Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 21
MENNING
TÓNLIST
Salurinn
Píanótónleikarbbbbm
Hafliði Hallgrímsson: Bagatelles Op. 39
(1964–2007; frumfl.). Sketches in Time
(1992–; frumfl. á Íslandi). Fley Op. 37
(1968–2007; frumfl.). Fimm stykki fyrir
píanó Op. 2 (1971). Strönd (1982/
1988). Tíu stykki fyrir píanó (1995–
2004). Fjögur íslenzk þjóðlög (1985).
Homage to Mondrian Op. 20 (1995–
2007; frumfl. á Ísl.). Simon Smith píanó.
Miðvikudaginn 12. marz kl. 20.
SKAPGERÐARSTYKKIÐ, ef svo
má snúa Charakterstück úr þýzku
um hin litlu stöku andráfangandi pí-
anóverk er mynduðu drjúgan part af
píanóbókmenntum rómantíkur og
um leið mikilvæg viðfangsefni í slag-
hörpukennslu, virðist í fljótu bragði
hafa orðið útundan í íslenzkri tón-
sköpun; einkum eftir innrás mód-
ernismans um 1960. En kannski er
það ekki nema skiljanlegt, úr því
framsækin tónlist hefur löngum
hallað sér svo að fórnfúsum afburða-
flytjendum að nærri má kalla „hækj-
ur“ tónskáldanna, ef ekki beinlínis
sérfræðinga í meðferð óspilandi tón-
verka.
En um leið yfirsást sömu höf-
undum upplögð leið til að brúa æ
stækkandi bilið milli klassískrar
hefðar og nútímatónlistar. Því einn
vannýttasti sköpunarvettvangur
okkar tíma er einmitt verkefni við
hæfi tónskólanemenda, er enn verða
að mestu leyti að reiða sig á viðráð-
anlegri afurðir gömlu meistaranna
frá barokki til rómantíkur. Hitt er
svo annað mál hvort margur nútíma-
höfundur hafi ekki gott af því að
semja annað slagið hvetjandi verk
við hæfi nemenda. Sumir myndu
jafnvel telja slíka iðju ákveðinn próf-
stein á aðild, rétt og erindi.
Sú staða mála blasti skýrt við á
allt of fásóttu Salartónleikunum sl.
þriðjudag þegar heildarframleiðsla
Hafliða Hallgrímssonar fyrir píanó
var borin á borð; í mörgum tilvikum
í fyrsta skipti. Hvorki fleiri né færri
en sjö fjölþættir bálkar og eitt ein-
þætt verk – alls liðlega 40 þættir,
samtals um 1½ klst. að lengd. Og hér
var loks almennilegra úrbóta von til
kennslu, því Sketches in Time (7 þ.;
7’) og Tíu stykki fyrir píanó (12’)
voru gagngert samin fyrir píanó-
nemendur, og Bagatelles (5 þ., 10’)
og hin meistaralegu Fjögur íslenzk
þjóðlög (13’; umritun úr þegar
kunnu útsetningum Hafliða fyrir
selló og píanó) ættu sömuleiðis að
vera innan seilingar hinna lengst
komnu. Að auki var hið þríþætta
Fley (12’) fyrir vinstri, hægri og báð-
ar hendur (síðasti þáttur áhrifa-
mestur með seiðandi balkandjass-
skotnum krosshrynjum), Fimm
stykki Op. 2 þar sem ofurlitnæmt tó-
nauga höfundar lék á alla strengi
regnbogahörpunnar, Strönd (4’;
stytt umritun á eldra sembalverki
fyrir Helgu Ingólfsdóttur) og hið
sjöþætt virtúósa Homage to Mondri-
an (um 20’) er endaði á sannkölluðu
„tour de force“ eimreiðarsíhreyfi.
Þrátt fyrir einstaka hjakk-
þreytuvott, kannski einkum í seinni
Mondrian-þáttum, var með ólík-
indum hvað Hafliði náði að töfra
fram mikla fjölbreytni og safaríkar
andstæður úr þessum verkum. Fyrir
utan stórbrilljöntu Fjóru þjóðlög-
unum var ekki sízt ánægja að míní-
atúrum nemendaverkanna er hittu
flestar beint í æð með ýmist hör-
undslaust fagurri hljómafegurð eða
gáskafullri rytmameðferð allt frá
austurlenzkum töfrahellum í nærri
djassleita sveiflu. Né heldur skorti
voldugar kraftúthleðslur í hinum
meira krefjandi viðfangsefnum.
Má því sannarlega þakka fyrir
þessa kærkomnu og rausnarlegu
tóngjöf handa breiðasta hópi ís-
lenzkra píanista, allt frá í miðju námi
til fullfleygrar atvinnumennsku, sem
opinberaðist í sópandi túlkun hins
unga Simons Smith er reyndist
hverjum fingurbrjóti fullvaxinn. Hér
var dável að verki staðið, enda aug-
ljóslega árangur vandaðs undirbún-
ings.
Ríkarður Ö. Pálsson
Hið litnæma
tónauga
Morgunblaðið/Golli
Rausnarleg tóngjöf Tónskáldið
Hafliði Hallgrímsson.
TÓNLIST
Kristskirkja
Kórtónleikarbbbbn
John Speight: Stabat mater. Vox feminae
söng ásamt Sif Tulinius (fiðlu), Hildigunni
Halldórsdóttur (fiðlu), Þórunni Ósk Mar-
inósdóttur (víólu), Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur (selló) og Hávarði Tryggvasyni
(kontrabassa). Einsöngur: Sigríður Að-
alsteinsdóttir. Einleikur: Daði Kolbeins-
son (englahorn). Stjórnendur: John
Speight, Margrét Pálmadóttir. Miðviku-
dagur 12. mars.
ÉG var að keyra niður í bæ að
morgni til þegar ég heyrði syfjað
útvarpsfólk reyna að segja eitt-
hvað gáfulegt um fyrirhugaða tón-
leika Vox feminae í Kristskirkju á
miðvikudagskvöldið. Ekki voru
þau viss um tímasetninguna en
komust þó fljótlega að því að tón-
leikarnir væru klukkan 20.30. Og
svo tilkynntu þau að flytja ætti
Stabat mater á tónleikunum, en
það væri hið merkilegasta tón-
verk.
Hvergi kom fram nafn tón-
skáldsins, líkt og aðeins eitt tón-
verk væri til sem héti Stabat ma-
ter. Kannski áttu þau við Vivaldi,
sem vissulega samdi frægt tón-
verk með þessu nafni. Eða Pal-
estrina, Haydn, Gounod, Pende-
recki, Poulenc, Szymanowski,
Verdi, Alessandro Scarlatti,
Domenico Scarlatti, Arvo Pärt eða
Verdi. Meira að segja franska
svartmetalbandið Anorexia Ner-
vosa hefur samið Stabat mater.
Nei, tónskáldið að þessu sinni
var John Speight og hann stjórn-
aði sjálfur flutningnum sem auk
kórsins var í höndum lítillar
strengjasveitar, Sigríðar Að-
alsteinsdóttur messósópran og
Daða Kolbeinssonar, er lék á svo-
nefnt englahorn, eða enskt horn,
en það er einskonar óbó.
Hvað þýðir annars Stabat ma-
ter? Það er stytting á Stabat ma-
ter dolorosa, upphafslínu í frægu
ljóði frá 13. öld. Matthías Joch-
umsson þýddi upphafserindið svo:
„Stóð við krossinn mærin mæra /
mændi á soninn hjartakæra /
Grátin sá, hvar Guðs son hékk.“
Í ljóðinu er hugleidd þjáning
Maríu þegar sonur hennar, Jesús
er krossfestur. Eins og nærri má
geta er andrúmsloftið tregafullt
og John Speight hefur náð ágæt-
lega að fanga stemningu textans.
Dapurlegir einleikskaflar engla-
hornsins, sem Daði Kolbeinsson
útfærði af listfengi, römmuðu inn
síendurteknar, hnígandi, nánast
tárvotar strengjahendingar; hjart-
næman, einstaklega fallegan ein-
söng og tilfinningaþrunginn kór-
söng.
Mismunandi þættir verksins
voru í góðu jafnvægi og úrvinnsla
tónskáldsins á helstu meginhug-
myndum var afslöppuð, sannfær-
andi án þess að fara út í öfgar, en
þannig var merkingu textans
ávallt haldið á lofti af smekkvísi.
Óhætt er að fullyrða að Stabat
mater eftir Speight sé vel unnið
og vandað tónverk.
Mér láðist að taka tímann á tón-
smíðinni (enda hallærislegt að
glápa á klukkuna þegar maður á
hálfpartinn að vera með lokuð
augun í öðrum heimi) en ég giska
á að tónlistarflutningurinn hafi
tekið um hálftíma. Það er auðvitað
ekki nóg fyrir heila tónleika og því
flutti kórinn og aðrir tónlist-
armenn, að þessu sinni undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur, lög
á borð við Á föstudaginn langa,
Nú legg ég augun aftur og annað
sem tengja má við páskana. Eins
og í verki Speights var hástemmd-
ur söngur kórsins unaðslegur
áheyrnar og því er ekki annað
hægt að segja en að þetta hafi
verið skemmtilegir tónleikar.
Jónas Sen
Mærin mæra mændi
Morgunblaðið/Golli
Skemmtilegir tónleikar John
Speight samdi Stabat mater.
Ráðstefna um eflingu foreldrahæfni
Mánudaginn 17. mars kl. 9-17
Grand Hótel Reykjavík
Dagskrá
9.00-9.15 Setning og ávarp Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður félags- og tryggingamálaráðherra
9.15-10.15 Dr. Alan Ralph, prófessor við Háskólann í Queensland, Ástralíu: “ntergrating universal and targeted
parenting interventions using the Triple P - Positive Parenting Programme”
10.15-10.40 Kaffi
10.40-11.10 Dr. Alan Ralph: Framhald
11.10-12.00 Björn Arnesen, Cand Socion, MKA í Þrándheimi: “The Incredible Years Teachers and Parent Training
Program - Challenges and benefits of using evidence based programs”
12.00-13.00 Hádegisverður
13.00-13.30 Björn Arnesen: “Norwegian reflections from using family based intervention programs”
13.30-13.50 Halldór Hauksson yfirsálfræðingur, Barnaverndarstofu: Innleiðing MST á Íslandi
13.50-14.10 Margrét Sigmarsdóttir forstöðusálfræðingur, Hafnarfirði: Foreldrafærniþjálfunin PMT
14.10-14.30 Gylfi Jón Gylfason forstöðusálfræðingur, Reykjanesbæ: Uppeldisfræðslan SOS
14.30-14.50 Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna: “Uppeldi sem
virkar - færni til framtíðar”
14.50-15.10 Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi hjá ÓB Ráðgjöf ehf.: „Barnið boðið velkomið“
15.10-15.30 Kaffi
15.30-17.00 Panell og almennar umræður
Ráðstefnustjóri: Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og formaður samráðsnefndar
ráðuneytanna um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum barna.
Ráðstefnan er öllum opin og verður haldin á Grand Hótel Reykjavík
kl. 9-17, mánudaginn 17. mars, 2008
Félags- og tryggingamálaráðuneytið