Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 46
Það er búið að setja
upp eldhús í stúdíóinu
og mjólk í pela og frónkex,
allir ýkt fínir … 53
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ er ekkert gefið að fá dóm í
New York Times yfirleitt. Og þeir
eru nú ekkert vanir að missa sig yfir
hlutunum þannig að þetta er alveg
frábært,“ segir Baltasar Kormákur,
en kvikmynd hans Mýrin fékk mjög
góða dóma í bandaríska stórblaðinu
í gær. Verið er að frumsýna mynd-
ina vestanhafs um þessar mundir og
að sögn Baltasars er sérstaklega
mikilvægt að fá góða dóma í New
York Times. „A.O. Scott sem skrifar
þetta er aðalgagnrýnandinn á New
York Times, hann er búinn að vera
þarna lengi og er orðinn einn virt-
asti gagnrýnandinn í Bandaríkj-
unum. Ég hef
ekki séð svona
dóm í blaðinu um
neitt sem ég hef
gert, 101 Reykja-
vík fékk til dæm-
is frábæra dóma
alls staðar nema í
New York Tim-
es. Svo fékk Haf-
ið reyndar ágæta
dóma hjá þessum
sama gagnrýnanda, en ekkert í lík-
ingu við þetta.“
Scott segir meðal annars að sú
mynd sem birtist af Íslandi í Mýr-
inni sé væntanlega ekki sú sem
ferðamálayfirvöld vilji halda að út-
lendingum. Í lokin komist áhorfand-
inn hins vegar ekki hjá því að hugsa
til landsins með ákveðinni hlýju, að
hluta til vegna þess hve leikstjór-
anum þyki augljóslega vænt um
landið og íbúa þess. Þá segir að
Mýrin sé kuldaleg og vitsmunaleg,
en um leið óhugnanlega lifandi.
„Mér finnst hann ná utan um hluti
sem ég var einmitt að reyna að nálg-
ast, hann talar um að það sé ekki
verið að sýna landið á sérstaklega
fallegan hátt, en samt þannig að
væntumþykjan gagnvart því komi í
gegn. Mér þótti mjög vænt um að
lesa það,“ segir Baltsasar.
Auk dómsins var Mýrin valin í
„Critic’s Pick“ dálkinn í blaðinu, en
þar er mælt með sérstaklega góðum
myndum í hverri viku.
Mýrin lofuð í New York Times
Karlmannlegur Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Erlends í Mýrinni.
Fær góða dóma hjá einum virtasta gagnrýnanda Bandaríkjanna
Baltasar
Kormákur
Viðskiptablað-
ið segir frá því að
fleiri en níu
hundruð manns
hafi verið við opn-
un menning-
arhátíðar Íslands
í Brussel í vikunni og birtir þaðan
nokkrar myndir af fólki að skála.
Hátíðin ber heitið Iceland on the
Edge og stendur til júní en eins og
áður hefur komið fram er henni
ætlað að efla ímynd Íslands á al-
þjóðavettvangi. Egill Helgason
gerir frétt Viðskiptablaðsins að
umræðuefni á Eyjunni.is:
„Yfir 900 manns á menning-
arhátíð í Brussel segir á vef Við-
skiptablaðsins. Svo rýnir maður í
myndirnar og sér að þetta eru fyrst
og fremst kunnugleg andlit ofan af
Íslandi. Hefði ekki verið nær að
halda hátíðina á Ölstofunni?“
Hvað á Egill eiginlega við? Telur
hann að ímynd Íslands sé frekar
komið á framfæri með því að húrra
öllum inn á Ölstofuna? Eða telur
hann hátíðina marklausa?
Það er ávallt menning-
arhátíð á Ölstofunni
Samstarf amiinu og Lee Hazle-
wood virðist ætla að bera góðan
ávöxt því lagið „Hill“ hefur verið
valið lag mánaðarins í tónlistar-
tímaritinu MixMag og myndband
við lagið hefur verið valið annað
besta myndband febrúarmánaðar í
tónlistartímaritinu Mojo. Virðing
tónlistarskríbenta fyrir tónlist ami-
inu virðist töluverð í ljósi þessa en
sveitin var einnig valin ein sú besta
á síðasta ári af Mojo auk þess sem
lofsamlegir dómar birtust um tón-
leika hennar í New York Times og
Guardian. Þá má ekki gleyma því
að Íslandsvinurinn Yoko Ono lýsti
því stolt yfir að Kurr yrði með í för
ef hún yrði strandaglópur á eyði-
eyju.
Amiina heillar
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
„SKJALDARMERKIÐ er auðkenni
stjórnvalda þannig að enginn annar
hefur leyfi til þess að nota það,“
segir Páll Þórhallson, lögfræðingur
hjá forsætisráðuneytinu, spurður
um lög er varða skjaldarmerki Ís-
lendinga en kráargestir og aðrir
sem leið hafa átt um miðbæinn hafa
ef til vill tekið eftir auglýs-
ingaveggspjaldi þar sem landvætt-
irnar standa við skjaldarmerki Ís-
lands með bjórkrús í hönd.
Umrædd auglýsing er hönnuð af
Vatíkaninu fyrir Vífilfell og Sam-
tök kráareigenda en þar er verið að
auglýsa daginn í dag, bjórdaginn
svokallaða, þegar krár og aðrir
veitingastaðir minnast þess að 19
ár eru frá því að bjórinn var aftur
leyfður.
Reglulega koma upp mál á Ís-
landi þar sem fánalögin er sögð
þverbrotin og þó að það hafi ekki
fallið margir dómar í því sambandi
eru lögin engu að síður í gildi og í
heiðri höfð af mörgum sem er annt
um þjóðfánann. En brýtur auglýs-
ingin lög um þjóðfána Íslendinga
og skjaldarmerkið?
Utan ramma laganna?
Páll segir ekki samskonar
ákvæði gilda um skjaldarmerkið og
þjóðfánann, það er að segja það
ákvæði 12. greinar í lögum um
þjóðfána Íslendinga og ríkiskjald-
armerkið að enginn megi óvirða
þjóðfánann, hvorki í orði né verki
og óheimilt sé að nota þjóðfánann
sem einkamerki einstaklinga, fé-
laga eða stofnana eða auðkenn-
ismerki á aðgöngumiðum, sam-
skotamerkjum eða öðru þess
háttar. Lög um ríkisskjaldarmerkið
eru hins vegar ekki flókin og í raun
er aðeins um eina greina að ræða
sem hljómar svo: 12. gr. a. Skjald-
armerki Íslands er auðkenni stjórn-
valda ríkisins. Notkun ríkisskjald-
armerkisins er þeim einum heimil.
„Ef skjaldarmerkinu er breytt
verulega myndi maður kannski
meta það svo að þar væri ekki
framið lögbrot, því þá væri ekki um
eiginlegt skjaldarmerki að ræða.
En sé þarna gerð smávægileg
breyting þá þarf að hafa í huga
ákvæði hegningarlaga er leggja
bann við því að nota merki sem líkj-
ast svo opinberum merkjum að
hætta sé á að á verði villst.
Svo má ekki gleyma því að þjóð-
fáninn er hluti skjaldarmerkisins
og honum er veitt sérstök vernd í
lögum og bann lagt við því að
óvirða hann,“ segir Páll sem ekki
hafði séð umrædda auglýsingu þeg-
ar Morgunblaðið spurði hann álits.
Gleði landvættanna
Kormákur Geirharðsson, veit-
ingamaður og einn eigenda Ölstof-
unnar þar sem umrædda auglýs-
ingu er meðal annars að finna,
segir að hann hafi nú ekki leitt hug-
ann að afbökuninni á skjaldarmerk-
inu sérstaklega en segir að auðvit-
að lýsi þetta gleði okkar Íslendinga
og þeirra vætta sem yfir okkur vofi.
„Með þessu viljum við nú bara
láta fólk vita að bjórdagurinn er í
dag og hann ber að halda hátíðlega
og í tilefni að því hyggist krárnar
gera eitthvað fyrir kúnnana, hver
með sínum hætti. “
Snorri Jónsson hjá Vatíkaninu
segir að auglýsingin hafi verið
hönnuð á skömmum tíma fyrir Víf-
ilfell og að menn hafi nú ekki verið
að hugsa mjög mikið út í fánalögin
eða lög um skjaldarmerki þegar sú
vinna stóð yfir.
„Ég hafði satt að segja ekki leitt
hugann að þessu og sé það svo að
við erum að klessa á fánalögin er
það alls ekki gert í þeim tilgangi að
skemma eða meiða neinn. Við
myndum þá að sjálfsögðu biðjast af-
sökunar. Á hinn bóginn er þetta
ágætt málefni fyrir þá sem finnst
bjór góður og þarna má til að
mynda sjá Vífilfell og Ölgerðina á
sömu auglýsingunni sem er ákaf-
lega sjaldgæft.“
Veggspjald með skjaldarmerki Íslands notað til að auglýsa bjórdaginn, 1. mars
Morgunblaðið/Golli
Skjaldarmerki Íslands Stjórnvöld
ein mega nota skjaldarmerkið eins
og segir í lögum.
Standa vörð um bjórinn
Drekk og ver glaðr Umrædd auglýsing sem hangir víða um bæinn. Land-
vættirnar óneitanlega glaðlegri en í hinu opinbera skjaldarmerki Íslands.
Þá má einnig velta því fyrir sér hvort auglýsingin brjóti áfengislög þar sem
segir að bannað sé að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis.