Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KONA á fimmtugsaldri játaði í gær að hafa svikið tæplega 76 milljónir króna út úr Tryggingastofnun ríkis- ins. Sjö aðrir játuðu að hluta eða að öllu leyti sök, fjórir báðu um frest, fjórir neituðu sök og fjórir voru fjar- staddir þingfestingu fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur og var gefin út handtökuskipun á þá. Ríkislögreglustjóri ákærði alls 20 manns fyrir 75.750.444 kr. fjársvik, hylmingu og peningaþvætti í tengslum við rannsókn á meintum innanbúðarsvikum fyrrverandi starfsmanns TR. Aldrei hafa fleiri verið ákærðir í sama máli, en fyrir um áratug voru 16 manns ákærðir í fíkni- efnamáli. Starfsmaðurinn, fyrrnefnd kona, ber aðalsök en meðákærðu, sem eru á aldrinum 20 til 54 ára og flestir yngri en 26 ára, voru bótaþegar TR og sæta ákæru fyrir aðstoð við brotin. Konan hafði unnið hjá Trygginga- stofnun í mörg ár þegar fyrstu grun- semdir um alvarlegt trúnaðarbrot vöknuðu hjá innra eftirliti TR. Eftir frekari skoðun og samanburð gagna, sem styrktu grunsemdirnar, var mál- ið kært til ríkislögreglustjóra og op- inberrar rannsóknar krafist. Brot frá 2002 til 2006 Hegningarlagabrot konunnar voru framin frá 2. janúar 2002 til 9. júní 2006, en þá gaf hún út 781 tilhæfu- lausa kvittun fyrir útborgun og blekkti gjaldkera stofnunarinnar til að greiða að tilefnislausu fyrrnefnda upphæð, tæplega 76 milljónir króna. Konan játaði sök að öllu leyti í sam- ræmi við lýsingar ákæru og sagði háttsemi sinni rétt lýst. Meðákærðu ýmist játuðu sök að hluta eða að öllu leyti, neituðu sök eða báðu um frest. Þeir eru meðal annars ákærðir fyrir hylmingu og til vara peningaþvætti með því að hafa veitt viðtöku mismunandi háum greiðslum inn á reikninga sína, frá um 360 þús- und kr. upp í tæplega 11 milljónir kr. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar. Tryggingastofn- unin fer fram á að umræddur fyrrver- andi starfsmaður stofnunarinnar verði dæmdur til að greiða 75.750.444 kr. í skaðabætur auk vaxta frá dag- setningu kæru 23. júní 2006. Milliþinghald verður 18. apríl og þá verður ákveðið hvenær aðalmeðferð fer fram en gera má ráð fyrir að hún verði dagana 13. og 14. maí. Fjórir einstaklingar játuðu sök að fullu og verða mál þeirra dómtekin 9. apríl. Játaði fjársvik upp á um 76 milljónir króna Sjö játuðu, fjórir báðu um frest, fjórir neituðu og fjórir fjarstaddir Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra heldur til Afganist- ans á morgun, sunnudag. Af örygg- isástæðum verður ekki greint nánar frá viðkomustöðum ráðherra, né heldur frá því hverja hún mun hitta. Grétar Már Sigurðsson ráðu- neytisstjóri heldur utan með ráð- herra, en Anna Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri Íslensku friðargæsl- unnar, Urður Gunnarsdóttir, upp- lýsingafulltrúi ráðuneytisins og fulltrúar fjölmiðla sem verða með í för eru þegar komin til Afganistans. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær munu fimm íslenskir sérsveit- armenn annast öryggisgæslu í ferð- inni. Heimför er áætluð á skírdag. „Afganistan er helsta mál á dag- skrá Sameinuðu þjóðanna, NATO, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, á fundum norrænna utan- ríkisráðherra og víðar. Þegar ræða á svo stórpólitískt mál er því mik- ilvægt að mér hafi gefist kostur á að hitta þarlenda stjórnmálamenn og fulltrúa frjálsra félagasamtaka, svo ég hafi tilfinningu fyrir viðhorfi þeirra,“ segir Ingibjörg. Förin sé lokahnykkur í vinnu þriggja ára áætlunar ráðuneytisins og stefnt sé að auknu norrænu samstarfi í mála- flokknum. Nú eru fjórtán íslenskir friðar- gæsluliðar í Afganistan. Þrír verða sendir til viðbótar á næstunni, þeir munu starfa með Norðmönnum í Maimana en ekki er útséð hvers eðl- is verkefnin verða. Ráðherra segir þó að um borgaralegt framlag sé að ræða. „Verkefnin sem við tökum þátt í í Afganistan eru þróunar- og upp- byggingarverkefni. Afganistan er fimmta fátækasta ríki heims, við eigum að taka þátt í uppbygging- arverkefni þar, þó ekki sé nema bara fátæktarinnar vegna.“ Ráðherra segir vissulega mörg svæði í Afganistan þar sem ekki sé kominn á friður. Starf Íslendinga fari fyrst og fremst fram í norður- hluta landsins, en ekki í suðrinu þar sem mestur ófriður ríkir. Til Afganistans á morgun  Förin lokahnykkur í vinnu ráðuneytisins að þriggja ára áætlun um mál Afg- anistans  Mikilvægt að ráðherra fái tilfinningu fyrir aðstæðum og viðhorfum Morgunblaðið/Frikki Ráðherra Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir fer til Afganistan á morgun og kynnti fjölmiðlum ástæðurnar. MAGNÚS Pétursson, sem verið hefur forstjóri Landspítalans frá árinu 1999, mun láta af störfum 1. apríl. Þetta tilkynnti heilbrigðis- ráðuneytið í gær. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri verði ráðinn 1. september nk. og starfið verði auglýst, en þangað til sinna Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, fram- kvæmdastjóri lækninga á Land- spítalanum starfinu í sameiningu. Ekki liggur fyrir hvað Magnús tekur sér næst fyrir hendur. Einnig hefur Jóhannes M. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri lækninga á LSH, fengið leyfi frá starfi sínu til að taka við yfir- umsjón með tilteknum þáttum vegna byggingar nýs háskóla- sjúkrahúss. Breyting á yfirstjórn LSH Nýr forstjóri ráðinn 1. september nk. Magnús Pétursson Jóhannes M. Gunnarsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞAÐ er bjart yfir Suðurnesjunum í dag. Það er auðvitað mjög jákvæður áfangi að klára þessi leyfismál og geta nú farið að undirbúa verkefnið,“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, en undirbúningsfram- kvæmdir fyrir álver Norðuráls í Helguvík hófust í gær eftir að bæj- arstjórar Reykjanesbæjar og Garðs höfðu formlega afhent forstjóra Norðuráls framkvæmda- og bygg- ingarleyfi. Að sögn Ragnars verður í fyrstu lagður vegur að lóðinni, öryggisgirð- ing reist og sett upp verkefnisskrif- stofa á staðnum, en áformað er að taka fyrstu skóflustungu að kerskála innan tíðar. Norðurál hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu kerskál- anna og bárust þrjú tilboð frá inn- lendum verktökum sem nú er verið að fara í gegnum. Sótt um starfsleyfi í nóvember Aðspurður segir Ragnar nú öll til- skilin leyfi vegna álvers í Helguvík liggja fyrir nema starfsleyfi, en það er Umhverfisstofnun sem gefur slíkt leyfi út. Segir hann búið að auglýsa drög að starfsleyfi, en það var gert samhliða mati á umhverfisáhrifum. Ekki var hins vegar hægt að sækja um starfsleyfi fyrr en Skipulags- stofnun hafði afgreitt mat á umhverf- isáhrifum með jákvæðum hætti sem hún gerði í október sl. Að sögn Ragn- ars var sótt um starfsleyfi í nóvember og næsta skref í málinu sé að Um- hverfisstofnun auglýsi endanlegt starfsleyfi. Spurður hvort ekki hefði verið vænlegra að bíða með framkvæmdir þar til umhverfisráðherra hefði kveð- ið upp úrskurð í máli Landverndar, sem kærði ákvörðun Skipulagsstofn- unar um að nýta ekki heimildir sínar til þess að láta framkvæma heild- stætt umhverfismat fyrir álver í Helguvík og tengdar framkvæmdir, segist Ragnar ekki líta svo á. Bendir hann á að kæra Landverndar varði ekki álit Skipulagsstofnunar á mati á umhverfisáhrifum og þar sem bygg- ingarleyfið byggist á áliti Skipulags- stofnunar verði ekki séð að umrædd kæra hafi nein áhrif á útgáfu bygg- ingarleyfis og því sé eðlilegt að Norð- urál haldi sínu striki við undirbúning framkvæmda. Samkvæmt upplýsingum frá Norð- uráli er ráðgert að byggja álverið í Helguvík í áföngum. Áætlað er að fyrsta áfanga framkvæmda verði lok- ið árið 2010 og að framleiðslugeta ál- versins verði þá um 150.000 tonn á ári. Öðrum áfanga á að verða lokið ár- ið 2015 og verður framleiðslugetan þá komin í 250 þúsund tonn. Áformað er að hefja álframleiðslu í Helguvík síðla árs 2010. Segir öll leyfi nema starfsleyfi liggja fyrir Morgunblaðið/RAX Grafið Undirbúningsframkvæmdir fyrir álverið í Helguvík eru hafnar. „SÉRSVEITARMENN hafa ekki fylgt ráð- herrum erlendis með þessum hætti fyrr,“ segir Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri, en fimm sérsveitarmenn verða lífverðir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra í fyrirhugaðri ferð henn- ar til Afganistans. „Þetta er lífvarðagæsluverkefni. Þeir eiga að vernda utanríkisráðherra Íslands á ferðum hans í Afganistan,“ segir Haraldur. Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra hafa áður starfað erlendis, bæði í Kosovo og Afganistan. Haraldur segir að ósk hafi borist frá ut- anríkisráðuneytinu um að sérsveitarmenn- irnir fylgdu ráðherra á ferðum hans í Afg- anistan. Hann vill lítið tjá sig um hvernig sérsveit- armennirnir eru búnir. „Þeir eru með þann búnað sem talinn er nauðsynlegur til þess að tryggja öryggi utanríkisráðherra Ís- lands í Afganistan,“ segir Haraldur. Hafa ekki áður fylgt ráðherrum AÐALFUNDIR félaga grunn-, framhalds- og leikskólakennara fóru fram á Grand Hóteli í gær og fyrra- dag. Í samtali við Morgunblaðið seg- ir Ólafur Loftsson, formaður félags grunnskólakennara, að aðalfundur þess hafi verið kraftmikill. Þar var kjarastefna fyrir þrjú ár samþykkt, eða til 2011. Ólafur segir jafnframt að fram hafi komið ánægja með ný vinnubrögð í samskiptum grunn- skólakennara við launanefnd sveit- arfélaganna, og að kennarar vonist til að bætt samskipti þar á milli skili hagstæðri útkomu við gerð kjara- samninga. Hann segir að allt síðan árið 2005 hafi grunnskólakennarar end- urmetið nálgun sína við gerð kjara- samninga og í þetta skiptið verði hún með öðru móti en áður. „Við byrjuðum sameiginlega að undirbúa kjaraviðræður með sveitarfélög- unum í maí á síðasta ári,“ segir Ólaf- ur. Hann segir fundarmenn hafa verið jákvæða, og að sér sýnist á al- mennri umræðu í þjóðfélaginu að viðhorf til kjaramála kennara séu já- kvæðari en oft áður. „Þær áhyggjur komu reyndar líka fram á fundinum að erfitt geti reynst að manna skólana næsta vetur ef ekki komi til leiðrétting á kjörum kennara.“ Þá var á aðalfundinum einnig mót- uð skólastefna félagsins fram til 2011 og ályktað um innri málefni. Ekki náðist í formenn félags leik- eða framhaldsskólakennara í gær. Binda vonir við bætt samskipti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.