Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 29
bloggið. „Strax árið 2000 var ég
kominn með sjónvarpsþátt plús
blogg sem styðja hvort annað. Ég
er ekki að lýsa mér sem ein-
hverjum frumkvöðli en þetta hefur
alltaf unnið saman og fyrir mér er
það mjög mikilvægt vegna þess að
ég lít á þetta sem heild. Það sem
ég blogga hjálpar mér að fókusera
það sem ég geri í sjónvarpinu,“
sagði Egill. Þannig að þetta er
markviss markaðssetning hjá hon-
um? „Já, já, Silfur Egils er að
vissu leyti vörumerki. Ég gæti
ekki verið án þess að skrifa og ég
fann mitt form þegar þetta kom
fram,“ sagði Egill.
Fjölbreytni og frelsun
Egill segir töluvert mikla frels-
un felast í bloggskrifum. „Maður
getur skrifað svo laust, það þarf
ekki að huga svo mikið að upp-
byggingunni. Ég set mig alltaf í
miklu meiri stellingar þegar ég
skrifa á pappír. Bloggfærsla getur
verið ein lína en getur líka verið
löng grein, getur verið lítill út-
úrsnúningur eða eitthvað sem er
ákaflega málefnalegt og úthugsað.
Það er líka það sem er heillandi,“
sagði Egill.
Þegar gengið er of langt
Egill segir að þetta sé að sjálf-
sögðu tvíeggjað vopn sem á sínar
slæmu hliðar. „Skuggahliðarnar
eru svo þessi hystería sem grípur
stundum um sig á blogginu og
hvað svona vondar hugmyndir og
vond sýn á hlutina getur náð mik-
illi útbreiðslu á skömmum tíma.
Lúkasarmálið er oft nefnt sem
dæmi um það en við höfum líka
mýmörg önnur dæmi eins og þeg-
ar menn æstu sig gegn femínistum
í vetur og stór hópur fólks gekk
allt of langt.“
Bloggið og stjórnmálin
Egill segir stjórnmálamenn og
stjórnmálaflokkana fylgjast grannt
með blogginu. „Þú sást fyrir síð-
ustu kosningar að annar hver
stjórnmálamaður var að blogga en
síðan eru þeir flestir horfnir núna.
Þeir þurftu líka að berjast á þess-
um vettvangi en eftir kosning-
arnar sitjum bara við þessir gömlu
bloggarar eftir, ég, Björn Bjarna-
son og Össur og svo fjöldi
óbreyttra borgara. En maður sér
hvað þetta er tvíeggjað fyrir
stjórnmálamenn, það getur verið
svo stanslaus ófriður til dæmis í
kringum ráðherra sem blogga
mikið, eins og er í kringum Össur
og Björn. En á hinn bóginn er það
náttúrulega aðdáunarvert, því við
vitum þá hvað þessir menn eru að
hugsa. Ég veit ekki mikið hvað til
dæmis Árni Mathiesen eða Krist-
ján Möller eru að hugsa. Þetta er
miklu opnara aðgengi sem við höf-
um að bloggurunum og kannski er
þarna kominn nútíminn í stjórn-
málum,“ sagði Egill.
Er bloggið að breyta íslensku
þjóðfélagi?
„Já, lífið er miklu óþægilegra
fyrir stjórnmálamenn held ég.
Þetta er ótrúlega gott aðhald, ef
við tökum sem dæmi ráðningu
héraðsdómara á Norðurlandi um
daginn þá varð þetta mál miklu
erfiðara vegna þess hvað það eru
margir að fjalla um það á netinu
og fyrir vikið dvelur það lengur í
vitund fólks. Þó að það sé að finna
þessa tilhneigingu til móðursýki
og tilhneigingu til ofurviðbragða
þá hefur bloggið flesta kosti nokk-
uð opins lýðræðis,“ sagði Egill.
Straumurinn varð
að beljandi fljóti
Hann segist ekki hafa velt heim-
spekinni á bak við bloggið svo
mikið fyrir sér. „Ég nota þennan
vettvang til að starfa á. Þetta er
bara einhver straumur sem ég
settist út í fyrir löngu og nú er
hann orðinn að stóru beljandi
fljóti. Ég verð að segja að það sem
gerðist í kringum moggabloggið
kom bara frekar flatt upp á mann,
það er að segja að það skyldi á svo
skömmum tíma verða svona rosa-
lega stórt og mikið. Það var auð-
vitað mikið til vegna þess hvað
formið var aðgengilegt,“ sagði Eg-
ill að lokum.
athugasemdirnar því á þessum miðli
blæs ég í minn lúður og þá finnst mér
að menn eigi að eiga kost á því að
vera mér ósammála. Samt held ég
fast í ákveðnar reglur sem ég þarf
stundum að minna á. Ég leyfi mönn-
um að vera illyrtir í minn garð. Jafn-
vel þegar menn saka mig um að sitja
drukkinn og blogga og þaðan af
verra læt ég það standa en þegar
menn ráðast á aðra, sem ekki eru að-
ilar að mínum miðli, tek ég það út og
segi mönnum frá því. Það hefur ekki
gerst oft en menn hafa ráðist með
gríðarlegum köpuryrðum á bæði
Halldór Ásgrímsson og Davíð Odds-
son og eins hafa menn skrifað mjög
rætnar athugasemdir um fjölskyldur
stjórnmálamanna í öðrum flokkum
en mínum og það tek ég út. Þetta
hefur held ég gerst þrisvar eða fjór-
um sinnum. Það eru ákveðnar lág-
marks umferðarreglur í gildi og ég
er löggan,“ sagði Össur og bætti við:
„Ég hef aldrei tekið neitt út um sjálf-
an mig þó að minni ágætu eiginkonu
hafi oft þótt nóg um.
„Bloggið bjargaði
pólitísku lífi mínu“
Össur segir að bloggið sé ákaflega
mikilvægt pólitískt tæki fyrir sig.
„Ég held því fram að ég sé á „lífi eftir
langa dvöl, sigra og ósigra í stjórn-
málum út á mitt blogg. Ég held að ég
hafi gengið í gegnum endurnýjun
pólitískra lífdaga vegna bloggsins.
Því þar kynntust menn mér með allt
öðrum hætti, fengu miklu nánari
kynni af mér og fengu hugsanlega
fyllri mynd af því hvers konar maður
ég er. Ég held að þar hafi komið í ljós
að ég er ástríðuþrunginn stjórn-
málamaður sem í hita augnabliks tek
oft harða afstöður og leyfi fólki að sjá
það. Á blogginu legg ég iðrin á borð-
ið, svona er ég innan í mér, hvort sem
fólki líkar betur eða verr. Ég veit
ekki hvort það hefur orðið til þess að
fólki líki betur við mig sem stjórn-
málamann en ég er sannfærður um
að það virðir mig meir sem slíkan af
því að ég hef sterkar skoðanir sem
eru tilbrigði við mín meginstef. Ég er
jafnaðarmaður sem er á móti auð-
valdinu og með þeim sem eru þjáðir
og smáðir,“ sagði Össur.
Össur segist vera svolítið hégóma-
gjarn eins og margir stjórn-
málamenn og að ef einhver hrósar
honum fyrir vel saman settan pistil
þá finnst honum að þeim degi hafi
ekki verið varið til einskis. „Bestu
pistlarnir mínir hafa haft pólitíska
undirtóna en verið gamansamir.
Einu sinni skrifaði ég ágætan pistil
um það þegar ég var í líkamsrækt
með Clint Eastwood og Geir H.
Haarde en sá pistill sem vakti hvað
mesta athygli var þegar Kjartan
Gunnarsson hætti sem fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
og ég skrifaði um hann pólitísk eft-
irmæli með fyrirsögninni Pólitískur
„fixer“ kveður. Það voru ekki allir
ánægðir með hann en ég var ánægð-
ur með hann og ég minnist þess að
tvö blöð birtu hann,“ sagði Össur.
Dúndurtæki fyrir
stjórnmálamann
Hann heldur því fram að bloggið
sé hnífskarpt pólitískt tæki fyrir
stjórnmálamenn ef þeir nota það
rétt. Og tekur sem dæmi að það sé
gaman að lesa bloggið hans Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra.
„Hann er pottþéttur textagerð-
armaður og það er gaman að lesa um
það þegar hann er að keyra traktor-
inn sinn í Fljótshlíðinni. Ég og Björn
njótum þess auðvitað að við erum
gamlir blaðamenn,“ sagði Össur.
„Það er auðvelt að koma hlutum á
framfæri á blogginu því þeir berg-
mála í öðrum miðlum, endurkastast
og leiftra annars staðar frá. Mörgum
stjórnmálamönnum finnst eftirsókn-
arvert að vera mikið í fjölmiðlum,
það má vera að ég sé kominn yfir
það. Allavega forðast ég blaðamenn
heldur en að leita þá uppi þessi miss-
erin en ég hugsa að drjúgur hluti af
umfjöllun fjölmiðla sem mig varðar
sé einhvers konar endurspeglun þess
sem ég hef verið að skrifa á blogginu
og að því leytinu til er þetta alveg
dúndur tæki.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 29
Þjóðfélag er eitt marg-breytilegt og stundumstórfurðulegt fyrirbæri.Þetta er samfélag manna
sem hafa sett alls kyns lög, boð,
reglur og hefðir svo takast megi
að lifa saman í sæmilegri sátt og
samlyndi. En því fer fjarri að
þetta samansafn af hvað megi og
hvað ekki dugi til samlyndis.
Stundum er það bara hreint ekki
fyrir hendi og maður sér fólk vega
mann og annan, bæði í eiginlegri
og óeiginlegri merkingu. Þá er á
stundum hart brugðist við – beitt
refsingum, allt frá dómum um
innisetur svo að árum skiptir til
félagslegs þrýstings, þar sem stór
hópur fólks sýnir í tali og riti van-
þóknun sína, eftir því hvert til-
efnið er. Þeir sem brotið hafa af
sér, í hvaða mæli sem er, bregðast
við allt frá því að vera iðrandi
syndarar til þess að sýna fádæma
forherðingu og jafnvel hlæja að
öllu saman.
Svo er hin hliðin á peningnum –
þegar samfélagið tekur að leitast
við að verðlauna fyrirmyndar
hegðun og góðmennsku. Þetta er
jafnvel stundum gert með afar há-
tíðlegum hætti, viðkomandi eru í
fínasta falli boðnir heim til forset-
ans, sem alvarlegur en með næst-
um ómerkjanlegar brosviprur í
svip sínum úthlutar fyrir-
myndarfólkinu fálkaorðu af mis-
munandi gráðu, væntanlega eftir
hlutfalli fyrirmyndarhegðunar-
innar. Svo koma til blöð, tímarit
og fyrirtæki sem útnefna hetjur
eða ótrúlega gott fólk. Það er
sannarlega stundum furðulegt að
fylgjast með öllu þessu. Sjá fólk
sem er í raun bara ágætt úthrópað
fyrir að segja skoðun sína – og
svo hina sem maður veit að eiga
til töluverðan ótuktarskap vera
hafna upp fyrir góðgjörðir. En
svona er samfélagið, það hefur
þörf fyrir þetta dómarastarf og
hefur óræða ánægju af öllu sam-
an, til sögunnar kemur gott um-
ræðuefni, – ýmist er þá talað í
hneykslunartón eða aðdáunarrómi.
Í Biblíunni er talað um að góð
verk séu gerð, þegar hægri höndin
veit ekki hvað sú vinstri gjörir. Sú
ágæta regla er vafalaust ástunduð
af sumum, en furðumargir virðast
sjá um með einhverjum hætti að
sem flestir viti af „góðverkum“
þeirra, – en gá ekki að því að um
leið hættir verknaðurinn að vera
„góður“, hann verður hégómlegur
og snýst í versta falli upp í það að
fólk berji sér á brjóst í sjálfs-
aðdáun. Svo eru þeir ríku sem á
stundum kaupa sér hylli og virð-
ingu með „góðverkum “sem það
auglýsir. Mér finnst fólk oft mis-
skilja hvað góðmennska og hjálp-
semi er. Þeir eru góðir sem hjálpa
þegar þörf er á, án þess að ætlast
til endurgjalds. Hjálpsemi er að
leggja lið þótt það sé óþægilegt og
jafnvel hættulegt.
En allt okkar dagfar verður
sjálfsagt dæmt á efsta degi, – lagt
saman og dregið frá eftir því sem
við á af hinum endanlega dómstóli.
Fyrir óbreytta þegna er óneit-
anlega vert að skoða eftir megni
félagslegu hegðun í umhverfinu.
Það skerpir skilning og stuðlar að
eðlilegra sjálfsmati. Hafa ber í
huga að velgjörðir eru oftast af
hinu góða – en auglýstar geta þær
snúist í hégómlega og sjálfs-
dýrkun. Sinnuleysi og vafasamar
gjörðir geta endað í einelti og ill-
mennsku. Fróðlegt að skoða at-
burði og frásagnir með þessum
„gleraugum“. En það auðvitað er
erfitt að dæmi þegarmaður er
sjálfur hluti af þessari samfélags-
legu heild.
þjóðlífsþankar
Hvað er að vera góður?
Guðrún Guðlaugsdóttir
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Sími 551 3010
www.sjofnhar.is
smá-
auglýsingar
mbl.is
Aðalfundur VR
verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica
mánudaginn 31. mars nk. og hefst kl. 19:30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
www.ferdamalastofa. is
KAUPIR ÞÚ FERÐIR
AF FAGAÐILUM?
Fer›askrifstofum og fer›askipuleggjendum er skylt a› nota
sérstakt au›kenni (sjá a› ofan) Fer›amálastofu í hvers kyns augl‡singum
um fljónustu sína sem beinast a› neytendum og á heimasí›u sinni,
svo neytendur geti gengi› úr skugga um a› tilskilin leyfi séu fyrir hendi.
Au›kenni flessi sta›festa a› fer›askrifstofur og fer›askipuleggjendur
sem selja fljónustu sína, innan lands jafnt sem utan, fullnægja kröfum
laga nr. 73/2005 um skipan fer›amála. Gef›u fleim gaum!
Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
– gefðu þá þessum merkjum gaum
Upplýsingar um leyfishafa Ferðamálastofu
er að finna á vefnum