Morgunblaðið - 21.02.2008, Page 40
… og gæludýr karlsins
er fullvaxinn sebra-
hestur sem hann hýsir í
svefnherberginu … 47
»
reykjavíkreykjavík
TÓNLEIKAR sem Bubbi
Morthens stóð fyrir í Aust-
urbæ í gærkvöldi undir yf-
irskriftinni Bræður & systur
þóttu heppnast afar vel, en
tilgangur þeirra var að
vekja athygli á kynþátta-
fordómum í samfélaginu.
Fullt var út úr dyrum á tón-
leikunum, enda aðgangur
ókeypis, og gripu sumir til
þess ráðs að sitja á göng-
unum.
Á meðal þeirra sem komu
fram á tónleikunum auk
Bubba voru KK, Nýdönsk,
Mínus, Lay Low, Ragnheið-
ur Gröndal, Hjálmar, Ragn-
ar Bjarnason og Sprengju-
höllin. Hvað mesta athygli
vakti þó þegar Geir H.
Haarde forsætisráðherra
tók tvö lög, fyrst með South
River Band en svo með
Bubba sjálfum.
Bræður & systur í Austurbæ
Árvakur/Frikki
Skipuleggjandinn Bubbi söng sjálfur eitt lag á tónleikunum.
Á meðan söng-
leikurinn Jesus
Christ Superstar
gengur fyrir nán-
ast fullu húsi
hvert einasta
kvöld er Björn
Hlynur Haraldsson leikstjóri sýn-
ingarinnar byrjaður að huga að
næsta verki. Það mun vera leikritið
Dubbeldusch sem Björn Hlynur
skrifar sjálfur en verkið ku fjalla
um einkason sem setur fjölskyldu-
lífið á annan endann þegar hann
mætir með nýja kærustu upp á
arminn. Verkið verður sýnt hjá
Leikfélagi Akureyrar en er unnið í
samvinnu við Vesturport sem nú
frumsýnir Kommúnuna í Borg-
arleikhúsinu en áætlað er að frum-
sýna Dubbeldusch um miðjan mars.
Aðalleikarar eru Ólafur Darri
Ólafsson, Víkingur Kristjánsson,
Harpa Arnardóttir og Elma Lísa
Gunnarsdóttir. Börkur Jónsson
hannar leikmynd en Frank Hall,
gítarleikari Ske, semur tónlistina
fyrir verkið og smíðar hljóðmynd-
ina.
Úr söngleik
í fjölskyldusápu
Eins og sést og heyrist er keppn-
in á milli Mercedes Club og Euro-
bandsins að ná hámarki í Laug-
ardagslögunum. Ásakanir og
ákúrur fljúga á milli keppenda og
hvor sakar hinn um óheilindi og
svindl og svo gæti farið að uppúr
syði næsta Laugardagskvöld þegar
stálin stinn mætast í orðsins fyllstu
merkingu. Þó má ekki gleyma, né
vanmeta, lagi Hafdísar Huldar „Nú
veit ég“ en lagið verður flutt af
tveimur stærstu söngstjörnum
landsins, þeim Magna og Birgittu.
Þriðji kosturinn?
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ANOREXÍA og ellimerki, húðflúr og óvelkominn
hárvöxtur er meðal þess sem leikhúsfólk fram-
tíðarinnar ætlar að fjalla um í Borgarleikhúsinu
í kvöld á sýningunni Líkaminn.
Þungamiðjan í dagskránni eru tvö verk sem
þóttu standa uppúr í hugmyndasamkeppni Borg-
arleikhússins meðal nema í grunn- og fram-
haldsskólum. „Við auglýstun eftir hugmyndum
að verkum og völdum tvær, aðra frá Austurbæj-
arskóla og hina frá FB,“ segir Steinunn Knúts-
dóttir listrænn ráðunautur í Borgarleikhúsinu
sem skipulagði dagskrána. Þar verður að auki
boðið upp á dansleikhús frá leiklistarnemum við
Listaháskólann, leikatriði um ellina frá Götu-
leikhúsi Hins Hússins og nemendur Hlíðaskóla
flytja siguratriðið af Skrekk frá því í vetur.
„Borgarleikhúsið er þarna að vekja áhuga ungs
fólks á leikhúsinu, ekki bara sem áhorfenda,
heldur til að þau sjái þetta sem miðil til þess að
tjá sig og viðra sínar skoðanir,“ segir Steinunn.
„Ekki nóg eins og við erum“
Nemendur úr leiklistardeild Listaháskólans
voru fengnir til þess að vinna með verðlaunahöf-
undunum við að gera hugmyndirnar að veru-
leika. Vilborg Ólafsdóttir leikstýrir hópi sex
stelpna úr tíunda bekk í Austurbæjarskóla. „Við
ákváðum að taka þetta út frá okkur, ungum kon-
um almennt. Hvað er verið að segja okkur í fjöl-
miðlum og auglýsingum?“ spyr Vilborg. „ Það er
þessi áhersla á að við séum ekki nóg eins og við
erum, að breytinga sé þörf. Við spyrjum líka
hvað veldur því að við látum undan og látum
breyta okkur. Afhverju förum við í sársauka-
fullar vaxmeðferðir og hver segir að maður
þurfi að gera það?“
Vilborg sér mikið efni í stelpuhópnum sem
hún vann með og segist viss um að þær eigi eftir
að láta til sín taka á leiksviði í framtíðinni. „Þær
eru allar mjög frambærilegar. Við unnum þetta
mjög mikið saman og þetta eru mjög framtaks-
samar stelpur, þær fá einhverja hugmynd og
fara með hana upp á svið til að prófa.“
Sýningin hefst klukkan 20 og aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Húðflúr og hárvöxtur
Hugmyndir ungs fólks um líkamann kannaðar í Borgarleikhúsinu
Árvakur/Valdís Thor
Úr verki Austurbæjarskóla „Við ákváðum að taka þetta út frá okkur, ungum konum almennt. Hvað er verið að segja okkur í fjölmiðlum og auglýsingum?“
■ Í kvöld kl. 19.30 – Örfá sæti laus
Sellósnillingur í toppformi
Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag,
leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á
dagskrá forleikur Töfraflautunnar eftir Mozart og Sveitasinfónía
Beethovens. Stjórnandi: Eyvind Aadland
Einleikari: Daniel Müller-Schott
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel sögu kl. 18. fyrir tónleikana. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30
Liszt og Bruckner Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Flutt verða
píanókonsert eftir Liszt og sinfónía eftir Bruckner.
■ Fim. 6. mars kl. 19.30
Gamalt og nýtt Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika
hinn magnaða fiðlukonsert Albans Berg.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is