Morgunblaðið - 01.03.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.03.2008, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BJÖRN Bjarna- son dóms- málaráðherra hitti Franco Frattini, varafor- seta fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, sem fer með dóms- og innanríkismál, á fundi í Brussel á fimmtudag. Á fundinum voru rædd sam- eiginleg verkefni, sem leiða af Schengen-aðild Íslands og snerta samstarf á sviði öryggis- og lög- reglumála. Dómsmálaráðherra gerði Fratt- ini grein fyrir því að ríkisstjórnin hefði samþykkt að hann ræddi um þátttöku í lögreglusamstarfi ESB- ríkjanna, sem byggist á svonefndu Prüm-samkomulagi. Munu embætt- ismenn Íslands og ESB vinna að úr- lausn málsins með það fyrir augum að tengslin verði samningsbundin. Þá var rætt um skráningu og miðlun persónuupplýsinga flug- farþega bæði innan Schengen- svæðisins og einnig gagnvart Bandaríkjunum. Var niðurstaða fundarins sú að sem mest samstarf og samhæfing yrði milli Íslands og Evrópusambandsins á þessu sviði. Björn ræddi við Franco Frattini Björn Bjarnason OPINN fundur íbúasamtaka Bú- staðahverfis telur að samhliða um- deildri lokun beygju af Bústaðavegi til norðurs inn á Reykjanesbraut, verði að leggja í verulegar mótvæg- isaðgerðir við Réttarholtsveg. „Ljóst er að með slíkum lokunum eykst umferð um Réttarholtsveg um a.m.k. 10%. Erfitt er að sjá að vegurinn þoli aukið álag bíla- umferðar eins og staðan er í dag. Á svæðinu við Réttarholtsveg eru leikskólar, tveir grunnskólar og fé- lagsstarf eldri borgara. Skilyrði fyrir lokun beygju af Bústaðavegi, er að áður verði lokið við mótvæg- isaðgerðir við Réttarholtsveg,“ seg- ir í frétt frá íbúasamtökunum. Vilja mót- vægisaðgerðir ÚRSLIT munu ráðast á Íslandsmóti skákfélaga í dag þegar síðari hluti keppninnar fer fram í Rimaskóla. Taflfélag Reykjavíkur hefur for- ystu í fyrstu deild og er með 3,5 vinninga forskot á Taflfélagið Helli og Skákdeild Hauka. Fjölnismenn eru þar skammt undan og hafa þessi lið enn möguleika á sigri. Í 2. deild eru Bolvíkingar efstir, í 3. deild eru KR-ingar efstir og í 4. deild er b-sveit Bolvíkinga efst. Fimmta umferð fór fram á föstu- dagskvöld og sjötta og sjöunda um- ferð fara fram í dag, laugardag, og hefjast þær kl. 11 og 17. | 37 Úrslit ráðast í dag VIÐ athöfn sem fram fór í danska sendiráðinu í gær var Auður Hauksdóttir, for- stöðumaður og dósent í dönsku við Háskóla Ís- lands, sæmd Dannebrogsorð- unni fyrir mik- ilvægt framlag í þágu dönsku- kennslu og rannsókna á danskri tungu og menningu. Sendiherra Dana á Íslandi, Lesse Reimann, af- henti viðurkenninguna fyrir hönd hennar hátignar Margrétar Þór- hildar Danadrottningar. Með störf- um sínum hefur Auður stuðlað að auknum skilningi og jákvæðum tengslum milli Íslands og Danmerk- ur, segir í tilkynningu. Veitt Danne- brogsorðan Auður Hauksdóttir STUTT Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÁRÍÐANDI er að taka ákvarðanir um framhald margra verkefna sem Reykjavík Energy Invest (REI) hefur verið skoða víðs vegar um heiminn, að sögn Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur og REI. Í sumum tilvikum hefði þurft að vera búið að taka þess- ar ákvarðanir. Kjartan var kosinn stjórnar- formaður Orkuveitunnar þegar Sjálfstæðisflokkur komst aftur í meirihluta borgarstjórnar í janúar sl. eftir þriggja mánaða útlegð. Hann var kosinn stjórn- arformaður REI á fimmtudag. „Ég þarf tíma til að setja mig inn í málin og taka afstöðu til einstakra verkefna REI. Á hinn bóginn er ljóst að menn hafa ekki langan tíma til að taka ákvarðanir í mörgum málum. Sumar ákvarðanir þarf að taka á næstu dögum og hefði raunar þurft að vera búið að því. Mál fyrirtækisins hafa verið í frekar mikilli óvissu frá því í haust. Þegar nýr meirihluti tók við völdum í lok janúar voru málefni REI sett í for- gang og ákveðið að höggva sem fyrst á þann hnút sem varð til í haust. Ég tel að það sé að takast,“ sagði hann. Kjartan vildi ekki tilgreina sérstaklega hvaða verkefni um er að ræða eða hvort REI hefði misst góð tækifæri úr höndunum vegna seinagangs. Fyrirtækið hefði skoðað þátttöku í verkefnum víða um heim og nokkurra mánaða óvissuástand, þar sem ekki væri hægt að svara hvernig fyrir- tækið ætlaði að standa að málum, væri óheppilegt, það segði sig sjálft. Fyrirspurnum rignir ekki lengur inn Rétt áður en fyrsti meirihluti kjörtímabilsins féll í fyrrahaust, meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, vildu sjálfstæðismenn selja REI. Nú eru engin slík áform uppi. „Það hefur ýmislegt breyst síðan, til dæmis að nú er ekki góð- ur tími til að selja fyrirtæki yfirhöfuð. Þá lagði stýrihópurinn mikið á sig til að ná þverpólitískri samstöðu og eitt af því sem var ákveðið var að REI yrði áfram í 100% eigu borgarinnar,“ sagði Kjartan. Ekkert hefði verið rætt um sölu. Þegar REI-málið sprengdi fyrsta meirihlutann var REI af sumum metið á 65 milljarða króna og að sögn Björns Inga Hrafnssonar, þáverandi borgarfulltrúa, hafði fyrirspurnum rignt inn frá áhugasömum fjárfestum, innan lands og utan. „Ég get alveg sagt að það rignir engum fyrirspurnum yfir mig,“ sagði Kjartan þegar hann var spurður hvort stytt hefði upp. Ekki víst að Gagnaveitan verði seld Sjálfstæðismenn hafa haft það á stefnuskrá sinni að selja Gagnaveituna, arftaka Línu.nets. Tjarnarkvartettinn, meirihluti nr. 2, ákvað hins vegar að fyrirtækið yrði áfram í eigu Orkuveit- unnar. Kjartan og Júlíus Vífill Ingvarsson mót- mæltu þeirri ákvörðun og sögðu skynsamlegt að losa hana úr opinberri eigu enda væri hún í óeðli- legri samkeppni við önnur fjarskiptafyrirtæki. Kjartan taldi á þeim tíma að rétt hefði verið að leita áfram eftir tilboðum í fyrirtækið því það væri besta leiðin til að meta verðmæti þess. Kjartan sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvort eða með hvaða hætti málið yrði tekið upp að nýju. Í vikunni voru fluttar fréttir af því að í for- úrskurði Samkeppniseftirlitsins væri lagst gegn kaupum OR á hlut Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja. Kjartan sagðist ekki geta tjáð sig um forúrskurðinn enda væri hann trúnaðargagn. „En ef niðurstaðan yrði í samræmi við það sem fram hefur komið í fréttum þá hlýtur Orkuveitan að taka mið af henni,“ sagði hann. Brýnt að skapa frið um fyrirtækin Aðspurður hvaða breytingum hann myndi beita sér fyrir á stefnu OR og REI sagði Kjartan að best væri að láta verkin tala. Viðamikil stefnumótunar- vinna væri framundan og mikilvægt að margir að- ilar kæmu að henni. Þá væri mikilvægt að tryggja að sem mestur friður ríkti um starfsemi OR og REI. „Því er ekki að neita að það hefur staðið styrr um þau síðustu mánuði. Það er mjög óheppi- legt fyrir hvaða fyrirtæki sem er, sérstaklega fyrir fyrirtæki sem sinnir svona ríku þjónustuhlutverki við almenning,“ sagði hann. Brýnt að taka ákvarðanir um mörg verkefni REI  Sumar ákvarðanir þarf að taka á næstu dögum  Margra mánaða óvissuástand  Ýmislegt hefur breyst frá því að sjálfstæðismenn lögðu til að REI yrði selt Í HNOTSKURN »Kjartan Magnússon var kosinn stjórn-arformaður Orkuveitunnar þegar nýr meirihluti tók við völdum og var á fimmtudag- inn kosinn formaður REI. »Fyrirspurnum áhugasamra fjárfesta umkaup á REI rignir ekki lengur inn. » Ekkert hefur verið ákveðið um söluGagnaveitunnar og Kjartan dregur í efa að nú sé rétti tíminn til að selja fyrirtækið. Morgunblaðið/RAX Áríðandi „Menn hafa ekki langan tíma til að taka ákvarðanir í mörgum málum,“ segir Kjartan Magn- ússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavik Energy Invest. Kjartan Magnússon 20% afsláttur af AEG eldhústækjum þegar keyptar eru HTH innréttingar Allt að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.