Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9-16.30 er fjölbreytt dag-
skrá, m.a vinnnustofur spilasalur
o.m.fl. Mánud. 10. mars veitir Skatt-
stofan framtalsaðstoð. Þriðjud. 18.
mars er leikhúsferð í Þjóðleikhúsið
á Sólarferð, sýning hefst kl. 14,
skráning á staðnum og s. 575-
7720.
Hraunbær 105 | Framtalsaðstoð
verður 11. mars frá kl. 9-12, skrán-
ing á skrifstofu eða í síma 411-
2730.
Hæðargarður 31 | Heitur matur
virka daga í hádeginu, hóflegt verð.
Á mánudögum er félagsvist kl.
13.30. og skapndi skrif kl. 16, leiðb.
Þórður Helgason cand. mag og
ljóðskáld. Litla „listahátíðin“ er
samsýning Leikslólans Jörfa og
Listasmiðju Hæðarggarðs. S. 568-
3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla, Víðigrund kl. 9.30-
10.30. Uppl. í síma 564-1490.
Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfund
4. mars kl. 20 á Garðaholti. Venju-
leg fundastörf og skemmtun. Kaffi-
nefnd skipa hverfi: 3, 10, 11, 14 og
18. Konur í kaffinefnd mæta kl. 19.
Stjórnin.www.kvengb.is
Lífeyrisþegadeild Landssambands
lögreglumanna | Fundur á morgun
kl. 10 á Grettisgötu 89.
Slysavarnadeildin Hraunprýdi |
Aðalfundur (súpufundur) kl. 18 í
húsi deildarinnar, Flatahrauni 14.
Þórðarsveigur 3 | Aðstoð við
skattframtal 2008 verður veitt 14.
mars kl. 9-10.30. Hægt er að panta
tíma hjá umsjónarmanni salarins-
,Þórðarsveig 3, í síma 891-6056.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan á Suðurnesjum |
Biblíurannsókn kl. 11 og guðþjón-
ustu kl. 12. Ræðumaður er sr.
Björgvin Snorrason. Súpa og brauð
eftir samkomuna.
Dómkirkjan | Barna og æskulýðs-
messa kl. 11. Sunnudagaskólakrakk-
ar syngja, bænir barna úr kirkju-
starfinu verða sýnilegar í kirkjunni
á þessum degi. Fermingarstúlka
leikur á fiðlu og fermingarbörn
lesa. Ice-step danshópur dansar.
Hallgrímskirkja | Orgelandakt kl.
12. Björn Steinar Sólbergsson leikur
á orgelið og sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson annast ritningarlestur.
Leikin verða verk eftir Johannes
Brahms og Jehan Alain. Aðgangur
ókeypis.
Kristniboðssambandið | Kristni-
boðsvika hefst á morgun með sam-
komu kl. 20 í húsi KFUM og K á
Holtavegi 28. Ragnar Gunnarsson
segir frá ferð sinni til Eþíópíu. Aðr-
ar samkomur verða þriðjudag, mið-
vikudag, fimmtudag og sunnudag.
Fjölbreytt dagskrá.
Selfosskirkja | Barna- og fjöl-
skyldusamkoma kl. 11 á morgun.
Yngri og eldri barnakórar Selfoss-
kirkju syngja undir stjórn Edítar
Molnár.
Gullbrúðkaup. Í dag, 1. mars,
eiga hjónin Birna Axelsdóttir
og Guðmundur Sólbjörn
Gíslason frá Hellissandi,
fimmtíu ára brúðkaupsafmæli.
Þau halda upp á daginn með
fjölskyldu sinni.
60ára afmæli. Sextugurer í dag, 1. mars, Pétur
Gíslason, framkvæmdastjóri
Stjörnufisks. Hann og Guðrún
Bjarnadóttir, eiginkona hans,
eru í brúðkaupsferð á Jamaica
um þessar mundir.
dagbók
Í dag er laugardagur 1. mars, 61. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar. (Mt. 10,31.)
Háskóli Íslands og samstarfs-aðilar bjóða upp á Vísindi áverði bíóferðar – stutt nám-skeið um vísindi ætluð
börnum og ungmennum 8 til 12 ára.
Næsta námskeið verður í dag, laug-
ardag, um Undur jarðfræðinnar, kl. 12
til 14 í húsi Orkuveitunnar Bæjarhálsi.
Ólafur Ingólfsson prófessor í jarð-
fræði við Háskóla Íslands er umsjón-
armaður námskeiðsins: „Nám-
skeiðaröðin hefur það markmið að
hvetja og vekja áhuga ungs fólks á vís-
indum og fræðum,“ segir Ólafur. „Sér-
fræðingar fjalla um vísindin og kynna
sína fræðigrein á lifandi, skemmtilegan
og aðgengilegan hátt.“
Á námskeiðinu Undur jarðarinnar
stiklar Ólafur á stóru um sögu jarð-
arinnar frá upphafi. „Ég segi frá
hvernig jörðin myndaðist, hvernig
meginlöndin urðu til, og segi frá sögu
og þróun lífs á jörðinni, m.a. þróun
mannsins,“ útskýrir Ólafur. „Einnig
verður farið yfir hvernig Ísland mynd-
aðist og hvaða ferli hafa mótað og
markað landið okkar.“
Námskeiðin Vísindi á verði bíóferðar
hafa verið haldin undanfarin ár við vax-
andi vinsældir: „Fyrirlestraröðin hefur
fengið mjög góðar móttökur og hafa
iðulega færri komast að en vildu. Und-
ur vísindanna færa nær börnunum það
stóra ævintýri sem náttúruvísindin eru
í raun, og hjálpa þeim að skilja allt frá
því hvernig grasið grær, til þess hvað
veldur snjóflóðum,“ segir Ólafur.
„Námskeiðin hjálpa til að opna augu
barnanna fyrir þeim undrum sem eiga
sér stað allt í kring um okkur, og benda
þeim á leiðir til að lesa í og skilja nátt-
úruna. Smáþekking á jarðfræði getur
þannig gert gönguferð á Esjuna eða í
fjörunni við Gróttu að spennandi leið-
angri þar sem finna má ummerki um
eldgos, jökla.“
Á fyrirlestrinum í dag sýnir Ólafur
mikið af myndum til skýringar. Einnig
hefur hann meðferðis steingervinga
sem áhorfendur geta fengið að skoða,
sem og bækur og tímarit sem eru að-
gengileg foreldrum og börnum sem
vilja fræðast meira um jarðfræði.
Finna má nánari upplýsingar á
heimasíðu Endurmenntunar HÍ:
www.endurmenntun.is.
Fjölskyldan | Stutt námskeið í dag kl. 12 til 14 í húsi Orkuveitunnar
Börnin læra um vísindi
Ólafur Ingólfs-
son fæddist í
Reykjavík 1953.
Hann lauk BS-
prófi í jarðfræði
frá HÍ 1979, 4. árs
prófi í ísaldarfræði
1981 og dokt-
orsgráðu í jökla-
og ísaldarfræði frá
Lundarháskóla
1987. Ólafur var sérfræðingur við Há-
skólann í Lundi 1988-1994, síðar starf-
aði hann við Gautaborgarháskola
fyrst sem sérfræðingur og síðar pró-
fessor til ársins 2000 þegar Ólafur
varð prófessor við háskólasetrið á
Svalbarða. Frá 2003 hefur hann verið
prófessor við HÍ. Ólafur er kvæntur
Ingibjörgu Svölu Jónsdóttur plöntu-
vistfræðingi og eiga þau þrjá syni.
Tónlist
Háskólabíó | Skólahljómsveit Kópavogs
verður með tónleika 2. mars kl. 14. Ýmis
tónverk verða á efnisskrá tónleikanna,
m.a. tónlist úr Pirates Of The Caribbean
sem og klassískar perlur eftir Mozart og
Rossini. Stjórnendur sveitanna eru Helga
Björg Arnardóttir og Össur Geirsson.
Hjálpræðisherinn á Íslandi | Fjölskyldu-
tónleikar 2. mars kl. 17, í félagsheimili
KFUM/K, Holtavegi 28, Rvk. 50 manna
barnakór og einsöngvarar flytja ný gosp-
ellög undir stjórn Esterar Daníelsdóttur.
Miðaverð er 500 kr. fyrir fullorðna og 250
kr. fyrir börn.
Myndlist
Art-Iceland | Charlotta Sverrisdóttir opn-
ar sýningu á olíumálverkum á Thorvald-
sen í dag. Sýningin er á vegum Art-
Iceland og stendur til 5. maí. Nánar um
listaverk Charlottu. http://www.art-
iceland.com/Charlotta-syn-art-iceland-
fletir.html
Kirkjuhvoll Akranesi | Hjálmar Þor-
steinsson opnar sýningu á verkum sínum í
Listasetrinu kl. 15. Þar sýnir hann um 20
verk. Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga kl. 15-18 til 9. mars.
Skemmtanir
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans
verður í Von, Efstaleiti 7. Vistin hefst kl.
20 og dans að vistinni lokinni um kl. 22.
Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð 2. mars kl. 14. Fyrsti dagur í
þriggja daga keppni. Nánari uppl. á heima-
síðu Breiðfirðingafélagsins: www.bf.is.
FRÉTTIR
Guðmar hjá
Klæðningu
Í FRÉTT um ráðningu tveggja
nýrra forstöðumanna hjá verktaka-
fyrirtækinu Klæðningu í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins á
fimmtudag láðist að geta þess að frá-
farandi fjármálastjóri, Guðmar E.
Magnússon, mun til að byrja með
starfa við hlið arftaka síns, Þorsteins
Hallgrímssonar, en Guðmar er að
hætta sökum aldurs.
500 evrur á fund
ORÐIÐ „hlutur“ slæddist óvart inn í
frétt í blaðinu í gær um aðalfund
Exista þar sem fjallað var um þókn-
un stjórnarmanna, sem fá fasta 500
evra greiðslu fyrir hvern fund, en
ekki hlut eins og ritað var.
Fjölgun nýrra bíla
Í GREIN sem birtist í bílablaði
Morgunblaðsins í gær var sagt að
nýskráðum fólksbílum hefði fjölgað
um helming á fyrstu 50 dögum árs-
ins miðað við sama tíma í fyrra. Þar
var rangt með farið en aukningin
nam um 25%. Teknar voru saman
tölur um öll nýskráð ökutæki en ekki
eingöngu fólksbíla og í því var villan
fólgin. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna, fagnar afmæli bjórs-
ins 1. mars, en nú eru liðin 19 ár frá
því að leyft var að selja bjór á Ís-
landi.
„Á sínum tíma stóðu miklar deilur
um hvort að aflétta ætti banni við
sölu bjórs, en fyrir liggur að
drykkjuvenjur Íslendinga hafa
breyst til hins betra í kjölfar aflétt-
ingar bjórbannsins. Í dag, tæpum 20
árum seinna, liggur fyrir frumvarp
á Alþingi um sölu léttvíns og bjórs í
matvöruverslunum og hafa sömu
rök verið notuð á móti frumvarpinu
og heyrðust á sínum tíma gegn
bjórnum – rök sem tíminn hefur sýnt
að standist ekki. Heimdallur hvetur
þingmenn og landsmenn alla til að
hafna lífsháttastjórnuninni sem felst
í einokun ríkisins á sölu léttvíns og
bjórs,“ segir í fréttatilkynningu.
Afmæli
bjórsins
fagnað
NÝR íslenskur bjór, Skjálfti, verð-
ur settur á markað í dag, 1. mars,
á sjálfan bjórdaginn, en þá eru 19
ár síðan sala bjórs var aftur leyfð
á Íslandi eftir áratuga bann.
Skjálfti verður seldur í tveimur
vínbúðum ÁTVR í Reykjavík til að
byrja með og einnig verður hann
sérpantaður í ÁTVR á Selfossi og í
aðrar áfengisverslanir á lands-
byggðinni. Framleiðandi Skjálfta
er Ölvisholt brugghús sem er í
Ölvisholti í Flóa. Skjálfti er 5% að
styrkleika.
Í fréttatilkynningu segir að sér-
stöðu Skjálfta megi rekja til ein-
stakrar blöndu humla, maltaðs
byggs og hveitis, sem auki fyllingu
bjórsins og auðkennandi gylltan lit
hans. Með sérvöldu geri tryggi
bruggmeistari Ölvisholts malt-
bragð Skjálfta og krafa fyrirtæk-
isins um ferskleika útiloki notkun
rotvarnarefna, sykurs og annarra
viðbótarefna. Öll aðstaða í Ölvis-
holti sé til fyrirmyndar þar sem
gömul útihús hafa fengið nýtt hlut-
verk; hesthúsið sé orðið að korn-
hlöðu, flatgryfjan að brugghúsi, í
gömlu hlöðunni fari átöppun fram
og þar sé lager fyrirtækisins.
Á miðanum aftan á Skjálfta-
flöskunum eru stuttar tilvitnanir
úr Flóamannasögu og tengja þær
bjórinn við svæðið þar sem hann
er bruggaður. Á merkimiðanum að
framan má einnig sjá norræna
galdrastafi og rúnir. Rúnirnar
standa fyrir sælkerabjór en
galdrastafirnir tveir eru tákn
drauma og væntinga.
Bjórinn
Skjálfti
kemur á
markað
Skálað Jón E. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ölvisholts brugghúss, og
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra skála í Skjálfta þegar fyrstu flösk-
urnar runnu af færibandinu í hinu nýja brugghúsi í Ölvisholti.
ORF líftækni fékk Nýsköpunar-
verðlaunin 2008 sem Rannís og Út-
flutningsráð hafa staðið að í sam-
einingu frá árinu 1994. Að þessu
sinni bættist Nýsköpunarmiðstöð
Íslands við sem aðstandandi verð-
launanna en þau voru afhent á Ný-
sköpunarþingi.
ORF líftækni hefur verið starf-
andi frá árinu 2000. Stofnun fyr-
irtækisins er rakin til verkefnis í
sameindaræktun sem hófst á Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins haust-
ið 2000 með styrk úr sjóðum í
umsjá Rannís. Síðan þá hefur
hlutafé verið aukið og fleiri fjár-
festar komið til sögunnar. Fyr-
irtækið hefur þróað framleiðslukerfi
er nefnist Orfeus og byggir á því að
nota eiginleika byggplöntunnar,
byggfræið, ásamt einstakri rækt-
unartækni til að framleiða sérvirk
prótein. Um 20 manns starfa hjá
ORF líftækni í dag en stofnendur
og helstu stjórnendur eru Björn
Lárus Örvar, Júlíus B. Kristinsson
og Einar Mantyla.
ORF líftækni hlýtur
Nýsköpunarverðlaunin í ár
Verðlaun Björn Lárus Örvar frá ORF líftækni tekur við Nýsköpunar-
verðlaununum úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.