Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                     !!"        !"#!$%& ""'(!#!$%& )* %& +#!$%& #,* *!- "*%& .&* "*$&/,01 ,  23 , *!#!$%& 4$5* 0  "%& +  - "*1 ,  %& ! ,%& 67  !!8 !9!: ;:!&-%&  <*%& = !%&       >?%& ,& 3%&  , *3*!<  , *36 !, 6@ *"  "* ,0#!$%& A!<  " 23 , *3#!$%& B% !;*%& !<00* 0*9 (9* %& C* , (9* %&      ! D !<,* D . #! *%& .$*9; %& "  # $ % &                                                  ! "!     !  "  "         "       C*9 "*$ * 0 * *,-9E,"0 F 4$, GG?> H>?HH? >?I GHI  >>? >I? H>?GGH? IIIGGGHH >III>> HG ?H?H  8 >G ? GH H ??G> G? >>H> 8 8 8 8 II> 8 8 HJ J>  GJ ?JG GJ? J IGJ ?JI GJ? J>H JI J GJI J> ?J? ?J IJ >HJ >J 8 8 8 ? 8 8 HJ J?  GJ> IJ > J I> ?JH GJ> J JII J G>J J ?J?? HJ H >HJ >J J 8 HJ  GJH ?J ;(,* '*9 "*$  I ?? I >  ?I I >  8 >   G I  H 8 8 8 8 ? 8 8 0 * 0 '*9 "' !9 G G G G G G G G G G G G G H G G G G G G G G H ? H G   FRÉTTASKÝRING Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is MOODY’S lækkaði lánshæfisein- kunnir bankanna. Við því hafði verið búist enda var fyrirtækið með ein- kunnirnar til endurskoðunar. Miðað við þau kjör sem boðin eru á skulda- tryggingum á bréf bankanna á eft- irmarkaði kemur hins vegar á óvart að Kaupþing skuli hafa bestu ein- kunnina. Tryggingaálag bankans hefur allt frá því í sumar sem leið verið mun hærra en hjá hinum bönkunum og þar sem lánshæfisein- kunnir og tryggingaálag eiga að endurspegla nokkurn veginn sama hlut, þ.e. áhættu á vanskilum, mætti ætla að einkunn bankans yrði sú versta. En svo er ekki og því vakna óneitanlega spurningar um hvort annaðhvort Moody’s eða markaður- inn meti stöðuna rangt. Spyrja má hvort þessi niðurstaða Moody’s sýni ekki greinilega að markaðurinn með skuldatryggingar er langt frá því að vera fullkominn mælikvarði á vanskilaáhættu, a.m.k. hvað íslensku bankana varðar. Markaðurinn er grunnur, þ.e. ekki eru margir aðilar sem eiga viðskipti með skuldabréf íslensku bankanna, og það er spurning hvort upplýs- ingaflæðinu sé ábótavant. Sagt er að greiningarfyrirtæki hafi aldrei unnið jafnnákvæma greiningu á íslensku bönkunum og Moody’s gerði að þessu sinni. „Þeir litu undir hvern einasta stól,“ sagði einn viðmælandi blaðamanns nýlega og því mætti ætla að einkunnin end- urspegli stöðu bankanna nokkuð ná- kvæmlega. Ennfremur má ljóst vera að Moody’s hefur getað nálgast upp- lýsingar sem markaðurinn hefur ekki aðgang að og því ætti greining- arfyrirtækið að hafa öllu betri mynd af stöðu bankanna en markaðsað- ilar. Á móti kemur að ekki allir bera jafnmikið traust til Moody’s og fyrir nokkrum misserum. Val Koronzay, sérfræðingur OECD, sem kynnti skýrslu stofn- unarinnar um efnahagsstöðu á Ís- landi í fyrradag impraði einmitt á því hvers vegna kjör bankanna á markaði væru jafnbág og raun ber vitni þrátt fyrir að staða þeirra virt- ist styrk. Hann velti því fyrir sér hvort um upplýsingavandamál væri að ræða. Þetta er eitthvað sem bankarnir þurfa að skoða. Vissulega tóku þeir sér tak fyrir tveimur árum en mætti ekki gera enn betur? Moody’s og markað- urinn slá ekki í takt Í HNOTSKURN » Tryggingaálag á skuldabréfíslensku bankanna hækkaði við opnun markaða í gær og mun helsta ástæðan vera sú að fjár- festar voru að loka skortstöðum í kjölfar skýrslna Moody’s. » Meðal banka með ein-kunnina A1 má nefna Lehman Brothers og Merrill Lynch. Álagið á þá banka er 201 og 208 punktar. ● HAGNAÐUR Telekom Slove- nije á árinu 2007 var 87,8 milljónir evra, eða 8,7 millj- arðar króna, en var 103,4 milljónir evra árið áður. Hagnaður dróst því saman um 15%, en tekjur jukust þó um 5% og voru 780,1 milljónir evra. „Samdráttur í fastalínuvið- skiptum, hærri lánaafborganir og óhagstætt skattkerfi, sem styður ekki við fjárfestingar, höfðu neikvæð áhrif á hagnaðinn,“ sagði talskona fyrirtækisins í samtali við fréttaveit- una Bloomberg. Á mánudaginn verður tilkynnt hvort Skipti, móðurfélag Símans, muni hreppa 49,13% hlut af hinu ríkisrekna Telekom Slovenije eða hvort hætt verður við söluna. Fram kom í slóvenskum fjölmiðlum í vik- unni að keppinautar Skipta, sam- steypa félaganna Bain Capital, Axos og BT, hefðu dregið sig út úr uppboð- inu. Hagnaður slóvenska símans niður um 15% ● VÖRUSKIPTI við útlönd voru í janúar óhagstæð um 9,5 milljarða króna. Innflutningur nam 33,7 milljörðum og útflutningur 24,2 milljörðum. Til sam- anburðar voru vöruskiptin í janúar í fyrra óhagstæð um 2,9 milljarða. Verðmæti vöruútflutnings minnkaði um 7,5% milli ára og verðmæti inn- flutnings jókst um 16,1%. Vöruskiptin óhagstæðari ● LÝÐUR Guð- mundsson er áfram stjórn- arformaður Ex- ista og Ágúst Guðmundsson varaformaður. Missagt var í blaðinu í gær að stjórnin væri óbreytt en fjölg- að var í henni um einn, úr sex í sjö, og ný var kjörin Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri Bakkavarar. Að loknum aðalfundi SPRON á miðvikudag skipti ný stjórn með sér verkum og var Erlendur Hjaltason kjörinn formaður í stað Hildar Pet- ersen. Varaformaður er Ásgeir Bald- urs. Lýður áfram stjórnar- formaður Exista Lýður Guðmundsson GILDI – lífeyrissjóður og Sameinaði lífeyrissjóðurinn hafa tilkynnt um af- komu síðasta árs. Þar kemur m.a. fram að eignir sjóðanna jukust um í kringum 10% á síðasta ári en ávöxt- un þeirra var mismikil. Nafnávöxtun Gildis var 8,4% á síðasta ári en 5,9% hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum (SL). Raunávöxtun Gildis síðustu fimm ár- in hefur að meðaltali verið 11,6% en 7,5% hjá SL, að því er fram kemur í fréttatilkynningum sjóðanna. Báðir bera sjóðirnir sig vel þrátt fyrir óhagstæða þróun á hlutabréfa- markaðnum á seinni hluta ársins 2007 en hjá báðum voru réttindi sjóðsfélaga aukin um 10%. Eignir Gildis námu 19 milljörðum króna í árslok, sem er 5% meira en heild- arskuldbindingar sjóðsins. Fjárfest- ingatekjur námu 18,4 milljörðum og hrein eign til greiðslu lífeyris nam 232 milljörðum í árslok. Eignir skipt- ust með þeim hætti að 51% var í inn- lendum skuldabréfum, 21% í inn- lendum hlutabréfum og 28% í erlendum verðbréfum. Eignir SL um áramót námu 97 milljörðum króna og jukust um 9,3% milli ára. Eignir umfram áfallnar skuldbindingar voru 7,1 milljarður, eða 8%. Inneignir í séreignasparnaði námu 3,8 milljörðum en þar af voru um 80% í innlendum skuldabréfum. Mismikil ávöxtun hjá Gildi og SL JÓN Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Glacial, var heiðursgestur á Íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK, félag íslensks markaðs- fólks, stóð fyrir í gær. Yfirskrift ráðstefnunnar var 360° í sjö erindum. Var þar fjallað um nýjungar í markaðsmálum og aug- lýsinga- og markaðsfólki bent á tækifæri sem geta nýst því í dag- legu starfi. Glitnir markaðsfyrirtæki 2007 Í lok ráðstefnu var tilkynnt að Glitnir væri markaðsfyrirtæki árs- ins 2007, samkvæmt könnun Capa- cent meðal markaðsstjóra íslenskra fyrirtækja. Þetta er annað árið í röð sem Glitnir er valinn markaðs- fyrirtæki ársins. Jón heiðursgestur markaðsfólks Morgunblaðið/Golli ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar lækkaði enn á ný í gær, um 0,21% og stóð við lok dags í 4.887 stigum. Lækkunin frá áramótum nemur nú tæpum 23%. Af félögum skráðum í kauphöllina hækkaði verð Föroya banka mest, um 2,9%. Þá hækkaði verð Eim- skipafélagsins um 2,2% og Atlantic Petroleum um 0,8%. Mest lækkun var á verði Bakkavar- ar, um 2,5%, Century Aluminium um 1,4% og FL Group um 1,2%. Viðskipti í kauphöllinni námu alls 29,1 milljarði, þar af var 21,8 millj- arða velta með skuldabréf. Lækkunin í ár 23% BRÝNT er að eyða sem fyrst óvissu um það hvernig fara skuli með uppgjör verðbréfa sem skráð eru hjá íslenskri verðbréfamiðstöð í erlendri mynt, segir í áliti nefndar sem viðskiptaráðherra skipaði til að skoða lagaákvæði sem varða uppgjör viðskipta með íslensk verðbréf sem skráð eru í erlendri mynt. Leggur nefndin til að Verðbréfaskráningu Íslands, eða sambærilegum aðilum, verði heimilað að annast uppgjör í erlendri mynt í samstarfi við endanlegan bakhjarl sem hafi öruggan aðgang að fjármunum í gjaldmiðlinum. Nefndin telur nauðsynlegt að setja nú þegar sérstök lagaákvæði um greiðsluuppgjör slíkra viðskipta, til þess að opna örugga leið fyrir þau. Eindregið er mælt með því að viðskiptaráðherra efni til endurskoðunar á öllum ís- lenskum laga- og reglugerðarákvæðum sem snerta upp- gjör verðbréfaviðskipta, hver sem viðskiptamyntin er, með það fyrir augum að samræma og einfalda slík ákvæði með tilliti til nýrra aðstæðna í viðskiptalífinu, vegna tæknibreytinga og alþjóðavæðingar viðskipta á þessu sviði. Evruskráningin verði leyfð ERLENDAR greiningardeildir og bankar hafa sumar hverjar gagn- rýnt lánshæfismat Moody’s á ís- lensku bönkun- um. Greiningarfyr- irtækið Credit Sights segist ekki með nokkru móti getað skilið hvers vegna gert er upp á milli bankanna þriggja, að Kaup- þing sé lækkað um einn flokk en Glitnir og Landsbanki um tvo. Sér í lagi vegna þess að fyrirtækið telur Kaupþing áhættusamastan bank- anna þriggja. En mat Moody’s á ís- lensku bönkunum hafi gjarnan verið frekar furðulegt. Þeir telja lækk- unina nú koma til með að hafa lítil áhrif. Deutsche Bank tekur í sama streng hvað varðar að gert sé upp á milli bankanna. Það sé óskiljanlegt. Þá segir Royal Bank of Scotland skiljanlegt að Moody’s færi einkunn- ir bankanna niður um einn flokk en furðar sig á að Glitnir og Lands- bankinn hafi verið færðir niður um tvo flokka. Að mati Daiwa Securites má reikna með því að skuldatrygg- ingarálag íslensku bankanna hækki lítillega eftir lækkunina frá Moody’s. Ekki sé þó að vænta mikilla áhrifa enda hafi orðspor Moody’s beðið hnekki í þessum bransa að undan- förnu. Skuldatryggingarálag bankanna hækkaði talsvert í gær, líkt og ann- arra banka í heiminum. Álag Kaup- þings fór í 720 punkta, samkvæmt Bloomberg, álag Glitnis í 669 punkta og Landsbankans í 471 punkt. Furða sig á mati Moody’s ACTAVIS hefur hefur fengið sam- þykki bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar (FDA) fyrir markaðssetningu krabbameinslyfs- ins Irinotecan Hydrochloride á Bandaríkjamarkaði. Hefst dreifing þess nú þegar en það er notað við meðferð krabbameins í ristli og endaþarmi. Árleg sala lyfsins í Bandaríkjunum nam 556 milljónum dollara á síðasta ári, jafnvirði um 37 milljarða króna. Að sögn Sig- urðar Óla Ólafssonar, aðstoðarfor- stjóra Actavis, markar markaðs- setning á lyfinu nýtt upphaf hjá fyrirtækinu í Bandaríkjunum, þar sem þetta er fyrsta krabbameinslyf Actavis þangað. Fyrsta krabba- meinslyfið vestur ♦♦♦ ● HRÁOLÍUVERÐ í Bandaríkjunum sló enn eitt metið í gær, fór í 103,05 dali á fatið. Verðið fer yfir verðbólgu- leiðrétt 102,53 dala metið frá 1980, og kom í kjölfar lokunar olíuleiðslu í Ecuador og bruna í gasverksmiðju Shell í Englandi. Ennfremur hefur veiking Bandaríkjadals hvatt til hrá- vörufjárfestinga. Olíuverðið lækkaði er leið á daginn og fór undir 102 dali. Gullverð hefur einnig verið á upp- leið og stefnir óðfluga að þúsund dala markinu. Gullúnsan kostaði í gær 975,90 dali. Olían dýrari en í kreppunni 1980
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.