Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 49 Næstu sýningar Lau. 1. mars kl. 20 Sun. 2. mars UPPSELT Lau. 8. mars kl. 20 SÍÐ US TU SÝ NIN GA R Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is GERÐUBERG www.gerduberg.is Gerðuberg 25 ára Þriðjudaginn 4. mars kl. 20-22 verður öllum velunnurum, samstarfsaðilum og fyrrverandi starfsfólki Gerðubergs boðið til veislu. Í tilefni dagsins verða opnaðar tvær sýningar: Stefnumót við safnara III Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og hljóðfærasafnara! Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir Sjö landa sýn María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslitastemmningar frá ferðalögum sínum um Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan, Perú og Skotland. Hið breiða holt Ljósmyndasýning þar sem unglingar eiga stefnumót við afa sína eða ömmur! Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir. Styrktaraðili: Beco Vissir þú.. ..að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur? Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns. TENÓRINN Garðar Thór Cortes hefur verið tilnefndur til klassísku Brit-verðlaunanna sem verða veitt í Royal Albert Hall í maí. Garðar er þar tilnefndur fyrir bestu klass- ísku hljómplötu ársins, plötuna Cortes sem kom út í Bretlandi í apríl á síðasta ári. Sigurvegari síð- asta árs í þessum flokki var bítill- inn sir Paul McCartney, en plata hans Ecce Cor Meum var valin best af hlustendum Classical Fm í fyrra. Tilnefningin verður tilkynnt formlega í aprílhefti tímarits Classical Fm sem kemur út í dag, 1. mars. Aðrar tilnefningar verða kynntar síðar en þetta eru einu verðlaunin sem almenningur fær að taka þátt í. Byrjaður á næstu plötu Garðar var hæstánægður með tilnefninguna og sagðist vera stolt- ur af að fá að tilheyra þessum hópi hæfileikafólks sem tilnefndur er. „Þetta er allt fólk sem ég hef sung- ið með eða mun syngja með á næstunni. Allt fólk sem ég kannast við og ber mikla virðingu fyrir,“ segir Garðar. Vinna við næstu plötu söngvarans er þegar hafin. „Við erum byrjaðir að skoða laga- val á plötuna, en hún verður tekin upp seinna á árinu og kemur vænt- anlega út í Bretlandi á næsta ári.“ Einar Bárðarson var að vonum ánægður með tilnefninguna. „Þetta er það allra stærsta í heimi klass- ískrar tónlistar, hálfgerður Óskar,“ segir Einar Bárðarson, umboðs- maður Garðars. „Þetta er gríðarleg viðurkenning fyrir lítið plötufyr- irtæki eins og Believer Music, allir hinir listamennirnir sem eru til- nefndir eru á mála hjá stórum út- gáfum, en þetta hefði aldrei tekist nema með einstökum hæfileikum Garðars.“ Þegar Einar var inntur eftir því hvort fleiri verkefni væru á borðinu hjá Believer Music sagði hann að í augnablikinu einbeitti út- gáfan sér að Garðari og stúlkna- hljómsveitinni Nylon. Spilar fyrir bróður Malkovich Mikið verður á döfinni hjá Garðari á árinu; hann mun koma fram á stærðartónleikum í Peking í sömu viku og Ólympíuleikarnir hefjast og einnig á tónleikum á Rhode Island sem dr. Mark Malko- vich, bróðir leikarans Johns Malko- vich, skipulagði. Um er að ræða endakvöld tónlistarhátíðar sem stendur yfir í mánuð og nefnist Newport Music Festival og er ein sú stærsta í sínum flokki. Að sögn Einars gefst áhugasöm- um kostur á að kjósa um bestu klassísku hljómplötunna á classi- calbrits.co.uk hinn 6. mars næst- komandi. „Hálfgerður Óskar“ Cortes tilnefnd til Brit-verðlauna sem besta sígilda platan Morgunblaðið/Kristinn Garðar Thór „Þetta hefði aldrei tekist nema með einstökum hæfileikum Garðars,“ segir umboðsmaðurinn Einar Bárðarson. PLAYBOY- kóngurinn Hugh Hefner hefur samkvæmt heim- ildum boðið bandarísku leik- konunni Lindsay Lohan að sitja fyrir nakin í gervi Marilyn Monroe í Playboy. Hefner var svo ánægður með þær myndir sem tekn- ar voru af Lohan til heiðurs síðustu myndatöku Monroe og birtust í tímaritinu New York, að hann hefur beðið hana að endurtaka hið fræga nektarsundatriði Monroe, úr mynd- inni Something Got To Give en sú mynd var ókláruð þegar Monroe lést. Heimildarmenn nánir leikkonunni segja hana vera furðu lostna út af þeim viðbrögðum sem hún hefur fengið vegna myndanna. Hún er sögð hugsa vandlega um tilboð Hefner en veit samt sem áður að stundum er ekki gott að ofgera. Hún segist þó alltaf hafa verið mikill aðdáandi Monroe. Boðið að endurtaka frægt nekt- arsundatriði Forsíðustúlka Monroe eða Lohan?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.