Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 60. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
FRAMLEIÐIR DRAUMA
KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR ER EIN AF
OKKAR FREMSTU HÖNNUÐUM >> LESBÓK
til fyrir fé sem það hefði aflað á
mörkuðum. Nú væri ástand á fjár-
málamörkuðum báðum megin
Atlantshafsins heldur ískyggilegt og
allt öðru vísi en það hefði verið þegar
fyrirtækið sótti sér fé á markaði síð-
ast. „Það er því sjálfsagt fyrir okkur
að haga okkar rekstri á þann hátt að
við gætum þurft að láta þetta fé sem
við eigum endast lengur en við höfð-
um reiknað með upphaflega. Þetta
eru afskaplega einföld og skýr sjón-
armið í rekstri og væri jafnvel ekki
óskynsamlegt fyrir ýmis félög í okk-
ar samfélagi að fylgja þessu for-
dæmi,“ sagði Kári.
Hann sagði að öðru leyti ekkert
hafa breyst hjá fyrirtækinu, hvorki
ÍSLENSK erfða-
greining hefur
sagt upp um 60
starfsmönnum
sínum og hafa
sumir þeirra þeg-
ar látið af störf-
um. Ástæður
uppsagnanna eru
aðhald í rekstri,
að sögn Kára
Stefánssonar, forstjóra fyrirtækis-
ins, en eftir uppsagnirnar starfa um
390 manns hjá fyrirtækinu, langsam-
lega flestir hérlendis.
Kári sagði að félagið væri að hluta
til rekið af tekjum þess, að hluta til af
þeirra efnahagsreikningi og að hluta
hvað varðaði markmið né annað.
Uppsagnirnar myndu ekki hafa áhrif
á að það gæti sinnt sínum kjarna-
rekstri vel og þeir reiknuðu með að
þær myndu ekki minnka skilvirkni
fyrirtækisins heldur auka hana.
„Það er hins vegar ekki gaman að
segja fólki upp á þessum tíma vegna
þess að það er ekki auðvelt fyrir fólk
að ganga úr einni vinnu í aðra á Ís-
landi í dag.“
Kári sagði aðspurður að fyrirtæk-
ið hefði að minnsta kosti rekstrarfor-
sendur til þess að starfa næstu tvö
árin, sem væru nákvæmlega sömu
forsendur og félagið hefði búið við að
meðaltali þau 12 ár sem það hefði
verið við lýði.
2 ára rekstur tryggður
Kári Stefánsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
GÓUPÁSKAR verða í ár og síðan
ekki aftur fyrr en árið 2160 eða eft-
ir 152 ár, að því er fram kemur í
grein Þorsteins Sæmundssonar
stjörnufræðings á vefsíðu Almanaks
Háskóla Íslands (www.alman-
ak.hi.is).
Þorsteinn segir algengast að
páskadagur sé í einmánuði sam-
kvæmt gamla íslenska tímatalinu.
Samkvæmt því er einmánuður síð-
asti mánuður vetrar og hefst á
þriðjudegi í 22. viku vetrar sem
getur verið frá 22. til 26. mars.
Ef páskar eru mjög snemma líkt
og nú, en páskadagur er 23. mars,
getur páskadagur fallið á góu og af
því er nafnið góupáskar dregið.
Slíkt er mjög sjaldgæft og vekur
gjarna nokkra athygli, að sögn Þor-
steins. Á síðustu öld gerðist þetta
aðeins tvisvar, árin 1913 og 1940. Á
þessari öld hendir það aðeins á
þessu ári.
Meðaltími milli góupáska er 35
ár, en bilið getur farið niður í ellefu
ár og allt upp í 152 ár. Þannig
verða góupáskar ekki aftur fyrr en
langt verður liðið á næstu öld eða
árið 2160 eins og fyrr segir.
Góa er fimmti mánuður vetrarins
samkvæmt forníslenska tímatalinu.
Hún hefst á sunnudegi í 18. viku
vetrar, sem yfirleitt fellur á tímabil-
ið 18.-24. febrúar nema á eftir svo-
nefndu rímspillisári, þá 25. febrúar.
Páskar eru elsta hátíð kristinna
manna og haldnir til að minnast
upprisu Jesú Krists. Nafnið er
dregið af hátíð Gyðinga sem þeir
héldu til að minnast þess þegar
Móse leiddi Ísraelsmenn úr ánauð-
inni í Egyptalandi. Orðið pesah
(páskar) hefur verið þýtt sem
framhjáganga og vísar til þess að
Drottinn hafði heitið því að ganga
framhjá þar sem blóði páskalamba
var roðið á dyrastafi.
Sjaldgæfir
góupáskar
Verða ekki aftur
fyrr en árið 2160
ÞEIR skemmtu sér vel ferðamennirnir sem voru á ferð á Jökulsárlóni á
Breiðamerkursandi í góðviðrinu nýlega, enda sjálfsagt ekki vanir því að
geta fetað sig á milli ísjaka. Það færist mjög í vöxt að ferðamenn leggi
leið sína hingað til lands að vetri til, enda margt að skoða eins og á
sumrin.
Morgunblaðið/RAX
Á ferð á Jökulsárlóni
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
DANÍEL Jónsson, kúabóndi á Ing-
unnarstöðum í Reykhólasveit, segir
að flótti sé kominn í raðir bænda og
nauðsynlegt sé að þeir fái 30 króna
hækkun fyrir hvern mjólkurlítra nú
þegar til að mæta 50 til 100% hækk-
unum á aðföngum til bænda á und-
anförnum tveimur árum.
Að sögn Daníels er hækkun á fjár-
magnskostnaði, áburði og olíu að
sliga marga bændur. „Það er ekki eitt
heldur allt,“ segir hann og bætir við
að tveir til þrír bændur í Dalasýslu
ætli að hætta búskap. Þar á meðal
væru eldri hjón með skuldlaust bú, en
þau treystu sér ekki til að kaupa
áburð núna. Þá viti hann um sex
bændur í Borgarfirði sem ætluðu að
hætta og auk þess hafi hann heyrt af
tvennum ungum hjónum sem ætluðu
að hætta búskap á Suðurlandi.
Aldrei verri staða
Á morgun hefst búnaðarþing og
segist Daníel hafa hugsað með sér
hvort það yrði þingið þar sem sam-
þykkt yrði að leggja búskap á Íslandi
af, því ekkert hafi heyrst frá stjórn
Bændasamtakanna um þessar hækk-
anir og ekki heldur frá Landssam-
bandi kúabænda.
Daníel hefur verið sjálfstæður
bóndi í meira en 35 ár og segir að
staðan hafi aldrei verið þyngri en nú.
Hann segir að eina ráðið til bjargar
sé að fá hækkun fyrir afurðirnar. Öll
aðföng hafi hækkað um 50 til 100% á
tveimur árum og á sama tíma hafi
bændur fengið 15% hækkun fyrir
mjólkina. Talað sé um að bændur hafi
fengið hækkun fyrir mjólkina um síð-
astliðin áramót en aldrei sé nefnt
hvað sú hækkun hafi verið mikil. Hún
hafi numið heilum 70 aurum á lítrann.
Bændur fái um 50 krónur fyrir lítr-
ann en miðað við 75% hækkun á að-
föngum að meðaltali þyrftu þeir að fá
30 krónur til viðbótar og það strax,
„því í hvert skipti sem maður fær
kjarnfóður hefur það hækkað“.
Helsta mál búnaðarþings
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að erf-
itt geti reynst að velta hækkunum á
aðföngum til bænda út í verðlagið.
Launahækkanir vegna kjarasamn-
inga séu mjög þungar fyrir sláturhús,
kjötvinnslur og mjólkurstöðvar og
því geti það reynst þeim erfitt að
hækka afurðaverð til bænda.
Haraldur segir að staðan leiði til
þess að bændur, sem hafi kannski
ætlað að hætta búrekstri á næstu
tveimur til þremur árum, hætti fyrr.
Eins sé ljóst að mjög skuldsett bú séu
ekki sjálfráð um afdrif sín, en reikna
megi með að þetta verði helsta um-
ræðuefni búnaðarþings.
Flótti að
bresta á í röð-
um bænda
Vill 30 krónum meira fyrir mjólkina til
að mæta hækkunum á aðföngum
Morgunblaðið/RAX
Erfiðleikar Kúabóndi segir að
hækkun á margvíslegum kostnaði á
búum sé að sliga marga bændur.
Fló á skinni >> 48
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu