Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 56

Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 56
LAUGARDAGUR 15. MARS 75. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Þurfa aðstoð vegna lána  Miklar sveiflur í gengi krónunnar hafa áhrif víða. Meðal þeirra sem finna fyrir breytingunum eru þeir sem keypt hafa bíla á lánum í er- lendri mynt, en sífellt fleiri úr þeim hópi hafa að undanförnu leitað að- stoðar hjá Ráðgjafarstofu um fjár- mál heimilanna. Aðsóknin er svo mikil að fullbókað er í alla viðtals- tíma fram í apríl. » Forsíða Hafna svæðisskipulaginu  Umhverfisráðuneytið hefur synj- að tillögu um staðfestingu á svæð- isskipulagi Kópavogs, sem felur í sér að byggðasvæði í Vatnsendahlíð stækkar til suðurs. » 2 Undirritun í Mexíkó  Monterrey-háskólinn í Mexíkó og íslenski orkuskólinn RES hyggja á samstarf á sviði vistvænnar orku. Samningar þessa efnis voru und- irritaðir í heimsókn forseta Íslands til Mexíkó. » Miðopna SKOÐANIR» Staksteinar: Írar geta ekkert gert Forystugreinar: Verðug verkefni Hverjir hagnast? UMRÆÐAN» Sannleikurinn um íþrótta- mannvirkin Eyðum kynþáttafordómum áður en þeim vex fiskur um hrygg Börn: Klókur karl Mæðgurnar á bak við … Maxímús Lesbók: Með blús í hjarta Það er erfitt að stoppa mig BÖRN | LESBÓK » '4 4 4 4 4 '4 4' 5  %6$( / " $, "% 7"! ""!$$&$  $ '4' 4' 4' 4 4 '4 4' 4 .8 2 ( 4  4 4 4 '4 4' 4 '4 9:;;<=> (?@=;>A7(BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA(8$8=EA< A:=(8$8=EA< (FA(8$8=EA< (3>((A&$G=<A8> H<B<A(8?$H@A (9= @3=< 7@A7>(3,(>?<;< Heitast 4°C | Kaldast -3°C  Hæg norðaustlæg átt og víða létt- skýjað, en sums staðar él suðaust- anlands. » 10 Þora íslenskir tón- leikahaldarar ein- göngu að flytja inn tónlistarmenn sem komnir eru af létt- asta skeiði? » 50 TÓNLIST» Gamlir menn TÓNLIST» Unchastity var vísað úr Músíktilraunum. » 46 Lífskúnstnerinn Ketill Larsen er um- fjöllunarefnið í heim- ildarmynd Tómasar Lemarquis og Jos- ephs Marzola. » 46 KVIKMYNDIR» Kvikmynd um Ketil TÓNLIST» DJ Premier er þunga- vigtarmaður. » 52 FÓLK» Colin Farrell finnur sig vel í baðhúsum. » 48 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Dæmd tl að greiða kennara … 2. Greri föst við klósettsetuna 3. Shannon Matthews fannst á lífi 4. Arsenal dróst gegn Liverpool  Íslenska krónan veiktist um 1,5% „ÉG átti enga óskamótherja. Ég hafði á til- finningunni að við myndum mæta Manchest- er United en ég er ánægður að við fengum ekki Chelsea,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, leik- maður Barcelona, við Morg- unblaðið í gær eftir að dregið var í 8 liða úrslit meistaradeildar Evr- ópu í knattspyrnu. Eiður og sam- herjar í Barcelona töldust nokkuð heppnir að dragast gegn eina þýska liðinu sem eftir er í keppninni og sleppa við ensku liðin Arsenal, Chelsea, Liverpool og Manchester United. | Íþróttir Slapp við Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen LIÐ Menntaskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, en úrslitaviðureignin fór fram í beinni útsendingu Sjón- varps í gærkvöldi. Þar sigruðu MR-ingarnir lið Menntaskólans á Akureyri með 28 stigum gegn 26. Bráðabana þurfti til að skera úr um úrslitin eftir að liðsmönnum MA hafði tekist að jafna metin með ótrú- legum hætti. Í bráðabananum svöruðu MR-ingar hins vegar fyrstu tveimur spurningunum rétt og sigruðu þar með í 14. skipti frá því keppnin var fyrst haldin. Gríðarleg spenna Menntaskólinn í Reykjavík sigraði í Gettu betur Morgunblaðið/Eggert SKJÁR Símans leigir út erótískar kvikmyndir í Skjábíói, vídeóleigu sinni sem aðgengileg er í sjónvarpi fyrir tilstilli s.k. VOD-tækni (video on demand), í sérstökum læstum flokki. Í honum kennir ýmissa grasa og myndirnar misopinskáar kynferðislega, hægt að velja kvik- myndir í flokkum á borð við „Ama- teur“ (viðvaningar/áhugamenn), „Lesbian“ (myndir með lesbískum kynlífsatriðum) og „Extreme“ (öfgakennt). „Það er í raun ekkert sýnilegt um þessa þjónustu nema þeim sem hafa aldur til, þannig höfum við reynt að halda sátt við okkar við- skiptavini og trúum því að þetta sé í lagi,“ segir Friðrik Friðriksson, rekstrarstjóri stafræns sjónvarps hjá Skjánum. Engar kvartanir hafi borist frá viðskiptavinum vegna þessarar þjónustu enda fari hún mjög leynt og sé ekki sjáanleg nema menn leiti hana uppi og slái inn rétt lykilorð. Friðrik segir útlán á kvikmynd- um í flokknum erótík innan við 10% af heildarútlánum Skjásins á mán- uði. Skjárinn hafi enda ákveðið þeg- ar Skjábíó hóf göngu sína, í lok árs 2005, að auglýsa ekki þennan val- kost og látið lítið bera á honum. Samkvæmt 210. gr. hegningar- laga varðar það sektum eða fang- elsi, allt að sex mánuðum, að „flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámrit- um, klámmyndum eða öðrum slík- um hlutum“. Þrátt fyrir þetta er slíkt efni selt víða um land í kynlífs- verslunum, á netinu og leigt út. Skilgreiningin á klámi hefur komið fram í dómum hér á landi, sá þekktasti líklega sá sem Jón Óttar Ragnarsson hlaut árið 1990 sem sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 fyrir að sýna á stöðinni svokallaðar stjörnu- merkjamyndir danskar, Í tvíbura- merkinu og Í nautsmerkinu. Þóttu kynlífsatriði þeirra ekki hafa augljósan listrænan, fag- urfræðilegan eða leikrænan tilgang og því klám skv. dómi með vísan í skilgreiningu sérfræðinganefndar Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna á klámi, frá árinu 1986. Árið 2000 var svo eigandi kynlífs- verslunarinnar Taboo í Reykjavík dæmdur til sektar í Hæstarétti fyr- ir að selja klámefni, sem taldist brot á fyrrnefndri lagagrein. | 46 Kynlífsefni á Skjábíói Bíó Hluti skjámyndar í erótískum flokki Skjábíós, Poppy’s Pupils 2. „Trúum því að þetta sé í lagi,“ segir Friðrik Friðriksson, rekstrarstjóri stafræns sjónvarps hjá Skjánum ELLEFU nöfn voru samþykkt af mannanafnanefnd í janúar og febr- úar en sjö var hafnað. Þau kven- nöfn sem samþykkt voru eru Eirún, Vibeka, Idda, Sónata, Lúna og Lokbrá. Nýsamþykkt karlanöfn eru Asael, Vincent, Tonni og Robert, samþykkt sem ritmynd af Róbert. Þá var millinafnið Vatnsfjörð sam- þykkt. Þessi nöfn uppfylla skilyrði laga um mannanöfn, þau taka íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. nafnið Vincent og biblíunafnið Asael. Nafnið má ekki brjóta í bága við ís- lenskt málkerfi og skal ritað í sam- ræmi við íslenskar ritreglur. Eig- innafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Þau kvenmannsnöfn sem var hafnað eru Diana, Íslandssól, Kona og Zíta. Karlmannsnöfnin eru Elio, Johnny og Lano. Þrátt fyrir að karlmannsnöfnin Karl, Sveinn og Drengur séu leyfð, hefur nafnið Kona ekki unnið sér hefð í íslensku máli. Í úrskurði nefndarinnar segir að þegar fullorðin kona sæki um að taka upp nýtt nafn sé ekki unnt að fullyrða að nafnið verði nafnbera til ama. Hins vegar verði að hafa í huga að með því að setja nafn á mannanafnaskrá er það um leið orðið mögulegt fyrir nýfædd börn. Nafnið Kona geti orðið barni til ama. Íslandssól segir nefndin brjóta í bága við íslenskt málkerfi og gegn hefð um samsetningu mannanafna. Nöfnin Diana, Elio, Johnny og Lano teljast ekki rituð í samræmi við ís- lenskt mál, né heldur Zíta, eftir brottfall zetu árið 1974. Sónata samþykkt, Konu hafnað ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.