Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þráinn Sig-tryggsson fædd-
ist á Mosfelli í Ólafs-
vík á Snæfellsnesi 1.
september 1928.
Hann lést í Reykja-
vík 7. mars síðastlið-
inn. Foreldrar Þrá-
ins voru Sigtryggur
Sigtryggsson, f . 6.8.
1898, d. 16.4. 1978,
og Guðbjörg Jenný
Vigfúsdóttir, f.
11.10. 1902, d. 10.8.
1982. Þráinn var
þriðji í röðinni af 7
systkinum og eru 4 á lífi. Haukur,
f. 1.9. 1924, d. 21.2. 1998, Sverrir,
f. 30.8. 1925, d. 26.9. 1992, Svein-
björn, f. 3.10. 1930, Vigfús, f. 29.4.
1932, Hafsteinn, f. 21.9. 1933,
Bjarný, f. 15.11. 1941.
Þráinn kvæntist 26.12. 1952
Guðbjörgu Elínu Sveinsdóttir, frá
Fossi í Staðarsveit, f. 6.10. 1932.
Þau hófu búskap sinn á Mosfelli í
Ólafsvík 1950, fluttu síðan í Lyng-
holt og þaðan á Grundarbraut 26
og hafa síðan búið þar. Börn Þrá-
ins og Guðbjargar eru: 1) Egill
Viðar, f. 24.4. 1951, maki Hrefna
Guðbjörnsdóttir, f. 9.5. 1953, börn:
a) Guðbjörn Sigfús, f. 13.12. 1971,
maki Guðrún Anna Oddsdóttir, f.
21.2. 1972, börn Hrefna Rún, Unn-
ur Eir og Bryndís Brá. b) Þráinn
Viðar, f. 2.7. 1974, maki Svandís
Jóna Sigurðardóttir, f. 16.4. 1975,
börn María Ýr og Elín Dögg. c) El-
ísabet Hrönn, f. 21.8. 1978, maki
Jón Hjörtur Harðarson, f. 10.6.
1975, börn Anna Rut, Aníta Eik og
Hörður Máni. d) Soffia Elín, f. 2.5.
1984, unnusti Friðbjörn Ásbjörns-
son, f. 24.7. 1984. 2) Pálína Svan-
var með börn á þessum árum, en
hugur hans stefndi til sjávar, þeg-
ar aldur dugði til og fór hann á
vertíðar á Suðurnesjum og Hafn-
arfirði ásamt bræðrum sínum og
var hann á ýmsum bátum. Hann
lærði fljótt til verka og var í skip-
rúmi hjá mörgum landsþekktum
aflamönnum. En leiðin lá aftur
heim til Ólafsvíkur þar sem hann
stundaði sjó næstu árin. Árið 1953
stofnaði hann útgerðafélagið
Dverg hf. með bræðrum sínum
sem meðal manna eru nefndir
Mosfellsbræður eða „Mosfell-
ingar“ ásamt Guðmundi Jenssyni
skipstjóra. Útgerðafélagið Dverg-
ur lét smíða á Akureyri nýjan
fiskibát, Hrönn 45 smálesta bát,
mikið happa- og aflaskip, seinna
meir eignuðust bræðurnir útgerð-
ina að fullu. Árið 1962- 1963 fór
Þráinn í Stýrimannaskólann og
kláraði fiskimanninn, varð síðan
fljótlega skipstjóri eftir það allt
fram til ársins 2000 er hann fór í
land. Árið 1964 létu þeir smíða í
Esbjerg í Danmörku 109 sml. fiski-
skip, Sveinbjörn Jakobsson SH 10
sem var einnig mikið happa- og
aflaskip sem þeir ráku til ársins
2006 eða þar til þeir keyptu nýtt
skip og gáfu því sama nafn. Árið
1997 var Útgerðarfélaginu Dverg
skipt upp og eignaðist Þráinn
ásamt sonum sínum fyrirtækið að
fullu sem þeir hafa rekið af dugn-
aði og útsjónarsemi enda hefur
verið vel haldið utan um hlutina.
Eftir að hann hætti til sjós eftir 58
ára sjómennsku og 72 ára gamall
sem farsæll skipstjóri sneri hann
sér að rekstri útgerðarinnar í
landi af fullum krafti ásamt Guð-
björgu eiginkonu sinni til dán-
ardags.
Útför Þráins verður gerð frá
Ólafsvíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
hvít, f. 24.3. 1952,
maki Ingvar Sigurðs-
son, f. 31.7. 1954,
börn Guðbjörg, f.
4.10. 1979, og Guð-
mundur, f. 4.10. 1979.
3) Bryndís Jenný, f.
3.9. 1954, maki Valur
Magnússon, f. 26.6.
1952, dóttir Lea Sif, f.
26.11. 1986. 4) Sig-
urbjörg Erla, f. 12.1.
1957, maki Þröstur
Kristófersson, f. 18.5.
1956, börn a) Guð-
björg Elín, f. 28.8.
1976, dóttir Eydís Ýr, unnusti
Björgvin H. Bjarnason, f. 7.9. 1969.
b) Ævar Rafn, f. 20.2. 1980, maki
Fjóla Rós Magnúsdóttir, f. 28.10.
1981, dóttir Díana Ósk. c) Dagný
Thelma, f. 5.8. 1983, unnusti Jó-
hann Ingi Þorsteinsson, f. 10.7.
1980. 5) Lilja Björk, f. 15.12. 1959,
maki Lárus Ragnar Einarsson, f.
1.2. 1959, börn a) Hermína Kristín,
f. 24.10. 1979, maki Kristmundur
Sumarliðason, f. 26.10. 1979, synir
Sumarliði og Viktor Andri. b) Elm-
ar Pálmi, f. 15.10. 1981, maki
Harpa Harðardóttir, f. 20.1. 1980,
dóttir Ragnheiður Björk. c) Stein-
unn Alva, f. 11.9. 1989. 6) Berglind
Sigrún , f. 25.9. 1961, maki Heimir
Maríuson, f. 1.7. 1960, synir Arnar
Freyr, f. 29.9. 1994, og Felix Ernir,
f. 9.8. 1999. 7) Sigtryggur Sævar, f.
2.6. 1967, maki Margrét Gróa
Helgadóttir, f. 8.5. 1967, börn Val-
gerður, f. 10.8. 1994, Helgi, f. 8.2.
1998 og Þráinn, f. 27.8. 2001.
Þráinn ólst upp í föðurhúsum á
Mosfelli í Ólafsvík fram eftir aldri
en snemma var hann sendur í sveit
yfir sumarmánuðina eins og títt
Komið er að leiðarlokum eftir lang-
an og farsælan ævidag. Til hinstu
hvílu er lagður elskulegur tengdafað-
ir minn Þráinn Sigtryggsson. Hann
verður öllum minnisstæður sem
fengu að kynnast honum. Hann átti
marga eðliskosti, skarpgreindur og
fjölhæfur, hvar sem hann fór bar
hann með sér blæ góðvildar, glaðvær
og hress í bragði, glettinn og oft stutt
í stríðnina. Það er orðið á þriðja tug
ára síðan ég hitti þig fyrst þegar dótt-
ir þín kynnti mig fyrir þér og þú sam-
þykktir karlinn strax inn í fjölskyld-
una.
Margs er að minnast í gegnum tíð-
ina, marga bíltúrana fórum við eða
bryggjurúntinn eins og við köllum
það, þar var mikið skrafað og tekin
staðan á þjóðlífinu enda hafði þú frá-
bæra söguhæfileika og rifjaðir oft
upp gamla tíman sem þú upplifðir
þegar þú varst á vertíðum á Suður-
nesjunum, í Hafnarfirði og Ólafsvík á
árum áður. Ein ferð er ógleymanleg
af mörgum þegar þú komst í heim-
sókn til okkar ásamt eiginkonu þinni
þegar ég var að vinna í Þýskalandi og
við fórum til Esbjerg í Danmörku þar
sem þú rifjaðir upp tímann sem þú
varst við byggingu á happaskipinu
ykkar Sveinbirni Jakobsyni SH 10.
Þú varst minnugur með eindæmum,
þú mundir alla hluti eins og það hefði
gerst í gær þó að það hefði verið fyrir
þrjátíu árum sem þú komst þar síð-
ast.
Þú varst mikill Ólsari og trúr þín-
um heimabæ Ólafsvík enda borinn og
barnfæddur þar og hafðir frá unga
aldri tekið þátt í uppbyggingu bæj-
arins og nefndir oft að hvergi væri
betri staður að búa á.
Sjómennska var þitt ævistarf og
allt snerist um hana frá barnsaldri
enda byrjaðir þú ungur til sjós, að-
eins 14 ára gamall og hættir ekki fyrr
en sjötíu og tveggja ára eftir 58 ára
farsæla sjómennsku, meira og minna
sem skipstjóri allan tímann. Þegar þú
ákvaðst að fara í land eftir eftir allan
þennan tíma sagðir þú með þínu
glotti: ætli maður verði ekki að
hleypa þeim ungu að.
Þrátt fyrir að hann hafi hætt til
sjós voru málefni sjómanna og út-
vegsmanna honum alltaf hugleikin og
ófáar viðkomur átti hann á skrifstofu
LÍÚ til skrafs við stjórnendur þar því
hann var ekki sammála stefnu stjórn-
valda í fiskveiðimálum og oft var tek-
ist á í þeim málefnum.
Þráinn var mikill og trúfastur
framsóknarmaður, en þrátt fyrir
sterkar skoðanir virti hann annarra
viðhorf og lét það ekki spilla vináttuni
þó oft væri tekist á í ýmsum málefn-
um.
Söknuður okkar ástvina þinna er
mikill og nístir hjartað, það er vegna
allra yndislegu minninganna sem við
eigum um þig. Ef við hefðum ekki
upplifað allar þessar stundir saman
hefðum við einskis að sakna. Hafðu
þökk fyrir allar okkar samverustund-
ir, minning þín lifir. Guðbjörgu
tengdamömmu og börnum þeirra og
fjölskyldu votta ég alla mína samúð.
Guð varðveiti ykkur öll.
Ingvar Sigurðsson.
Í dag kveð ég tengdaföður minn,
Þráin Sigtryggsson skipstjóra og út-
gerðarmann í Ólafsvík. Ég kom inn í
fjölskylduna á Grundarbraut fyrir 16
árum og tóku þau hjón einstaklega
vel á móti mér og varð ég strax hluti
af stórri og samhentri fjölskyldu. Það
var mikill samgangur á milli heim-
ilanna og hluti af daglegu lífi okkar að
kíkja í heimsókn á Grundarbrautina
og þurfti þá ekkert sérstakt tilefni til.
Þráinn hafði gaman af að ræða um
menn og málefni líðandi stundar,
hann hafði ákveðnar skoðanir á hlut-
unum og kallaði það á viðbrögð og
rökræður annarra. Það var gaman að
ræða við Þráin því hann var fylginn
sér en sanngjarn og hafði góðan húm-
or og oftar en ekki var hlegið á eftir.
Mér líkaði vel þegar gustaði af
tengdaföður mínum því að baki var
góður hugur en hann var afar stoltur
af uppruna sínum og vildi að vel væri
haldið utan um hlutina í bæjarfélag-
inu sem honum var svo annt um. Þrá-
inn var með stórt hjarta sem við feng-
um svo sannarlega að kynnast. Hann
var ráðagóður, röggsamur og það var
gott að leita til hans. Þráinn bar alltaf
umhyggju fyrir fjölskyldu sinni. Hann
hringdi nær daglega til okkar til að at-
huga hvernig við hefðum það, hvað
væri að frétta og spurði alltaf eftir
börnunum. Fyrir það erum við honum
þakklát og er missir barnanna mikill.
Þráinn hafði alla tíð gaman af bóka-
lestri og var víðlesinn en á síðustu ár-
um gat hann ekki notið þess og sakn-
aði þess mikið. Hann var góður
sögumaður og kunni margar vísur frá
gamalli tíð og töluðum við um það ný-
lega að gaman væri að festa þær niður
á blað.
Þráinn hafði alla tíð unnið hörðum
höndum en hann byrjaði á sjó aðeins
14 ára gamall. Sjómennskan var líf
hans og yndi og var hann hafsjór af
fróðleik um sjávarútvegsmál enda
maður sem mundi tímana tvenna allt
frá tíð árabátanna. Eikarbáturinn
Sveinbjörn Jakobsson SH 10 var stolt
fjölskyldunnar en þar var Þráinn far-
sæll skipstjóri í marga áratugi. Það
sýnir hversu miklum krafti og dug
hann bjó yfir að hafa haft áræðni til að
láta smíða bát í Danmörku árið 1964
ásamt bræðrum sínum. Skipið var alla
tíð mikið happafley og alltaf haldið vel
utan um hlutina svo tekið var eftir.
Árið 2006 keyptu þeir feðgar annan
bát en héldu sama nafni.
Þegar Þráinn hætti á sjónum 72 ára
að aldri héldum við að hann myndi
kunna aðgerðaleysinu illa en svo var
ekki. Hann var vanur að vinna og sat
ekki auðum höndum heldur sneri sér
að öðrum verkefnum. Þráinn gerðist
útgerðarstjóri hjá Dvergi hf. sem ger-
ir út Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og
sá um alla þætti sem sneru að útgerð-
inni ásamt Guðbjörgu konu sinni.
Þráinn átti því láni að fagna að eiga
góða eiginkonu og frábæran lífsföru-
naut, Guðbjörgu (Gauju), sem stóð
traust við hlið hans alla tíð. Þau voru
samhent hjón og miklir vinir. Sam-
band þeirra einkenndist af væntum-
þykju og virðingu. Elsku Guðbjörg,
ég votta þér mína dýpstu samúð á
þessum erfiðu tímum og bið góðan
Guð að veita þér styrk um ókomin ár.
Ég kveð tengdaföður minn með
söknuði og þakklæti fyrir að hafa
fengið að kynnast honum og eiga með
honum samfylgd og er rík að ótal
minningum um góðan mann sem var
mér alla tíð sannur vinur.
Margrét Gróa Helgadóttir.
Afi er dáinn, ekki hefði ég getað
trúað því eftir heimsóknina í vinnuna
fyrir um 3 vikum síðan þegar hann og
Elmar, einkabílstjórinn hans komu,
að hann myndi kveðja þetta jarðneska
líf svona fyrirvaralaust. Þetta er ótrú-
legt, hann var svo hress og átti ým-
islegt eftir ógert. Maður situr eftir og
hugsar um farinn veg og upp koma
ótal minningar. Allar heimsóknir okk-
ar að Grundabraut, þangað var maður
velkominn og tekið á móti manni með
hlýhug og heitum kaffibolla. Um-
ræðuefnin voru oft um sjávarútveginn
og eigum við eftir að sakna þeirra.
Segja má að afi hafi haft ákveðnar
skoðanir á málefnum líðandi stundar
og vorum við ekki alltaf sammála en
óhætt er að segja að það var gaman að
hlusta á skoðanir hans og sýn á lífið.
Við erum ekki í vafa um að afi hafi í
flestum tilvikum haft rétt fyrir sér, án
efa er um að ræða mann með mikla
reynslu og skemmtilega sýn á lífið.
Gaman var að fylgjast með afa dudda
við það sem viðkom heimilinu og bíl-
unum. Þá man ég eitt skipti að amma
tók til við vorverkin þegar afi var fjar-
verandi og trén voru klippt. Þegar
hann kom heim var honum heldur
brugðið. Hann var ekki par hrifinn af
þessu uppátæki og sagði að trén væru
ónýt. Við reyndum að koma honum í
skilning um að svo væri ekki en hann
var samt sem áður ekki sáttur. Svona
var afi, hafið ákveðnar skoðanir á mál-
unum og varð því ekki breytt. Afi haf-
ið mikið dálæti á bílum og má segja að
það hafi verið hans annað áhugamál
fyrir utan sjóinn. Þegar ég fór að
kaupa minn fyrsta bíl var afi fremstu í
flokki þegar velja átti bílinn. Það var
svo fyrir ári síðan að við keyptum
Subaru Legacy. Þegar heim var kom-
ið á bílnum var farinn rúntur um
Ólafsvík og hittum við afa á bryggj-
unni. Hann settist inn í bílinn til að
taka hann út. Þá varð honum á orði:
„Hvað er fjölskyldumaðurinn að
kaupa svona sportbíl, það er varla
hægt að komast inn í þetta og maður
situr á götunni“. Afi bar hag fjölskyld-
unnar fyrir brjósti, fylgdist mikið með
þegar við fórum í nám og reyndist
litlu fjölskyldunni minni vel þegar við
fluttum til þess að ég gæti klárað
netagerðina. Afi var af þeirri kynskóð
sem mátti þola súrt og sætt í uppvexti.
Lífið fátt mér ljær í hag,
lúinn þrátt ég glími.
Koma máttu um miðjan dag,
mikli háttatími.
(Gísli Ólafsson.)
Minningar um hann afa eru ótal
margar og höfum við verið þeirrar
hamingju njótandi að hafa fengið að
hafa hann svona lengi hjá okkur. Við
gleymum honum ekki svo lengi sem
við lifum og verður hann alltaf stór
hluti af okkar lífi og geymum mynd
hans í hjarta. En eins og María Ýr
dóttir okkar skrifaði inn á bloggið sitt
daginn sem hann kvaddi þetta líf, „í
dag er sorgar dagur í lífi mínu besti
langafi minn féll frá í dag. Hann Þrá-
inn langafi hefði orðið 80 ára 1. sept á
þessu ári. Hvíldu í friði, besti langafi í
heimi. Ég mun sakna þín mjög mikið,
afi minn“. Þessi orð hennar segja okk-
ur hversu mikið hann hefur snert líf
okkar. Þeim látnu skuldar maður að-
eins sannleikann.
Hvíldu í friði, elsku afi og langafi.
Þráinn, Svandís, María Ýr
og Elín Dögg.
Elsku afi minn.
Það sem mér fannst óhugsandi fyr-
ir stuttu er sorglegur raunveruleiki
dagsins í dag.
Aldrei hefði mig grunað að þú yrðir
tekinn svona snöggt frá okkur. Þú
varst ávallt svo hraustur og kraftmik-
ill – alltaf á fullu í að snúast í kringum
útgerðina og heimilið ykkar ömmu.
Fílhraustur, hress og kátur. Þetta
er svo sárt og söknuðurinn er mikill
hjá okkur öllum.
Um hug minn streyma minningarn-
ar, góðar og ógleymanlegar. Þið
amma hafið alla tíð verið svo góð við
mig og við öll barnabörnin ykkar. Oft í
æsku þegar hlutirnir voru ekki alveg
eins og ég vildi hafa þá heima fyrir var
ég flutt heim til ykkar, með fötin mín í
poka. En auðvitað sóttu mamma og
pabbi mig þegar leið á daginn eða þú
og amma keyrðuð mig heim.
Þið amma voruð svo gjörn á að taka
mig með í bíltúra inn í Bug og þar
kenndir þú mér að fleyta kerlingar.
Ég gleymi einnig seint sögunum þín-
um þegar við keyrðum kringum jökul-
inn. Þú sagðir sögur af álfum, huldu-
fólki og jólasveinunum á leiðinni. Þú
bentir upp í fjöllin og sannfæringar-
Þráinn Sigtryggsson
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
VIGDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR,
Smáratúni 20b,
Selfossi,
lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands miðvikudaginn 12. mars.
Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju miðviku-
daginn 19. mars kl.13.30.
Rannveig Þórðardóttir, Örlygur Jónasson,
María Kristín Örlygsdóttir,
Þórdís Örlygsdóttir,
Jónas Örlygsson,
Ingvar Örlygsson,
Jakobína Lind Jónsdóttir,
Þórður Jónsson
og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg systir okkar,
LILJA JÓNHEIÐUR SKARPHÉÐINSDÓTTIR,
áður til heimilis á
Ægisgötu 12,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 8. mars.
Útförin auglýst síðar.
Inga Skarphéðinsdóttir,
Anna V. Skarphéðinsdóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRSÆLL ÁSGEIRSSON,
Bröttuhlíð 2,
Seyðisfirði,
andaðist miðvikudaginn 12. mars.
Guðrún Karlsdóttir,
Jón Ársælsson, Saga Valsdóttir
og fjölskylda.