Morgunblaðið - 21.02.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 9
FRÉTTIR
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti forstöðumanns Rann-
sóknamiðstöðvar Íslands rann út
síðasta föstudag. Menntamálaráðu-
neytinu bárust átta umsóknir um
stöðuna. Umsækjendur eru Ágúst
Hjörtur Ingþórsson, Eiríkur B.
Baldursson, Eiríkur Smári Sigurð-
arson, Hallgrímur Jónasson, Ólafur
Oddgeirsson, framkvæmdastjóri,
Óskar Einarsson, Torfi Jóhann-
esson og Þorvarður Finnbjörnsson.
Miðað er við að mennta-
málaráðherra skipi í stöðuna til
fimm ára frá 1. apríl 2008.
Átta sóttu um
LAUNAÞRÓUN félagsmanna KÍ í
framhaldsskólum hefur ekki fylgt
launaþróun hefðbundinna viðmiðun-
arhópa hjá ríkinu á yfirstandandi
samningstímabili og hafa framhalds-
skólakennarar dregist umtalsvert
aftur úr þeim í grunnlaunum, segir í
frétt frá samtökum þeirra.
Árið 2002 voru meðaldagvinnulaun
framhaldsskólakennara þau sömu og
meðaldagvinnulaun félagsmanna
BHM. Um mitt síðasta ár voru með-
aldagvinnulaun kennara hins vegar
komin 7 prósentum niður fyrir með-
aldagvinnulaun félagsmanna BHM. Í
krónum talið var munurinn í júlí um
20 þúsund krónur á mánuði og síðan
hefur bilið haldið áfram að breikka.
Þetta gerist þrátt fyrir að fram-
haldsskólar séu í sama launakerfi og
flest önnur stéttarfélög opinberra
starfsmanna. Stíf hagræðingarkrafa
er gerð til framhaldsskólanna sem
bitnar beint á námi og kennslu. Sam-
kvæmt tölum frá Hagstofunni hefur
nemendum fjölgað hlutfallslega mun
meira en kennurum og hefur það
bætt rekstrarskilyrði framhaldsskól-
anna. Kennarar hafa þó ekki notið
þeirrar „framleiðniaukningar“ í
bættum kjörum.
Á þetta er bent í ályktun sem félög
kennara og stjórnenda í framhalds-
skólum hafa sent frá sér. Þar segir
einnig að samanburður milli landa á
kennaralaunum sem hlutfall af lands-
framleiðslu á mann sé ekki uppörv-
andi fyrir íslenska kennara. Hlut-
fallsleg launastaða þeirra sé mjög
slök miðað við flest önnur OECD ríki
og sé kaupgeta meðalgrunnlauna
framhaldsskólakennara á Íslandi hin
fimmta lægsta í OECD ríkjunum.
Í ályktuninni segir að óánægja
framhaldsskólakennara með laun sín
og starfskjör kunni að leiða til þess
að þeir leiti í önnur störf þar sem
boðið er upp á betri kjör. Meginvið-
fangsefni í næstu kjarasamningum
sé að koma í veg fyrir að svipað
ástand skapist og árið 2000 þegar
slök launaþróun leiddi til tveggja
mánaða verkfalls. Í næstu kjara-
samningum þurfi að leiðrétta laun
kennara í framhaldsskólum og
tryggja að kjör þeirra haldi í við laun
annarra háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna.
Segja framhaldsskólakenn-
ara hafa dregist aftur úr
KRINGLUNNI - Sími: 568 9955
OPIÐ
TIL 9
Expresso-Cappicino-Cafe latte
3 stærðir - 18 munstur
FIMMTUDAGS-TILBOÐ
www.tk.is
-20%
BORGARBOLLAR
& DISKAR
Laugavegi 82, sími 551 4473
Glæsileg
undirföt
beint frá
París
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Opnum í dag
með fulla búð af
glæsilegum vorfatnaði
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Sumarvörurnar
komnar
– Mussur
– tunikur
– bolir
– buxur
Str. 38-56
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Ný
sending af
buxum
NordicTrack
TM
NAUTILUS TM
Suðurlandsbraut 50
(bláu húsunum við Fákafen)
www.gala.is • Sími 588 9925
Opið 11-18 • 11-16 lau.
Glæsifatnaður
Erum með falleg föt frá
..Gina Bacconi...
..Michaela Louisa…
..Pause Café…
St:34-52