verður fylgzt með loðnunni og það er mat flestra að hún sé nú seinna á ferðinni en venju- lega. Það byggist á mun minni hrognafyllingu en á sama tíma í fyrra. Því binda menn vonir við að loðnan eigi eftir að skila sér. Verði ekki leyft að veiða meira af loðnu verður þetta rýrasta loðnuver- tíð frá því á árunum 1982 og 1983, þegar nánast engin loðna veiddist. Nú stefnir í það að útflutningsverð- mæti loðnuafurða verða vart meira en einn milljarður króna. Það er einn tuttugasti af því sem mest var árið 2002 þegar verðmætið var ríflega 20 milljarðar króna. Þetta er gífurlegt áfall  Stöðvun veiða á loðnu þýðir allt að 7 milljarða tekjutap fyrir þrjú stærstu loðnufyrirtækin  Í ljósi óvissunnar verðum við að láta loðnuna njóta vafans  Veiðistöðvunin hefur mikil áhrif á mikinn fjölda fólks Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Loðna Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær með 1100-1200 tonn af loðnu sem veiddust fyrir sunn- an land. Hrognafylling loðnunnar í farmi Barkar er um 13,5% en á sama tíma í fyrra var hrognafyllingin um 23%. Í HNOTSKURN »Enn hefur ekki tekizt aðmæla nema 200.000 til 270.000 tonn af loðnu í mæl- ingum sem hafa staðið yfir frá því snemma í janúar. »Verði ekki leyft að veiðameira af loðnu verður þetta rýrasta loðnuvertíð frá því á ár- unum 1982 og 1983 þegar nánast engin loðna veiddist. »Nú stefnir í að útflutnings-verðmæti loðnuafurða verði vart meira en einn milljarður króna. Það er einn tuttugasti af því sem mest var árið 2002 þegar verðmætið var ríflega 20 millj- arðar króna.         $ #  #    %    &         '''  $ # ( VERÐI loðnuveiði ekki meiri á þess- ari vertíð hefur það mjög slæm áhrif á atvinnuástand í Vest- mannaeyjum, að sögn Elliða Vign- issonar bæjarstjóra. „Þetta kostar bæjarfélagið líklega um þrjá millj- arða króna í beinum tekjum og þá er eftir að reikna afleiddan tekju- missi,“ segir hann, en Ísfélag Vest- mannaeyja hefur um 20% loðnu- kvótans. „Þetta bætist ofan á þá 3,6 milljarða sem hrundu út úr hag- kerfinu hér eftir niðurskurð þorsk- kvótans.“ Hann kveður Eyjamenn enn ala með sér þá trú að loðnan gefi sig á endanum. Hún sé duttlungafullur fiskur og mynstrið sem verið hafi á veiðunum núna sé ekki óþekkt, þó hún sé óneitanlega í seinna fallinu. Elliði segir ljóst að áfram þurfi að fylgjast með loðnunni og leita henn- ar, en ef hún skili sér ekki gæti bær- inn þurft að létta undir með at- vinnulífinu. „Við erum einn stærsti atvinnurekandinn hér, við þurfum að bregðast við ef loðnan skilar sér ekki, til dæmis með því að flýta framkvæmdum.“ Það sé þó seinni tíma mál, sem engar ákvarðanir hafi verið teknar um. Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, segir ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra mjög erfiða fyrir byggðarlagið. Tekjumissir þess hafi ekki verið tekinn saman, en loðna er mikill hluti í sjávarafla þar. Afleidd- ur tekjumissir verði töluverður. „Ég hef heyrt hljóðið í forsvars- mönnum fyrirtækja á þessu sviði,“ segir Helga. „Þeir voru auðvitað farnir að óttast eitthvað þessu líkt, en treysta því að áfram verði haldið að leita að loðnunni. Það hefur sýnt sig að hún er ólíkindatól og kemur stundum fram þó seint sé. Menn eru ekki búnir að gefa vonina upp á bát- inn.“ Hún segir yfirvöld í sveitarfé- laginu munu fara yfir stöðuna og meta hvernig spilast úr henni. „Þetta minnir enn og aftur á hversu óskaplega mikilvægt er fyrir sjáv- arbyggðirnar á fjörðunum að hing- að sé komið öflugt atvinnufyrirtæki sem ekki er jafnháð sveiflum í nátt- úrunni,“ segir hún og vísar til ál- versins. Áhrifin mjög mikil „ÞETTA er alveg háalvarlegt mál. Þetta kemur mjög illa við sjómenn, því í mörgum tilfellum skilar loðnu- vertíðin uppistöðunni í árstekjum þeirra. Það sér hver maður að þetta er mikið áfall fyrir þann hóp, þó ekki sé meira sagt, og útgerð- arfélögin, sem þeir starfa hjá. Sum þeirra eru meira og minna sérhæfð í uppsjávarfiskinum. Veiðistöðv- unin hlýtur að koma við kaunin á þeim,“ segir Árni Bjarnason, for- seti FFSÍ. „Það er ekki um annað að ræða en að stöðva veiðarnar, þegar ekki mælist nóg til hrygningar, miðað við þær aðferðir sem nú er beitt. Þetta er svakalegt áfall, ekki bara fyrir þá sem reiða sig á loðnuveiðar og -vinnslu, heldur einnig fyrir þá sem reiða sig á aðra nytjastofna við landið. Skili loðnan sér ekki fá þessir fiskistofnar ekki nægilegt að éta. Þetta eru bara svona keðju- verkandi neikvæð áhrif af loðnu- leysinu. Vonandi er þetta þó þannig að það sé einhver sú staða uppi að ekki náist að mæla loðnuna þó hún sé til,“ segir Árni Bjarnason. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að gert sé ráð fyrir því að halda áfram að leita að loðnu og fylgjast með henni þó veiðar hafi verið stöðvaðar. „En auðvitað lítur þetta illa út. Við styðjum þessa ákvörðun, eins og er höfum við ekki á öðru að byggja. Verði ekki meiri veiði er það stór- kostlegt áfall fyrir alla sem byggja afkomu sína á loðnunni, Ég er ekki bjartsýnn en vonandi rætist úr þessu. „Loðnuveiðar hafa verið lifibrauð fjölda sjómanna. Þetta eru bara al- veg skelfileg tíðindi og hreint reið- arslag fyrir sjómannastéttina,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. „Ég sé samt ekki að það sé margt annað í stöðunni. Við getum ekki án loðn- unnar verið og ef rétt er að ekki sé meira af henni heldur en það sem mælingar gefa til kynna, þá er ekki um margt annað að velja en að hætta veiðum,“ segir hann. Sævar segir ákvörðun sjávar- útvegsráðherra í gær hafa legið í loftinu um nokkurt skeið, en fáir treysti sér til að leggja eitthvað annað til. „Annað kemur ekki til greina en að leita loðnunnar áfram og mæla hana ef eitthvað finnst. Ég óttast mjög að það sé eitthvað mikið að stofninum, en vona að ég hafi rangt fyrir mér um það.“ Lítur illa út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.