Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ Eftir Atla Vigfússon Þingeyjarsveit | „Það er gaman og gefandi að vinna í skóginum,“ segir Ólafur Ingólfsson, bóndi á bænum Hlíð í Þingeyjarsveit, en hann hefur umsjón með grisjun og umhirðu í Fellsskógi. Þar er mikið verk að vinna því miklu var plantað á skógarsvæðinu fyrir rúmlega fjörutíu árum. Ólafur býr einkum með sauðfé ásamt fjöl- skyldu sinni en vinnan í skóginum er hans annað starf sem hann hef- ur mikla ánægju af. Það er einkum grenið sem þarf að grisja en almennt er lerkið yngra þannig að ekki er komið að því að fella það strax þótt til sé lerki sem er orðið nægilega stórt til nýtingar. Grenið gott í girðingarstaura Ólafur gerir mikið af girðing- arstaurum úr greninu og segir þá mjög góða þar sem viðurinn vex hægt og því er hann gott efni. Í samanburði við innflutta staura úr fljótvöxnum viði segir hann mik- inn mun á gæðum, en innfluttu staurarnir eru léttir og brotna auðveldlega eftir nokkur ár. Ólaf- ur hefur komið sér upp ágætri tækni við vinnsluna og birkjar alla staurana með dráttarvél sem er tengd við svonefndan birkjara sem er mjög fljótvirkur. Ólafur vinnur þetta starf gjarn- an í samvinnu við Gest Helgason sem búsettur er á Landamóti í sömu sveit, en hann hefur umsjón með Fossselsskógi sem er svæði Skógræktarfélags Þingeyinga, en þar eru einnig mikil verkefni við grisjun. Segja má að Ólafur hafi alist upp með skóginum en hann ólst upp á Yztafelli þar sem móður- bróðir hans Friðgeir Jónsson (d. 1996) bjó í næsta húsi en hann var einn af fyrstu alvöru skógarbænd- um í Þingeyjarsýslu. Hann ánafnaði á sínum tíma myndar- lega fjárhæð til skógræktar í Kinnarfelli og var myndaður sjóð- ur sem nefnist Ræktunarsjóður Kinnarfells. Fjármunum sjóðsins er varið til ræktunar á skógi innan girðingar en það var árið 1990 sem allt Kinnarfellið var friðað. Landið er 2.200 hektarar að meðtöldum gömlu birkiskógunum og nytja- skógunum með barrtrjánum, en úr þessum sjóði er grisjunarvinn- an að hluta til fjármögnuð. Trén nýtt til fulls Segja má að heima í Hlíð sé kominn vísir að timburvinnslu því þau tré sem koma heim úr skóg- inum eru nýtt til hlítar. Ber þar fyrst að nefna flettivið sem Ólafur gerir úr stærstu trjánum en síðan falla til bútar til að fá réttar lengdir í girðingarstaurana. Þessa búta má nota í viðarkyndara sem sumir eru farnir að koma sér upp og hefur Gestur hafið sölu á þeim í netversluninni jardepli.com. Þá hefur Ólafur gert töluvert af pallaefni sem hann bindur nokkr- ar vonir við en við alla þessa vinnslu fellur til mikið kurl og spænir sem nota má bæði til brennslu sem og í göngustíga á ferðamannastöðum og ýmislegt fleira. Í vetur hefur verið gott að vinna í skóginum og gengið vel að fella trén þar sem snjór er mun minni en venja er til á þessum árstíma. Sums staðar hefur verið plantað allt að 3.000 trjám á hekt- ara og gefur það nokkra hugmynd um þann mikla fjölda sem þarf að taka ef grisjunin á að vera til gagns. Þeir félagar ganga hart til verks og fella mjög mörg tré á klukkutíma ef verkast vill. Hins vegar þarf að saga allar hliðar- greinar af með keðjusög og er það ærin vinna en þeir segja þetta ánægjulega útivist og eru bjart- sýnir á framhaldið. Umhirða Fells- skógar er annað starf Ólafs í Hlíð Gefandi að vinna í skóginum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Kurlari Ólafur Ingólfsson setur trjávið í kurlarann sem er mjög fljót- virkt tæki. Mikill viður fellur til við grisjun Fellsskógar. Í HNOTSKURN »Fellsskógur er austan íKinnarfelli sem rís milli Kinnarfjalla í vestri og Fljóts- heiðar í austri. »Fyrir 50 árum hófust við-ræður milli eigenda Fells- skógar og Skógræktar rík- isins um friðun skógarins. Skógræktin tók að sér að girða en landeigendur létu af hendi helming landsins til barrskógaræktunar. »Plöntun hófst af fullumkrafti 1960. Skógræktin plantaði þá 21.330 rauðgreni- plöntum. Alls var framlag Skógræktarinnar tæplega 200 þúsund barrtré. »Bændur plöntuðu einnigþúsundum trjáa undir for- ystu Friðgeirs Jónssonar, skógarbónda í Yztafelli. Þingeyjarsveit | „Við höfum verið að ræða sameiningu í bráðum tvö ár. Það er ekkert annað að gera en að klára þetta,“ segir Haraldur Bóasson, varaoddviti Þingeyj- arsveitar. Hann sleit fyrri meirihluta í sveitarstjórninni vegna ágreinings um sameiningu við Aðaldælahrepp og mynd- aði nýjan meirihluta sem hefur það á stefnuskrá sinni að sameina hreppana. Að frumkvæði Aðaldælahrepps var kos- ið um sameiningu þriggja sveitarfélaga í nóvember. Sameiningin var samþykkt með miklum meirihluta í Aðaldælahreppi, felld með miklum meirihluta í Skútustaða- hreppi og samþykkt naumlega í Þingeyj- arsveit. Þótt sameiningin hafi verið felld í Skútustaðahreppi fullnægir kosningin skilyrðum laga um heimild hinna tveggja til að sameinast. Samstarfsnefnd þeirra lagði til fyrir viku að það yrði gert. Þegar álit nefndarinnar var lagt fyrir sveit- arstjórn Þingeyjarsveitar bókuðu þrír fulltrúar meirihluta E-listans andstöðu við að gengið yrði til sameiningar án nýrra kosninga en Haraldur Bóasson og fulltrú- ar J-listans vildu sameinast. Haraldur sat í samstarfsnefndinni. „Ég taldi best að standa við mína skoðun og óskaði eftir samstarfi við J-listann um að klára sam- eininguna,“ sagði Haraldur. Erlingur Teitsson á Brún var kosinn ný oddviti sveitarstjórnar á aukafundi í gær. Ásvaldur Ævar Þormóðsson, fyrrver- andi oddviti, telur að ekki hafi legið á að ljúka sameiningunni. Fara hefði þurft bet- ur yfir hagkvæmni þess og fá ákveðin svör frá ríkisvaldinu um það hvort Jöfn- unarsjóður sveitarfélaga fengi fjármagn til að styðja sameiningar sveitarfélaga. Í vestari hluta Þingeyjarsveitar er hafin söfnun undirskrifta undir kröfu um að kosið verði um sameiningu. Reiknað er með að tillaga um samein- ingu verði lögð fyrir sveitarstjórnir Þing- eyjarsveitar og Aðaldælahrepps 6. mars næstkomandi og að kosið verði til sveit- arstjórnar í byrjun júní. Nýr meirihluti um sameiningu við Aðaldælahrepp HAGNAÐUR Norðlenska matborðsins ehf. á árinu 2007 nam 505,8 milljónum króna en var 18,7 milljónir króna árið 2006. Árið var hagfellt í rekstri Norð- lenska og er rekstrarniðurstaðan betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, að sögn Sigmund- ur E. Ófeigssonar framkvæmdastjóra. „Afar góð samvinna varð milli okkar starfsfólks og innleggjenda sem flestir eru í Búsæld. Við höfðum góðan aðgang að hráefni og sala afurða okkar gekk mjög vel. Þá áttum við gott samstarf við okkar stærstu viðskiptavini. Í heildina gekk því bæði framleiðsla og sala afurða vel á síð- asta ári. Við jukum söluna verulega á inn- anlandsmarkaði, einkum varð mikil sölu- aukning á síðari hluta ársins,“ segir Sigmundur í fréttatilkynningu. Samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins námu eignir þess í árslok 2007 tæpum 2,2 milljörðum, bókfært eigið fé var 405 millj- ónir og hafði hækkað um 37 milljónir milli ára og eiginfjárhlutfall var 19%. Ársvelta Norðlenska á árinu 2007 var 3,2 milljarðar og félagið var stærsti sláturleyfishafi landsins árið 2007, heildarslátrun þess á árinu nam 3.732 tonnum. Hagnaður Norðlenska fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 735,0 millj- ónir króna 2007 samanborið við 268,7 millj- ónir króna árið áður. Að teknu tilliti til af- skrifta og fjármagnsgjalda var hagnaður af rekstri félagsins 505,8 milljónir. Þar af var hagnaður af sölu fasteigna 455,8 millj- ónir. Á árinu 2007 urðu miklar breytingar á eignarhaldi Norðlenska. Búsæld, fram- leiðslufélag bænda, eignaðist félagið að fullu með kaupum á eignarhlutum KEA, Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, Akureyrarbæjar og Norðurþings. Heildar- fjárfesting Búsældar vegna þessara kaupa nam 568 milljónum króna. Jafnframt var fasteign Norðlenska á Akureyri seld. Hagnaður Norðlenska 506 milljónir Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is GUÐNÝ Bachmann þroskaþjálfi telur að það yrði mjög gott, bæði fyrir hina fötluðu og samfélagið allt, ef hægt yrði að stórauka þátt- töku fatlaðra í íþróttum og útivist. Guðný er einn aðstandenda kynn- ingarnámskeiðs sem haldið verður aðra helgi um þessi mál. „Það sem kveikti löngun hjá mér til að sinna þessu var að sjá hve mikil gæðastund það er fyrir fatl- aða að vera í útivist. Það nutu sín allir,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið og lýsir upplifun sinni af námskeiði sem hún fór á sumarið 2006 í Hlíðarfjalli, þar sem boðið var upp á kennslu fyrir fatlaða og fólk sem vildi aðstoða þá. „Sumum fannst erfitt í fyrstu en náðu fljótt framförum og ánægjan sem það skapaði var smitandi. Hver vill ekki vinna við það að sjá gleði og ánægju skína af fólki? Og eiga góðan dag í náttúrunni okkar! Bilið sem oft er milli fatlaðra og ófatlaðra hvarf á þessu námskeiði. Búnaður fólks var bara örlítið mis- munandi.“ Í framhaldinu dvaldi Guðný í Bandaríkjunum um tíma um vet- urinn – í Winter Park í Colorado. Kennari á námskeiðinu í Hlíð- arfjalli var einmitt þaðan og kemur aftur á námskeiðið um næstu helgi. Í Winter Park kynnti Guðný sér starfsemina, búnað og vinnu- brögð. Þar var hún svo aftur í fyrrasumar. Guðný er úr Reykjavík en flutti til Akureyrar, m.a. til þess að geta sinnt þessu áhugamáli sínu betur en ella. „Ég frétti af Klökunum, fé- lagi fagfólks sem er með fötluðum á skíðum í Hlíðarfjalli, og mér fannst spennandi að komast í svona hóp.“ Hún vissi líka að laus var staða þroskaþjálfa við Hlíð- arskóla norðan Akureyrar, þar sem stefnan er að útivist sé hluti af skólastarfinu og það leist Guðnýju vel á. Sótti því um starfið og fékk. Guðný segir töluvert um að fatl- aðir stundi útivist en að þeir þyrftu að vera miklu fleiri. „Margir sem koma á skíði í Hlíðarfjalli eru fólk sem leiðbeinendurnir þekkja per- sónulega er mér finnst almenn- ingur ekki nógu duglegur við að koma. Við erum að vona að það breytist með námskeiðinu sem framundan er.“ Að fólk átti sig á því hvað raunverulega er í boði. „Ég tel að það þurfi að kynna fyrir fötluðum, aðstandendum þeirra, fagfólki og umönnunar- aðilum möguleikana sem eru til staðar fyrir fatlaða. Eitt og eitt námskeið hjálpar en það er ekki nægjanlegt til að allir á landinu fái upplýsingar um hvað er í boði.“ Allra best væri, segir Guðný, að einhver hefði það að atvinnu að kynna fyrir fötluðum þá útivist- armöguleika sem er boðið upp á. „Þá gæti sú manneskja farið um landið, haldið námskeið og kynn- ingar svo að fatlaðir fengju vitn- eskju um hvað þeir geta gert eða hvert þeir geta leitað. Þetta yrði náttúrlega að vera þróunarverk- efni og það væri ekki nægilegt að gera þetta eitt ár, þetta þyrfti að vera til staðar alltaf.“ Guðný segist viss um að margir fatlaðir hafi áhuga á að prófa að fara á skíði og hvetur aðstand- endur og starfsfólk á sambýlum til að aðstoða þá. Hún segir það gera fólki mjög gott að vera úti. „Ég veit að sumir, t.d. fjölfatlaðir, hafa aldrei fengið snjó framan í sig og hefur aldrei orðið kalt á höndunum. Ég er ekki að mæla með því að öllum verði kalt á höndunum (!) en upplifunin finnst mér samt skipta máli. Mér finnst stundum að of mikið sé pass- að upp á fatlaða. Það er gott að fá ferskt loft í lungun og styrkjandi bæði á sál og líkama að komast út.“ Styrkjandi á sál og líkama Hvetur mjög til aukinnar útivistar fatlaðra Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hugsjónastarf „Hver vill ekki vinna við það að sjá gleði og ánægju skína af fólki?“ spyr Guðný Bachmann, þroskaþjálfi á Akureyri. Í HNOTSKURN »Opinn fundur um vetr-aríþróttir og útivist fyrir fatlaða verður í Íþrótta- miðstöðinni í Laugardal fimmtudaginn 6. mars kl. 20. Kynnt verður vetrar- og sum- arstarfsemi í Winter Park í Colorado. » ÍF og VMÍ verða með nám-skeið á Akureyri í sam- starfi við Winter Park 7.-9. mars. Möguleikar á íþróttum og útivist verða kynntir fyrir fötluðum og öðrum sem vilja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.