Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 25
Sólin er farin að hækka á lofti og nú
birtir hratt eftir að snjóaði. Fram að
þessu hefur verið snjólétt og allir
hafa komist sinna ferða enda ófærð
eitthvað sem hefur ekki sést á þess-
um vetri. Þegar svo árar er léttara
yfir fólki og mannlífið skemmtilegt
sem birtist m.a. í gríðargóðri mæt-
ingu á þorrablótin. Full samkomu-
hús af fólki sem kemur víða að sýnir
að fólk heldur tryggð við sveitirnar
þó að alltaf fækki íbúunum.
Fjarlægðir virðast á undanhaldi með
netvæðingunni en því miður býr
margt fólk í héraðinu við slæmt net-
samband. Sums staðar er ekki hægt
að nota gsm-síma og lítið útlit fyrir
að úr rætist. Það gefur augaleið að
margt sveitafólk getur ekki stundað
fjarnám eða fjarvinnu og þykir
mörgum ganga hægt að laga þessi
mál þrátt fyrir góð orð hjá ráða-
mönnum.
Kúabændur í Þingeyjarsýslu héldu
nýlega aðalfund sinn á Breiðumýri
en þar lýsti fólk áhyggjum sínum af
nýliðun í stéttinni þegar kvóta- og
jarðaverð er með þeim hætti sem nú
er. Fátt ungt fólk stendur fyrir
kúabúi í héraðinu og enn eru menn
að hætta. Fjöldi jarða hefur verið
tekinn úr landbúnaðarnotkun á síð-
ustu árum þar sem af þeim er seldur
kvótinn og engar sértækar aðgerðir
eru til þess að hvetja unga bændur
inn í greinina. Líklega mun kúabú-
unum enn fækka ef fram fer sem
horfir.
Áburðarverð veldur þessum sömu
bændum áhyggjum en sumir hverj-
ir munu eiga í töluverðum erf-
iðleikum með að standa í skilum.
Kjarnfóður hefur einnig hækkað
gríðarlega sem og olía og önnur að-
föng.
Þrátt fyrir þetta eru margir glaðir
enda er það alltaf tilhlökkunarefni að
bera á túnin á vorin og vinna korn-
akrana en fleiri og fleiri bændur sjá
nauðsyn þess að hafa innlent fóður
handa búsmala sínum þegar svona
árar. Bara að vorið verði gott.
Bjartsýni er samt ríkjandi og sýnir
það sig vel á þeim bæjum þar sem
framkvæmdir hafa staðið yfir. Það
skal einkum nefna hinn glæsilega
hestbúgarð á bænum Torfunesi í
Þingeyjarsveit þar sem ekkert hefur
verið til sparað og markmiðið er að
ná miklum árangri í búgreininni.
Gaman að sjá þegar fólk stendur í
stórræðum sem þessum, en því mið-
ur hefur atvinnumálaumræðan verið
einhæf í Þingeyjarsýslu undanfarin
misseri.
Fuglar sjást ekki margir en þó sáust
þrjár rjúpur heima við einn bæ síð-
ast í janúar og þóttu tíðindi. Líklega
er fálkinn búinn með þær núna en
hann hefur verið á sveimi leitandi að
öndum og fleira æti þar sem nær
engar rjúpur er að finna. Hrafninn
sækir til Húsavíkur og leitar þar æt-
is en minna er að hafa eftir að gor-
gryfjunum í Saltvík var lokað á sl.
hausti. Þrátt fyrir þetta bjargast
hann vel og stelur af heimilishundum
á bæjunum þegar að kreppir enda
var það hróðugur hrafn sem sást á
flugi með stórt steikarbein í goggi
sínum við þjóveginn á dögunum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Framkvæmdir Í Torfunesi er nýuppgert hesthús sem vakið hefur athygli.
LAXAMÝRI
Atli Vigfússon fréttaritari
MANNINUM er hætta búin af
hormónatruflandi efnum þegar
blanda þeirra kemur saman en hvert
um sig eru efnin ekki skaðleg í litlum
skömmtum. Við áhættumat á kem-
ískum efnum ætti því að taka tillit til
svokallaðra kokkteilaáhrifa (cocktail
effect). Áhrifin geta m.a. orðið van-
sköpun á kynfærum nýfæddra stráka
og þau endurspeglast einnig síðar
meir í lélegum sáðfrumubúskap en
hormónatruflandi efni í móðurkviði
hafa löngum verið talin hluti af skýr-
ingunni. Tækniháskóli Danmerkur
(DTU) hefur komist að þessum nið-
urstöðum og er rannsóknin hluti af
stóru evrópsku verkefni (EDEN).
Veldur vansköpuðum
kynfærum karldýra
Í rannsókninni fengu ungafullar
rottur blöndu af þremur kemískum
efnum sem öll trufla starfsemi karl-
kynshormónsins testósterón. Efnin
sem þær fengu eru virka efnið flúta-
míð og varnarefnin vinclózólín og
prócymídón en magn hvers efnis var
ekki skaðlegt heldur koma til áð-
urnefnd kokkteilaáhrif. Karlkyns-
ungar rottnanna fengu m.a. kvenleg
útlitseinkenni eins og brjóstvörtur og
alvarlega vansköpuð ytri kynfæri.
60% þeirra fæddust t.a.m. með neð-
anrás (hypospadi) en þá er þvagrás of
stutt og því kemur þvagrásaropið út á
röngum stað, neðanvert á getn-
aðarlimnum. Nær 5% danskra
drengja eru sögð fæðast með neð-
anrás.
Vísindamennirnar undirstrika
mikilvægi þess að setja öll horm-
ónatruflandi efni í samhengi við önn-
ur, alls ekki sé nóg að tilnefna leyfi-
legt magn hvers efnis fyrir sig í
fæðunni.
Hormóna-
truflandi
kokkteill