Morgunblaðið - 01.03.2008, Síða 26
Lengi hefur tíðkast, t.d. íNew York, að breyta verk-smiðju- og iðnaðarhús-næði, loftum eins og slíkt
húsnæði er kallað þar á bæ, í flottar
og eftirsóttar íbúðir. Minna hefur
verið gert af því hér þótt það þekkist.
Fram á níunda áratuginn var Sæl-
gætis- og efnagerðin Freyja til húsa í
tveimur stórum sambyggðum húsum
við Lindargötu. Í þessum húsum eru
nú fallegar íbúðir, sannkölluð loft.
Töluvert hugmyndaflug þarf til að
geta ímyndað sér að á „loftinu“ hjá
þeim Kristjönu, sem er félagsfræð-
ingur, og Agnari, sem er í auglýs-
ingabransanum, hafi eitt sinn verið
framleidd Freyjupáskaegg, svo ekki
sé nú talað um Freyjustaurana og
Freyjukaramellurnar. En sú er þó
raunin. Þegar Freyja var í húsinu á
Lindargötunni var ekki mikið af skil-
veggjum á hæðinni, sem nú er orðin
glæsileg nýtískuíbúð. Burðarveggur
skipti hæðinni að hluta til eftir endi-
löngu og hann er að sjálfsögðu þarna
enn. Einnig má sjá upprunalegu
burðarbitana í loftinu. Eftir að sæl-
gætisframleiðslunni var hætt og
Freyja flutti í Kópavog var hæðinni,
sem er 128 fermetrar, breytt í íbúð.
Að Lindargötunni sneru þá eldhúsið
og herbergi, en stofurnar sneru í önd-
verða átt. Sennilega hefur það m.a.
verið vegna þess að þeim megin var
meira um sól en hins vegar er þar
Morgunblaðið/Golli
Rúmgott Eldhúsveggurinn lítur út eins og hann sé hlaðinn úr rauðum múrsteini en hann klæddur sérstökum veggplötum sem tók iðnaðarmenn eina þrjá daga að púsla saman.
Einhverju sinni voru
húsakynnin við Lindar-
götu full af karamellu,
súkkulaðistaurum og
páskaeggjum. Nú búa þar
félagsfræðingur og aug-
lýsingamaður sem Fríða
Björnsdóttir heimsótti.
Eitt rými Stofa og eldhús renna saman og húsgögnin í stofunni fylla hæfilega í rýmið.
Baðherbergi Fjörusteinar á salerniskassa og víðar sem og
óbein lýsing setja hlýlegan svip á baðherbergið
Augnakonfekt í sælgætisverksmiðju
Vatnsfylltur fótur Borðstofuborðið er þeirrar náttúru að vatn er sett í fótinn til þess
að það sé stöðugt. Ljósgeislarnir frá ljósakrónunni leika á veggjum og lofti.
lifun
26 LAUGARDAGUR 1. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ