Morgunblaðið - 16.03.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 41
stofu Graeme Massie í Edinborg og
einn helsti kostur hennar er hve hún
tengist gömlu borginni á „hamingju-
samlegan hátt“. Sama stofa átti
vinningstillöguna að nýjum miðbæ
Akureyrar fyrir tveim árum, og að-
alsmerki höfundanna virðist fyrir ut-
an skipulagsgáfuna, næmt fegurð-
arskyn, framsýni og raunsæi.
Ákvörðun án tafar
Og nú þarf að láta hendur standa
fram úr ermum. „Ákvörðun um
flutning flugvallarins úr Vatnsmýri
og frekari borgarbyggð á svæðinu
þarf að taka fljótt vegna þeirra
áhrifa sem sífelldar bygging-
arframkvæmdir á jöðrum þessa
svæðis hafa.“ Þannig kemst Hilde-
brand Machleidt að orði í sýning-
arritinu, en hann er einn dómnefnd-
armanna og yfirmaður verkefnisins
„Vísindaborgin Berlín-Adelshof“.
Varla var völ á manni með heppi-
legri reynslu til að meta hvernig
unnt er að græða sár Reykjavíkur
því fáar borgir hafa staðið frammi
fyrir stærra endurreisnarverkefni
en Berlín eftir seinna stríð og síðan
fall múrsins. Þrýstingurinn á að
Reykjavík eignist nútímalega mið-
borg vex með hverju ári og end-
urspeglast í öllum þeim gríðarlegu
framkvæmdum sem eiga sér stað í
elstu borgarhlutunum og á jöðrum
flugvallarsvæðisins. Skortur á heild-
arsýn í þeim hamagangi öllum getur
valdið borginni ómældum skaða og
er ávísun á átök og eyðileggingu
eldri hverfa. Af landfræðilegum og
sögulegum ástæðum getur ný mið-
borg hvergi risið nema á flugvall-
arsvæðinu. Og Machleidt leggur til
að Vatnsmýrin verði formlega lýst
borgarsvæði í mótun og komið á fót
sérstakri þróunarskrifstofu sem
annast geti allar þær skyldur sem
fylgja uppbyggingu af þeirri stærð-
argráðu sem framundan er.
Reykjavík hefur um stundarsakir
lent í höndum afturhaldsams borg-
arstjóra sem innan við 10% borg-
arbúa styðja og þjóðin vantreystir.
Slíkum manni þarf að velta úr sessi.
Fram að næstu kosningum ætti hver
einasti kjósandi í Reykjavík og sér-
hver ábyrgur stjórnmálamaður á Ís-
landi að kynna sér sýninguna Vatns-
mýrin 102 Reykjavík og fylgirit
hennar. Og augun munu uppljúkast
fyrir þeim veruleika að framtíð höf-
uðborgarinnar stendur og fellur með
því sem gert verður á þessum örla-
greit íslenskrar borgarmenningar.
Höfundur er rithöfundur.
Þingholtsstræti 27 • Sími 533 1122 • Fax 533 1121
Magnús Kristinsson, verkfr., löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, sími 861 0511
Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, sími 897 0634
BRÚARÁS 14, ÁRBÆ
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 14-16
Gott raðhús með aukaíbúð í kjallara og stórum bílskúr, alls um 270 m².
Alls eru 5 svefnherbergi í húsinu. Leigutekjur af kj. íbúð 90 þús. kr. Verð
57,8 millj., áhv. 39 millj.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Daggarvellir – m/bílskýli Hér er um
að ræða 110,6 fm íbúð ásamt bílskýli.
Eignin skiptist m.a. í forstofu, þvottahús,
tvö svefnherbergi (geta verið þrjú), stofu,
eldhús og baðherbergi. Allar innréttingar,
hurðir og skápar eru úr eik. Gólfefni eru
flísar og eikar parket. Góðar 25 fm yfir-
byggðar svalir eru til suð/vesturs. V. 26,9
m. 6843
Tómasarhagi – Efri sérhæð Sér-
lega rúmgóð og björt 180 fm efri sérhæð
með útsýni til sjávar, ásamt 22,7 fm bíl-
skúr, samtals 202,7 fm. Íbúðin skiptist
þannig að gengið er um sérinngang inn í
stigahol, snyrting, forstofuherbergi. Hol
þrjár stórar stofur, eldhús með borðkrók,
baðherbergi, svefnherbergi. Í kjallara er
sér-þvottaherbergi, geymsla og úti-
geymsla. V. 53,9 m. 7396
Reynihvammur – Laust strax Vel
staðsett 180 fm einbýlishús á tveimur
hæðum á fallegum útsýnisstað í suðurhlíð-
um Kópavogs. Húsið þarfnast standsetn-
ingar. Húsið skiptist þannig; Efri hæð: For-
stofa, innra hol, tvær samliggjandi stofur
með arni, eldhús, tvö svefnherbergi auk
baðherbergis. Neðri hæð: Þrjú herbergi,
baðherbergi og þvottahús. V. 46,9 m.
7404
Lómasalir – Efsta hæð Mjög glæsi-
leg og vel skipulögð 3ja herbergja 106,9
fm íbúð á 4 hæð (efstu) í lyftuhúsi ásamt
stæði í bílageymslu. Húsið er klætt að utan
og byggt af Húsvirki. Parket og flísar á
gólfum og þvottahús innan íbúðar. Góðar
suðursvalir. V. 29 m. 7391
Rauðalækur – Rúmgóð hæð
Falleg og björt 118 fm efsta hæð er skipt-
ist í hol, þrjú herbergi, tvær stofur, baðher-
bergi, eldhús. Á stigapalli er þvotta-
hús/geymsla og í kjallara er lítil geymsla og
sameiginlegt þvottahús. V. 33,9 m. 7388
Gnoðarvogur – Falleg hæð með
útsýni Mjög falleg og björt íbúðarhæð
með góðu útsýni. Íbúðin skiptist í forstofu-
herbergi, hol, eldhús, stofur, baðherbergi,
tvö barnaherbergi og hjónaherbergi. Ný-
legt eldhús, parket o.fl. ATH staðsetning
hússins er í botnlanga við opið svæði með
útsýni til suðurs og vesturs. V. 34,9 m.
7367
Bólstaðarhlíð – Sérhæð Falleg,
virðuleg og vel skipulögð 117,7 fm neðri
sérhæð með sérinngangi á 1. hæð. Eignin
skiptist m.a. í forstofu, 3 svefnh., tvær
stofur, gestasn., baðh., og eldhús. Eignin
getur afh. við kaupsamning. Nánari uppl.
veitir Heiðar Birnir sölumaður í síma
824-9092 V. 38,0 m. 7409
Sóltún – Útsýni í þrjár áttir Falleg
og vel skipulögð 2ja herbergja 65,0 fm
íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Eignin skiptist í
forstofu, eldhús, baðherbergi, stofu og
svefnherbergi. Í kjallara er sér geymsla.
Einnig er í kjallara sameiginleg hjóla og
vagnageymsla. V. 24,9 m. 7398
Lundarbrekka – Barnvænt
hverfi Um er að ræða vel skipulagða 3ja
herbergja 96,0 fm (þ.a. er geymsla á jarð-
hæð óskráð hjá FMR 10,4 fm, samtals er
því eignin skráð hjá FMR 86,5 fm) íbúð á
1. hæð við Lundarbrekku í Kópavogi.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi,
stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Einnig er á hæð sameiginlegt þvottahús. Á
jarðhæð er (gengið beint innaf götu) sam-
eiginleg hjóla- og vagnageymsla. V. 23,2
m. 7323
Bólstaðarhlíð – Laus strax Falleg
og vel skipulögð 137,9 fm (þ.a. bílskúr
21,8 fm) 4ra herb íbúð á 3. hæð á eftir-
sóttum stað. Eignin skiptist í forstofuhol,
eldh., stofu og borðstofu, þrjú svefnh. og
baðh. Örstutt er í leiksvæði fyrir börn og
alla þjónustu. Eignin stendur innarlega í
botnlanga. V. 28,9 m. 7330
Hofteigur – Ris Falleg og mikið end-
urgerð ca 92 fm 4ra herb. íbúð í risi í litlu
fjölbýli á rólegum og grónum stað í Reykja-
vík. Eignin skiptist í m.a. í þrjú svefnherb.,
stofu, eldh., og baðh. Óskráð geymsluris
er yfir íbúðinni. Í kjallara er sameiginlegt
þvottahús. V. 22,0 m. 7392
Einholt – Aukaherbergi í kjallara
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja 64,0
fm íbúð á 1. hæð í fjórbýli. Eignin skiptist í
forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi og
svefnherbergi. Í kjallara er íbúðarherbergi
og sérgeymsla. V. 17,5 m. 7397
Móvað 47 - 110 Reykjavík
Opið hús milli kl 14:00 og 15:00
Berg fasteignasala, Bolholt 4
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Fágað og glæsilegt 219 fm einbýlishús á einni hæð
með tvöföldum bílskúr. Vandað hefur til allra þátta við
hönnun hússins og engu til sparað í sérsmíðuðum
innréttingum, vönduðum gólfefnum, lýsingu, tækjum
og í lóð. Húsið skiptist í 3-4 svefnherbergi, stofu, eld-
hús, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpsstofu og bað-
herbergi. Í húsinu er mikil lofthæð og stórir gluggar í
stofu sem hleypa fallegri birtu inn. Að utan er lóð lögð
með munstursteypu og skjólveggjum úr harðvið og
steypu. Heitur pottur. Um er að ræða eign sem upp-
fyllir allar nútímakröfur. V. 82 millj.
Grétar J. Stephensen
löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
M
b
l 9
83
23
2
Lindarbyggð 16 - 270 Mosfellsbæ
Opið hús milli klukkan 14 og 15
Berg fasteignasala, Bolholt 4
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Glæsilegt 186 fm parhús á ein-
um vinsælasta stað í Mosfells-
bæ. Í húsinu eru fjögur góð
svefnherbergi, sólskáli áfastur
við stofu. Lokað bílskýli og
gróinn garður. Upptekin loft í
stofu. Vandaðar innréttingar og
gólfefni. V. 46,9 millj.
Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali
verður á staðnum
M
b
l 9
83
24
1
MORGUNBLAÐIÐ er með í notk-
un móttökukerfi fyrir aðsendar
greinar. Formið er að finna við
opnun forsíðu fréttavefjarins
mbl.is vinstra megin á skjánum
undir Morgunblaðshausnum, þar
sem stendur Senda inn efni, eða
neðarlega á forsíðu fréttavefjarins
mbl.is undir liðnum Sendu inn
efni. Ekki er lengur tekið við
greinum sem sendar eru í tölvu-
pósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að skrá sig
inn í kerfið með kennitölu, nafni
og netfangi, sem fyllt er út í þar til
gerða reiti. Næst þegar kerfið er
notað er nóg að slá inn netfang og
lykilorð og er þá notandasvæðið
virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur þeirri
hámarkslengd sem gefin er upp
fyrir hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamleg-
ast beðnir að nota þetta kerfi.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttöku-
kerfi að-
sendra
greina
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn