Morgunblaðið - 21.02.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 11
ALÞINGI
FRÉTTIR
NÝ norræn matargerðarlist verður í hávegum
höfð í Norræna húsinu fram á sunnudag í
tengslum við Food & Fun-hátíðina sem opnuð
var í gær. Hátíðin í ár er sú stærsta frá upp-
hafi.
Norrænir matargerðarmeistarar, sendi-
herrar norrænnar matargerðarlistar, verða
með fyrirlestra um mat og drykk ásamt því að
bjóða upp á smökkun hinna ólíkustu rétta.
Dagskráin stendur daglega frá klukkan 13 og
stendur fram til 18 í dag, fimmtudag, 17:30 á
morgun föstudag, 17 á laugardag og 16 á
sunnudag.
Kynntir voru norrænir réttir í Norræna
húsinu í gær og gaf þar að líta og smakka laxa-
lummur, saltfiskbúðing, eftirrétti og margt
fleira, hvað öðru gómsætara að mati við-
staddra. Og matarveislan heldur áfram til
sunnudags.
Meðal atriða er verkefnið Beint frá býli kl.
13:30 á föstudag, en verkefnið hefur það mark-
mið að stuðla að framleiðslu matvæla á sveita-
býlum og milliliðalausri sölu þeirra til neyt-
enda. Þá má nefna dagskrárliðinn Fáðu þér
bita úr matarkistu Skagafjarðar sem er dag-
lega til sunnudags. Þá verður kynntur nor-
rænn bjór og sagt frá matartengslaneti í
S-Skandinavíu á föstudag kl. 16.
Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðherra sagðist afar þakklátur fyrir
það starf sem unnið hefur verið í tengslum við
matarhátíðina. Sagði hann orðspor hennar
hafa borist um víða veröld og vakið athygli
fjöldans. Bestu matreiðslumenn beggja vegna
Atlantshafsins hefðu sóst eftir að mæta á há-
tíðina á liðnum árum. Fyrir Íslendinga væri
hátíðin annarsvegar fólgin í þeirri nautn að
mega njóta matreiðslu bestu matreiðslumeist-
ara í heimi og hins vegar að kynna þeim ís-
lenskt hráefni. Sagði hann íslenska hráefnið
hafa hlotið viðurkenningu víða erlendis fyrir
hreinleika og gæði. Væri viðeigandi að nota
það í matreiðslu á heimsmælikvarða.
Ráðherranefnd Norðurlandaráðs hefur
skipað sendiherra fyrir nýja norræna mat-
argerðarlist frá hverju Norðurlandanna og
munu þeir ásamt Geir H. Haarde forsætisráð-
herra kynna hinn nýja norræna mat fyrir al-
þjóðlegum fjölmiðlum í Bláa lóninu á morgun,
föstudag.
Nýr norrænn matur í fyrsta sinn á Food & Fun-hátíðinni í Norræna húsinu fram á sunnudag
Boðið upp á hágæða-
mat norðurslóðanna
ÁÆTLAÐ er að 25 þúsund manns taki þátt í Food & Fun-hátíðinni að þessu sinni. Hátíðin fer
fram á 15 veitingastöðum í Reykjavík og er hápunkturinn alþjóðleg kokkakeppni í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu laugardaginn 23. febrúar. Keppnin er opin almenningi. Þá verð-
ur kynning í Norræna húsinu á mat og hönnun auk þess sem fjórir norrænir meistarakokkar
matreiða norrænan mat á Veitingahúsinu Vox á meðan hátíðin stendur yfir.
Árvakur/Ómar
25 þúsund á Food & Fun í ár
Á SÍÐASTA skólaári nutu 394 nemendur sérúrræða
hjá Háskóla Íslands við nám og/eða próftöku og af
þeim voru 70% stúlkur. Þetta kom fram í svari Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra við fyrirspurn Steinunnar Þóru Árnadóttur,
þingmanns VG, um öryrkja í háskólanámi á Alþingi í
gær.
Þorgerður sagði nemendur sem eru með 75% ör-
orku eða meiri greiða lægra skrásetningargjald við
háskólann en vegna persónuverndarsjónarmiða
liggja upplýsingar um fjölda þeirra ekki fyrir.
Steinunn vakti athygli á því að menntunarstig ör-
yrkja væri lægra en annarra hópa, sem þó að hluta
til mætti skýra með skertri námsgetu í einhverjum
tilvikum. „Hér er um mikilsvert hagsmunamál fyrir
öryrkja að ræða,“ sagði Steinunn og bætti við að
með meiri menntun ykjust möguleikar þeirra til að
leita sér vinnu á nýjum vettvangi.
Þorgerður sagði öryrkjum í háskólanámi hafa
fjölgað mjög á síðustu árum í takt við almenna fjölg-
un nemenda á háskólastigi. Flestir háskólar hér á
landi hefðu sértæk úrræði fyrir fatlaða nemendur og
öryrkja. „Í þessu sambandi hafa háskólarnir brugð-
ist við og markað sér stefnu,“ áréttaði Þorgerður.
Mikilsvert hagsmunamál öryrkja
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
LÍFFÆRAGJAFAKORT sýna
einungis almennan vilja þess sem
gengur með slíkt kort en hefur
ekki lagalegt gildi. Ákvörðun um
líffæragjöf dáins einstaklings er
því í höndum ættingja hvort sem
viðkomandi er með líffæragjafa-
kort eða ekki. Þetta kom fram í
svari Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn
Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns
Siv sagði ljóst að þessi mál
væru í ólestri hér á landi og velti
því upp hvort gera ætti kortin
lagalega bindandi, t.d. með því að
binda þau við ökuskírteini, eða
jafnvel fara þá leið að ganga út
frá svokölluðu ætluðu samþykki,
fremur en ætlaðri neitun, þ.e. að
fólk vildi gefa líffæri nema annað
kæmi fram. Guðlaugur taldi það
hins vegar ekki koma til greina
og vísaði til ráðlegginga frá
Spánverjum sem hefðu farið þá
leið.
Framsóknarflokksins, á Alþingi í
gær.
Guðlaugur sagði fjölda útgefinna
líffæragjafakorta ekki vera þekkt-
an hér á landi en með þeim getur
fólk sagt til um hvort það vilji gefa
líffæri eða ekki, og þá jafnvel
hvaða líffæri. „Miðað við þau lönd
sem við berum okkur saman við
stöndum við okkur nokkuð vel,“
sagði Guðlaugur varðandi tíðni líf-
færagjafa hér á landi og benti á að
Ísland væri í næsthæsta flokki
Evrópuþjóða hvað það varðaði.
Möguleg líffæragjöf
í höndum ættingja
Þorskur ræddur
Mótvægisaðgerðir vegna þorsk-
niðurskurðar voru ræddar að nýju á
Alþingi í gær en
Huld Aðalbjarn-
ardóttir, Fram-
sókn, sagði beðið
með óþreyju eftir
upplýsingum um
frekari aðgerðir.
Arnbjörg Sveins-
dóttir, Sjálfstæð-
isflokki, áréttaði
að ekkert kæmi í
staðinn fyrir 60
þúsund tonn af þorski en að jafnframt
væri verið að reyna að þróa tæki til
þess að endurskapa atvinnulífið á
landsbyggðinni.
Þreyttir á
samgönguleysi
Samgöngur til Vestmannaeyja voru
einnig ræddar á þingi í gær og m.a.
vildi Hanna Birna
Jóhannsdóttir,
Frjálslyndum, vita
hvernig ætti að
bæta samgöngur
á sjó þar til
Bakkafjöruhöfn
yrði tilbúin. Sagði
hún Vest-
mannaeyinga
vera langþreytta á
því að komast
ekki til og frá sinni heimabyggð. Krist-
ján L. Möller samgönguráðherra
sagði að næturferðum Herjólfs yrði
fjölgað um tuttugu í tengslum við stór-
viðburði í Eyjum, s.s. þjóðhátíð. Það
væri talið nægilegt þar sem áætl-
unarferðir væru almennt ekki full-
nýttar nema í kringum slíka viðburði.
Hvað var með Baldur?
Kristinn H. Gunnarsson, Frjáls-
lyndum, hefur lagt fram fyrirspurn til
samgönguráðherra um sölu á Breiða-
fjarðarferjunni Baldri. Sæferðir ehf.
keyptu ferjuna af ríkinu en seldu hana
síðan úr landi. Kristinn spyr m.a. um
andvirði ferjunnar og greiðsluskil-
mála. „Hvers vegna tók það Sæferðir
ehf. 15 mánuði að greiða ríkissjóði
sinn hluta af söluverði skipsins og
hvernig var sú greiðsla innt af hendi?“
spyr hann jafnframt og vill vita hvort
ríkið hafi komið að kaupum Sæferða
á annarri ferju í stað Baldurs.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag og
m.a. mun félagsmálaráðherra mæla
fyrir frumvarpi um fæðingarorlof.
ÞETTA HELST
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Hanna Birna
Jóhannsdóttir
VALGERÐUR Sverrisdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, þarf
ekki að hafa áhyggjur af því að
varaþingmenn sem taka hennar
sæti þegar hún bregður sér af bæ
sitji auðum höndum. Sigfús Karls-
son kom upp í ræðustól Alþingis
tæpum 13 mínútum eftir að hann
sór drengskapareið í gær og sló
þriggja mánaða gamalt met flokks-
bróður síns úr sama kjördæmi, Jóns
Björns Hákonarsonar, en í hans til-
viki liðu tæpar 17 mínútur.
Jón Björn er fyrsti varamaður
Framsóknarflokksins í Norðaust-
urkjördæmi og þar sem hann boð-
aði forföll var Sigfús kallaður inn.
Það má því með sanni segja að þeir
félagar njóti hverrar mínútu á
þingi og hiki ekki við að upplýsa
þing og þjóð um skoðanir sínar.
Sló met
flokksbróður
úr Framsókn
VERÐHÆKKUN á áburði er afar
alvarlegt mál en gæti jafnframt ýtt
undir þróun í lífrænni ræktun hér á
landi. Þetta kom fram í svari Einars
K. Guðfinnssonar, landbúnaðar-
ráðherra, við fyrirspurn Jóns
Bjarnasonar, þingmanns VG, á Al-
þingi í gær en Jón vildi m.a. vita
hvernig ráðherra hygðist bregðast
við þessum hækkunum.
Einar sagði áætlað að verð á
áburði hækkaði um 70% milli ára
og að það mundi t.a.m. hafa áhrif á
verð á mjólk og lambakjöti. Verð-
lagning á áburði væri þó frjáls hér
á landi og ráðherra ekki að hlutast
til um hana. „Hins vegar er ástæða
til að hafa miklar áhyggjur af
hækkun áburðarverðs því að hún
kemur illa við bæði bændur og
neytendur,“ sagði Einar og benti
jafnframt á að um hækkun á heims-
markaði væri að ræða. „Það er al-
veg ljóst mál að þetta verður ekki
einkamál bænda eða framleiðenda.
Þetta er mál sem varðar okkur öll,“
sagði Einar.
Gæti ýtt undir
lífræna ræktun