Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Á REYKJAVÍK International fór fram í fyrsta skipti danskeppni á vegum Dansfélags Reykjavíkur og Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Framvegis verður hún árlegur við- burður og vonandi innan 5 ára verð- ur mótahaldið allt orðið með alþjóð- legum hætti. Mótið er góður undir- búningur fyrir komandi keppnis- tímabil þátttakenda í öllum greinum. Með þessu íþróttamóti er líka verið að vekja athygli á þeim íþróttagrein- um sem oft fá litla umfjöllun í fjöl- miðlum og við áhugafólk um dans tökum fagnandi hendi. Danskeppnin var haldin í Laugar- dalshöllinni og var allur aðbúnaður ágætur. Aðeins var keppt í efstu styrkleikaflokkum, K– keppnisflokki og F– með frjálsri aðferð. Fyrir- komulagið var aðeins öðruvísi en vant er, og var skemmtanagildið haft í fyrirrúmi. Salurinn var skemmtilega lýstur og naut dansinn góðs af því að vera partur af stóru móti því hljóðkerfið var frábært í húsinu. Gólfið sneri öf- ugt miðað við það sem vanalegt er á danskeppni í höllinni og var þess vegna frekar lítið. Það hentaði ágæt- lega í ljósi stærðar dansmótsins í ár, en ef ætlunin er að gera mótið al- þjóðlegt þarf keppnisgólfið að vera löglegt að stærð. Dagskráin stóðst að öllu leyti, tímaáætlun og verð- launaafhending. Níu dómarar voru á mótinu, allir íslenskir utan einn sem ég vil kalla „hálfíslenskan“. Adam Reeve er kvæntur íslenskri stúlku, Karen Björk Björgvinsdóttur, og eru þau Íslendingum góðkunn, fyrr- verandi 10 dansa heimsmeistarar fyrir Íslands hönd. Þau hjónin voru bæði dómarar á mótinu, en aðrir ís- lenskir dómarar voru: Hinrik Norð- fjörð Valsson, Hólmfríður Þorvalds- dóttir, Ingibjörg Róbertsdóttir, Kara Arngrímsdóttir, Rakel Guð- mundsdóttir, Vilborg Sverrisdóttir og Hildur Ýr Arnarsdóttir. Þess má geta að þau eru allir fullgildir með- limir í Dansráði Íslands. Helstu úrslit á mótinu voru eftir- farandi: Börn I og II K suðuramerískirdansar 1. Pétur Fannar Gunnarsson og Aníta Lóa Hauksdóttir, Dansdeild ÍR. 2. Davíð Bjarni Chiorla og Rakel Matthías- dóttir, DÍH 3. Reynir Stefánsson og Ástrós Magnúsdótt- ir, Dansfélagi Reykjavíkur. 4. Róbert Snær Harðarson og Herdís Hanna Yngvadóttir, Dansdeild ÍR. Unglingar I og II K suðuramerískirdansar 1. Birkir Örn Karlsson og Rakel Ýr Högna- dóttir, DÍK 2. Björn Dagur Bjarnason og Dröfn Farest- veit, DÍK 3. Bergþór Kjartansson og Arna Rut Arn- arsdóttir, DÍK. Ungmenni/fullorðnir K suður-amerískir dansar 1. Orri Jónsson og Erna Dögg Pálsdóttir, Dansfélagi Reykjavíkur. 2. Guðmundur Guðmundsson og Jóna Rán Pétursdóttir, Hvönn. 3. Logi Sigurðsson og Inga Lóa Karvelsdótt- ir, Dansfélagi Reykjavíkur. Unglingar I F suður- amerískir dansar 1. Andri Fannar Pétursson og Helga Kristín Ingólfsdóttir, DÍH. 2. Oliver Sigurjónsson og Rebekka Helga Sigurðardóttir, Dansdeild ÍR. 3. Kristófer Haukur Hauksson og Ólöf Rún Erlendsdóttir, Dansdeild ÍR. 4. Guðlaugur Agnar Valsson og María Rose Bustos, Dansdeild ÍR. Sömu pör kepptu í standard-döns- um í þessum flokki og röðuðust pörin niður í sömu sæti og í suður-amer- ísku dönsunum. Unglingar II F suður- amerískir dansar 1. Björn Halldór Ýmisson og Jóna Kristín Benediktsdóttir, DIH 2. Valentin O. Loftsson og Tinna Björk Gunnarsdóttir, DÍH. 3. Þorkell Jónsson og Malín Agla Kristjáns- dóttir, Dansfélagi Reykjavíkur. Unglingar II F standard-dansar 1. Valentin O. Loftsson og Tinna Björk Gunnarsdóttir, DIH 2. Björn Halldór Ýmisson og Jóna Kristín Benediktsdóttir, DÍH. 3. Þorkell Jónsson og Malín Agla Kristjáns- dóttir, Dansfélagi Reykjavíkur. Ungmenni/fullorðnir F suður-amerískir dansar 1. Aðalsteinn Kjartansson og Rakel Guð- mundsdóttir, DIH. 2. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jak- obsdóttir frá DIH. 3. Sigurður Þór Sigurðsson og Ásta Björg Magnúsdóttir, DIH. Ungmenni/fullorðnir F standard-dansar 1. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jak- obsdóttir, DIH. Sigruðu með hreint hús stiga. 2. Alexander Mateev og Lilja Harðardóttir, DIH. 3. Magnús Arnar Kjartansson og Rakel Magnúsdóttir, DIH. 4. Sigtryggur Hauksson og Eyrún Stefáns- dóttir, Dansfélagi Reykjavíkur. Nánari niðurstöðu úrslita er að finna á heimasíðu dansskóla Jóns Péturs og Köru. www.dansskoli.is Í lokahófinu sem haldið var á sunnudagskvöldinu var því danspari sem náði bestum árangri, þ.e. með flesta gefna ása, veitt verðlaun sem danspar mótsins. Að þessu sinni voru það Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dans- íþróttafélagi Hafnafjarðar sem hlutu verðlaunin. Ég óska þeim innilega til hamingju. Vil að lokum óska Dansfélagi Reykjavíkur, ÍBR og Dansskóla Jóns Péturs og Köru til hamingju með skemmtilegt og vel heppnað mót. Hlakka til að fylgjast með aftur að ári. Skemmtanagildið í fyrirrúmi DANS Alþjóðlegt íþróttamót í Laug- ardalnum undir forystu ÍBR Helgina 18.–20. janúar Keppt var í samkvæmisdönsum í fyrsta skipti á þessu móti ́08 Andri Fannar Pétursson og Helga Kristín Ingólfsdóttir frá DÍH. Ljósmynd/Jón Svavarsson Davíð Bjarni Chiorla og Rakel Matthíasdóttir frá DÍH. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá DIH að dansa standard-dansa. Aðalsteinn Kjartansson og Rakel Guðmundsdóttir frá DIH í suðrænni sveiflu. Pétur Fannar Gunnarsson og Aníta Lóa Hauksdóttir frá Dansdeild ÍR. Hildur Ýr Arnarsdóttir danskennari danshusid@islandia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.