Morgunblaðið - 21.02.2008, Síða 21
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 21
Bæjarsjónvarpið á Akureyri, N4,
verður bráðlega sjáanlegt á Digital
Ísland, dreifikerfi Vodafone. Þar
með geta langflestir landsmenn séð
útsendingar N4. Forráðamenn
stöðvarinnar stefna að því að fara af
stað með daglegan fréttaþátt á ný.
Ekki verður hafist handa við að
grafa Vaðlaheiðargöng til þess að ná
í efni fyrir uppfyllingu vegna leng-
ingar flugbrautarinnar. Kjartan
Lárusson, framkvæmdastjóri Mark-
aðsskrifstofu ferðamála á Norður-
landi, nefndi þetta í blaðinu í gær en
samgönguráðherra segir það ekki
mögulegt.
„Það þyrfti að grafa upp undir
þrjá kílómetra til að fá það efni sem
þarf vegna lengingar flugbraut-
arinnar og það tekur of langan
tíma,“ sagði Kristján í samtali í gær.
Ef þessi háttur yrði hafður á myndu
framkvæmdir við flugvöllinn taka of
langan tíma, segir hann.
Nýr formaður var kjörinn í stjórn
knattspyrnudeildar KA í vikunni.
Það er Gunnar „Gassi“ Gunnarsson,
sem síðustu ár hefur verið fram-
kvæmdastjóri deildarinnar. Aðal-
fundur knattspyrnudeildar Þórs var
líka haldinn í vikunni. Unnsteinn
Jónsson verður áfram formaður þar
á bæ.
Breytingar hafa verið ákveðnar í
möguleikamiðstöðinni Rósenborg og
eru starfsmenn ósáttir, að sögn
svæðisútvarps Norðurlands. Tveir
hafa þegar ákveðið að starfa ekki
þar áfram, forstöðumaður Punktsins
(sem er handverks- og tómstunda-
miðstöð) og forvarnarfulltrúi bæj-
arins. RÚVAK segir að for-
stöðumaður Punktsins hafi starfað
þar í 14 ár, eða frá upphafi. „For-
varnarfulltrúi bæjarins, segist ætla
að leita réttar síns í málinu. Al-
þjóðastofa mun að öllum líkindum
heyra undir Alþjóðahúsið í Reykja-
vík,“ segir RÚVAK.
Gaman er að lesa greinargerð með
tillögu til þingsályktunar um sjáv-
arlíffræðisafn og rannsóknarsetur á
Akureyri, en hún var lögð fram á Al-
þingi í vikunni. Þar segir meðal ann-
ars: „Fjölmörg sjávarlífssöfn má
finna á Norðurlöndum en ekkert
þeirra tengist rannsóknum með
þeim hætti sem hér er sett fram. Svo
vitað sé er ekkert slíkt safn til ann-
ars staðar þannig að hér er um ein-
stakt tækifæri að ræða til að taka
forustu á heimsvísu á þessu sviði.
Aðstæður til að setja slíkt safn á fót
við Pollinn á Akureyri eru einstakar.
Þar má auðveldlega sjá fyrir sér að
safn um sjávarlíffræði verði að hluta
til neðansjávar, þar mætti sýna fiska
í náttúrlegu umhverfi, kræklinga-
eldi, fiskeldi, hafsbotninn, botn-
gróður og manngerðar eftirlíkingar
af ýmsum náttúruundrum hafsins.“
Ungur maður var í gær, í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra, dæmdur í
45 daga skilorðsbundið fangelsi, fyr-
ir „brot gegn valdstjórninni“ eins og
það er orðað. Hann var ölvaður í
miðbæ Akureyrar, hótaði tveimur
lögreglumönnum ítrekað lífláti og að
vinna þeim og fjölskyldum þeirra
mein. Þá hrækti hann framan í ann-
an lögreglumanninn. Ákærði, sem
aldrei hefur áður komist í kast við
lögin, viðurkenndi skargiftir fyrir
dómi og lýsti yfir iðran.
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Valgarður Baldvinsson og Haraldur Sigurðsson eru heiðursfélagar LA.
Þeir skemmtu sér konunglega á frumsýningu farsans Fló á skinni nýverið.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Gaman í leikhúsinu
Stefán Friðbjarnarson skrifarVísnahorninu: „Pétur
Gunnarsson var gestur Leshóps
eldri borgara í Gullsmára í janúar
sl. Bók hans ÞÞ í fátæktarlandi
lýsir sultarlífi Þórbergs á
kreppuárum og nákvæmni hans í
dagbókarskrifum, þar sem hann
tíundar m.a. hvenær hann „lá
konur“.
Þórbergur var Þórðarsonur
og þung á hvörmum sultartárin,
en ljóðagerð og „legnar konur“
léttu honum kreppuárin.
Vigdís Grímsdóttir var gestur
leshópsins í febrúar. Kynntar voru
bækurnar, Bíbí, Ég heiti Ísbjörg...,
Kaldaljós, Grandavegur 7 o.fl.
Bókarheitin runnu saman í stöku:
Bíbí flestra hlýtur hrós,
en henni fylgir tregi.
Kveikir Ísbjörg Kaldaljós
keik á Grandavegi.
Og svo er það Hillarý-Óbama-
kapphlaupið í henni Ameríku.
Hillarý – henn’er ei sama
ef hamingjan breytist í drama.
Henni til angurs og ama
er eldhuginn Barack-Ó-bama.“
Rúnar Kristjánsson segir vísu
sína í Vísnahorninu í gær alls
ekkert um Dag, ekki heldur nótt,
heldur Björn Inga Hrafnsson. „Svo
átti þetta nú að vera háð.“
Hann sig lausan feginn fékk,
fágaður og skafinn.
Líkt og engill út svo gekk,
allra hrósi vafinn.
VÍSNAHORNIÐ
Af pólitík og
rithöfundum
pebl@mbl.is