Morgunblaðið - 21.02.2008, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
KRISTJÁN Möller samgöngu-
ráðherra fagnar því að sú nið-
urstaða Skipulagsstofnunar liggi
fyrir að framkvæmdir vegna leng-
ingar flugbrautarinnar á Akureyri
þurfi ekki í umhverfismat.
Verkið var, að sögn Kristjáns,
strax á mánudaginn boðið út á Evr-
ópska efnahagssvæðinu, eins og lög
gera ráð fyrir, og verður vænt-
anlega auglýst í íslensku dagblöð-
unum um helgina. „Tilboðsfrestur
er 52 dagar, talið frá þeim tíma
þegar útboðið er birt á EES – það
verður sem sagt talið frá síðasta
mánudegi. Verktakar geta því
fengið útboðsgögn í næstu viku og
tilboðin verða væntanlega opnuð í
apríl,“ sagði ráðherra í gær.
Brautin verður lengd um 460
metra til suðurs og öryggissvæði
gerð við báða enda hennar. Að
framkvæmdum loknum verður
flugbrautin á Akureyri 2.400 metra
löng. „Það er viðamikið verk fram-
undan og því þurfa fyrirtæki góðan
tíma til tilboðsgerðar. En verkefnið
er komið á fljúgandi ferð.“ Kristján
vonar að verkinu ljúki á þessu ári.
„Ég neita því hins vegar ekki að
dýrmætur tími hefur tapast vegna
þess hve hið lögformlega ferli tók
langan tíma; að fá úr því skorið
hvort umhverfismat væri nauðsyn-
legt eða ekki.“
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Verkið er
komið á flug
FORMAÐUR Siglingaklúbbsins
Nökkva telur að ef framkvæmdum
við uppbyggingu fyrir siglingamenn
verði frestað geti það haft af-
drifaríkar afleiðingar í för með sér
fyrir klúbbinn og raunar allt báta-
sport á Pollinum við Akureyri. Bæj-
aryfirvöld höfðu ákveðið að leggja
fram 10 milljónir króna í ár og ann-
að eins á næsta ári til framkvæmda
en hætt hefur verið við það. Sigrún
Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri seg-
ir hugmyndir siglingaklúbbsins
mjög metnaðarfullar en óraunhæft
sé að hefja framkvæmdir í sumar
miðað hve mikil undirbúningsvinna
sé eftir.
Rúnar Þór Björnsson, formaður
Nökkva, afhenti fulltrúum í bæj-
arstjórn áskorun vegna þessa máls
fyrir fund hennar á þriðjudaginn.
„Við höfum slegist í mörg ár við það
eitt að eiga fyrir málningu á bátana
okkar, eiga fyrir daglegum rekstri
og bara það að sjá fram á nýfram-
kvæmdir gaf ástæðu til að halda
áfram starfinu,“ segir m.a. í áskor-
uninni.
Nökkvi fékk landslagsarkitekt til
þess að teikna aðstöðu fyrir klúbb-
inn. Hugmyndirnar hafa verið
kynntar undanfarið og segir Rúnar
þær hvarvetna fá mikið lof og menn
sjái fyrir sér aðstöðu sem yrði ein-
stök á landinu.
„Þær 10 milljónir sem ætlaðar
voru í framkvæmdir í ár og 10 á
næsta ári eru ekki mikill hluti þess
sem verið er að framkvæma fyrir
hjá Akureyrarbæ, en fyrir það er al-
veg hægt að byrja og um leið og eitt-
hvað er komið í gang gefur það fyr-
irheit um það sem koma skal og
kraftinn til að halda áfram,“ segir í
áskorun Nökkva. Síðan segir: „Ef
þetta fer á þann veg sem lítur út
núna sér stjórn Nökkva ekkert ann-
að í stöðunni en skila inn lyklunum
að aðstöðunni, hætta endalausri
sjálfboðavinnu fyrir annarra manna
börn og horfa á margra áratuga
vinnu fjölda fyrrverandi stjórn-
armanna verða að engu vegna lof-
orða sem virðast endalaust geta
frestast.“
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæj-
arstjóri á Akureyri, segir að það séu
miklar framkvæmdir sem fyrirhug-
aðar eru og hugmyndir Nökkva
metnaðarfullar og glæsilegar. En
framkvæmdin kalli bæði á breytingu
á aðalskipulagi og deiliskipulagi
svæðisins og landfyllingin sé svo
mikið verk að hún þurfi jafnvel í um-
hverfismat. „Það var því ljóst að
mínu mati að það væri óraunhæft að
setja 10 milljónir í verkefnið og ætla
sér að hefja framkvæmdir núna í
sumar miðað við þá miklu skipulags-
vinnu sem á eftir að eiga sér stað af
hálfu bæjarins, hafnaryfirvalda og
siglingarklúbbsmanna.
Með þessari ákvörðun er ekki ver-
ið að kasta rýrð á það góða starf sem
Nökkvi hefur innt af hendi og sýnt
sig í frábærum árangri félagsmanna
á siglingamótum undanfarið. Við vit-
um að núverandi aðstaða er langt
frá því að vera nægjanleg góð og
þeir búa við erfið skilyrði við
Drottningarbrautina og við þá miklu
umferð sem þar er. En skipulag að
nýrri aðstöðu fyrir þá þarf að vinna
samkvæmt lögum og reglum sem
okkur eru sett og það er mikilvægt
að undirbúa það vel, og það er ná-
kvæmlega það sem stendur til að
gera,“ sagði Sigrún Björk.
Segjast skila lyklum og
hætta sjálfboðavinnu
Pollurinn Frá Íslandsmótinu í siglingum sem fram fór á Akureyri í fyrra.
Í HNOTSKURN
»Nökkvamenn ætluðu að byrjaá að dæla upp efni af hafs-
botni og mynda landfyllingu
norður úr Leiruveginum, austan
við Lindina.
NOKKRIR þingmenn Norðaustur-
kjördæmis vilja fela ríkisstjórninni
að hefja nú þegar undirbúning þess
að koma á fót á Akureyri sjávarlíf-
fræðisafni og rannsóknarsetri um
auðlindir og lífríki hafsins, í sam-
vinnu við Háskólann á Akureyri og
sveitarfélög við Eyjafjörð.
Tillaga til þingsályktunar var í
vikunni lögð fram af nokkrum þing-
mönnum Norðausturkjördæmis;
þeir eru Björn Valur Gíslason og
Þuríður Backman í VG, framsókn-
armennirnir Birkir J. Jónsson og
Höskuldur Þórhallsson og Þorvaldur
Ingvarsson, Sjálfstæðisflokki.
Flutningsmenn segja að Ísland
hafi lengi verið talið gullnáma jarð-
fræðinema og gósenland jarðfræð-
inga vegna aðstæðna hér á landi og
það sama ætti að sjálfsögðu að eiga
við þegar horft er til hafsins.
„Safnið mundi ekki aðeins nýtast
landsmönnum til almennrar fræðslu
og upplifunar um hafið og lífríki
þess, heldur mundi það ekki síður
laða að erlenda ferðamenn og fræða
þá um náttúru og lífríki Íslands.
Þá er ljóst að safn og rannsókn-
arsetur af þessu tagi yrði gífurleg
lyftistöng fyrir aðrar atvinnugreinar
nyrðra og ekki síst ferðaþjónust-
una,“ segir í greinargerð með álykt-
uninni.
Flutningsmenn telja að fyrstu
skref í átt að rannsóknarsetri og
sjávarlíffræðisafni á Akureyri ættu
að vera þau að setja saman hóp
fræðimanna, sjómanna, sveitar-
stjórnarmanna og áhugafólks sem
síðan skilaði ríkisstjórninni fullbún-
um tillögum og hópnum yrðu sett
þröng tímamörk svo að framkvæmd-
ir geti hafist hið allra fyrsta.
Sjávarlíf-
fræðisafn
nyrðra?
AKUREYRI
„HVERS vegna er farið út í svona
gríðarlega framkvæmd innan þessa
náttúruverndarsvæðis? Ætlar Mos-
fellsbær ekki að eiga neitt óspillt
land eftir í framtíðinni?“ Þannig
spyr Gunnlaugur B. Ólafsson, vara-
formaður Varmársamtakanna,
vegna lagningar göngustígs með-
fram Varmá og Álafossi sem unnið
er að um þessar mundir og vakið
hefur hörð viðbrögð á vefsíðu
Varmársamtakanna (www.varmar-
samtokin.blog.is).
Í samtali við Morgunblaðið
bendir Gunnlaugur á að sér finnist
óeðlilegt að lagður sé 3 metra
breiður og 4 metra uppbyggður
malbikaður göngustígur í aðeins
1-5 metra fjarlægð frá Varmá og í
um 3 metra fjarlægð frá Álafossi.
Bendir hann á að meðfram og upp
með Varmá ríki hverfisvernd í 50
metra, en til samanburðar sé víðast
hvar í Reykjavík miðað við að
hverfisvernd nái allt að 100 metra
frá árbökkum. Þess má geta að
Varmá er á náttúruminjaskrá.
Að mati Gunnlaugs hefði verið
heppilegra að nota í göngustíginn
annaðhvort fíngerða möl eða við-
arspæni þar sem það falli betur að
landslaginu án þess að vera krefj-
andi á athygli. Segist hann einnig
hafa áhyggjur af því að olíubland-
aða mölin, sem malbikið saman-
standi af, geti seytt að hluta út í
Varmá með tilheyrandi neikvæðum
áhrifum fyrir lífríki árinnar. Að
sögn Gunnlaugs hafa forsvarsmenn
Varmársamtakanna reynt að leita
svara bæjaryfirvalda við því hvar
og hvernig fjallað hafi verið um
lagningu göngustígsins í bæjar-
kerfinu. „Við höfum hins vegar
ekki getað fengið nein svör og bera
bæjaryfirvöld því við að ekki sé
hægt að veita okkur neinar upplýs-
ingar meðan kæra okkar vegna
lagningar tengibrautarinnar [eða
vinnuvegar sem liggur um svipaða
leið og tengibraut úr Helgafells-
landi í Mosfellsbæ] sé til meðferðar
hjá úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála,“ segir Gunnlaugur
í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi umræddi göngustígur er
hluti af auglýstu deiliskipulagi
Helgafellshverfis,“ segir Haraldur
Sverrisson, bæjarstjóri Mosfells-
bæjar, og bendir á að deiliskipulag-
ið hafi verið auglýst undir lok árs
2006. „Almennt er það þannig að
göngustígar meðfram Varmá eru
útivistarstígar og því ekki malbik-
aðir heldur gerðir úr náttúrulegri
efnum. Þessi göngustígur er hins
vegar hluti af göngustígakerfi
hverfisins og hefur alltaf verið
kynntur sem slíkur,“ segir Har-
aldur og tekur fram að slíkir stígar
séu ávallt malbikaðir til þess að
hægt sé að fara um þá t.d. á hjóli
eða með barnakerrur.
Umhverfisstofnun gerði ekki
athugasemd við göngustíginn
Hjá Finni Birgissyni, skipulags-
fulltrúa Mosfellsbæjar, fengust þær
upplýsingar að deiliskipulag fyrir
Helgafellshverfi hefði verið sent
Umhverfisstofnun til umsagnar 15.
maí 2007 og hún skilað umsögn 8.
júní sama ár. „Umhverfisstofnun á
að passa upp á hluti á náttúru-
minjaskrá og hún fékk í þessu til-
viki tækifæri til að gera athuga-
semd við tillöguna. Umhverf-
isstofnun gerði engar athuga-
semdir við þennan stíg eins og
hann var sýndur og var hann þó
sýndur á deiliskipulaginu nær ánni
heldur en við erum nú að útfæra
hann.“
Aðspurður segir Finnur göngu-
stíginn liggja næst Varmá í um 16
metra nálægð en fjærst ánni í rúm-
lega 30 metra fjarlægð. „Göngu-
stígurinn er næst ánni syðst þar
sem hann tengist göngustíg sem
fyrir hendi er,“ segir Finnur og
tekur fram að viðkvæmasta stað-
setningin sé í kringum Álafossinn.
Þess má geta að göngustígurinn
liggur samkvæmt upplýsingum frá
bæjarstjóra Mosfellsbæjar að mikl-
um hluta til ofan á fráveitulögninni
sem lögð var sl. sumar til þess að
minnka raskið sem annars hlytist
af lagningu göngustígs.
Í greinargerð með deiliskipulag-
inu fyrir Helgafellshverfi kemur
fram að göngustígur verði með-
fram Varmá og að hann sé með
tengingum á nokkrum stöðum upp
í byggðina. Einnig er tekið fram að
aðalstígar séu 3 metra breiðir og
henti einnig sem hjólreiðastígar.
Ekki er í greinargerðinni tekið
fram að um sé að ræða malbikaðan
stíg. „Menn hafa alltaf séð þennan
stíg fyrir sér sem hluta af meg-
instígakerfi Mosfellsbæjar og í að-
alskipulagi kemur fram að slíkir
stígar séu 3-3,5 metrar á breidd,
malbikaðir og greiðfærir fyrir alla,
hvort heldur er gangandi, hjólandi
eða í hjólastólum.“
Árvakur/RAX
Umdeilt Áætlun um lagningu göngustígs meðfram Varmá hefur vakið hörð viðbrögð Varmársamtakanna.
Deilt um lagn-
ingu göngu-
stígs við Varmá
Varmársamtökin óttast um lífríki árinn-
ar vegna lagningar malbikaðs stígs
Í HNOTSKURN
»Tillaga að deiliskipulagi fyrir3. áfanga Helgafellshverfis
ásamt greinargerð og skipulags-
skilmálum var auglýst um ára-
mótin 2006-2007.
»Deiliskipulagstillagan fór tilumsagnar hjá Umhverf-
isstofnun (UST) 15. maí 2007 og
skilaði stofnunin umsögn 8. júní.
»UST gerði ekki athugasemdvið lagningu 3 metra breiðs
göngu- og hjólastíg meðfram
Varmá.